Morgunblaðið - 10.07.2002, Síða 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2002 41
! " ""# $%&'(% ( )"" ""** + )"" ""*,
! "# $ % "&# ' (
)*+
, ,
-
, ,
/ .
0
1##1 ' (
2 '( &31 4
#" ' (
5 6633" 5
177#3 ' (
/+
8 0 9
0
:);*
0
0
<
8
:/; 8 !8 0!8
$
8 8 < 8 < ,
0. 8
61
&37 6131#
.
/0
!1
2
%%
3
!
'
.
' (
LEIFSHÁTÍÐ í Dölum verður
haldin um næstu helgi í þriðja sinn.
Á Leifshátíð verður keppt í reiptogi
yfir Haukadalsá, glímu, stökkum,
hlaupum, grjótkasti o.fl. Þá er veiði
í Haukadalsvatni innifalin í að-
gangseyri og verða veitt verðlaun
fyrir vænsta fiskinn. Auk þess er
boðið upp á og sögugöngur um ná-
grenni Eiríksstaða.
„Um 30 handverksmenn og vík-
ingar, flestir frá Danmörku, Noregi
og Íslandi, munu setja upp vík-
ingabúðir við tilgátuhúsið á Eiríks-
stöðum og sumir þeirra verða að
vinna inni í húsinu alla hátíðina.
Boðið verður upp á sýnikennslu í
járnsmíði, útskurði í tré og bein,
vefnaði, tónlist, meðferð vopna og
smakk á Þjóðhildarbrauði, Leifs-
súpu o.fl. Á föstudagskvöldinu
verður kappræðuþáttur er nefnist
Kappar og kvenskörungar. Þar
mun Arthúr Björgvin Bollason,
kappi og framkvæmdastjóri sögu-
setursins á Hvolsvelli, halda fram
hlut Gunnars á Hlíðarenda en
Halla Steinólfsdóttir, kvenskörung-
ur frá Ytri-Fagradal í Dölum, tefla
fram mannkostum Dalakonunnar,
konu Gunnars og örlagavalds, Hall-
gerðar langbrókar. Af öðrum dag-
skrárliðum má nefna að Einar
Kárason mun flyta ávarp á hátíð-
ardagskrá sem hefst kl. 13 á laug-
ardag. Má vænta þess að það verði
í ætt við nýjustu bók hans „Óvina-
fagnað“, sem fékk frábæra dóma og
gerist einmitt á Sturlungaöld er
átti rætur í veldi Sturlunganna frá
Hvammi í Dölum. Þá mun kvenna-
kórinn Vox Feminae undir stjórn
Margrétar Pálmadóttur syngja fyr-
ir hátíðargesti auk kórs heima-
manna og fréttamaðurinn Gísli Ein-
arsson segir gestum kjaftasögur
frá Söguöld – í trúnaði að sjálf-
sögðu.
Meðan á Leifshátíð stendur verð-
ur í gangi fornleifauppgröftur að
Eiríksstöðum í umsjón Guðmundar
Ólafssonar fornleifafræðings.
Næg tjaldstæði eru á hátíðar-
svæðinu og pláss fyrir tjaldvagna
og fellihýsi. Þess má geta að Ei-
ríksstaðir eru aðeins í 150 km fjar-
lægð frá höfuðborgarsvæðinu. Veit-
ingasala verður á staðnum.
Aðgangseyrir að Leifshátíð er 2.000
kr. fyrir fullorðna, 1.000 kr. fyrir
13–16 ára og ellilífeyrisþega en
ókeypis fyrir börn 12 ára og yngri,“
segir m.a. í fréttatilkynningu.
Leifshátíð á Eiríksstöð-
um haldin í þriðja sinn
Ungir sem aldnir hafa sýnt sýningunni að Eiríksstöðum mikinn áhuga.
Í DAG, miðvikudaginn 10. júlí,
gengst Ferðafélag Íslands fyrir
kvöldgöngu á Helgafell við Hafnar-
fjörð. Helgafell er 340 m hátt, klett-
ótt og bratt móbergsfjall, en þó auð-
gengið á rana að norðaustanverðu.
Fjallið er skemmtilegt uppgöngu og
af því víð útsýn yfir Reykjanesskag-
ann og víðar. Þar uppi er gestabók,
sem sjálfsagt er að rita nafn sitt í.
Brottför er frá BSÍ kl. 19.30 og kom-
ið við í Mörkinni 6 og austan við
kirkjugarðinn í Hafnarfirði. Gangan
sjálf hefst við Kaldársel. Áætlaður
göngutími er um þrjár klukkustund-
ir og þátttökugjald 1.000 krónur fyr-
ir félagsmenn en 1.200 fyrir aðra.
Frekari upplýsingar um ferðir
Ferðafélags Íslands má sjá á heima-
síðu þess, www.fi.is.
Gönguferð
á Helgafell
með Ferða-
félagi Íslands
FARIÐ verður í grasaferð laugar-
daginn 13. júlí. Áætlað er að ferðin
taki um 3 klst. frá kl. 11–14. Farið
verður undir leiðsögn Ásthildar Ein-
arsdóttur grasalæknis og fegrunar-
sérfræðings. Tíndar verða jurtir til
tegerðar og fleira við nágrenni Víf-
ilsstaðavatns.
Í ferðinni verður boðið upp á
jurtate og meðlæti, ásamt fræðslu
um ágæti og eiginleika íslenskra
jurta. Hist verður við Vífilsstaðavatn
og þaðan gengið á slóðir jurtanna.
NLFR hvetur almenning til að mæta
og eiga góða stund í íslenskri náttúru
Allir eru velkomnir, jafnt börn sem
fullorðnir. Ásthildur er dóttir Ástu
Erlingsdóttur grasalæknis og hefur
fjölskylda hennar stundað grasa-
lækningar mann fram af manni öld-
um saman, segir í fréttatilkynningu.
Grasaferð
með Ásthildi
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun ungra jafnaðar-
manna í Reykjavík.
„Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík
styðja Félag ungra lækna í baráttu
sinni fyrir betri kjörum og mannúð-
legri vinnutíma. Afar mikilvægt er
að fundin verði ásættanleg lausn á
deilunni, bæði með vinnuverndar-
sjónarmið og eins öryggi almennings
í huga.
Ónóg hvíld og mikið álag sem lagt
er á unglækna stefnir öryggi og jafn-
vel lífi sjúklinga í hættu. Með óhóf-
legum vinnutíma og lítilli hvíld
aukast líkur á að mannleg mistök
eigi sér stað en slíkt er oft alvarlegra
og dýrkeyptara hjá læknum en í öðr-
um starfsgreinum. Það er öllum í
hag að læknar séu úthvíldir við störf
sín.
Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík
skora á heilbrigðisráðherra, samn-
inganefnd ríkisins og samninga-
nefnd Læknafélags Íslands að gera
allt sem í þeirra valdi stendur til þess
að finna farsæla lausn á deilunni við
Félag ungra lækna.“
Styðja félag
ungra lækna
Í BOÐI er vikudvöl með námskeiði
til að hætta reykingum hjá Heilsu-
stofnun NLFÍ í Hveragerði.
Innritun stendur nú yfir á nám-
skeið sem halda á dagana 18. til 25.
ágúst næstkomandi. Upplýsingar og
innritun fer fram hjá Heilsustofnun,
beidni@hnlfi.is og heilsu@hnlfi.is.
Námskeið gegn
reykingum
NÝR haust- og vetrarlisti Free-
man’s er kominn út. Hefur hann að
bjóða vöruúrval fyrir konur á aldrinu
20–50 ára, fatnað fyrir karla og börn.
Þá er einnig boðið uppá rúmföt.
Í frétt frá Freeman’s kemur fram
að margföldunargengi hafi verið
lækkað. Pöntunarlistinn er til sölu í
flestum bókaverslunum en einnig er
hægt að panta hann hjá Freeman’s
við Bæjarhraun í Hafnarfirði.
Nýr listi frá
Freeman’s
SILUNGSVEIÐIN hefur víða ver-
ið frábær og fiskur vænn á sumum
svæðum. Eftirspurn eftir slíkri
veiði hefur og verið vaxandi, því
eins og einhver orðaði það er mikið
framboð þessa dagana á uppgjafa
laxveiðimönnum sem vilja fara að
setja í eitthvað kvikt.
Veiði í Veiðivötnum á Land-
mannaafrétti hefur verið feiknagóð
og samkvæmt upplýsingum frá
veiðihópi sem var þar nýlega er
komið á þriðja þúsund urriða úr
Litlasjó einum saman og yfir 400
stykki til viðbótar úr Stóra-Foss-
vatni. Annars er næstgjöfulasta
vatnið Skyggnisvatn með um 700
fiska, en um 400 þar af eru bleikjur
og er meðalvigtin í vatninu sú lang-
lægsta á Veiðivatnasvæðinu en
vötnin eru einkum þekkt fyrir
stóra urriða. Sá stærsti í sumar var
9,5 punda, veiddur í Hraunvötnum
sem hafa gefið á þriðja hundrað
fiska, líkt og Langavatn. 8,6 punda
urriði hefur veiðst í Litlasjó og 8
punda fiskar í Pyttlum og
Ónefndavatni. Í Stóra-Fossvatni
hafa veiðst allt að 7 punda urriðar,
en meðalþunginn þar er þó í lægri
mörkunum miðað við önnur vötn á
svæðinu. Þar er einungis veitt á
flugu en í öðrum vötnum á svæðinu
má einnig veiða á spón og beitu.
Yfir 2.000 urriðar
Urriðaveiði hefur einnig verið
fantagóð á urriðasvæðum Laxár í
Þingeyjarsýslu, í Mývatnssveit og í
Laxárdal. Fyrrnefnda svæðið var
með um 1.400 urriða skráða fyrir
skemmstu og Laxárdalurinn á
sama tíma um 750 fiska. Oftast
bætir meiri meðalvigt í Laxárdal
upp fyrir færri fiska en efra. Ekki
hefur frést af stærri urriðum en
sjö punda það sem af er og heldur
hafa menn orðið lítið varir við enn
stærri fiska en það eru alltaf ára-
skipti af því hversu mikið er af
yfirstærðarfiski. Frekar hefur ver-
ið kalt við Laxá að undanförnu,
veiði verið misgóð frá degi til dags
en menn fá þó að mestu frið fyrir
mývarginum rétt á meðan.
Frábær silungsveiði
Halla Guðrún Jónsdóttir, 10 ára,
veiddi þennan gullfallega 6,5
punda urriðahæng í Hólkotsflóa
í Laxá í Mývatnssveit á dögun-
um. Fiskurinn tók túpuflugu
sem heitir „Pönkari“.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?