Morgunblaðið - 10.07.2002, Side 46
FÓLK Í FRÉTTUM
46 MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HLJÓMSVEITIN JJ SoulBand er sumum lands-mönnum að góðu kunn.Hún var stofnuð árið
1993 og hefur starfað síðan með
hléum. Hún er skipuð þeim J.J. Soul
söngvara, Ingva Þór Kormákssyni
píanóleikara, Edvarði Lárussyni
gítarleikara, Stefáni Ingólfssyni
bassaleikara og Ingvi Rafn Ingva-
son leikur á trommur. Vörumerki
hljómsveitarinnar er kannski ekki
síst rámur söngur J.J. Soul og frum-
samdar tónsmíðar hans og Ingva
Þórs Kormákssonar, aðallega blús-
og djassættar. Hljómsveitin kemur
fram á djasshátíðinni á Egilsstöðum
núna í vikunni sem og á Akureyri og
í Reykjavík. Á tónleikunum flytur
hljómsveitin mestan part erlent efni
í léttum dúr. Í burðarliðnum er jafn-
framt þriðji geisladiskurinn.
Viðurkenningar
John J. Soul, jafnan nefndur J.J.,
er búsettur í Oxford en samstarf
hans og Ingva Þórs Kormákssonar
hefur vakið athygli út fyrir land-
steinana. Fyrsta plata hljómsveitar-
innar, Hungry for News, kom út
1994 og 1997 kom út City Life.
Hljómsveitin vann til fyrstu verð-
launa fyrir titillag þeirrar plötu í
Rytmablús/djass-flokki alþjóðlegu
lagasmíðakeppninnar USA Song-
writing Contest árið 1997 en árið
áður hafði lagið „Watch Out“ unnið
önnur verðlaun í annarri lagasmíða-
keppni; Hastings International
Songwriters Contest. Fleiri lög
hljómsveitarinnar hafa hlotið viður-
kenningar erlendis.
J.J. Soul bjó hér á landi um árabil
og starfaði sem myndlistarkennari.
Hann kveðst sakna landsins;
bjartra nátta og viðkunnanlegra og
drykkfelldra Íslendinga. „Mig lang-
ar mikið til að flytja aftur hingað og
líklega gerist það fyrr en síðar,“
segir John.
Söguleg skáldsaga
J.J. er reyndar ekki við eina fjöl-
ina felldur því hann starfar einnig
sem rithöfundur og hafa tvær sögu-
legar skáldsögur eftir hann verið
gefnar út í Englandi, þ. á m. ein sem
að hluta til gerist á Íslandi á þjóð-
veldisöld. J.J. kveðst hafa orðið fyr-
ir miklum áhrifum í menntaskóla
þegar hann las Íslendingasögurnar
og gat ekki beðið eftir að komast til
landsins og upplifa umhverfið. Bók-
in hafi verið hans aðferð til þess að
vinna úr þeim áhrifum.
„Nú er ég kominn hingað aftur til
þess að gera þriðja geisladiskinn.
City Life var vel tekið og ég held að
geisladiskurinn sem nú er í smíðum
verði enn betri. Vonandi mun ein-
hverjum falla hann vel í geð en víst
er að sumir munu ekki þola hann,
sem er hið eðlilega ástand hjá okk-
ur,“ segir J.J.
Vinna við diskinn hófst reyndar í
fyrrasumar þegar tekin voru upp
tíu lög en síðan hefur farið fram sí-
unarferli og eftir standa aðeins 6–7
lög sem verða notuð á diskinn og
verður nýjum bætt við núna. „Við
leitum eftir heildstæðum svip. Það
skorti nokkuð á það á fyrstu plöt-
unni okkar en á City Life var rauði
þráðurinn í öllum lögum borgin í öll-
um sínum mismunandi myndum.
Þemað á nýju plötunni er í raun
sjálfskoðun, eða hvernig við metum
hlutina. Dæmi um það er lagið
„Angelique“, sem er dálítið skrítin
saga um stúlku sem vinnur á bar.
Það eiga sér allir sögu – við bara
sjáum þær ekki allar. Mér fannst
gott að setjast niður á Kaffi Reykja-
vík og velta fólki fyrir mér. Ég hef
skrifað að minnsta kosti sex söng-
texta þar. Ég er hins vegar mjög
sjálfsgagnrýninn þegar kemur að
textum og því sem ég er ekki fylli-
lega ánægður með breyti ég eða
hegg það í burtu. Stundum bjargar
Ingvi Þór líka veikum texta með
góðri tónlist,“ segir J.J.
Heildarútgáfa
Diskurinn kemur að líkindum út
fyrir næstu jól. Hljómsveitin er með
forleggjara í Bandaríkjunum sem
stefnir að því að setja geisladiska
hennar á markað í einum kassa.
„Þetta verður þriðja platan okkar
sem er tekin upp í hljóðveri en við
eigum líka eina sem var tekin upp á
tónleikum í Borgarleikhúsinu fyrir
nokkrum árum sem hefur ekki verið
gefin út. Mér finnst hún hljóma vel
en Ingvi Þór er ekki á sama máli og
vill helst ekkert kannast við hana.
En ég sæi fyrir mér að þessi diskur
gæti farið með hinum þremur í
kassann því ég veit að fólki falla tón-
leikaupptökur almennt vel í geð.“
En þangað til nýi diskurinn kem-
ur út geta aðdáendur JJ Soul Band
hlakkað til tónleikanna á Egilsstöð-
um í kvöld sem verða setningartón-
leikar hinnar árlegu djasshátíðar
þar í bæ. Einnig spilar hljómsveitin
í Deiglunni á Akureyri nk. fimmtu-
dag og í Stúdentakjallaranum 18.
júlí nk.
Sögur í tónlist
JJ Soul Band opnar
djasshátíðina á
Egilsstöðum í dag og
vinnur nú að upptökum
á þriðja geisladisk sín-
um. Guðjón Guðmunds-
son ræddi við J.J. Soul,
annan forsprakka
hljómsveitarinnar
af þessu tilefni.
Morgunblaðið/Arnaldur
Silfurhærður JJ Soul og bandið hans.
JJ Soul Band heldur setningartónleika djasshátíðarinnar á Egilsstöðum
gugu@mbl.is
FIMMTÁNDA djasshátíð Egils-
staða hefst í kvöld í Valaskjálf á Eg-
ilsstöðum og stendur í fjóra daga.
Yfir tuttugu víðkunnir djasstón-
listarmenn koma fram á hátíðinni
og ef að líkum lætur verður ein-
hvers staðar á dagskránni óskipu-
lagður djassbræðingur gesta og
gangandi, en slíkar uppákomur
hafa oft vakið mikla athygli á
djasshátíðinni í gegnum árin.
Hátíðin hefst í kvöld kl. 21 með
tónleikum J.J. Soul Band, sem hef-
ur haslað sér völl með
„blues-confusion“ eða bláum bræð-
ingi. Hljómsveitina skipa, auk J.J.
Soul, þeir Ingvi Þór Kormáksson,
Eðvarð Lárusson, Stefán Ingólfsson
og Ingvi Rafn Ingvason.
Á fimmtudag hefst dagskrá með
bandinu Húsavíkurdeild Dudda
Run. Þar innanborðs eru Sigurður
Friðriksson, Júlía Sigurðardóttir,
Hilmar D. Björgvinsson, Sigurður
Illugason og Grétar Sigurðarson.
Við tekur svo Djangotríóið Hrafna-
spark sem hefur getið sér verulega
gott orð fyrir vandaða og skemmti-
lega spilamennsku. Tríóið skipa Jó-
hann Guðmundsson, Ólafur H.
Árnason og Pétur Ingólfsson.
Hollenski píanóleikarinn Hans
Kwaakernaat, ásamt tríói Björns
Thoroddsen, verður með Guðmund-
arvöku á föstudagskvöldið. Slík
vaka var haldin á Jazzhátíð Reykja-
víkur í fyrra og fékk geysigóðar
viðtökur. Kwaakernaat þykir í
spilastíl og karakter minna mjög á
Guðmund heitinn Ingólfsson og er
undir sterkum áhrifum frá Art Tat-
um, Oscar Peterson og Bill Evans.
Tríó Björns Thoroddsen skipa auk
Björns þeir Gunnar Hrafnsson og
Guðmundur „Papa Jazz“ Stein-
grímsson, sem allir þekkja sem ein-
hvern tíma hafa komist í tæri við
djassmúsík á Íslandi.
Laugardagskvöldið á svo sænski
barítónsaxófónleikarinn Cecilia
Wennerström, ásamt Matthíasi
M.D. Hemstock og Edvard Nyholm
Debess. Cecilia er þekkt nafn í
djassheiminum og hefur, auk þess
að spila í eigin hljómsveit og ann-
arra, bæði samið og útsett djass-
tónlist. Hún hefur leikið með mörg-
um þekktustu tónlistarmönnum
Skandinavíu og leiðir nú eigin 12
kvenna hljómsveit í stíl Mary Paich.
Auk dagskrárinnar í Valaskjálf,
sem hefst kl. 21 öll kvöldin, verður
leikið utandyra í Egilsstaðabæ ef
veður leyfir. Þá er fyrirhugað að
leika djass á skemmtiferðaskipinu
Lagarfljótsorminum í sönnum New
Orleans-anda.
Skipuleggjandi hátíðarinnar frá
upphafi er Árni Ísleifsson en kynnir
er Friðrik Theódórsson.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Árni Ísleifsson, skipuleggjandi djasshátíðar Egilsstaða, sem hefst í
kvöld, og Friðrik Theódórsson, kynnir hátíðarinnar, tilbúnir í slaginn.
Einvalalið sveiflunn-
ar á 15. djasshátíðinni
TENGLAR
.....................................................
www.jazzis.net/egilsjazz.
Egilsstöðum. Morgunblaðið.