Morgunblaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðurágúst 2002næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    28293031123
    45678910
    11121314151617
    18192021222324
    25262728293031
    1234567

Morgunblaðið - 08.08.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.08.2002, Blaðsíða 1
HEIMASTJÓRN Palestínumanna samþykkti í gær með fyrirvara áætl- un Ísraela um brottför ísraelsks her- liðs af svæðum Palestínumanna. Ísr- aelar setja það skilyrði að látið verði til skarar skríða gegn herskáum Pal- estínumönnum, að því er palestínskir ráðherrar tjáðu AFP. En þeir sögðu að tilteknir þættir, þ.á m. fram- kvæmd brottflutningsins, hefðu enn ekki verið skipulagðir. Azzem al-Ahmed, ráðherra í heimastjórninni, sagði að áætlunin fæli í sér að landamæri yrðu aftur færð til þess horfs sem þau hefðu ver- ið 28. september 2000, er Palestínu- menn hófu uppreisn er stendur enn. Áætlunin var lögð fram á fundi varn- armálaráðherra Ísraels, Binyamins Ben Eliezers, og innanríkisráðherra Palestínumanna, Abdel Razaq al- Yahya, sl. mánudag. Smáatriði ófrágengin Ahmed sagði ennfremur að palest- ínsk samninganefnd myndi funda með Ísraelum til þess að ræða áætl- unina frekar, og fór sá fundur fram í gærkvöldi, en ekki höfðu borist fregn- ir af gangi hans. Annar ráðherra sagði að palestínska stjórnin hefði ekki átt annars úrkosti en bregðast jákvætt við áætlun Ísraela. „Okkur bar skylda til að samþykkja hana, það ríkir neyðarástand. Allir aðrir hafa samþykkt hana, Jórdanía, Egypta- land, Ísrael, Bandaríkin.“ Ráðherrann, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði að ekki væri enn búið að ganga frá neinum smáat- riðum, og bætti við að Palestínumenn hefðu farið fram á að fyrstu skrefin yrðu tekin í Ramallah, fremur en á Gaza-svæðinu. Sagði hann að Ben Eliezer hefði samþykkt að verða við því, en Ariel Sharon, forsætisráð- herra Ísraels, sem enn lætur ísr- aelska herinn sitja með skriðdreka um bækistöðvar Yassers Arafats Pal- estínuleiðtoga í Ramallah, hefði hafn- að því. Palestínumenn sam- þykkja áætlun Ísraela Ramallah, Nablus. AFP. Herskáir múslimar í Hamas-sam- tökunum, er hafa þegar lýst sig and- snúna áætlun Ísraela, fordæmdu hana í gær og sögðu hana „tilraun til að sá fræjum missættis meðal Palest- ínumanna“. Leiðtogi Hamas, Ismail Haniya, sagði við AFP á Gaza-svæð- inu í gær: „Við segjum við óvininn: Sá dagur mun aldrei koma að þið sjáið deilur rísa meðal Palestínumanna.“ Þrátt fyrir að Palestínumenn hefðu tekið vel í tillögur Ísraela hélt ísr- aelski herinn í gær áfram aðgerðum sínum á hernumdu svæðunum og voru fimm Palestínumenn felldir, þ.á m. tveir sem voru eftirlýstir af Ísraelum. Annar þeirra, Ziad Daas, var foringi Al-Aqsa-herdeildanna í bænum Tulkarem á Vesturbakkan- um, en Al-Aqsa er vopnaður armur Fatah-hreyfingar Arafats. Hinn eft- irlýsti maðurinn var einnig meðlimur í Al-Aqsa. Hafa þá alls 2.427 manns fallið í átökum og tilræðum síðan uppreisn Palestínumanna hófst, 1.786 Palest- ínumenn og 598 Ísraelar. Reuters Yiheh Hamdi, foringi landnemanna í Pesagot, sagði að sú ákvörðun landnemanna að nema land á hæð skammt frá Pesagot hefði verið svar við morðum á þremur íbú- um Pesagot í liðnum mánuði. „Þetta er svar síonista við morðunum,“ sagði Hamdi. Hjón sem bjuggu í Pesagot og barn þeirra voru myrt í fyrirsát Palestínumanna skammt frá borginni Hebron á Vesturbakkanum 26. júlí. Landnámsbyggð fjarlægð ÍSRAELSKIR hermenn fjarlægðu í gær hjólhýsi sem ísr- aelskir landnemar höfðu sett upp í leyfisleysi skammt frá landnámsbyggðinni Pesagot í grennd við borgina Ramallah á Vesturbakkanum. Landnemarnir veittu enga mótspyrnu og enginn var í hjólhýsunum fimm sem fjarlægð voru. Þrjár landnemafjölskyldur höfðu ætlað að flytja inn í þau. 183. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 8. ÁGÚST 2002 TALA atvinnulausra í Þýskalandi fór aftur yfir fjórar milljónir í júlí, sam- kvæmt tölum sem birtar voru í gær, og dregur það enn úr möguleikum Gerhards Schröders kanslara á að ná endurkjöri í kosningunum sem haldnar verða eftir tæplega einn og hálfan mánuð. Alls voru 4,047 milljónir á atvinnu- leysisbótum, eða 9,7% manna á at- vinnumarkaðinum, í síðasta mánuði, en í júní var atvinnuleysið 3,954 millj- ónir, eða 9,5%. Atvinnuleysi eykst jafnan á þessum árstíma þegar skól- um lýkur og námsmenn skrá sig at- vinnulausa, en samkvæmt tilkynn- ingu þýsku hagstofunnar fer at- vinnuleysi vaxandi, jafnvel þótt árs- tíðabundnir þættir séu ekki teknir með í reikninginn. En stjórnmálamenn taka yfirleitt ekki tillit til slíkra þátta, og þótt fjár- málaskýrendur hafi sagt að atvinnu- leysistölurnar væru ekki eins slæmar og búist hafi verið við, þegar allt hafi verið tekið með í reikninginn, verða þessar tölur túlkaðar sem slæmar fréttir fyrir Schröder og möguleika hans á endurkjöri. Schröder komst til valda 1998 með loforði um að sjá til þess að atvinnuleysi yrði undir 3,5 milljónum við lok kjörtímabilsins, og gekk svo langt að segja að ef sér tæk- ist ekki að ná því markmiði ætti hann ekki skilið endurkjör 2002. Efnahagssamdrátturinn í heimin- um á síðasta ári og stöðugar kröggur þýska efnahagslífsins kunna því að hafa ráðið pólitískum örlögum hans, og gæti svo farið að hann yrði fyrsti kanslari Þýskalands eftir stríð sem aðeins situr eitt kjörtímabil. Atvinnuleysi vex í Þýskalandi Dregur enn úr möguleikum Schröders Frankfurt. AFP. Schröder skrýddist boxhönskum í Berlín í gær og mældi höggþunga sinn með þar til gerðum mæli er hann heimsótti æfingastöð íþróttamanna. Reuters ÞÝSKUR póstburðarmaður sem var orðinn lúinn á því að burðast með póstpokann sinn hefur játað að hafa hent mörg hundruð bréfum til þess að geta lokið vaktinni sinni fyrr, að því er lögregla í borginni Wuppertal í Þýskalandi greindi frá í gær. Upp um málið komst þegar vegfarandi rakst á um 500 bréf, stíluð á heimilisföng í grennd- inni, sem flæddu út úr rusla- tunnu er hafði verið velt um koll. Lögregla fann um 250 bréf til viðbótar á heimili póstburð- armannsins, sem er 21 árs. Honum hefur verið sagt upp störfum. Þreyttur póstur í Þýskalandi Wuppertal. AFP. AÐ minnsta kosti 17 létust og 20 særðust er sprengjur sprungu við forsetahöllina í Bogota, höfuðborg Kólumbíu í gær, er Alvaro Uribe var þar innandyra að sverja embættiseið sem næsti forseti landsins, að því er sjónvarpsstöðin CNN greindi frá. Fregnir herma að þrjár sprengingar hafi orðið í grennd við höllina rétt áð- ur en embættistakan hófst. Ekki var ljóst í gærkvöldi hverjir höfðu staðið að sprengingunum, en Uribe hefur heitið því að taka harkalega á vinstrisinnuðum skæruliðum er berjast gegn stjórnvöldum í landinu. Gífurleg öryggisgæsla Fyrr um daginn særðust þrír er sprengikúlum var skotið í borginni, nokkrum klukkustundum áður en Uribe sór embættiseið. Tveimur kúl- um var skotið á herskóla í vestur- hluta borgarinnar, en enginn særðist þar og ekki bárust fregnir af skemmdum, en þriðja kúlan lenti á nærliggjandi húsi og þar særðust tvær konur og stúlka. Öryggisgæsla í Bogota í gær var sú mesta sem um getur. Um 20 þús- und hermenn voru á varðbergi á göt- um úti, flugvelli borgarinnar var lok- að og kólumbíski flugherinn og flugvélar bandarísku tollgæslunnar sveimuðu yfir. Var öll önnur flugum- ferð yfir borginni bönnuð. Hefð er fyrir því að forsetar sverji embættis- eið úti undir beru lofti á torginu í miðborg Bogota, en í öryggisskyni hafði Uribe ákveðið að flytja emb- ættistökuna inn í forsetahöllina. Alvaro Uribe tekur við forsetaembættinu í Kólumbíu 17 létust í sprengingu í Bogota Bogota. AFP.  Heitir aukinni/29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Gerð af titli:
Flokkur:
Gegnir:
ISSN:
1021-7266
Tungumál:
Árgangar:
111
Fjöldi tölublaða/hefta:
55869
Skráðar greinar:
3
Gefið út:
1913-í dag
Myndað til:
31.12.2024
Skv. samningi við Árvakur útgáfufélag Morgunblaðsins er ekki hægt að sýna efni frá síðustu þremur árum Morgunblaðsins í almennum aðgangi á Tímarit.is.
Útgáfustaðir:
Ritstjóri:
Vilhjálmur Finsen (1913-1921)
Þorsteinn Gíslason (1921-1924)
Jón Kjartansson (1924-1947)
Valtýr Stefánsson (1924-1963)
Sigurður Bjarnason frá Vigur (1963-1970)
Matthías Johannessen (1959-2000)
Eyjólfur Konráð Jónsson (1960-1974)
Styrmir Gunnarsson (1972-2008)
Ólafur Þ. Stephensen (2008-2009)
Davíð Oddsson (2009-í dag)
Haraldur Johannessen (2009-í dag)
Útgefandi:
Félag í Reykjavík (1924-1947)
Árvakur (1947-í dag)
Efnisorð:
Lýsing:
Dagblað. Fréttir og greinar um innlend sem erlend málefni.
Styrktaraðili:
Fylgirit:

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað: 183. tölublað (08.08.2002)
https://timarit.is/issue/250787

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

183. tölublað (08.08.2002)

Aðgerðir: