Morgunblaðið - 31.08.2002, Síða 21

Morgunblaðið - 31.08.2002, Síða 21
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2002 21 SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihús- anna hefur breytt útliti á vöru- merki fyrirtækisins, Icelandic, og samræmt vörumerki og nöfn dótt- urfélaga sinna. Ekki verða gerðar breytingar á nafni fyrirtækisins á Íslandi og verður það ennþá Sölu- miðstöð hraðfrystihúsanna. En er- lendis verður fyrirtækið kynnt sem Icelandic Group Plc. SH stendur á gömlum grunni, var stofnuð árið 1942 af nokkrum frystihúsum til að sinna sölumálum á sjávarafurðum erlendis. Síðan hefur vörumerki SH, Icelandic, verið byggt upp á mörkuðum er- lendis, með mestum árangri í Bandaríkjunum en Icelandic-vöru- merkið er eitt virtasta vörumerki frosinna sjávarafurða á Banda- ríkjamarkaði. Nafnið veigamesta breytingin Að sögn Gunnars Svavarssonar, forstjóra SH, hefur einnig verið lögð mikil vinna í að byggja vöru- merkið upp á öðrum mörkuðum í kjölfarið en sú vinna sé mislangt á veg komin og yfirleitt mun styttra en í Bandaríkjunum. „Þessi upp- bygging á vörumerkinu hefur verið nokkuð misjöfn, einkum hvað útlit varðar, og víða eru sérhönnuð merki fyrir einstaka markaði. Þannig er eitt merki notað á Bandaríkjamarkaði, annað í Frakk- landi og það þriðja á Spáni. Okkur fannst því þörf á að samræma þessa þætti, þannig að um yrði að ræða eitt vörumerki sem héti Ice- landic. Samhliða þessum útlits- breytingum á vörumerkinu, vildum við einnig tengja dótturfélög SH vörumerkinu og samræma nöfn þeirra sömuleiðis. Við viljum líta út fyrir að vera eitt fyrirtæki en ekki mörg sem eiga lítið sameiginlegt. Þó að dótturfélög okkar séu sjálf- stæð hvert á sínum markaði og eigi að tryggja sína eigin arðsemi og standa undir henni, þá viljum við að eitthvað tengi þessi fyrirtæki saman. Samræming á nafni og vörumerki er leiðin til þess.“ Sennilega er veigamesta breyt- ingin, eða að minnsta kosti sú sem flestir verða varir við, þegar nafn dótturfélags SH í Bandaríkjunum, Coldwater Seafood Corporation, breytist í Icelandic USA. Flest dótturfélög SH í Evrópu hétu fyrir Icelandic Freezing plants og verða þau kennd við þau lönd sem þau starfa í, þó með þeirri undantekn- ingu að Coldwater Seafood UK Ltd., dótturfélag SH í Bretlandi, mun áfram starfa undir sama nafni. „Það er vegna þess að starf- semi Coldwater í Bretlandi er nokkuð frábrugðin starfsemi ann- arra dótturfélaga okkar, því það vinnur aðallega undir vörumerkj- um verslanakeðja en er ekki með sjálfstætt vörumerki á markaðnum nema í mjög litlum mæli.“ Verið lengi í bígerð En hvað veldur því að ráðist er í slíkar breytingar nú? „Menn hafa eflaust lengi rætt slíkar breytingar hér hjá SH og vissulega er alltaf viðkvæmt að breyta útliti vörumerkja. Við ákváðum hinsvegar að hrinda af stað ítarlegri undirbúningsvinnu um hvort og hvernig ætti að standa að slíkum breytingum. Þegar komnar voru fram hugmyndir varð niðurstaðan sú að fara þessa leið. Einnig má benda á að fyrir fáum árum voru gerðar umfangsmiklar breytingar á rekstrarformi SH og þá breyttust áherslur innan fyr- irtækisins. Þá var stefna fyrirtæk- isins skilgreind að nýju en í henni felst að leggja áherslu á sölu undir eigin vörumerki á veitingamarkaði, jafnframt því að nýta þau tækifæri sem bjóðast í smásölu þar sem unnt er að skapa fyrirtækinu sér- stöðu. Við höfum með gæðastefnu okkar markað okkur stöðu á mörk- uðunum, hvar við viljum staðsetja okkar vörur á hverjum markaði fyrir sig. Við viljum halda áfram að bjóða ætíð bestu vöruna á viðkom- andi markaði og byggja á því góða starfi sem unnið hefur verið í gæðamálum, meðal annars með út- gáfu gæðahandbóka og gæðastaðla. Það er grunnurinn sem hið nýja vörumerki á að hvíla á og að þann- ig geti kaupandinn ætíð verið viss um að hann fái sömu gæðavöruna í hendur.“ Gunnar segir að vissulega taki tíma fyrir kaupendur að átta sig á slíkum breytingum. „Staðreyndin er hinsvegar sú að þrír fjórðu af vörumerki eru nafnið en ekki útlit- ið. Icelandic nafnið er þekkt en engu að síður má gera ráð fyrir að það taki breytingarnar allt upp í tvö ár að ganga í gegn.“ Vörumerkið Icelandic á að standa fyrir sjávarafurðir, gæða- vöru, hreinleika og framleiðsluað- ferðir Icelandic-samstæðunnar. Merkið var hannað hjá CAOZ- hönnunarstofu sem gerði fyrst í stað tugi tillagna að nýju merki. Tillögunum var síðan smám saman fækkað og þær þróaðar áfram og forsvarsmenn dótturfélaganna voru hafðir með í ráðum þegar valið var á milli fimm merkja sem til greina komu. „Þeir voru nánast allir sam- mála um niðurstöðuna og þannig erum við sannfærðir um að við höf- um valið gott merki sem endist vel,“ segir Gunnar. SH samræmir vörumerki og nöfn dótturfélaga erlendis Áhersla verður lögð á eitt vörumerki Nýtt vörumerki Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna var fyrst kynnt á sjáv- arútvegssýningunni í Brussel sl. vor og verður kynnt í fyrsta sinn hér á landi á Íslensku sjávarútvegssýningunni í Kópavogi 4. september nk. Nýtt vörumerki Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.