Morgunblaðið - 08.08.2002, Blaðsíða 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2002 25
Nú geturðu léð augnhárunum dramatíska sveigju og
lyftingu sem er sjónhverfingu lík. Illusionist Mascara
inniheldur spánýtt og loftnýtið gel sem borið er á
augnhárin með frábærlega liprum og sveigjanlegum
trefjabursta.
Maskari sem tekur öllu öðru fram.
Hreinasta sjónhverfing
ESTÉE LAUDER kynnir:
ILLUSIONIST Maximum Curling Mascara
Útsölustaðir:
Clara Kringlunni,
Debenhams
snyrtivörudeild,
Hagkaup Kringlunni,
Hagkaup Smáralind,
Hagkaup Spönginni,
Lyfja Lágmúla,
Lyfja Laugavegi,
Lyfja Smáratorgi,
Lyfja Garðatorgi,
Lyfja Setbergi,
Lyf og Heilsa
Austurstræti,
Apótek Keflavíkur.
www.esteelauder.com
*30 ml af augnfarðahreinsi fylgir öllum Illusionist Mascara.
TVEIR ungir óp-
erusöngvarar
sem eru að ljúka
framhaldsnámi
frá óperudeild
Guildhall School
of Music and
Drama halda
tónleika í Saln-
um í Kópavogi
kl. 20 í kvöld. Á
fimmtudag og
laugardag í
næstu viku halda
þau svo tónleika
á Húsavík og Ak-
ureyri. Þetta eru
þau Valdimar
Hilmarsson bari-
tón og Alex-
andra Rigazzi-
Tarling sópran
sem auk þess að stunda nám sam-
an eru heitbundin hvort öðru.
„Við ákváðum að fara í þessa
tónleikaferð í tvennum tilgangi.
Til að kynna okkur og einnig ef
vel gengur að afla fjár til síðasta
námsvetrarins í London,“ sagði
Valdimar í samtali við Morgun-
blaðið.
Valdimar hefur stundað nám
við Guildhall-tónlistarháskólann í
þrjú ár, fyrst 2 ár við almenna
framhaldsdeild í söng og síðan 1
ár við óperudeildina. „Þessi deild
er rekin nánast eins og atvinnu-
óperuhús og nám okkar felst í því
að syngja ýmis hlutverk í óperu-
uppfærslum. Verkefnaskráin í
vetur er ekki frágengin en ég
veit þó að ég mun syngja í óp-
erunni Súsönnu eftir Händel.
Alexandra hefur stundað nám
um 6 ára skeið við Guildhall-
tónlistarháskólann, fyrst í 4 ár til
BA-prófs og síðan 1 ár í fram-
haldsdeild og 1 ár í óperudeild-
inni. Hún hefur komið víða fram
og söng meðal annars einsöng í
stórri uppfærslu á Messíasi í Roy-
al Albert Hall fyrir tveimur ár-
um.
Á efnisskránni á tónleikum
þeirra hérlendis verða aríur og
dúettar úr þekktum óperum, m.a.
Töfraflautunni, Brúðkaupi Fíg-
arós, Don Giovanni, Fást, Don
Pasqualle, Gianni Schicci og
Porgy og Bess. „Þetta er blanda
fyrir alla óperuunnendur,“ segir
Valdimar. Meðleikari þeirra á pí-
anó er Catherine Milledge sem
hefur starfað sem atvinnupíanó-
leikari í Bretlandi um nokkurra
ára skeið en hún stundaði einnig
nám við Guildhall-tónlistarháskól-
ann.
Síðar í haust ætlum við að
flytja sömu efnisskrá á þrennum
tónleikum í London, Grimsby og
Lúxemborg,“ segir Valdimar.
Óperur frá
Mozart til Gershwin
Morgunblaðið/Þorkell
Valdimar Hilmarsson og Alexandra Rigazzi-Tarling.
NÚ stendur yfir Norrænt þing um
endurheimt menningarverðmæta í
Reykholti og stendur fram á sunnu-
dag. Þar er fjallað um endurheimt
menningarverðmæta og tilfærslu
slíkra verðmæta milli þjóða og lands-
svæða. Málefni þetta hefur að und-
anförnu verið ofarlega á baugi víða
um heim og dæmi þar um er að ný-
verið hafa Danir afhent Færeying-
um til varanlegrar varðveislu merka
gripi sem hafa verið í Danska þjóð-
minjasafninu í langan tíma. Jafn-
framt hafa Danir og Grænlendingar
gert samning um afhendingu græn-
lenskra safngripa til safna á Græn-
landi. Á ráðstefnunni greina þeir
Emil Rosing, þjóðminjavörður á
Grænlandi, og Arne Thorsteinsson,
fyrrum þjóðminjavörður í Færeyj-
um, frá því hvernig staðið var að
þessum málum hjá þeim.
Frummælendur á þinginu eru frá
Íslandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð,
Finnlandi, Færeyjum og Grænlandi.
Á morgun, föstudag, frá kl. 9–17,
verður röð fyrirlestra. Af Íslands
hálfu tala þar um handritamálið dr.
Sigurður Líndal prófessor og dr. Vé-
steinn Ólason forstöðumaður Árna-
stofnunar og Anna Þorbjörg Þor-
grímsdóttir fjallar um afhendingu
safngripanna til Þjóðminjasafns Ís-
lands frá Danmörku árið 1930 en
hún vinnur nú að doktorsritgerð
sinni við Gautaborgarháskóla um
það efni.
Þátttakendur á ráðstefnunni eru
frá öllum Norðurlöndunum og eru
þeir félagar í Sambandi norrænna
safnmanna sem stofnað var árið 1915
og er það því með elstu samtökum
sinnar tegundar. Sambandinu er
skipt niður í þjóðdeildir og á vegum
þeirra er haldið þing í löndunum til
skiptis á þriggja ára fresti.
Þingað um
menningar-
verðmæti