Morgunblaðið - 31.08.2002, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 31.08.2002, Qupperneq 12
FRÉTTIR 12 LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÞRÍR piltar voru handteknir í hádeginu í gær eftir að þeir höfðu stolið tveimur bjórköss- um úr sendibifreið í Mörkinni. Við leit í bílnum fundust nokk- ur grömm af hassi. Enginn þeirra hefur aldur til að kaupa áfengi. Piltarnir sáust aka á brott með þýfið en þeir komust ekki lengra en út á Suðurlands- braut þar sem lögreglan í Reykjavík stöðvaði för þeirra. Þeir voru færðir á lögreglu- stöð til yfirheyrslu og var síð- an sleppt enda telst málið upp- lýst. Handteknir með stolinn bjór STUTT UNGUR ökumaður á sport- bifreið var stöðvaður af lög- reglunni á Hvolsvelli á fimmtudag á 159 km hraða á Suðurlandsvegi við Markar- fljótsaura. Hann var ekki sviptur ökuleyfi á staðnum, en má búast við hárri sekt og jafnvel sviptingu ökuleyfis, að sögn lögreglunnar. Þegar lögreglan hafði af- skipti af manninum gaf hann engar sérstakar skýringar á ökulagi sínu. Það virtist ekki hafa hamlandi áhrif á ofsa- akstur mannsins að hann var með ungt barn sitt í bílnum hjá sér. Segir lögreglan að barnið hafi verið í bílstól. Á 159 km hraða með smábarn í bílnum UM 200 lítrar af dísilolíu láku á Suðurlandsveginn austast í Svínahrauni um níuleytið í fyrrakvöldi. Gat kom á tank flutningabifreiðar, sem var með tengivagn, þegar bifreiðinni var ekið yfir járnplötu sem lá á veginum. Rifan sem myndaðist var um 10 sentimetrar í þver- mál. Olían lak á um 400 metra kafla áður en tankurinn tæmd- ist. Slökkviliðið í Hveragerði hreinsaði olíuna af veginum með uppleysanlegu efni. Talið er að járnplatan, sem lá við veg- inn, hafi verið um 40–50 senti- metrar á breidd og um einn metri að lengd. 200 lítrar af dísilolíu láku á Suður- landsveg TVEIR menn voru teknir höndum þegar þeir reyndu að brjótast inn í bifreið við verk- stæði í Stangarholti í Reykja- vík um þrjúleytið í fyrrinótt. Lögreglu var tilkynnt um ferðir mannanna og þegar hún kom á staðinn reyndu þeir að komast undan á hlaupum. Lögreglunni tókst að handsama tvo en sá þriðji komst undan. Þá hafði lög- regla afskipti af þremur mönnum vegna gruns um ölv- un við akstur í borginni í fyrrinótt. Handteknir við innbrot HPV-rannsóknarsetrið að Skógar- hlíð 12 var formlega opnað í gær, en þar verður á næstu árum aðsetur al- þjóðlegrar rannsóknar, sem nefnist FUTURE 2. Með henni á að kanna virkni bóluefnis gegn HPV, veiru sem veldur frumubreytingum í leg- hálsi og leghálskrabbameini. Nýjar rannsóknir sýna að frumu- breytingar í leghálsi og legháls- krabbamein orsakast af veiru sem berst milli fólks við kynmök. Veiran, sem nefnist HPV (Human Papilloma Virus) eða vörtuveira, veldur einnig kynfæravörtum. Sú staðreynd að veiran veldur þessum sjúkdómum hefur leitt til þess að tekist hefur að þróa bóluefni sem getur komið í veg fyrir HPV-sýkingar og þannig er fræðilega mögulegt að útrýma að mestu áðurnefndum sjúkdómum. Framkvæmd rannsóknarinnar er í höndum Landlæknisembættisins og Krabbameinsfélags Íslands, en lyfja- fyrirtækið Merck Sharp & Dohme, sem hefur þróað bóluefnið og fram- leiðir það, stendur straum af kostn- aði hennar. Á kynningu í gær kom fram að bóluefnið hefur nú þegar verið próf- að í rúman áratug og mun FUTURE 2-rannsóknin ná til þúsunda kvenna víða um heim. Haraldur Briem sóttvarnarlæknir sagðist að gæfi bóluefnið gæfi góða raun í þeim rannsóknum sem fram færu á næstu árum yrði hægt að nota það fyrir almenning. Það yrði mikilvægur áfangi í baráttunni gegn krabbameini. Hann sagði að þetta væri þá í annað sinn sem sem bólu- setning drægi úr tíðni krabbameins. Áður hefði bólusetning gegn lifrar- bólgu B dregið úr lifrarkrabbameini. Haraldur sagði að minnsta kosti 5– 10 ár mundu líða þar til hugsanlega yrði farið að nota efnið til bólusetn- inga á almenningi. Markmið FUTURE 2-rannsókn- arinnar er að kanna hvort bóluefnið dregur úr myndun frumubreytinga á næstu 4 til 5 árum eftir bólusetningu og til lengri tíma litið úr myndun krabbameina í leghálsi. Þegar rann- sókninni lýkur eiga að hafa fengist endanlegar niðurstöður um það. Sótt hefur verið um leyfi vísindasiða- nefndar til að bjóða einnig 16–17 ára konum að taka þátt í rannsókninni. Henni verður hagað þannig að helmingi þátttakenda er gefið virkt bóluefni en hinum helmingnum svo- nefnd lyfleysa. Hvorki þátttakand- inn né sá eða sú sem bólusetur munu vita hvort sprautað er með virku eða óvirku bóluefni fyrr en rannsókninni lýkur. Þorbjörg Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur og verkefnis- stjóri, sagði að gera mætti ráð fyrir að um 750 konur tækju þátt í rann- sókninni sem stæði fram á árið 2007. Eliav Barr, forstöðumaður lyfja- rannsókna hjá MSD, sagði að fyr- irtækið hefði nú staðið í þessum rannsóknum í áratug, Barr sagði að Norðurlöndin væru sérlega fýsilegur kostur til rannsóknar sem þessarar sökum þess hversu vel væri staðið að skráningu hjá krabbameinsfélögum. „Krabbameinsskráin og eftirlit með leghálskrabbameini á Íslandi á sér enga hliðstæðu. Hér er öllum konum frá 20 ára aldri boðið upp á að koma í krabbameinsleit á tveggja ára fresti og mjög vel er haldið utan um öll gögn,“ sagði Barr. Hann sagði að samvinna MSD við Landlæknis- embættið og Krabbameinsfélagið hefði gengið afar vel og hefðu báðir aðilar sýnt þessu mikinn áhuga. Kristján Sigurðsson yfirlæknir Leitarstöðvar KÍ sagði að þó að þær vonir rættust að bólusetningin gæti leitt til lækkandi tíðni forstigsbreyt- inga og leghálskrabbameins væri áfram þörf á hefðbundinni leit að leghálskrabbameini. Hann sagði að yrði af bólusetningum fyrir almenn- ing myndi það sennilega verða gert hjá börnum á aldrinum 12–14 ára, en ætti að úrýma veirunni væri nauð- synlegt að bólusetja bæði kynin. Aðsetur alþjóðlegrar rannsóknar á virkni bóluefnis gegn HPV-veiru Mikilvægt í baráttunni gegn krabbameini Morgunblaðið/Jim Smart Frá vinstri: Haraldur Briem sóttvarnarlæknir, Eliav Barr, forstöðu- maður lyfjarannsókna hjá MSD, og Kristján Sigurðsson, yfirlæknir Leitarstöðvar KÍ, á kynningarfundinum í gær. FJÓRTÁN marka drengur fæddist í sjúkrabifreið fyrir utan fæðing- ardeild Landspítalans á fimmtu- dagskvöld. Faðir barnsins, Þor- steinn Hoffritz, og Björk Steinþórsdóttir ljósmóðir tóku á móti barninu á bílastæðinu fyrir utan spítalann enda bráðlá þeim stutta á í heiminn. Að lokinni fylgjufæðingu á spítalanum hélt fjölskyldan síðan heim á leið til Selfoss. Heilsast móður og barni vel. Móðirin, Sigrún Árnadóttir, missti vatnið yfir tíufréttunum og fór þá með manni sínum á Sjúkra- húsið á Selfossi, þar sem kom í ljós að höfuð barnsins sneri ekki rétt. Var þá ákveðið að senda hana til Reykjavíkur á spítala með sjúkra- bifreið, en þá fóru hlutirnir að gerast. „Í einhverri holunni á Hellis- heiðinni hefur barnið líklega snú- ist rétt, því þegar við vorum kom- in að mótum Miklubrautar og Hringbrautar varð ljóst að barnið var að koma, öllum að óvörum,“ sagði Þorsteinn Hoffritz. Hann er sjúkraflutninga- og lögreglumaður og er þetta fyrsta reynsla hans af ljósmóðurstörfum við óvenjulegar aðstæður. „Þetta er náttúrlega al- veg magnað og alltaf jafnmikill at- burður,“ sagði hann um hið við- burðaríka kvöld. Nýfæddi drengurinn á tvö eldri systkin, Ester Rún Antonsdóttur 8 ára og Árna Hoffritz 4 ára, sem nú er orðinn stóri bróðir. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Fjölskyldan á Sjúkrahúsi Suðurlands, f.v.: Ester Rún stóra systir, Sig- rún með son sinn, Árni stóri bróðir og faðirinn Þorsteinn Hoffritz. Tók á móti syni sín- um í sjúkrabifreið MARGT bendir til þess að ekki náist samkomulag á ráðstefnu SÞ um sjálf- bæra þróun í Jóhannesarborg um að skýr töluleg markmið verði sett í framkvæmdaskjal ráðstefnunnar um að notkun á endurnýjanlegri orku í heiminum verði aukin. Ríkin sem auka vilja hlut endurnýjanlegrar orku ætla hins vegar að hrinda af stað samstarfsverkefni á þessu sviði. „Um tveir milljarðar manna hafa ekki aðgang að orku í dag. Við verð- um að reyna að stuðla að því að þessi hluti jarðarbúa fái orku og tryggja um leið að hún verði eins hrein og nokkur kostur er,“ sagði Siv Frið- leifsdóttir umhverfisráðherra á fundi ríkjanna sem ætla sér að mynda sam- starfsvettvang þeirra sem vilja auka hlut endurnýjanlegrar orku. Að sam- starfinu standa einnig nokkur fyrir- tæki. Siv kynnti á fundinum hvernig Ís- land hefði staðið að málum. Um 70% orkunnar væru endurnýjanleg og ríkisstjórnin hefði nýlega samþykkt stefnuyfirlýsingu sem fæli í sér að innan nokkurra ára yrði öll orkunotk- un þjóðarinnar endurnýjanleg. Hún sagði að Ísland hefði aflað sér mik- ilvægrar reynslu á þessu sviði og hefði ýmislegt fram að færa. Andstaða frá Bandaríkjunum, Kanada og Japan Um 13% orkunýtingar heimsins í dag koma frá endurnýjanlegri orku. Ísland og fleiri ríki vildu að sett yrði í framkvæmdaáætlun fundarins ákvæði um að þetta hlutfall yrði hækkað upp í 15% til ársins 2015 og jafnframt að iðnríkin settu sér metn- aðarfull markmið á þessu sviði. Halldór Þorgeirsson, sem sæti á í sendinefnd Íslands á leiðtogafundi SÞ um sjálfbæra þróun, sagði að and- staða væri á fundinum við að sett yrðu inn í framkvæmdaáætlun fund- arins ákvæði sem innihéldu töluleg markmið um endurnýjanlega orku. Þróunarríkin hefðu tekið að sér að leggja fram tillögu að málamiðlunar- texta og ljóst væri að hann myndi ekki fela í sér töluleg markmið. Halldór sagði að þrátt fyrir ítarleg- ar viðræður hefði enn ekki náðst samkomulag um markmiðasetningu á þessu sviði. Evrópusambandsríkin, Noregur, Ísland, Sviss, Brasilía og Nýja-Sjáland hefðu barist fyrir þessu. Andstaða væri hins vegar við slíka markmiðasetningu, einkum af hálfu Bandaríkjanna, Kanada og Jap- ans. „Ísland hefur lagt töluvert mikla áherslu á að stuðla að útbreiðslu end- urnýjanlegrar orku, t.d. með jarð- hitaskóla Sameinuðu þjóðanna. Enn- fremur hafa íslensk fyrirtæki töluverða reynslu af virkjunum og þeirri tækni sem nýtir enurnýjanlega orku. Endurnýjun orku er einnig ein af þeim leiðum sem við teljum að hægt sé að fara til þess að takast á við loftslagsvandann. Við tökum þátt í þessu á þeim grunni að við höfum náð árangri á þessu sviði og höfum ým- islegt fram að færa,“ sagði Halldór. Viðræður um að hlutur endurnýjan- legrar orku verði aukinn Mikil and- staða við tölu- leg markmið Jóhannesarborg. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.