Morgunblaðið - 08.08.2002, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 08.08.2002, Qupperneq 24
ERLENT 24 FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ góða möguleika á að ná aftur völdum í landinu eftir kosningarnar. Nokkur hundruð metra frá gröf Járnkansl- arans bauð Carl-Eduard 180 ungum frumkvöðlum í heimsókn í kastala ættarinnar og kynnti fyrir þeim framboð sitt og flokkinn. Eitt af því sem hann vill sýna og sanna, er að af- komendur þýskra aðalsmanna geti lagt meira af mörkum en að vera slúðurblaðafóður. Til dæmis reynslu í viðskiptum. Á níunda áratugnum starfaði Carl- Eduard í tvö ár við verðbréfaviðskipti í New York og lagði stund á hagfræði við Háskólann í Kaliforníu í Los Ang- eles. Hann er yfirmaður markaðs- setningar á vatni og vindlum, sem selt er undir Bismarck-nafninu, og hefur umsjón með 5.800 hektara skógi sem keisarinn gaf Otto von Bismarck sem verðlaun fyrir vel unn- in störf í stjórnmálum. Þetta og aðrir hlutir, eins og fasteignir og brugg- verksmiðja, sjá fjölskyldunni fyrir tekjum sem nýtast við framboðið. Þýskt efnahagslíf á í kröggum og hefur það snúið almenningsálitinu gegn stjórn Gerhards Schröders kanslara. Bismarck ætlar að nýta sér það og ná af sósíaldemókrötum kjör- dæminu sem Friedrichsruh-kastali er í. Bismarck er eindregið fylgjandi stefnumálum andstæðings Schröd- NAFNIÐ minnir ætíð á Járnkansl- arann, sem háði þau stríð sem gerðu Prússland að stórveldi á 19. öld, en Carl-Eduard von Bismarck telur tíma til kominn að fjölskyldan láti til sín taka í stjórnmálunum í Berlín á ný. Það er enginn herbúningur sjáan- legur þegar þessi 41 árs erfingi þessa mikla nafns hallar sér aftur á bak í stólnum við þungt eikarskrifborð, með skyrtuna opna í hálsmálið, og segir frá því hvernig nútíma barátta – fyrir lægri sköttum – leiddi til þess að hann ákvað að bjóða sig fram til þings í kosningunum í september næst- komandi. Hann hefur lifað í vellystingum, gengið í skóla í Kaliforníu, starfað við peningamál og kvæntist svissneskri konu sem hann hitti í Mónakó. Í fyrra sneri Bismarck aftur til kastala for- feðranna fyrir utan Hamborg til þess að leita róta sinna og skipuleggja kosningabaráttuna. „Bismarck- nafnið er ekki bara kostur,“ sagði hann í viðtali. „Sumir fyllast efasemd- um og fara undan í flæmingi. Þegar ég gef mig á tal við þá og þeir kynn- ast mér gera þeir sér fljótlega grein fyrir því að ég er fullkomlega venju- legur.“ Þetta er skírskotun til arfleifðar langa-langa-langafa Carl-Eduards, Ottos von Bismarcks, sem var kansl- ari frá 1871 til 1890 í tíð Vilhjálms keisara og sameinaði þýsku ríkin undir völd Prússlands. Afdráttarlaus barátta hans fyrir sameiningu allra Þjóðverja með „járni og blóði“ – sem Danir, Frakkar og Austurríkismenn fengu að kenna á – tengdi Bismarck- nafnið þeirri harðhentu „Realpolitik“ sem sumum finnst nú á dögum heldur kaldranaleg hugmynd. Þá voru aðrir tímar Carl-Eduard leyfir enga óvirðingu við þennan fræga forföður sinn, sem lést 1898, 83 ára. „Hann notaði stríð til að ná markmiðum, og þetta voru yfirleitt stutt stríð,“ sagði Bismarck. „Þá voru aðrir tímar.“ Hann bregst ókvæða við fullyrðingum sumra fjöl- miðla og sagnfræðinga um að stefna Ottos von Bismarcks hafi lagt grunn- inn að valdatöku Adolfs Hitlers síðar meir. „Þessi ályktun er gjörsamlega út í hött,“ sagði Carl-Eduard. „Ég hafna því algerlega að tengsl séu þarna á milli.“ Bismarck-erfinginn vill heldur tala um framboð sitt til þings fyrir Kristi- lega demókrataflokkinn (CDU), helsta íhaldsflokk Þýskalands, sem á ers, Edmunds Stoibers, lægri skött- um og rýmkuðum reglum, sérstak- lega fyrir lítil og miðlungsstór fyrir- tæki. „Ég vinn við kaupsýslu svo að ég veit hvar skórinn kreppir,“ sagði Bismarck. Nafnið opnar dyr En hann er nýgræðingur í stjórn- málum og viðurkennir að hann sé ófeiminn við að nota nafnið til að opna sér dyr. Það hefur auðveldað honum að fá ráðleggingar við kosningabar- áttuna frá almannatengslasérfræð- ingi sem vann fyrir Helmut Kohl, fyrrverandi kanslara. „Líklega á ég auðveldara með að fá viðtalstíma, til dæmis hjá Kohl,“ sagði Bismarck. „Þetta er hagræði sem ég nota til að hitta slíka stjórnmálamenn. En markmiðið er ætíð að ná sam- böndum.“ Þetta kemur ekki á óvart í fjöl- skyldu sem nýtur þess að sinna stjórnmálum. Faðir Carl-Eduards, Ferdinand von Bismarck, starfaði á sjöunda áratugnum fyrir Evrópu- sambandið í Brussel. Afi Carl- Eduards, Otto von Bismarck II, var fulltrúi kristilegra demókrata á vest- ur-þýska þinginu í Bonn. Síðan þá hefur aðsetur þýsku stjórnarinnar verið flutt aftur til Berlínar, og það þykir Carl-Eduard óneitanlega kost- ur. „Það er skemmtilegra að fara á uppákomu í Berlín en Hamborg,“ sagði hann. „Það er alþjóðlegra. Já, það er skemmtilegt.“ Bismarck-fjölskyld- an snýr sér að stjórnmálum á ný Friedrichsruh. AP. AP Carl-Eduard von Bismarck, afkomandi Járnkanslarans Ottos von Bismarcks. ’ Bismarck-nafniðer ekki bara kostur ‘ STJÓRNVÖLD í Taívan reyndu í gær að slá á þá miklu spennu, sem hlaupin er í samskipti þeirra við Kína, er þau tilkynntu að hætt hefði verið við fyrirhugaðar her- æfingar undan ströndum landsins. Þá bað Chen Shui-bian, forseti Taívans, flokk sinn um að bíða með lagabreytingar sem gera myndu stjórnvöldum kleift að boða þjóð- aratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Taívans. Talsmenn taívanskra yfirvalda sögðu að einungis hefði verið um reglubundnar heræfingar að ræða en rétt hefði verið talið, miðað við hið pólitíska andrúmsloft, að fresta þeim, svo öruggt væri að þær yrðu ekki rangtúlkaðar. Hafði verið gert ráð fyrir því að Taívanar notuðu æfingarnar til að prófa Lafayette-freigáturnar, sem þeir keyptu nýverið af Frökkum, og F-16 herþotur sem keyptar voru af Bandaríkjamönnum. Ákvörðun Taívana kemur í kjöl- far þess að stjórnvöld í Kína brugðust ókvæða við þeim yfirlýs- ingum Chens um síðustu helgi að rétt væri að halda þjóðaratkvæða- greiðslu um framtíð eyjunnar. Bað Chen þingmenn flokks síns, Fram- farasinnaða lýðræðisflokksins, í gær að fresta því að leggja fram frumvarp á þingi sem gera myndi þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálf- stæði mögulega. Tókst að telja Trong Chai, þing- mann flokksins, af því að leggja frumvarpið fram en Chai staðhæfði að búið hefði verið að tryggja stuðning 114 þingmanna, en 225 fulltrúar sitja á taívanska þinginu. Kínverjar hafa í hótunum Þrátt fyrir þessar tilslakanir ítrekaði Chen aftur á móti þá skoð- un sína að Taívan væri fullvalda ríki, rétt eins og Kína. Kínverjar álíta Taívan hins vegar órjúfanleg- an hluta Kína og varaði Dagblað al- þýðunnar, málgagn kínversku kommúnistastjórnarinnar, við því í gær að til átaka myndi koma ef Taívanar reyndu að gera aðskilnað landanna tveggja varanlegan. „Velji Taívanar sjálfstæði eru þeir um leið að velja stríð,“ var sömuleiðis haft eftir ónafngreind- um yfirmanni í kínverska hernum. „Við ættum ekki að telja sjálfum okkur trú um þá firru að aðskiln- aðarsinnarnir kasti fyrir róða markmiði sínu um sjálfstætt Taív- an rétt si-svona. Ef við viljum tryggja friðinn verðum við að vera tilbúnir að grípa til hernaðarað- gerða,“ sagði heimildarmaðurinn. Stjórnvöld í Taívan reyna að draga úr spennunni Hætt við fyrirhugaðar heræfingar til að styggja Kínverja ekki enn frekar Taipei. AFP. RÓMVERJINN Roberto Cerc- elletta er orðinn þjóðþekktur maður á Ítalíu – eftir að lög- reglan í Róm handtók hann á miðvikudag vegna gruns um að hann hefði um árabil rakað sam- an peningum í bókstaflegri merkingu þess orðs. Cercelletta hefur semsé stundað þann sið allt frá árinu 1968 að raka að næturlagi saman myntinni sem erlendir ferðamenn kasta í Trevi-brunninn, eitt helsta kennileiti Rómaborgar. Sífelldur straumur ferða- manna er að Trevi-brunni en hann er í miðbæ Rómar aust- anverðum. Margir henda smá- peningum í brunninn en bæði á sú hefð að tryggja að viðkom- andi eigi afturkvæmt til hinnar fögru Rómar, og að gesturinn fái eina ósk uppfyllta. Cercelletta, sem sagður er at- vinnulaus og ekki fyllilega heill á geði, var handtekinn árla mið- vikudags og hélt hann þá á poka sem fullur var af mynt. Fullyrtu lögreglumenn að á góðum degi hefði Cercelletta náð að hafa meira en eitt þúsund dollara upp úr krafsinu, um 85 þúsund ísl. krónur. Cercelletta ku vera góðkunn- ingi lögreglunnar en af einhverj- um ástæðum hefur mönnum þar á bæ fram að þessu ekki þótt ástæða til að hafa hemil á fram- takssemi hans. Einhver vafi mun reyndar hafa leikið á því að pen- ingasöfnun Cercellettas væri ólögleg, enda myntin í brunn- inum ekki beinlínis eign neins. Ítölsk lög banna mönnum hins vegar að vaða út í brunna eins og Trevi og var Cercelletta handtekinn á grundvelli þeirra laga. Þykir líklegt að lögreglan hafi ákveðið að grípa hann glóðvolg- an nú eftir að ítalskir fjölmiðlar ljóstruðu upp um það í síðustu viku að fjármunir úr Trevi- brunni, sem nýta á til góðgerð- arstarfa, rynnu í vasa hins fimm- tuga Rómverja. Ítalska pressan birti í síðustu viku myndir af Cercelletta við störf. Rakaði saman pen- ingum úr brunni Róm. AP. AP STJÓRN Jórdaníu lokaði í gær skrifstofu arabísku sjónvarpsstöðv- arinnar Al-Jazeera og bannaði fréttamönnum hennar að starfa í landinu. Stjórnin sakaði sjónvarps- stöðina um að hafa rægt Jórdaníu og konung landsins, Abdullah II. Daginn áður voru ráðamenn í Jórdaníu gagnrýndir harðlega í um- ræðuþætti Al-Jazeera. Þátttakend- urnir gagnrýndu friðarsamning Jórdaníu við Ísrael og stefnu Jórd- ana í málefnum Palestínumanna og Íraks. „Þetta var eintómt níð um Jórdaníu og konungsfjölskylduna,“ sagði upplýsingamálaráðherra landsins. „Umsjónarmaður þáttarins og viðmælendurnir hikuðu ekki við að móðga hana.“ Jórdanía Skrifstofu Al-Jazeera lokað Amman. AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.