Morgunblaðið - 08.08.2002, Blaðsíða 36
MINNINGAR
36 FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Sigurður Matth-íasson fæddist á
Siglufirði 31. október
1922. Hann lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 29. júlí síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Matthías
Hallgrímsson út-
gerðarmaður og
Auður Frímannsdótt-
ir.
Eftirlifandi kona
Sigurðar er Þóra
Þórðardóttir, f. 1.
júní 1924. Foreldrar
hennar voru Þórður
Pétursson skókaupmaður og
Ágústa Ólafsdóttir. Sigurður og
Þóra eignuðust þrjú börn. Þau
eru: 1) Ágústa, f. 1.4. 1947, búsett í
Flórída, maki Robert Lee Powers.
Dætur þeirra eru Elísabet og
Þóra. 2) Þórður Matthías, f. 30.4.
1948, unnusta Gyða
Guðmundsdóttir.
Hann á einn son, Ív-
ar. 3) Sigurður, f.
24.2. 1958, maki
Hrafnhildur Há-
konardóttir. Þau
eiga þrjú börn: Hildi,
Sigurð Þór og Rósu.
Sigurður gekk í
Gagnfræðaskóla
Siglufjarðar og út-
skrifaðist síðan úr
Verslunarskóla Ís-
lands árið 1941.
Hann stundaði nám í
flugrekstri við Uni-
versity of Texas og útskrifaðist
þaðan árið 1946. Hann starfaði
hjá Flugfélagi Íslands, síðar Flug-
leiðum, til starfsloka.
Útför Sigurðar fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík í dag
og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Ég lít til himins, læt hugann
reika.
Skynja nærveru þína svo greini-
lega. Finn fyrir gleði í hjarta mínu
því ég fékk að ganga með þér nokk-
ur lífsspor.
– Þú samþykktir mig í fyrsta sinn
er við hittumst, ólíkt öðrum. Ég
varð einstök – sérstök, og þú kennd-
ir mér meira en nokkur skilur. – Við
stöndum okkur, hér og nú. Aðhald –
heima og að heiman, ekkert
„bullshit“ sagðir þú, við greinum
þarft og óþarft.
Svo hlógum við – langbest.
Við vorum við – höfðum rétt á
okkar skoðun.
Sannleikurinn er bestur, að lok-
um verður hann augljós – sammála
– eitt samtal – eitt augnatillit, þegar
ég var í vafa.
Þín vegna, sagðir þú, hlustaðu á
hjarta þitt, þú veist betur, fylgdu því
– og þér farnast vel.
Ég hugsa um hlýju þína, besti
tengdapabbi í heimi. Besti vinur
barnanna minna, einstakur vinur
mannsins míns, dáður og dýrmætur.
– Gengið hefur þú æviveginn.
Skilið eftir falleg spor í hjarta
mínu, sem ég á ein. Þú varst forrétt-
indi fyrir mig.
Ég sakna þín.
Þín tengdadóttir
Hrafnhildur.
Við kveðjum í dag Sigurð Matth-
íasson, eða Sigga Matt hennar Dótlu
eins og við kölluðum hann, en hann
var giftur móðursystur okkar.
Við höfðum ekki mikið af Sigga að
segja í bernsku, enda var hann
metnaðarfullur ungur maður, var
upptekinn, vann mikið, ákaflega
fróður og víðsýnn, vel menntaður
maður í blazer-jakka með gull-
hnöppum, í vinnu hjá Flugfélagi Ís-
lands og framganga þess félags var
honum allt í þá daga.
Það er hins vegar í seinni tíð sem
hann gaf okkur minningar sem ekki
gleymast.
Eftir að hann komst á eftirlaun
eftir mikið og farsælt starf hjá Flug-
leiðum urðu þáttaskil í lífi hans en
þá gat hann snúið sér af krafti að
fjölskyldu sinni.
Sameiginlegt áhugamál þeirra
hjóna var golfið og eyddu þau tíma
sínum gjarnan á golfvellinum. Hann
gladdist yfir barnabörnunum en
Ágústa dóttir þeirra eignaðist fyrst
dótturina Elizabeth. Seinna bættust
í hóp barnabarnanna þau Þóra, Ívar,
Hildur, Siggi Þór og Rósa. Hann
varð einhver sá besti afi sem hægt
er að hugsa sér og á milli þeirra
myndaðist ákaflega sterkt sam-
band. Siggi naut þeirra allra og
reyndist hann þeim elskulegur og
góður afi.
Það var engu líkt að horfa á Sigga
ljóma eins og sól þegar barnabörnin
hans eða börnin okkar voru annars
vegar.
Siggi veiktist fyrir nokkrum árum
og hefur það verið erfitt en samt
lærdómsríkt að fylgjast með þeim
hjónum ganga saman sem einn mað-
ur í gegnum þá löngu píslargöngu
sem íslenska heilbrigðiskerfið legg-
ur á veika eldri borgara.
Við geymum í huga okkar minn-
ingu um mann sem hafði djúpa og
mikla lífslöngun og hafði í kringum
sig bjarta nærveru.
Eins og Jónatan mávur gat Siggi
ekki lyft líkama sínum lengur. And-
inn var á flugi en líkaminn orðinn
þreyttur. Þá var hann sóttur, því að
hann átti að fljúga hærra. Hann átti
að fara heim. Við óskum honum
góðrar ferðar, og vitum að hann
sveimar yfir okkur öllum.
Elsku Dótla, við vottum ykkur,
Ágústu, Bob, Bóbó, Gyðu, Sigga,
Hrafnhildi og barnabörnum ykkar
okkar dýpstu samúð.
Ágústa, Anna Magnea, Guðný og
fjölskyldur.
Góður vinur hefur kvatt og stefnir
nú á annað tilverustig sem mun létta
honum þungar byrðar veikinda og
þjáninga sem hann hefur orðið að
bera á undanförnum árum.
Þegar horft er til baka streyma
fram góðar minningar frá liðinni tíð
um kynni og vináttu okkar Sigurðar
Matthíassonar. Við Siggi urðum
snemma vinir, þar sem við áttum
heimili í næsta nágrenni hvor við
annan á Freyjugötunni. Leiðir okk-
ar Sigga lágu svo saman í Verslun-
arskólanum við Grundarstíg, þar
sem við stunduðum nám saman
næstu fjögur árin og brautskráð-
umst þaðan vorið 1941.
Að loknu námi fékk Siggi fljótlega
vinnu hjá Flugfélagi Íslands og
kunni hann vel við sig í nýju starfi
undir stjórn Arnar Ó. Johnson, mik-
ils öðlingsmanns, sem þá stýrði hinu
unga flugfélagi. Þótt við Siggi vær-
um fyrstu árin í ólíkum störfum var
alltaf stöðugt og náið samband okk-
ar í milli.
Það mun hafa verið snemma árs
1943 að við Siggi kynntumst banda-
rískum manni, Porter McKeever,
sem þá var yfirmaður hjá Office of
War Information, og stjórnaði viða-
mikilli skrifstofu á vegum Banda-
ríkjahers hér í Reykjavík. Þessi
kynni okkar við McKeever þróuðust
síðan upp í góðan vinskap. Við hitt-
umst oft á skrifstofu hans og heima
hjá honum, þar sem hann bjó á
Freyjugötu 46. Það var þá í eitt
skiptið, sem hann bauð okkur Sigga
heim til sín ásamt fleiri kunningjum,
að upphófust samræður um há-
skólanám í Bandaríkjunum. Mc-
Keever mun hafa heyrt á okkur
Sigga að innst inni væri sá draumur
okkar að fara í framhaldsnám ekki
svo fjarlægur, þótt vonlítið væri að
hann myndi verða að veruleika í
bráð.
Svo ég geri langa sögu stutta varð
þessi heimsókn okkar Sigga til
McKeever eina kvöldstund örlaga-
valdur þess, að okkur var boðin
skólavist við University of Texas í
byrjun árs 1944. Þar átti vinur okk-
ar McKeever stóran hlut að máli.
Hann átti kunningja vestra að nafni
Lyndon B. Johnson, sem síðar varð
svo æðsti maður öldungadeildar
Bandaríkjaþings og forseti
Bandaríkjanna. Þeir McKeever
höfðu um tíma unnið saman í Wash-
ington á vegum Bandaríkjastjórnar.
Í ársbyrjun 1944 héldum við Siggi
svo vestur um haf með gamla Lag-
arfossi og vorum þrjár vikur á leið-
inni til Halifax í Kanada með við-
komu í Skotlandi, þar sem safnað
var saman í stóra skipalest sem
fylgja átti okkur á leiðinni yfir Atl-
antshafið. Eftir nokkurra daga dvöl
í Halifax var svo haldið með lest til
New York og síðan áfram til Austin í
Texas með viðkomu í Washington.
Við Siggi áttum ógleymanlegan
tíma meðan við stunduðum nám við
háskólann í Texas og eignuðumst
þar marga góða vini, en vináttubönd
við suma þeirra hafa enn ekki rofn-
að eftir rúma hálfa öld.
Ein af skólasystrum okkar Sigga í
Versló var Þóra Þórðardóttir. Þau
Siggi og Dótla höfðu tengst góðum
vináttuböndum í skóla, sem slitnuðu
ekki eftir að við lukum prófi. Ekki
rofnaði heldur sambandið þótt Siggi
væri horfinn til Texas, enda sýnir
það best að Dótla var komin í heim-
sókn til Austin vorið 1945. Seinna
sama ár stilltu þau síðan saman
strengi sína og gengu í það heilaga í
Austin.
Samband hafði verið á milli Sigga
og Arnar Ó. Johnson um skeið eftir
að Siggi hafði verið nokkurn tíma
við nám. Örn hafði mikinn áhuga á
að fá Sigga til starfa á ný hjá Flug-
félagi Íslands og það helst sem
fyrst. Þetta varð til þess að Siggi tók
þá ákvörðun að hætta námi, og þau
Dótla héldu síðan aftur heim til Ís-
lands 1946.
Eftir heimkomuna hóf Siggi að
strfa á ný hjá Flugfélagi Íslands.
Þetta átti eftir að verða langur og
farsæll starfsferill, bæði hjá FÍ og
síðar Flugleiðum eftir sameiningu
félaganna, því Siggi starfaði óslitið
við flugrekstur allt þar til hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir.
Eftir að ég kom heim frá Texas að
loknu námi 1947 var ánægjulegt að
hitta þau Dótlu og Sigga aftur eftir
langa fjarvist. Áttum við saman
margar gleðistundir og rifjuðum
upp gamla tíma. Í ársbyrjun 1949
réðst ég til starfa hjá Flugfélagi Ís-
lands og vorum við Siggi þá orðnir
nánir samstarfsfélagar, sem ekki
varð til að skyggja á langan og far-
sælan vinskap allt frá æskuárum
okkar. Við áttum gott samstarf hjá
FÍ í þrettán ár, eða þar til ég hóf
störf á öðrum vettvangi.
Þegar menn þurfa að hætta störf-
um sökum aldurs vænta flestir þess
að geta notið áranna sem á eftir
fylgja. Sú varð þó ekki reyndin hvað
vin minn Sigga snerti. Hann varð
alltof fljótt fyrir slæmu áfalli þegar
heilsan bilaði, og varð til þess m.a.
að málfar hans skertist það mikið að
hann átti mjög erfitt með að tjá sig
og virtist það ágerast hin seinni ár.
Siggi lét þessa erfiðleika ekki aftra
sér frá því að vera í sambandi við
gamla vini og kunningja. Hann fór
t.d. að hitta gamla félaga reglulega,
sem árum saman hafa komið saman
einu sinni í viku í hjarta borgarinn-
ar, þar sem menn kryfja dægurmál-
in yfir kaffibolla og reyna að leysa
þau vandamál þjóðarinnar sem efst
eru á baugi hverju sinni.
Siggi varð fljótt sígildur félagi í
kaffiklúbbnum okkar og virtist hafa
ánægju af að hlusta á tal manna,
þótt hann ætti sjálfur erfitt með að
leggja orð í belg. Hann lét sig sjald-
an vanta í hópinn fyrr en fyrir tæp-
um tveimur árum að hann fékk aftur
bakslag og veikindi hans fóru að
ágerast. Heilsu hans hrakaði ört síð-
ustu mánuði uns kom að leiðarlok-
um. Við félagarnir söknum nú góðs
vinar og þökkum ánægjulegar sam-
verustundir á liðnum árum.
Dótla hefur sýnt mikið þrek og
sérstakan dugnað öll þau ár sem
hún hefur staðið við hlið Sigga í
veikindum hans og verið sú mikla
stoð og stytta sem hann hefur þurft
á að halda í baráttunni við erfiðan
sjúkdóm.
Að leiðarlokum vil ég færa vini
mínum og félaga í marga áratugi
þakklæti fyrir alla vináttuna og
ánægjulega samfylgd. Far þú í friði
góði vinur.
Við hjónin og allir félagarnir í
kaffiklúbbnum færum Dótlu og
börnum þeirra hjóna hugheilar sam-
úðarkveðjur á þessari kveðjustund.
Njáll Símonarson.
SIGURÐUR
MATTHÍASSON
!
"# "$##
! " # $%
! $% " # & ! ' # $%
(!$! " # & $! %$%
)% !'$$ " # $%
%" # & * + $%
( " # & , -#$%
" # & # %( $%
.((!/. .((!/.
& .((!/ 0
% &
'
"1*21' 3 0 ! - %
3 (%!(4
/5
!
( )! (
*
+
, !
/ . # $%
! ! # (&
# (& 2! $%
. # ($%
%# (& $% %$%
6 % & 7$!
0* $%
/ /. & / / /. 0
-
)..
)..
'6*'
#& !89
#3
/
)% $ ! &'(
# ' '( '$ )% ! &
$! : # '(
& '$ #;'( 6
(#$%
& / /. 0
% &
*'"
% 0
'
1 !
2 3 "//#
#-* #$% 6 0 &
0* #$% " <0 ! &
! " * #$%
$=0&#
0* #& ! ! (!$$%
/. /.
& /. 0
% &
!
'
1>2?
,
# / 8
6#
( )! 4 *
5
, !
6 @ !&
3 6 @$% ! 0A#
6 @$% ! (!$! 0 &
!6 @& ! &/$%
$! 6 @$%
/ /. & / / / 0