Morgunblaðið - 31.08.2002, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2002 51
DAGBÓK
ÞAÐ er furðulegt að enginn
bridshöfundur skuli hafa
skrifað bók um hrakföll við
spilaborðið, því bæði er tíðn-
in mikil og skemmtanagildið
þó nokkurt – a.m.k. fyrir þá
sem hafa gaman af „ís-
lenskri fyndni“. Aðeins eru
nokkrir dagar frá því við
sáum hrakfallasögu frá
meistaramóti Asíu í þessum
dálki. Sagan í dag kemur frá
opna heimsmeistaramótinu í
Kanada:
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ Á8
♥ Á643
♦ 5
♣K85432
Vestur Austur
♠ 95 ♠ K107642
♥ K ♥ 10
♦ ÁKD9874 ♦ G10632
♣DG6 ♣Á
Suður
♠ DG3
♥ DG98752
♦ –
♣1097
Vestur Norður Austur Suður
– 1 lauf 2 spaðar 4 hjörtu
4 spaðar 6 hjörtu Dobl Pass
Pass Pass
Spilið kom upp í undan-
úrslitum parakeppninnar.
Sagnir eru hressilegar, eins
og oft vill verða þegar skipt-
ingin er mikil.
Vestur lagði niður tígulás
í upphafi, sem suður tromp-
aði. Sagnhafi spilaði hjarta-
drottningu upp á ásinn og
hjarta til baka á gosann. Svo
lauftíunni að heiman.
Framhaldið er nokkuð
fyrirsjáanlegt í ljósi formál-
ans – vestur lagði gosann á
tíuna og sagnhafi dúkkaði!
Síðar svínaði sagnhafi fyrir
laufdrottningu og skrifaði
1660 í eigin dálk.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
MEYJA
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert samviskusamur,
skipulagður og áreiðanlegur.
Þú veist hvað þú vilt og
hvað þú þarft að gera til að
öðlast það. Á komandi ári
muntu leggja áherslu á
félagslíf og skemmtun.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert afslappaður og átt auð-
velt með að sýna öðrum vel-
vild í dag. Þér finnst veröldin
vera bjartari og vinalegri og
það má rekja það til þess að
þú ert sáttur við sjálfan þig.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Dagurinn hentar vel til hvers
kyns viðskipta. Þetta á sér-
staklega við um allt sem teng-
ist fasteignaviðskiptum og
innkaupum til heimilisins.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Dagurinn hentar vel til samn-
ingaviðræðna og persónu-
legra uppgjara. Þú hefur
skýra sýn á lífið og tilveruna.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Hikaðu ekki við að eyða pen-
ingum í dag. Viðskipti dags-
ins munu færa þér hagnað og
ánægju í framtíðinni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Láttu það eftir þér að njóta
dagsins með vinum þínum.
Mæltu þér mót við fólk í há-
deginu eða kaffinu. Samræð-
ur ykkar geta orðið líflegar
og skemmtilegar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú ættir að nota daginn til að
ræða við yfirmenn eða stofn-
anir um stjórnmál eða önnur
yfirgripsmikil mál. Það mun
koma þér á óvart hversu vel
verður tekið í hugmyndir þín-
ar
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Allt sem tengist útgáfustarf-
semi, fjölmiðlum og lögfræði
lítur vel út í dag. Bjartsýni
þín og kappsemi njóta sín.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sýndu áræðni og berðu þig
eftir því sem þú vilt í dag. Þú
nýtur stuðnings og getur því
ýtt undir starfsframa þinn
með hógværum hætti.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Flestir sem þú hittir í dag eru
skapgóðir og velviljaðir.
Þetta gerir þér gott því þér
finnst að fólk eigi að koma vel
fram hvert við annað.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Vertu sjálfsöruggur í
vinnunni í dag. Gerðu ráð fyr-
ir velgengni því hún er innan
seilingar.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ættir að þiggja þau boð
sem þér berast, hvort sem um
vinaboð eða ástarfundi er að
ræða. Þú munt örugglega
hafa gaman að.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú átt auðvelt með að sam-
ræma skyldur þínar í
vinnunni og á heimilinu í dag.
Þú ættir að vinna heima ef
þér gefst kostur á því. Það
gerir þig ánægðari og af-
kastameiri.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
VOGAR
Ég heyri stórsjóinn stynja af ekka
og standa á önd milli djúpra soga.
Um grunnið hver hrönn er hrapandi brekka
við hyldjúp gljúfur og skörð.
Grjótfjörur bergmálsins dunur drekka
og draga seiminn lengst fram í voga, –
þar blindskerin standa í boga
sem borgarvígi – og halda vörð.
Hve minningasvipirnir yngjast með árum.
Oft sé ég nú mínar fjallbröttu hlíðir
og teigana efstu með ársgömlum skárum
og einstöku runnatré.
– En heiðin er sjór með bjargföstum bárum
og brimgarð af fönn yfir allar tíðir.
Ó, harðgerði háfjallavíðir,
við hjarta mitt innst þú grerir í hlé.
– – –
Einar Benediktsson
1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. e3 g6 4.
Rf3 Bg7 5. Rc3 0-0 6. Be2
cxd4 7. exd4 d5 8. cxd5
Rxd5 9. 0-0 Rc6 10. Db3
Be6 11. Dxb7 Rxd4 12.
Rxd4 Bxd4 13. Bh6 Hb8 14.
Da6 Hxb2 15.
Rxd5 Bxd5 16.
Bxf8 Kxf8 17.
Hac1 Kg7 18. Bc4
Staðan kom upp
á Skákþingi Ís-
lands, landsliðs-
flokki, sem lauk
fyrir skömmu á
Seltjarnarnesi.
Jón Viktor Gunn-
arsson (2.357)
hafði hvítt gegn
Sævari Bjarna-
syni (2.264). 18...
Bxg2! 19. Kxg2
Da8+ 20. Kg3
Be5+ og svartur
gafst upp enda fátt til varn-
ar.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
75 ÁRA afmæli. Ámorgun, sunnudag-
inn 1. september, er 75 ára
Guðmundur Ólason frá Ísa-
firði. Af því tilefni tekur
hann á móti ættingjum og
vinum á heimili sonar síns,
Ísalind 5, Kópavogi, í dag,
laugardaginn 31. ágúst kl.
20.
70 ára afmæli. Á morg-un, sunnudaginn 1.
september, verður sjötug
frú Vilborg Einarsdóttir
ljósmóðir, Hornafirði. Eig-
inmaður hennar er Helgi
Hálfdanarson. Í tilefni af
þessum tímamótum ætlar
hún og fjölskylda hennar að
taka á móti gestum á
Smyrlabjörgum á afmælis-
daginn frá kl. 15–19.
Hlutavelta
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og myndasölu og
söfnuðu kr. 1.580 til styrktar börnum á Indlandi. Þær heita
Sóley Björk Atladóttir og Karen Sól Sævarsdóttir.
Veistu hvað! Ég fann
tösku heima, fulla af
peningum!
Mamma, pjakkurinn
er loksins búinn með
grautinn sinn. Ég taldi
honum trú um að þetta
væri drullumall.
Arnbjörg Finnbogadóttir
896 4655
Svæðanudd - unaður fyrir fætur
Jákvætt námskeið
um hjónaband og sambúð
í Hafnarfjarðarkirkju
7. árið í röð
Skráning hefst mánudaginn 2. september á
hið feikivinsæla hjónanámskeið
Hafnarfjarðarkirkju, sem yfir 5.000 manns
hafa tekið þátt í frá árinu 1996.
Á námskeiðinu er fjallað um samskipti
hjóna, leiðir til að styrkja hjónabandið,
orsakir sambúðarerfiðleika, leiðir út úr
vítahring deilna og átaka, ólíkar
fjölskyldugerðir, ástina, kynlífið,
hamingjuna og börnin fyrir utan allt hitt
Aðeins 15 pör komast á hvert námskeið.
Skráningarsími er 555 1295
á skrifstofutíma alla virka daga.
Þórhallur Heimisson
sóknarprestur
Hafnarfjarðarkirkju, en
hann hefur mikla reynslu
af fjölskyldustarfi.
" . /< 5
.5 5<
'2
" . /< 5 / .5 5<
1 - 2
3" ,) " 45"66!4/"66"
,, -
- '/7 8/48"
Til sölu ítölsk borðstofuhúsgögn
Borð stærð 160x120 með sex stólum - Skápur 270x53, hæð 1m.
Tilboð óskast.
Upplýsingar í síma 862 0557
Skólavörðustíg 21, sími 552 2419.
Sölusýning Antik-hússins
verður haldin í
Suðurhrauni 12C, Hafnarfirði,
frá fimmtudeginum 29. ágúst
til sunnudagsins 1. september frá kl. 14.00-18.00.