Morgunblaðið - 08.08.2002, Side 9

Morgunblaðið - 08.08.2002, Side 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2002 9 Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00. Verðhrun á allri útsöluvöru Ótrúlegt verð á gæða fatnaði Laugavegi 56, sími 552 2201 Haustvörur 2002 Frábærir litir Falleg snið Kringlunni, sími 588 1680, v. Nesveg, Seltjarnarnesi, sími 561 1680. iðunn tískuverslun Síðustu dagar útsölunnar 50% afsláttur á útsöluvörum kvenfataverslun Skólavörðustíg 14. Sími 551 2509. Stórútsalan enn í gangi Minnst 50% afsláttur Sprengitilboð v/breytinga 50% afsláttur af öllu í búðinni Sófasett, barir, innskotsborð, kistur, stólar, úrval af ljósum og gjafavöru. Opið virka daga frá kl. 11-18, laugard. 10. ágúst frá kl. 11-16, sunnud. 11. ágúst frá kl. 13-18 Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545. ÁTTA fyrirtæki tóku þátt í útboði Landsvirkjunar vegna lagningar vegar frá Fljótsdalsvegi við Laugar- fell að Fremri-Kárahnjúk við Jök- ulsá á Dal. Um er að ræða 24 kílómetra lang- an veg vegna undirbúnings fram- kvæmda við Kárahnjúkavirkjun og er honum skipt í tvo verkþætti. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á rúmar 184 milljónir króna í báða verkþættina og var frávikstilboð frá Íslenskum aðalverktökum lægst. Það hljóðaði upp á tæpar 170 millj- ónir kr. eða 92% af kostnaðaráætlun, en er háð því skilyrði að fyrirtækið fái báða verkþættina. Héraðsverk á Egilsstöðum átti lægsta tilboðið í hvorn verkþátt fyrir sig, rúmar 87 milljónir kr. eða sam- anlagt tæpar 175 milljónir í báða verkþættina. Íslenskir aðalverktak- ar voru næstlægstir og buðu tæpar 89 milljónir í annan verkþáttinn og rúmar 89 milljónir kr. í hinn. Hæsta tilboðið átti hins vegar Borgarverk ehf. sem bauð 143 milljónir í annan verkþáttinn og 169 milljónir kr. í hinn. Tilboðin verða nú yfirfarin af Landsvirkjun en uppbyggingu veg- arins á að vera lokið 1. desember næstkomandi og frágangi burðar- lags næsta sumar. Átta tilboð í veg að Kárahnjúkum STJÓRN Kvikmyndasjóðs ákvað á fundi sínum í fyrradag að leggja til við menntamálaráðherra, Tómas Inga Olrich, að hann setti Ingu Björk Sólnes tímabundið í stöðu framkvæmdastjóra Kvikmynda- sjóðs. Eins og kunnugt er hefur Þorfinni Ómarssyni verið vikið úr starfi fram- kvæmdastjóra tímabundið. Inga Björk Sólnes hefur um nokkurt skeið starfað sem skrifstofustjóri Kvikmyndasjóðs. Vilhjálmur Egils- son, formaður stjórnar Kvikmynda- sjóðs, segir að það liggi því nánast beinast við að setja hana í starfið þar sem hún þekki vel alla innviði sjóðs- ins og starf framkvæmdastjóra hans. Framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs Gerð tillaga um Ingu Björk Sólnes Strætisvagnabílstjóri í Reykjavík skarst illa á höfði í fyrradag þegar ölvaður maður sem hann hafði meinað inn- göngu í strætisvagninn sló hann í höfuðið með poka en í pokanum var glerflaska sem brotnaði við höggið. Atvikið var tilkynnt til lög- reglu klukkan 17.20 og var bíl- stjórinn fluttur á slysadeild og árásarmaðurinn handtekinn, að sögn lögreglunnar í Reykjavík. Strætisvagna- bílstjóri sleg- inn í höfuðið ATVINNA mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.