Morgunblaðið - 08.09.2002, Blaðsíða 55
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2002 55
h.is
....og námið og vinnan
léttast til muna!
• Framkoma og líkamsburður
• Innsýn í fyrirsætustörf
• Förðun
• Umhirða húðar og hárs
• Undirbúningur fyrir myndatöku
• Myndataka (16 sv/hv myndir)
• Tískusýningaganga
• Fíkniefnafræðsla frá Götusmiðjunni
• Myndbandsupptökur
• Leikræn tjáning
Sex vikna námskeið hefjast 16. og 18. september.
Kennt verður einu sinni í viku, einn og hálfan tíma í senn.
Umsjónarmaður námskeiðsins er Kolbrún Pálína Helgadóttir,
Ungfrú Island.is 2001, auk frábærra gestakennara.
Námskeiðinu lýkur með stórri tískusýningu í Kringlunni. Stúlkurnar
verða farðaðar af nemendum förðunarskóla NO NAME.
Allir þátttakendur fá Eskimo bol, viðurkenningarskjal, 16 sv/hv
myndir, lyklakippu og kynningarmöppu.
Verð 14.900 kr.
Skráning er hafin í síma 533-4646 og
á vefsíðunni www.eskimo.is.
JÆJA. Þá er Brúsi frændi kominn
aftur með látum og í þetta sinnið með
The E-Street Band með sér. Plata
þessi, The Rising, er samin undir
miklum áhrifum frá hinum voveiflegu
atburðum sem hentu Bandaríkja-
menn fyrir tæpu ári er hryðjuverka-
árás var gerð á New York.
Fyrir minn part
er ég búinn að fá
mig fullsaddan á
þessu væli út af 11.
september, sem
Bandaríkjamenn
halda að heiminum
í krafti menningarpólitískra yfir-
burða sinna. Það mætti halda að það
hefði ekki verið framið hryðjuverk
fyrr en ráðist var á Bandaríkin. Árið
1994 voru 400 þúsund manns drepnir
á þremur mánuðum í Rúanda. Skrýt-
ið að enginn skyldi fá innblástur frá
því …
Ennfremur er undarlegt að sjá
Springsteen skyndilega í hlutverki
föðurlandssinna, maðurinn sem hefur
í gegnum tíðina haldið uppi úthugs-
aðri, hollri og oft frábærlega fram-
settri gagnrýni á heimaland sitt (tit-
illag Born in the USA er líkast til
skýrasta dæmið þar um).
En hvað um það. Springsteen má
eiga það að hann einbeitir sér að
mannlegheitunum hvað þennan
margumtalaða atburð varðar og forð-
ast (skynsamlega) rammar, belgings-
legar yfirlýsingar um ágæti föður-
landsins.
Rómantíkerinn Springsteen hefur
alltaf verið frábær textasmiður og fá-
ir hafa getað lýst lífi bandaríska
þurfamannsins af meira andríki en
„Bossinn“ („Is a dream a lie if it don’t
come true/Or is it something worse“
var kveðið í „The River“). Hér er
hann orðhagur sem fyrr, þó að við-
fangsefnið sé oft og tíðum vafasamt.
The Rising hefur mikið verið
hampað að undanförnu af gagnrýn-
endum. Sannast sagna er mestan
part um rykþyrlun að ræða sem stýr-
ist efalaust af hungri eftir „alvöru“
Springsteen-plötu í bland við nostalk-
lígju. Gleymum því ekki að um 15 ár
eru síðan maðurinn kom með viðun-
andi plötu (Tunnel of Love). Human
Touch/Lucky Town-tvennan var von-
brigði og afturhvarfið til einfaldleik-
ans á The Ghost of Tom Joad um
margt veikt.
The Rising er hins vegar … ágæt
plata. En ekki miklu meira en það.
Vissulega fara löngu gleymdir
straumar um mann er hið einstaka E-
strætis-„grúv“ fer í gang en það er
bara ekki nóg. Það eru firnagóðir
sprettir hér; „The Fuse“, „You’re
Missing“, „The Rising“ og lagið
„Worlds Apart“, hvar Springsteen
spilar með arabískum tónlistarmönn-
um. Hiklaust best heppnaða – og
sterkasta – athugasemdin um 11.
september.
En hér eru og býsnin öll af þunnum
þrettándum (eða elleftum?): „Lone-
some Day“, „Waitin on a Sunny
Day“, „Mary’s Place“, „Let’s Be Fri-
ends (Skin to Skin)“ o.fl. Afgreiðslu-
lög sem maður ímyndar sér að hafi
verið hafnað fyrir The River á sínum
tíma. Og maður brosir hálfpartinn í
kampinn að hljóðgervlahljómum sem
virðast pikkaðir upp úr tímavél.
The Rising hljómar að mörgu leyti
sem virðingarvottur við gamla aðdá-
endur – einhvers konar ellibundin
blanda af Darkness … og The River.
Og efalaust munu þessir aðilar fagna
plötunni sem meistaraverki. En mig
grunar að ekki verði eins auðsótt að
afla nýrra aðdáenda. Til þess er plat-
an of áreynslulaus, of rígbundin ákalli
til „gömlu góðu daganna“ (eða „Glory
Days“ eins og Brúsi myndi segja!).
The Rising er ójafnt verk sem gef-
ur engu að síður fögur fyrirheit um
hugsanlegt framhald. Það er að segja
ef rykinu verður þá sópað almenni-
lega af E-strætinu.
Tónlist
Aftur til
E-strætis
Bruce Springsteen
The Rising
Sony
Bruce Springsteen sameinast E-Street
Band á nýjan leik á plötu sem m.a. er inn-
blásin af 11. september. Síðasta plata
þess teymis var „skrímslið“ Born in the
USA.
Arnar Eggert Thoroddsen alltaf á föstudögum