Morgunblaðið - 10.07.2002, Blaðsíða 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2002 25
Rennslismælar
Við mælum með
Fiskislóð 26 · Sími: 551 4680 · Fax: 552 6331
www.sturlaugur.is
i i l í i
l i
iskislóð 26 Sími: 551 4 80
www.sturlaugur.is
f ron . i s
Einbýlishús
Einbýli óskast vestan
Elliðaár fyrir fjársterkan aðila. Má
kosta um 30 millj.
Einbýli óskast í Skerjafirði,
vesturbæ, Seltjarnarnesi
eða Þingholtunum Verðhugmynd
20-25 millj. eða dýrara. Uppl. gefur Finn-
bogi.
Gamli vesturbærinn Um 80 fm
hús á tveimur hæðum. Nýtt eldhús, bað
og gólfefni. Sætt dúkkuhús með tveimur
inngöngum. Verð kr. 11 millj.
Tveggja íbúða hús Um 163 fm
sérhæð og 70 fm 2ja herb. íbúð við
Staðarsel í Rvík. Auk þess 45 fm tvöfaldur
bílskúr. Nýlegar innréttingar. Verð alls kr.
26,9 millj.
Rað- og parhús
Seljahverfi Mjög gott raðhús á
tveimur hæðum með stæði í bílskýli.
Parket og flísar á gólfum. Nýmálað að
utan. Verð 16,2 millj.
Raðhús óskast í Kópavogi
eða Grafarvogi fyrir ákveðna kaup-
endur.
Hæðir
Hæð í vesturbænum óskast
fyrir virðulegan kennara og landsfrægan
mann. Fjögur herbergi eru nauðsynleg en
þó ekki skilyrði.
Helgaland - Mos. Um 100 fm
hæð á 1. hæð í tvíbýli. Fallega innréttuð.
Stórt bað og nýleg innrétting í eldhúsi. 38
fm bílskúr fylgir. Áhv. 5 millj. húsbréf.
Verð kr. 14,3 millj.
Klapparstígur Um 163 fm
glæsileg íbúð í risi í fallegu steinhúsi.
Nýtt bað og eldhús í góðum stíl. Rúm-
góðar stofur, þrjú svefnherbergi.
Þvottahús og geymsla í íbúð. Stórar
stofur og vestursvalir. Áhv. 11 millj.
húsbréf og lífsj.
5 herb.
Gaukshólar - „Penthouse“
150 fm mjög glæsileg íbúð á 7. og 8. hæð
í góðri lyftublokk. Íbúðin er öll nýstandsett
með sérhönnuðum vönduðum innrétting-
um, tvær stofur, tvö baðherbergi, tvennar
svalir, frábært útsýni. Sérbílskúr fylgir.
Sérlega glæsileg eign. Áhv. 7,2 millj.
húsbréf. Verð 18,9 millj.
4ra herb.
Bjartahlíð - Mos. 128 fm falleg
íbúð á 3ju hæð með sólskála og suður-
svölum í nýlegu húsi. Verð kr. 14,8 millj.
Áhv. 5,8 millj.
Seljahverfi Um 93 fm góð íbúð á 3.
hæð. Parket og gott skápapláss.
Suðursvalir og stæði í bílskýli. Áhv. 5,7
millj. húsbréf. Laus fljótlega. Gott
verð.
3ja herb.
Reyrengi Um 83 fm íbúð á 2. hæð
með sérinngangi af svölum. Nýmálað hús.
Verð kr. 11,3 millj.
Þriggja herb. íbúð óskast Má
vera í Kópavogi, Grafarvogi eða miðbæ.
Staðgreiðsla í boði.
Seilugrandi Um 86 fm íbúð á 2.
hæð. Stór geymsla. Stæði í bílskýli. Íbúðin
er laus í dag, lyklar á skrifstofu. Verð kr.
11,9 millj.
Grettisgata Um 90 fm íbúð á 2. hæð
sem er verið að standsetja. Bílskúr fylgir.
Verð kr. 16,5 millj.
2ja herb.
Þingholtin Mjög góð 46 fm íbúð á 1.
hæð. Nýlegar innréttingar. Verð 7,3 millj.
Áhv. 3,7 millj. húsbréf. EINKASALA.
Tveggja herb. óskast í Breið-
holti, miðbæ eða í Kópavogi. Allt stað-
greitt.
Til leigu
Til leigu við Síðumúla um 40-
150 fm skrifstofuhúsnæði á mjög góðum
stað með nýjum innréttingum. Góð að-
koma og bílastæði. Uppl. gefur Finnbogi í
s. 897 1819.
Atvinnuhúsnæði
Síðumúli Um 588 fm gott skrifstofu-
húsnæði á 2. hæð. Vel staðsett og sýni-
legt hús. Hentugt fyrir fjármála- og þjón-
ustufyrirtæki. Áhv. góð langtímalán.
Uppl. gefur Finnbogi í s. 897 1819.
Nýbyggingar
Grafarholt Um 121 fm hús á einni
hæð og 20 fm bílskúr sem stendur sér.
Húsið er fokhelt að innan í dag en
fullbúið að utan. Góður staður. Verð kr.
14.8 millj.
Möðrufell - nýtt Snotur 63 fm
íbúð á 2. hæð, góðar innréttingar,
suðursvalir. Verð kr. 7,9 millj.
„Penthouse“ í vestur-
bænum Vönduð 138 fm „pent-
house“-íbúð í nýlegu húsi. Allt sér í
íbúð. Merbau-parket og flísar á gólf-
um. Sérsmíðaðar innréttingar, rótar-
spónn, granít og stál. Sérþvottahús
og geymsla innan íbúðar. Íbúðin snýr í
suður, björt með góðu útsýni. Góður
bílskúr með geymslulofti. Tvö svefn-
herbergi. Áhv. byggsj. og lífsj. kr. 9,6
millj. Verð kr. 19,1 millj.
F R Ó N
F R O N
F A S T E I G N I R Í
F Y R I R R Ú M I
SÍÐUMÚLA 2
108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1313
fron@fron.is
SJÁLFVIRK SLÖKKVITÆKI
FYRIR SJÓNVÖRP
Heildarlausnir í brunavörnum
H. Blöndal ehf.,
Þórkötlustöðum, 240 Grindavík.
Sími: 426 8305 - Farsími: 697 7572
Netfang: hoskuldur@hblondal.com
Heimasíða: www.hblondal.com
Þau geta komið í veg fyrir stórbruna!
Hönnuð af rússnesku geimferðastofnuninni.
Prófuð með 100% árangri af
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
og tryggingafélögum.
Samþykkt af Hollustuvernd ríkisins.
Viðhaldsfrítt í 10-15 ár
Pantaðu strax í dag, á morgun getur það verið of seint.
Fást gegn póstkröfu og einnig með ísetningu.
EITT lítið andartak, ein feilnóta
slegin í augnabliksæði og allt er í
uppnámi. Nýja myndin hans Adrians
Lyne (sem jafnan verður kenndur
við tímamótatryllinn Fatal Attract-
ion) hefur ótvíræðan boðskap að
bera, sóttan beint í Boðorðin 10: Þú
skalt ekki drýgja hór.
Allavega ekki þegar lífið brosir við
þér, sem er ótvírætt hlutskipti
Summer-hjónanna, Connie (Diane
Lane) og Edwards (Richard Gere).
Þau hafa komið ár sinni vel fyrir
borð. Hann er velstæður kaupsýslu-
maður í New York, hún annast
glæsilegt heimili þeirra í dýru út-
hverfi (White Plains), og soninn
Charlie (Erik Per Sullivan), indælan
viðutan hnokka á grunnskólaaldri.
Edward stundar vinnuna, hún
skreppur af og til niður á Manhattan
að drepa tímann, húshjálpin sér um
stússið. Lífið gengur sinn vanagang
þangað til einn slæman veðurdag að
rokið feykir (í orðsins fyllstu merk-
ingu) frú Summer í fangið á ungu
kvennagulli. Hann heitir Paul Mart-
el (Oliver Martinez), er franskur
kaupsýslumaður og herramaður sem
býður Connie aðstoð því hún hefur
hruflað sig á hnénu. Þar með byrjar
ballið. Hin vel stæða og að því er
virðist alsæla og heiðvirða forstjóra-
frú kiknar í hnjákollunum og stenst
ekki ungæðislegan sjarma folans og
upphefst eldheitt ástarævintýri, fyr-
irfram dauðadæmt einsog flest önn-
ur af slíkum toga.
Fullkomin fagmennska Unfaithful
á flestum sviðum kemur á óvart.
Hún segir átakanlega en seiðmagn-
aða sögu um ótryggð, sekt og geig-
vænlegar afleiðingar á útúrdúra-
lausan og kraftmikinn hátt - undir
niðri sem á yfirborðinu. Vekur
grundvallarspurningar um lífið og
tilveruna sem áhorfandinn kemst
ekki hjá að velta fyrir sér. Connie
virðist búa við allt sem ein kona
þarfnast. Ást, umhyggju, gott heim-
ili, félagslegt og fjárhagslegt öryggi,
líkamlegt og andlegt ástand
hjónanna í besta standi. Þó kemur
ein vindhviða af stað atburðarás sem
færir öllum slíka óhamingju að ekk-
ert situr eftir annað en sársauki og
ógæfa. Er Connie búin að ná því
marki að það bíður hennar í rauninni
ekkert annað en hversdagslegur
vanagangur? Eftirsóknarverður að
sjá en um leið viss endapunktur sem
mönnum gengur misvel að sætta sig
við. Sama gildir um Edward, hann
vaknar upp við það einn daginn að
brestur er kominn í það sem honum
er dýrmætast í lífinu og verður ekki
bættur fyrir öll heimsins auðæfi.
Þriðja hjólið undir vagninum, hinn
lífsglaði og aðlaðandi Paul er ungur
og leikur sér að eldinum eins og hann
viti ekki af hættunni.
Lífið er enginn leikur, holdið er
veikt og sjálfsagt getum við öll lent í
hliðstæðum kringumstæðum og
Connie í rokinu í Soho. Þá reynir á
hvað í okkur býr.
Lyne kemur ástríðufullri og
drungalegri sögunni óaðfinnanlega á
tjaldið svo úr verður nokkuð löng en
mögnuð dæmisaga. Máluð sterkum
litum og handritshöfundarnir vinda
henni áfram á réttum nótum í tilfinn-
ingalegu ofvæni frá fyrstu mínútu til
endalokanna. Handritshöfundarnir
eru margfaldir Óskarsverðlaunahaf-
ar; Alvin Sargent (Julia, Ordinary
People) og William Bryles Jr.
(Apollo 13). Auk þess eiga þeir að
baki verk einsog Cast Away, White
Palace og Spider-Man. Kvikmynda-
tökumaður er snillingurinn Peter
Biziou (The Truman Show, Pink Flo-
yd’s The Wall, Óskar fyrir Mississ-
ippi Burning). Leikararnir standa
sig firna vel. Gere hefur tæpast verið
betri en hinn hamingjusami, síðan
kokkálaði og að lokum örvæntingar-
fulli eiginmaður og heimilisfaðir;
Diane Lane er bæði kynþokkafull og
góð leikkona sem hefur sjaldan feng-
ið tækifæri til að skína fyrr en nú og
túlkar ótrúlega vel góða og hlýja
manneskju sem jafnframt á sína
veiku punkta og er barmafull af
ástríðum. Hér getur hæglega verið
Óskarsverðlaunatilnefning í uppsigl-
ingu.
Franski hjartaknúsarinn Oliver
Martinez er þriðji gæðaleikarinn
sem hittir í mark, sem hinn full-
komni draumaprins úthverfisfrúar-
innar. Ekki enn klár á umferðarljós-
unum, á þó samúð manns. Þá má
ekki gleyma tónlist Jans Kaczm-
areks sem er m.a. krydduð seiðandi
Afríkublús félaganna Ry Cooders og
Ali Farka Toure. Öllu þessu ágæta
fólki hefur tekist að skapa eftir-
minnilega, ástríðufulla harmsögu
þar sem þátttakendur eiga sér ekki
viðreisnar von.
Öll sund lokuð
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn, Borg-
arbíó Akureyri
Leikstjóri: Adrian Lyne. Handrit: Alvin
Sargent, William Broyles, Jr. Kvikmynda-
tökustjóri: Peter Biziou. Tónlist: Jan A.P.
Kaczmarek. Aðalleikendur: Richard
Gere, Diane Lane, Oliver Martinez, Erik
Per Sullivan, Myra Lucretia Taylor, Mich-
elle Managhan, Chad Lowe. Sýningartími
124 mín. 20th Century Fox. Bandaríkin
2002.
UNFAITHFUL (ÓTRYGGÐ) Draumaprins úthverfafrúarinnar: Oliver Martinez og Diane Lane í eld-
heitum faðmlögum í hinni seiðmögnuðu og sektarþrungnu Unfaithful.
Sæbjörn Valdimarsson
SKÁLDSAGAN Ást
á rauðu ljósi eftir
Jóhönnu Kristjóns-
dóttur hefur verið
gefin út á ný en
hún kom fyrst út
árið 1960.
Þegar bókin leit
fyrst dagsins ljós
vakti hún mikla
athygli og þótti óvenjudjörf. Í tilkynn-
ingu segir þó að gagnrýnendum hafi
borið saman um að bókin væri lip-
urlega skrifuð og skemmtileg aflestr-
ar.
Bókin seldist á sínum tíma upp á
nokkrum vikum og hefur verið næsta
ófáanleg síðan og illfundin á bóka-
söfnum.
Ást á rauðu ljósi var fyrsta bók Jó-
hönnu og var hún tvítug þegar bókin
kom út en síðan þá hefur hún sent
frá sér sex aðrar skáldsögur og
ferðabækur, nú síðast bókina
Insjallah – á slóðum Araba.
Á næstunni verður bókinni dreift til
þeirra sem skráðu sig í áskrift að
henni fyrir útgáfu en einnig verður
hún fáanleg í helstu bókabúðum.
Skáldsaga