Morgunblaðið - 08.08.2002, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!"
"
#
!
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Allt efni sem birt ist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áski lur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirt ingu eða á annan hátt . Þeir sem afhenda blaðinu efni
t i l birt ingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi .
F-16 ÞOTUR fljúga yfir daglega. Í
Rafah hafa þær rofið hljóðmúrinn. Á
nóttunni er hægt að sjá blys lýsa upp
himininn svo að ísraelska hernáms-
liðið geti séð betur um svæðið.
Sérhljómandi skot úr byssum
heyrast í fjarlægð en eru svo kunn-
ugleg að enginn tekur eftir þeim. Í
nálægð er það þó öðruvísi.
Drengur hefur verið skotinn í bak-
ið fyrir neðan öxl. Hann grætur og
liggur á maganum á börum og
sjúkraliðar reyna að sinna honum.
Myndatökumaður frá palestínskri
sjónvarpsstöð er að taka myndir af
honum í staðinn fyrir þykkt reykský
sem sést frá göngunum á milli Rafah
og Egyptalands sem Ísraelar voru
að sprengja. Ólöglegt vopnasmygl
segja þeir. Það má auðvitað ekki.
Rökfærslan er öfugsnúin en sam-
þykkt. Litla herveldið má sýna yf-
irburði sína á öllu og öllum. Palest-
ínumönnum er bannað að bera vopn
þó þau séu heimatilbúin.
Drengurinn er sveittur og andar
þungt. Tilraunin til að bjarga honum
er að mistakast. Líkami hans lamast
og hann deyr. ,,Hvað meinarðu með
að vera að mynda þetta,“ hrópar
gramur hermaður að myndatöku-
manninum. Slæm kynning fyrir Ísr-
ael, sem er auðvitað saklaust fórn-
arlamb fátæka og atvinnulausa
mannfjöldans á Gaza-svæðinu.
,,Skjótið helvítis myndatökumann-
inn,“ þeir gera það, en hitta ekki og
myndatökumaðurinn kemst heim
þann dag.
Í flóttamannabúðunum í Rafah
hafa geysað harðir bardagar. Iyad
skyggnast um frá veggnum sem
hann faldi sig við til að sjá eitthvað.
Tveir liggja látnir rétt hjá. Einhver
skýtur að honum en kúlan strýkst
við eyrað á honum er hann beygir
sig. Hljóðin úr byssunum bergmála í
höfði hans er hann leggur á flótta til
að komast heim. Áfallið er þó svo
mikið að þrátt fyrir að hafa búið í
þessu fangelsi í 20 ár finnur hann
ekki heimili sitt. Hann er agndofa af
ótta. Tvisvar hleypur hann fram hjá
heimili sínu án þess að þekkja það,
og loksins þegar hann kemur heim
og sest niður hjá fjölskyldu sinni sem
er að borða kvöldmat, borðar hann
þar til enginn matur er eftir. Hann
man ekkert eftir þessu. Bróðir hans
segir honum frá þessu síðar, frá tóm-
um, brjálæðislegum svipnum á and-
liti hans og frá því hvernig hann
þekkti engan heima. Iyad hefur séð
marga deyja. Hans eigið líf er gjöf
örlaganna.
Núna sitja Iyad og fjölskylda hans
heima og borða hitað grænmeti.
Sviti lekur niður andlit þeirra er þau
sitja á gólfinu hjá matnum. Börnin
eru skítug og þeim er heitt. Öll Raf-
ah-borg er rafmagnslaus í dag, á
heitasta degi sumarsins fram að
þessu. Útihurðin er opin svo að smá
gola komist inn af og til. Með golunni
má finna sterkan fnyk af skólpi.
Kyrrstætt kvöldið færir fólkið á kaf.
Hitinn mun fara upp í 32 stig í nótt.
Iyad kveikir á olíulampa þegar orðið
er of dimmt.
,,Hvernig þolir þú þetta?“ spyr
einhver. Þetta er fáránleg spurning.
Hvaða val hefur hann?
Hvernig þoldi hann skotsárið á
fætinum, eða fangelsisdóminn fyrir
að dreifa spjöldum alþýðufylkingar-
innar á skólalóðinni? Hvernig þoldi
hann yfirheyrsluna, eða lyktina af
strigapokanum sem settur var yfir
höfuð hans í yfirheyrslunni? Pokann
með ælu, slefi og hlandi þúsunda
annarra? Það fékk hann þó ekki til
að tala. Ekki heldur barsmíðarnar
eða niðurlægingin. Honum var
sleppt eftir tvo mánuði. Slapp vel.
Það er ekki til sá fullorðni maður í
hernumdri Palestínu sem ekki hefur
verið í fangelsi eða séð bróður sinn
eða föður sendan þangað. Glæpur-
inn? Að vera Palestínumaður auðvit-
að, að vilja búa í friði á eigin landi.
Það er orðrómur um að ráðist
verði á Gaza fljótlega, heit, þreytt
Gaza, palestínskt Alcatraz. Fólk er
of þreytt til að vera hrætt núna. Ein-
hverjir hugsa um hvað verði um þá
þar sem þeir búa ólöglega á Gaza,
Palestínumenn sem komu hingað á
þriggja mánaða dvalarleyfum en
voru um kyrrt af því þeir gátu ekki
farið neitt annað. Hvað verður um
það fólk sem býr á þessum gleði-
snauða stað án leyfis?
Við eftirlitsstöðina bíður sjúkra-
bíll með blikkandi ljós eftir leyfi til
að halda áfram. Tveimur tímum
seinna, þegar umferðinni er loksins
leyft að halda áfram, færist hann
hægt með hinum bílunum. Enginn
gat sagt til um það hvort sá veiki eða
slasaði lifði eða dó.
SIGURÐUR ÞÓRARINSSON,
Selvogsgrunni 22, Reykjavík.
Sumarið er tíminn
Frá Sigurði Þórarinssyni: