Morgunblaðið - 10.07.2002, Qupperneq 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2002 35
Elsku pabbi. Hver
hefði trúað því þegar
þú komst í Staðarskála
á leiðinni suður að það
yrði í síðasta skiptið sem að ég
myndi sjá þig. Það eru að verða
komnar þrjár vikur síðan þú fórst frá
okkur og þú getur ekki ímyndað þér
hvað ég myndi gera allt til að fá þig
aftur. Þó að þú gætir nú oft farið í
taugarnar á mér varstu nú alltaf
pabbi minn og mér þótti alltaf vænt
um þig. Mér finnst bara einsog að þú
sért úti á sjó og komir heim eftir
nokkra daga en þegar ég fer að
hugsa aðeins átta ég mig á því að þú
kemur aldrei aftur, ég fæ aldrei að
sjá þig aftur. Ég er svo reið og sár
ÞÓRARINN
EIÐSSON
✝ Þórarinn Eiðs-son fæddist á
Blönduósi 18. júlí
1962. Hann lést er
hann fór útbyrðis af
frystitogaranum
Arnari HU 1 14. júní
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Hólaneskirkju á
Skagaströnd 22.
júní.
yfir því að þú skulir
vera farinn, að þú hafir
verið tekinn í burtu frá
okkur og það er svo
margt eftir. Þú missir
af fyrsta barnabarninu
þínu og ég veit að þig
var farið að langa í eitt,
þú varst alltaf að
spyrja mig hvort ég
væri ekki bara ólétt
þegar mér var illt í
maganum. Þú varst
alltaf tilbúinn að hjálpa
mér þegar mig vantaði
hjálp, sama hvað það
var. Elsku pabbi minn,
þú skildir okkur eftir í mikilli sorg og
núna bið ég þig að fylgjast með okk-
ur og hjálpa okkur að komast áfram í
lífinu.
Þín dóttir
Kolbrún Freyja.
✝ Þórhallur LárusStígsson fæddist
að Eiði í Grindavík
10. júní 1938. Hann
lést á líknardeild
Landspítala í Kópa-
vogi 30. júní síðast-
liðinn.
Foreldrar Þór-
halls voru Stígur
Guðbrandsson út-
vegsbóndi, síðar lög-
regluþjónn, og kona
hans, Vilborg Jóns-
dóttir. Stígur var
sonur Guðbrands,
verkamanns í Rvík,
Jónssonar, og konu hans, Júlíönu
spákonu Stígsdóttur, b. á Hvassa-
hrauni í Hafnarfirði, Auðunssonar,
hafnsögumanns í Hafnarfirði,
Stígssonar. Móðir Auðuns var
Oddný Steingrímsdóttir, b. á Hof-
dölum í Skagafirði, Ólafssonar,
bróður Ragnheiðar, langömmu
Benedikts, föður Einars skálds.
Vilborg var dóttir Jóns, b. og
formanns á Hópi í Grindavík, Jóns-
sonar, b. í Kvíadal í Grindavík,
Jónssonar. Móðir Jóns í Kvíadal
var Vigdís Gísladóttir, systir Gests
á Hæli, langafa Steinþórs Gests-
sonar, fyrrv. alþingismanns. Móðir
Jóns á Hópi var Vilborg Einars-
dóttir, b. í Laxárdal í Eystrihreppi,
Jónssonar, ættföður Laxárdalsætt-
arinnar. Móðir Vilborgar Jónsdótt-
ur var Guðrún Sigurðardóttir, b.
Daníel Aron, Sverrir Franz og
Anton Örn. Seinni kona Þórhalls
er Jóna Karlsdóttir, f. 11. júlí 1950.
Foreldrar Jónu eru Karl Ingimars-
son, verkamaður í Rvk., og Stella
Stefánsdóttir. Synir Jónu og Þór-
halls eru Stígur Vilberg, f. 6. októ-
ber 1980, unnusta hans er Elva Rós
Hauksdóttir, og Albert Þór, f. 7.
mars 1987.
Þórhallur varð löggiltur endur-
skoðandi 1966 og starfaði við end-
urskoðun og ráðgjöf síðan. Hann
aflaði sér ennfremur viðbótar-
menntunar við bandaríska háskóla
og á námskeiðum hjá bandarískum
stjórnvöldum. Þórhallur starfaði
mikið að félags- og unglingamál-
um og var stofnandi og fyrsti
gjaldkeri Ungtemplarafélagsins
Hrannar í Reykjavík. Hann var
einn stofnenda og í fyrstu stjórn
Knattspyrnufélags Keflavíkur og
Íþróttabandalags Keflavíkur og
einn stofnenda JC Suðurnesja.
Þórhallur var formaður Knatt-
spyrnuþjálfarafélags Íslands og
formaður tækninefndar KSÍ. Hann
var stofnandi júdódeildar UMFK í
Keflavík og fyrsti þjálfari hennar
með Íslandsmeistara á fyrsta ári.
Þórhallur var einn aðalhvatamað-
ur að stofnun Júdósambands Ís-
lands og varaformaður í fyrstu
stjórn þess. Hann var með þjálfara-
réttindi jafnt á Íslandi sem og í
Breska samveldinu sem knatt-
spyrnuþjálfari og vann töluvert að
knattspyrnuþjálfun, leiddi m.a. 2.
fl. Vals til sigurs bæði í Íslands- og
Reykjavíkurmóti án þess að tapa
leik árið 1976.
Útför Þórhalls fór fram frá Foss-
vogskirkju 9. júlí.
og hreppstjóra á Hópi
í Grindavík, Sigurðs-
sonar, b. á Gjáhúsum í
Grindavík, Ólafsson-
ar. Móðir Sigurðar var
Rannveig Beinteins-
dóttir, lögréttumanns
á Breiðabólstað í Ölf-
usi, Ingimundarsonar,
b. í Hólum, Bergsson-
ar, b. og hreppstjóra í
Brattholti, Sturlaugs-
sonar, ættföður
Bergsættarinnar.
Systkini Þórhalls eru
Jón, f. 24. september
1927, forstöðumaður
sérleyfisbifreiða Keflavíkur,
kvæntur Ingibjörgu Björnsdóttur,
Heimir, f. 17. október 1933, ljós-
myndari í Keflavík, kvæntur Öldu
Sigurðardóttur, Dagbjartur, f. 4.
febrúar 1937, húsgagnahönnuður,
kvæntur Hrafnhildi Ágústsdóttur,
Eggert, f. 13. ágúst 1941, d. 12. jan-
úar 1944, og Edda Borg, f. 18. sept-
ember 1945, d. 18. september 1994,
gift Ole Magnussen.
Þórhallur var tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Ingibjörg Guðna-
dóttir, með henni átti hann tvo
syni. Þeir eru: Arinbjörn smiður, f.
4. ágúst 1962, hans kona er Björg
Alexanderdóttir og eiga þau son-
inn Alexander, f. 28. okt. 2001; og
Guðni Ragnar, f. 17. des 1966, raf-
virki, hans kona er Júlíanna T.
Jónsdóttir og þeirra synir eru
Við kveðjum með söknuði kæran
vin og tengdason okkar, Þórhall
Stígsson. Hann lést eftir langa og
stranga baráttu við hinn illvíga
sjúkdóm krabbameinið.
Við sem fylgdumst með honum
síðustu mánuðina, gátum ekki ann-
að en dáðst að æðruleysi hans og
bjartsýni. Hann var ákaflega
vinnusamur, byrjaði daginn
snemma og vann fram á nótt.
Hann gat aldrei sagt nei við verk-
efnum og því vildu verkefni hlað-
ast á hann meir en hann réð við.
Okkar kynni hófust fyrir um 25
árum er dóttir okkar kynnti okkur
fyrir honum. Hann var hár og
þrekvaxinn, myndarmaður og
tókst með okkur góð vinátta. Við
ferðuðumst saman bæði innan-
lands og utan. Vorum saman í
sumarhúsum víðsvegar um landið
og eigum margar ógleymanlegar
stundir með fjölskyldunni. Hann
hafði mjög gaman af eldamennsku
og var með afbrigðum gestrisinn.
Helst vildi hann hafa sem flesta í
mat og var þá alltaf með að
minnsta kosti tvo rétti eða fleiri.
Þórhallur gerði víðreist um heim-
inn og alltaf tók hann með ein-
hvern minjagrip, sem hann gaf
okkur tengdaforeldrunum. Þór-
hallur var stórhuga og hugmynda-
ríkur og hefði þurft annað líf til
viðbótar til að framkvæma allt sem
honum hugkvæmdist.
Að lokum biðjum við guð að
blessa dóttur okkar, synina og fjöl-
skyldur þeirra og kveðjum Þórhall
með söknuði.
Stella og Karl.
ÞÓRHALLUR LÁRUS
STÍGSSON
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með-
allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 551 3485 • Fax 568 1129
Áratuga reynsla
í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Vaktsími allan sólarhringinn
896 8284
!
" ###
$%&' ##
$%#( !$
)%&' $*+ ##
##
% %' % % %'
,
!
"#$%#&'()"*+,(+-&()
-#!!#!)
" $#% !#./
.
/
/
/
12 /
01 2331
*,!% ,, /
4,& )*,
34
5
!5!!1 !5 $
!&!5 $ !5!
"$6## !& !
4 $ !5!## !!,
!5 $1 ) !! !5!##
!!- !& , 78
#* !&##
$#9 !& #* ! ##
$! !&## *$ !&
4 $1 )"&'*
*$ !5!%'
. /
/
- 1 131331
" $#:#;<
,!4
3 6
7 ( 1 0
8
$'## *$ $
"& $5 =+& ##
>$ "$5*!9$##
! -# ## $ ! 5!
$ "'## ?)
% %' % % %'
1 (2"
4)8#5 !
#* ;
3 9 " )1 :
79 5 )1
8
519 1
9 " *9$## +&
.
?1
+$'!
$) +,###'),
LEGSTEINAR
Komið og skoðið
í sýningarsal okkar eða
fáið sendan myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík
sími: 587 1960, fax: 587 1986