Morgunblaðið - 08.08.2002, Blaðsíða 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2002 23
LITAVER, Grensásvegi 18, s. 581 2444
MOSRAF, Mosfellsbæ, s. 566 6355
BYGGINGAHÚSIÐ, Akranesi, s. 431 5710
MÁLNINGARÞJÓNUSTAN, Akranesi, s. 431 1799
KB BYGGINGAVÖRUVERSLUN, Borgarnesi, s. 430 5544
LITABÚÐIN, Ólafsvík, s. 436 1313
GUÐNI HALLGRÍMSSON, Grundarfirði, s. 438 6722
SKIPAVÍK, Stykkishólmi, s. 430 1415
G.E.SÆMUNDSSON, Ísafirði, s. 456 3047
KAUPFÉLAG V-HÚNV., Hvammstanga, s. 451 2370
KAUPFÉLAG HÚNVETNINGA, Blönduósi, s. 455 9030
KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA, Sauðárkróki, s. 455 4610
BJARNI ÞORGEIRSSON, Siglufirði, s. 867 1590
JÓKÓ, Furuvöllum 13, Akureyri, s. 462 7878
ÖRYGGI, Húsavík, s. 464 1600
KJG, Þórshöfn, s. 853 1880
KAUPFÉLAG VOPNFIRÐINGA, Vopnafirði, s. 473 1203
KAUPFÉLAG HÉRAÐSBÚA, Egilsstöðum, s. 470 1220
BYGGT & FLUTT, Norðfirði - Eskifirði - Fáskrúðsfirði, s. 477 1515
KASK, BYGGINGAVÖRUR, Höfn, s. 470 8210
KLAKKUR, Vík, s. 487 1223
BRIMNES, Vestmannaeyjum, s. 481 1220
KÁ, BÚREKSTRARDEILD, Austurvegi 69, Selfossi, s. 482 3767
HÚSIÐ VERSLUN, Grindavík, s. 426 7666
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Fagleg ráðgjöf
og þjónusta
SUMARTILBOÐ
á útimálningu og viðarvörn
590kr.
Verð á lítra
á Hörpusilki og Útitex
miðað við 10 lítra dós og ljósa liti
Íslensk gæðamálning
Endursöluaðilar
ALLT að tólf vopnaðir menn
féllu í skotbardaga við afganska
öryggissveit í grennd við Kabúl í
gær. Sjónarvottar sögðu að
vopnuðu mennirnir hefðu ekki
talað mál innfæddra og virtust
vera arabískir. Afganskur emb-
ættismaður sagði að grunur léki
á að mennirnir hefðu verið liðs-
menn hryðjuverkasamtakanna
al-Qaeda.
Fyrr um daginn skaut banda-
rísk sérsveit fjóra vopnaða Afg-
ana til bana þegar þeir reyndu
að skjóta á bandaríska hermenn
sem eru að afvopna afganska
hópa í Kunar-héraði. Fjórmenn-
ingarnir voru sagðir vera frænd-
ur stríðsherra í héraðinu sem
styður stjórnina í Kabúl.
O’Brien ræðir
við Gaddafi
MIKE O’Brien, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Bretlands, fór í
gær til fundar við Muammar
Gaddafi, leið-
toga Líbýu, til
að leita eftir
stuðningi hans
við baráttuna
gegn hryðju-
verkastarf-
semi. Er þetta
í fyrsta sinn í
tæp 20 ár
sem hátt
settur embættismaður bresku
stjórnarinnar heimsækir Líbýu.
O’Brien sagði fyrir fundinn að
þótt Gaddafi hefði áður verið
viðriðinn hryðjuverk benti flest
til þess að hann hefði ekki tengst
hryðjuverkastarfsemi á síðustu
árum. „Hann ógnar ekki grann-
ríkjunum.“
Smíði kjarn-
orkuvers haf-
in í N-Kóreu
ALÞJÓÐLEG samsteypa byrj-
aði í gær að steypa grunn kjarn-
orkuvers í Norður-Kóreu við há-
tíðlega athöfn að viðstöddum
sendimönnum frá Bandaríkjun-
um, Japan, Suður-Kóreu og
Evrópusambandinu. Orkuþró-
unarsamtök Kóreuskaga,
KEDO, fjármagna smíði vers-
ins, sem áætlað er að kosti and-
virði 430 milljarða króna. Fram-
kvæmdirnar eru liður í samningi
frá 1994 sem miðaði að því að
koma í veg fyrir að Norður-Kór-
eumenn framleiddu kjarnavopn.
Viðræður í
nánd í Burma
FLOKKUR Aung San Suu Kyi,
leiðtoga stjórnarandstöðunnar í
Burma, kvaðst í gær búast við
því að viðræður hæfust innan
nokkurra vikna við herforingja-
stjórn landsins um lýðræðisleg-
ar umbætur. „Ég hygg að hvorir
tveggja hafi mikinn hug á að
hefja viðræður,“ sagði talsmað-
ur stjórnarandstöðuflokksins.
STUTT
Blóðug
átök í
Afganistan
Mike O’Brien
alltaf á þriðjudögum
ÍÞRÓTTIR