Morgunblaðið - 08.09.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Vika símenntunar
Símenntun
gagnast öllum
VIKA símenntunarhefst í dag, sunnu-daginn 8. septem-
ber, með fjölbreyttri dag-
skrá um land allt. Vika
þessi hefur verið haldin
áður, en í tilefni hennar
ræddi Morgunblaðið við
Þóru Ragnheiði Stefáns-
dóttur, verkefnisstjóra
átaksins, sem kalla má
svo. Ragnheiður svaraði
nokkrum spurningum um
Viku símenntunar og fara
svör hennar hér á eftir.
– Hver heldur þessa
viku?
„Vika símenntunar er
haldin af menntamála-
ráðuneytinu og sér Mennt
um skipulagningu og
framkvæmd í samvinnu
við símenntunarmisðtöðvar um
land allt. Þetta er í þriðja sinn
sem Vika símenntunar er haldin
hér á landi en þetta er alþjóðlegt
verkefni og er hún haldin í yfir 30
löndum. Undirbúningur hefur
staðið yfir í nokkra mánuði og
koma fjölmargir þar að. Að auki
tekur Ísland þátt í samnorrænu
verkefni í tengslum við vikuna
sem tengist lýðræði og hlut sí-
menntunar í virkri þátttöku fólks
í samfélaginu.“
– Hvað, í stuttu máli, er sí-
menntun og hverjum gagnast
hún helst?
„Í stuttu máli má segja að sí-
menntun sé ferli sem einstakling-
urinn gengur í gegnum allt lífið
til að öðlast nýja þekkingu og
hæfni. Menntun lýkur ekki þótt
formlegri skólagöngu ljúki, held-
ur er einstaklingurinn að læra
allt lífið. Símenntun á því bæði við
um formlegt nám innan skóla-
kerfisins og nám utan hins hefð-
bundna skólakerfis. Við erum að
læra og bæta við okkur þekkingu
og hæfni allt lífið, ekki bara með
þátttöku í námskeiðum, heldur
lærum við líka af fjölskyldunni,
vinnufélögum, vinahópnum og
með sjálfsnámi. Símenntun
gagnast öllum og því leggjum við
áherslu á hvatningu til almenn-
ings. Menntun leiðir ekki einung-
is af sér meiri hagvöxt fyrir þjóð-
ir, heldur ekki síður aukinn
skilning einstaklingsins á sér
sjálfum. Einstaklingurinn verður
virkari og betur í stakk búinn til
að takast á við verkefni í síbreyti-
legu samfélagi og taka þátt í mót-
un samfélagsins.“
Hvert er þema vikunnar?
„Þema vikunnar að þessu sinni
er símenntun í atvinnulífinu og er
markhópurinn því allir sem taka
þátt í atvinnulífinu hvort sem um
er að ræða stjórnendur eða al-
menna starfsmenn; alla þá sem
vilja bæta við þekkingu sína og
verða þannig hæfari starfskraft-
ar. Auk þessa leggjum við
áherslu á almenna hvatningu um
mikilvægi símenntunar.“
– Hvernig náið þið þessu fram?
„Við verðum með dagskrá alla
vikuna á öllu landinu. Vika sí-
menntunar verður
opnuð formlega í dag á
Hofsósi af mennta-
málaráðherra, Tómasi
Inga Olrich, í
tengslum við Learn-
Com-verkefnið sem styrkt er af
Leonard, starfsmenntaáætlun
Evrópusambandsins. Á mánudag
er svokallaður „Markviss“-dagur
en það er samstarfsverkefni sí-
menntunarstöðvanna sem lýtur
að starfsmannaþróun. Þennan
dag verður heimasíða verkefnis-
ins opnuð en hún er www.mark-
viss.com.
Á miðvikudag verður haldið
málþing á Hótel Loftleiðum undir
yfirskriftinni: Símenntun í at-
vinnulífinu – Hver er staðan,
hvert stefnir? Menntamálaráð-
herra setur málþingið. Fyrir-
lesarar verða dr. Jón Torfi Jón-
asson, Vilborg Einarsdóttir,
Guðjónína Sæmundsdóttir og
Hrafnhildur Tómasdóttir. Aðal-
fyrirlesari er síðan Bretinn Alan
Tuckett sem nefndur hefur verið
hugmyndasmiður að Viku sí-
menntunar í Evrópu.
Í fimmtudag er símenntunar-
dagur í fyrirtækjum og er hann
farinn að festa sig í sessi. Við
hvetjum öll fyrirtæki til að helga
daginn fræðslumálum starfs-
manna sinna.
Á föstudag verða Starfs-
menntaverðlaunin 2002 afhent af
forseta Íslands og er þetta í
þriðja sinn sem þau verða veitt. Á
laugardag verðum við svo með
heilmikla fræðsluhátíð í Smára-
lindinni þar sem fræðsluaðilar
kynna námsframboð sitt. Að auki
verður formleg opnun á
www.mennt.is sem er upplýs-
ingavefur um námsframboð.“
– Hvað með landsbyggðina?
„Dagskrá á landsbyggðinni
verður fjölbreytt og má þar nefna
að Fræðslumiðstöð Þingeyinga
verður með heimsóknir í fyrir-
tæki, Símenntunarstöð Eyja-
fjarðar verður með ráðstefnu um
starfsþróun í eyfirskum fyrir-
tækjum. Miðstöð símenntunar á
Suðurnesjum verður með ráð-
stefnu um símenntun í atvinnulíf-
inu, markvissa upp-
byggingu starfsmanna.
Fræðslunet Suður-
lands verður með há-
degisverðarfund um
gildi starfsmenntunar,
Fræðslunet Austurlands verður
með kynningu á menntasmiðjum.
Farskóli Norðurlands vestra
verður með hádegisverðarfundi,
Fræðslumiðstöð Vestfjarða verð-
ur með örnámskeið um atvinnu-
leit og Símenntunarstöðin á Vest-
urlandi verður með hádegis-
verðarfund. Bókasöfnin í landinu
taka einnig þátt og kynna sína
dagskrá á www.hvar.is.“
Þóra Ragnheiður Stefánsdóttir
Þóra Ragnheiður Stefáns-
dóttir er fædd á Akureyri 2. júní
1967. Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri
1988 og BA-prófi í uppeldis- og
menntunarfræði frá Háskóla Ís-
lands 1995. Hún var skrifstofu-
stjóri heilbrigðisdeildar Háskól-
ans á Akureyri 1996–2000 og
ritstjóri kennsluskrár skólans á
sama tíma. Var síðan verk-
efnastjóri hjá Mennt, samstarfs-
vettvangi atvinnulífs og skóla
2001–2002 en er nú fram-
kvæmdastjóri Menntar.
Einstakling-
urinn verður
virkari
SAMGÖNGURÁÐ kom í fyrsta
skipti saman til fundar nýlega, en
samgönguráðherra skipaði í ráðið
samkvæmt lögum um samgöngu-
áætlun, sem samþykkt voru á Al-
þingi í vor. Formaður ráðsins er
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sem
situr í ráðinu sem fulltrúi sam-
gönguráðherra. Þá sitja flugmála-
stjóri, siglingamálastjóri og vega-
málastjóri í ráðinu.
Vilhjálmur segir að samgöngu-
ráð hafi lögum samkvæmt yfirum-
sjón með gerð samgönguáætlunar.
Það fjalli um samgöngur hvort
sem er í lofti, á láði eða legi. Ráð-
ið muni gera drög að þingsálykt-
unartillögu um samgönguáætlun
2003–2014, en því tímabili sé þó
skipt í styttri tímabil.
Á myndinni eru frá vinstri Jak-
ob Falur Garðarsson, Sigurbergur
Björnsson, Jóhann Guðmundsson,
Jón Birgir Jónsson, Sturla Böðv-
arsson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, Hermann Guðjónsson, Þor-
geir Pálsson og Jón Rögnvaldsson.
Morgunblaðið/Þorkell
Samgönguráð á fyrsta fundi
FULLTRÚAR Falun Gong funduðu
með starfsmönnum dóms- og utan-
ríkisráðuneytisins vegna þeirra að-
gerða sem iðkendur Falun Gong
voru beittir hér í júní í sumar og
banni við að sumir þeirra kæmust til
landsins. Talsmenn Falun Gong
segjast hafa orðið fyrir vonbrigðum
með að íslensk stjórnvöld hafi á
fundinum hafnað öllum möguleikum
sem samtökin hafi bent á til þess að
leysa ágreining. Stefán Eiríksson,
skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneyt-
inu, segir að ekki sé að vænta frekari
viðbragða af hálfu hins opinbera að
svo stöddu.
John Nania, einn fulltrúa Falun
Gong sem sat fundinn, segir að menn
hafi rætt opinskátt um atburðina í
sumar auk ástands mannréttinda-
mála í Kína almennt. „Íslensk stjórn-
völd höfðu í reynd ekki neitt nýtt
fram að færa á fundinum. Við höfð-
um sett fram hugmyndir um mögu-
legar lausnir í málinu, s.s. að íslensk
stjórnvöld viðurkenndu að þeim hafi
orðið á mistök, eða að þau greiddu
þeim einstaklingum sem urðu fyrir
barðinu á þeim skaðabætur, að þau
fordæmdu opinberlega ofsóknir sem
eiga sér stað í Kína eða þau gerðu op-
inberan hinn svokallaða svarta lista
yfir iðkendur Falun Gong og eyddu
honum síðan. Auðvitað voru til aðrar
leiðir en þetta voru þau atriði sem við
bentum á til þess að bæta mönnum
skaðann. Og skaðinn snýr ekki bara
að Falun Gong heldur Íslendingum
öllum og tiltrú þeirra á stjórnvöldum
og stöðu Íslands sem mannréttinda-
ríkis í alþjóðasamfélaginu.“
Höfnuðu öllum
mögulegum lausnum
Nania segir að íslensk stjórnvöld
hafi hins vegar algerlega hafnað öll-
um þessum möguleikum og ekki
bent á nokkra aðra kosti, s.s. að at-
burðir sem þessir myndu ekki end-
urtaka sig. „Íslensk stjórnvöld virð-
ast ekki vera reiðubúin til þess að
gera eitt eða neitt í málinu, það voru
skilaboðin sem við fengum.“
Aðspurður viðurkennir Nania að
fundurinn hafi vissulega valdið sér
miklum vonbrigðum. „Við vonuð-
umst eftir ákveðnum hlutum og höf-
um ekki gefið þær vonir upp á bát-
inn. Málinu er engan veginn lokið af
okkar hálfu og við munum nú íhuga
næstu skref.“
Stefán Eiríksson, skrifstofustjóri í
dómsmálaráðuneytinu, segir menn
hafi skipst á skoðunum og upplýs-
ingum. „Þetta var langur fundur og
við förum mjög ýtarlega yfir hvernig
þetta allt sneri að íslenskum stjórn-
völdum.
Jú, opinber afsökun var eitt af því
sem fulltrúar þeirra nefndu en það
er auðvitað ekki ákvörðun sem emb-
ættismenn taka en ég held ég geti
sagt að það séu engar forsendur til
þess af hálfu stjórnvalda enda höfum
við útskýrt mjög vel hvaða forsendur
lágu að baki okkar ákvörðunum á
þessum tíma. Við erum bundnir sam-
kvæmt alþjóðlegum samningum að
gæta öryggis þjóðarleiðtoga þegar
þeir koma hingað í opinbera heim-
sókn og það var verkefnið sem við
stóðum frammi fyrir þá.“
Stefán segist vitaskuld ekki geta
sagt til um hver framvindan verði nú
af hálfu Falun Gong en af hálfu
stjórnvalda sé ekki fyrirsjánleg nein
framvinda í framhaldi af fundinum.
Fulltrúar Falun Gong funda með stjórnvöldum
Ekki reiðubúin til að
bæta fyrir mistökin