Morgunblaðið - 08.09.2002, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 08.09.2002, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2002 59 www.regnboginn.is Sýnd kl. 6 og 10.Sýnd kl. 4 og 8. Mán kl. 8. B.i. 10 ára The Sweetest Thing Sexý og Single „Besta mynd ársins til þessa“ 1/2HÖJ Kvikmyndir.com „Ein besta mynd þessa árs. Fullkomlega ómissandi.“  SV Mbl  HK DV  Radíó X Yfir 25.000 MANNS Sýnd kl. 8. B. i. 14. „meistaraverk sem lengi mun lifa“  ÓHT Rás 2 i t l i lif Sýnd kl. 4, 7 og 10. Mán kl. 7 og 10. B.i. 12 ára. mikeMYERS beyoncé KNOWLES and michaelCAINE Sýnd kl. 4 og 6. Mán kl. 6. með ísl. tali.  Radíó X Yfir 15.000 MANNS 1/2Kvikmyndir.is  HL Mbl Hverfisgötu  551 9000 Sannsöguleg stórmynd framleidd af Sigurjóni Sighvatssyni. Ingvar Sigurðsson fer á kostum í magnaðri mynd sem þú mátt ekki missa af! FRUMSÝNING Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.10. www.laugarasbio.is Sýnd kl. 2, 4 og 6. Mán kl. 4 og 6. Með íslensku tali. Almenn forsýning sunnudag kl. 2. Með íslensku tali.  SK Radíó X  ÓHT Rás2 „Enginn ætti að missa af þessari,“ Kvikmyndir.is Sýnd kl. 8 og 10.10. Sýnd kl. 6 og 9. B. i. 14. Yfir 25.000 MANNS Yfir 15.000 MANNS Sýnd kl. 1.50, 4, 6, 8 og 10.10. Mán kl. 4, 6, 8 og 10.10.  Radíó X 1/2Kvikmyndir.is Forsýning  HL Mbl MÉR LEIÐIST Transmet. Samt hefur höfundinum, Warren Ellis, tekist að fá mig til að lesa allar bæk- urnar sem út eru komnar í seríunni. Transmet (Transmetropolitan réttu nafni) hefur nefnilega allt að bera til að vera framúrskarandi myndasaga og er það á sinn hátt (en ekki minn, því miður) en nú er þolinmæði mín þó endanlega á þrotum. Sagan gerist í náinni framtíð eða mjög ýktri nútíð, öllu heldur. Í Borginni ægir öllu saman; mannúlf- ar, vélfólk, pólitíkusar, trúarofstæk- ismenn, öfuguggar, eitur- og tækni- fýklar, manngeimverur, keðju- reykjandi tvíhöfða kettir og önnur úrhrök heimsins fylla strætin. Á veggjum háhýsanna eru auglýsinga- skilti sem bjóða mannakjöt og sels- augu til átu og hægðabyssur og sveðjur til ofbeldis. Á götuhorni stendur Spider Jerusalem, blaða- maður með köllun. Tattúveraður í bak og fyrir, nauðrakaður, með jakkann fráhnepptan yfir bert brjóstið. Hann hatar Borgina og íbúa hennar og kemur heift sinni til leiðar í dálkum sínum í dagblaðinu Transmetropolitan. Í borg þar sem ný trúarbrögð eru fundin upp á fimm mínútna fresti hefur hann að- eins einn guð, Sannleikann. Það er þessi sannleikur sem lekur úr penna Ellis er sem hann leggur Spider orð í munn. Það er ekki erfitt að sjá hvert Ell- is er að fara með Transmet. Þetta er eitilhörð gagnrýni á nútíma sam- félag, séð í gegnum bjagaðan spé- spegil framtíðarsögunnar. Allt það sem finna má á síðunum, hversu ýkt eða ofboðslegt, má einnig finna í ein- hverri mynd í okkar daglega lífi. Ellis er því bara að svipta hulunni af Sannleikanum eins og hann sér hann og þótt hann noti til þess mjög kaldhæðinn tón held ég að honum sé full alvara. Transmet er því spenn- andi tilraun til samfélagsrýni en nú er svo komið eftir sex bækur að til- raunin ætti að vera um garð gengin og góð saga tekin við. Spider/Ellis líður í gegn um bæk- urnar í stanslausum reiðilestrum um hversu ömurlegt allt sé og að eini maðurinn með viti sé hann sjálf- ur. Orðaflaumurinn er yfirgengileg- ur og oft fyndinn en líður skjótt úr minni. Spider fer oftar í taugarnar á mér frekar en að skemmta og þótt Ellis hafi endalausar meiningar um allt sem skiptir máli þá er mér nokk sama um hans Sannleika því hann er, þegar öllu er á botninn hvolft, frekar rýr. Þegar maður litar um- hverfið í jafn myrkum litum og hann gerir er auðvelt að gagnrýna og þar liggur hundurinn grafinn. Forsend- urnar sem hann gefur sér eru sér- pantaðar til þess að gefa Spider færi á að röfla. Því sem ekki passar inn í neikvæðnina er sleppt og þannig verður sagan bara verkfæri til hug- leiðinga sem verða á endanum ein- hæfar og leiðinlegar. Þrátt fyrir hliðarsögur um bar- áttu gegn spilltum stjórnmálamönn- um og löggunni, aukapersónur eins og ritstjórann, lífvörðinn og ritar- ann nær Ellis engri áhugaverðri framvindu. Transmet er heiftúðug sápuópera án lokauppgjörs í lok þáttar. Það eina sem heldur manni við efnið eftir þetta langan tíma eru umhverfislýsingarnar en margar hverjar eru ótrúlega útsjónarsamar og á Ellis þar Darick Robertson, teiknara, gjöf að gjalda. Lýsingin á Borginni og íbúum hennar er enda- laust margslungin og nákvæm og lengi hægt að skoða yfirlitsmynd- irnar í leit að nýjum og skemmti- legum smáatriðum. Af því að allt er svo spillt og rotið er manni nokk sama um alla þá sem koma fram og þær fáu sögur sem reyna að skoða mýkri hliðar sam- félagsins verða hálfhjákátlegar eftir allt sem á undan er gengið. Inn á milli glittir þó í snilldina sem hefði getað orðið. Sagan Another Cold Morning sem finna má í annarri Transmet bókinni, Lust For Life, er hreint út sagt stórkostleg. Þar fáum við að lesa pistil eftir Spider sem hann skrifar í minningu um konu sem hafði verið vakin upp eftir að hafa verið í dái í langan tíma og við- brögð hennar við breyttu umhverfi. Ótrúlega sorgleg og sterk saga með hægum undirtón þar sem lesandan- um er gefið færi á að melta söguna á eigin hraða í staðinn fyrir að vera nauðmataður á því sem fram fer. Það eru þessir fáu gullmolar sem fá mig til að gangast undir pínslir Transmet með hverri nýrri bók. Lengi er því von á einum. MYNDASAGA VIKUNNAR Reiður, reið- ari, band- brjálaður Myndasaga vikunnar er Trans- metropolitan-bækurnar eftir Warren Ellis og Darick Robertson. Sex bækur eru út- komnar í seríunni. Vertigo gefur út. Bæk- urnar fást í myndasöguversluninni Nexus og á bókasöfnum um land allt. Spider í fullum herklæðum. Heimir Snorrason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.