Morgunblaðið - 08.08.2002, Blaðsíða 41
TIL SÖLU
Skartgripa-
og úraverslun
til sölu í Mosfellsbæ. Vaxandi velta.
Fyrirspurnir sendist í fax 552 7594, Fannar.
Nátthagi garðplöntustöð,
Ölfusi, 45 mínútna akstur frá Reykjavík
Góðar plöntur á hagstæðu
verði t.d.:
Garðagullregn 2—2,5 m hátt 7.920
Alparifs 50 cm í 2 l pottum 790
Blátoppur 40 cm í 2 l potti 790
Gljámispill 60 cm í 2 l potti 790
Sunnukvistur „June Bride“ 890
Koparreynir 50 cm í 2 l potti 790
Bergsóley 3 blómlitir 1.485
Bjarmasóley gul blóm 1.485
„Antikkrósir“ 1.390
Glótoppur í 2 l pottum 890.
Harðgert hengibirki 1—1,25 m 1.890
Hélurifs í 2 l pottum 1.090
Loðkvistur í 2 l pottum 1.485
Stórkvistur í 2 l pottum 890
Alaskaaspir 2—2,5 m m. hnaus 1.990
og margt, margt fleira, sjá vefsíðu:
www.natthagi.is — s. 483 4840.
TIL LEIGU
Til leigu
Höfum til leigu fallegt tveggja hæða einbýlis-
hús á góðum og friðsælum stað í Reykjavík,
steinsnar frá Kringlusvæðinu.
Á efri hæð eru stórar, bjartar stofur, gott eld-
hús, lítil stofa með arni, svefngangur með
þremur björtum herbergjum, baðherbergi og
forstofa með litlu gestasalerni. Úr svefngangi
og holi er gengið út á skjólgóðan sólpall.
Á neðri hæð er þvottahús og geymsla, einnig
stórt herbergi með sérinngangi, sem getur nýst
sem tómstundaherbergi eða svefnherbergi.
Á hæðinni er að auki 3ja herbergja íbúð, sem
er nú þegar í leigu.
Húsinu hefur verið mjög vel við haldið og er
því snyrtilegt og tilbúið til að taka á móti leigj-
endum seinnipartinn í ágúst.
Áhugasamir sendi fyrirspurnir á leiga@itv.is .
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 20:00
Mikill söngur og vitnisburðir.
Prédikun: Bergsteinn Ómar
Óskarsson
Allir hjartanlega velkomnir.
www.samhjalp.is
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Bænastund kl. 19.00
Samkoma kl. 20.00.
Lofgjörð og fyrirbænir.
Benedikt Jóhannsson predikar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Bókabúðin opin eftir samkomu.
Geisladiskurinn Lofum Hann
á tilboði.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2002 41
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa
kl. 14–17 í neðri safnaðarsal. Söng-
hópur undir stjórn organista.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund
kl. 22. Ath. breyttan tíma. Gott er að
ljúka deginum í kyrrð kirkjunnar og bera
þar fram áhyggjur sínar og gleði. Bænar-
efnum má koma til presta kirkjunnar og
djákna. Hressing í safnaðarheimilinu
eftir stundina.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung
börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn,
safnaðarheimili Strandbergs, kl. 10–12.
Opið hús fyrir 8–9 ára börn í safn-
aðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn,
frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldrastund kl. 13–
15. Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi
foreldra með ung börn að koma saman
og eiga skemmtilega samveru í safn-
aðarheimili kirkjunnar.
Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl.
20.
Landakirkja. Kl. 14.30 helgistund á
Heilbrigðisstofnuninni, dagstofa 3.
hæð.
Kletturinn. Kl. 19 alfa-námskeið. Allir
velkomnir.
Vegurinn, Smiðjuvegi 5, Kópavogi Sam-
koma kl. 20.00, Benedikt Jóhannsson
predikar, lofgjörð, fyrirbænir og sam-
félag. Bænastund kl 19:30.
Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæn-
arstund kl. 12. Léttur hádegisverður á
vægu verði í safnaðarheimili eftir stund-
ina.
Flatey á Breiðafirði. Sr. Karl V. Matt-
híasson messar í kirkjunni í Flatey á
Breiðafirði laugardaginn 10 ágúst kl.
14. Sr. Bragi Benediktsson
Safnaðarstarf
ÞÓTT víðir sé ekki sú ættkvísl
trjáa sem nýtur hvað mestrar
virðingar í garðrækt hér á landi
eru til margar fallegar og áhuga-
verðar tegundir af víði. Ýmsar
tegundir af víði geta verið mjög
heppilegar í limgerði, í þyrpingar
eða sem stakstæðar plöntur og
eru til tegundir sem verða all-
stórvaxin tré. Einnig má finna
tegundir sem eru mjög smávaxn-
ar og geta hentað í steinhæðir og
aðra staði, þar sem ekki er
vænst mikils hæðarvaxtar.
Yfirbragð víðis er líka mjög
mismunandi, t.d. eru sumar teg-
undir með loðin blöð en aðrar
hafa glansandi blöð. Margar teg-
undir fá líka fallega haustliti og
ekki má gleyma því að víðir er
oft sérlega harðgerður og fljót-
vaxinn. Þar sem aðstæður eru
veðurfarslega erfiðar getur fátt
annað en víðir þrifist á meðan
skjól er að myndast og ekki
skaðar að víðir er almennt auð-
veldur í fjölgun og því ódýrari en
aðrar trjáplöntur.
Þótt víðir sé al-
mennt ekki þekktur
fyrir blómfegurð
eru margar tegund-
ir með allmyndar-
lega rekla, en svo
nefnast blóm víðis-
ins. Hjá víði er svo-
kallað sérbýli, þá
eru sérstakar karl-
plöntur og aðrar
kvenplöntur, en
flestar plöntur hafa
bæði karl- og kven-
æxlunarfæri. Oftast
eru karlreklarnir
mun fallegri og eru
litirnir frá grænu,
gulu og út í rautt
algengir á víðirekl-
um.
Oft eru víðiplöntur ofarlega á
matseðli margra lirfutegunda og
eru tígulvefari, haustfeti, víðifeti
og jarðygla þar mestu skaðvald-
arnir, en þetta eru allt fiðrilda-
lirfur. Einnig getur víðiblaðlús
verið til ama. Ryðsveppir geta
líka lagst á víði en sjaldan er
skaðinn verulegur og er góð um-
hirða oft nauðsynleg ef plönturn-
ar eiga að þrífast vel. Bæði þarf
að huga vel að áburðargjöf og
einnig að gera viðeigandi ráð-
stafanir ef um skaðvalda er að
ræða. Þó eru ýmsar tegundir víð-
is að mestu leyti lausar við óþrif.
Frændurnir lækja- og lensu-
víðir koma báðir frá Alaska og
eru þeir um margt líkir í útliti.
Tegundirnar voru sóttar ásamt
ýmsu öðru efni til
Alaska árið 1985 og
hafa verið í tilrauna-
reitum á nokkrum
stöðum á landinu síð-
an.
Lækjavíðir, Salix
arbusculoides, hefur
lensulaga blöð sem
eru glansandi og
dökkgræn að lit.
Greinarnar eru
grannar, rauðbrúnar
og glansandi. Teg-
undin hefur mjög
fínlegt og þokkafullt
yfirbragð og er vaxt-
arlagið ýmist runn-
kennt eða trjálaga,
allt eftir einstak-
lingnum og aðstæð-
um. Í heimkynnum sínum getur
lækjavíðirinn náð allt að tíu
metra hæð. Hann þrífst best í
rökum jarðvegi og þarf helst
eitthvert skjól hér á landi. Í
heimkynnum sínum vex lækja-
víðirinn mest í meginlandslofts-
lagi en þó hefur hann reynst all-
harðgerður í umhleypingunum
sunnanlands. Klónninn Bliki er
nýlega kominn á markaðinn hér
á landi og fær hann oft sérlega
fallega gula haustliti.
Lensuvíðir, Salix lasiandra,
hefur líka eins og sá fyrri lensu-
laga blöð. Greinarnar eru grann-
ar og ljósbrúnar á lit. Vaxtarlag-
ið getur verið frá margstofna
runna upp í tuttugu metra hátt
tré í heimkynnum sínum. Lensu-
víðir kýs líka rakan jarðveg og
er hann ekki eins mikil megin-
landstegund og lækjavíðirinn,
þar sem hann vex bæði út við
ströndina og inn til landsins í
heimkynnum sínum. Tegund
þessi er náskyld gljávíði og er
ekki óhugsandi að hún geti kom-
ið í stað hans vegna ryðsvepps
sem herjar nú svo illa á gljávíð-
inn. Klónninn Ljómi er nú fáan-
legur og lofar hann mjög góðu.
Líkt og gljávíðir eru fiðrildalirf-
ur ekki sólgnar í lensuvíði og er
það ótvíræður kostur.
Þar sem báðar þessar tegundir
eru frekar nýlegar í ræktun hér
á landi hafa þær lítið verið not-
aðar í limgerði ennþá en fátt ætti
að vera því til fyrirstöðu við
þokkalegar aðstæður. Líka má
nota þær sem stakstætt tré eða í
þyrpingar og eru þær mjög
heppilegar við ár og læki. Einnig
gætu þær verið mjög frambæri-
legar í opinber svæði og í sumar-
bústaðalönd.
Lækjavíðir er með mjög aust-
urlensku yfirbragði og gæti hann
sómt sér vel í görðum í jap-
önskum stíl og sama gæti átt við
um lensuvíðinn. Ekki er ósenni-
legt að báðar tegundirnar eigi
eftir að verða allmikið í notkun
hér á landi á komandi árum og
ekki er útilokað að aðrir klónar
af lækja- og lensuvíði verði líka á
markaðnum í framtíðinni.
Jón Guðmundsson
garðyrkjufræðingur
VIKUNNAR
BLÓM
Um s j ó n S i g r í ð u r
H j a r t a r
Nr. 478
Lækja- og lensuvíðir
Lækjavíðir ’Blika’.
Nokkrir lausir veiðidagar í næstu
viku, mánudag til föstudags
Eingöngu fluguveiði
Langá á Mýrum
Upplýsingar
í síma 864 2879,
899 2878
eða 437 23777.
MENNINGARMÁL
Myndlist-
arsýning í
Gömlu Borg
Í GAMLA þinghúsi Grímsnesinga,
Gömlu Borg, sýna nú um þessar
mundir myndlistarmennirnir Ólaf-
ur Már Guðmundsson og Katrín V.
Karlsdóttir verk sín. Ólafur Már
útskrifaðist úr Myndlistar- og
handíðaskóla Íslands og Katrín úr
Listaháskóla Íslands.
Þinghúsið var byggt 1929 og var
þinghús, skóli og dansstaður og
loks bílaverkstæði í 30 ár. Til stóð
að rífa húsið en því var bjargað og
er þar nú rekið kaffihús og krá.
Gamla Borg er opin virka daga 14
til 22 og laugardaga 14 til 2.
Laugardagskvöldið 10. ágúst
skemmtir Sveiflukvartettinn á
Gömlu Borg í Grímsnesi frá klukk-
an 22.30 til 2.
Laugardaginn 10. ágúst klukkan
14 verður hlutavelta og markaður í
félagsheimilinu Borg, Grímsnesi.
Þar verður ýmiss varningur til
sölu, til að mynda lífrænt ræktað
grænmeti, prjónles, broddur og
flatkökur sem bakaðar eru á
staðnum.
STUTT