Morgunblaðið - 28.09.2002, Side 12

Morgunblaðið - 28.09.2002, Side 12
FRÉTTIR 12 LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Kári, er það ekki óheppilegt að ÍE skuli á sama andartakinu þurfa að tilkynna ákvörðun um uppsagnir 200 starfsmanna og upplýsa um samning við bandaríska lyfjafyrir- tækið Merck sem gæti gefið fyr- irtækinu yfir 90 milljónir dala í tekjur? „Nei, og það er engin tilviljun að við segjum frá þessu á sama augna- bliki. Vegna þess að þegar við erum að ákveða hvernig við hagræðum innan fyrirtækisins, þá er mjög mikilvægt að hafa sýn á það hvers konar tekjur við verðum með á næstu árum. Þessi samningur við Merck bætir töluvert við okkar tekjur og hjálpar okkur við að sníða þann ramma, sem við verðum að vera innan. Það er í rauninni tvennt sem veldur því að við getum nú minnkað fyrirtækið talsvert: Við erum búin að vinna mjög mikla grundvallar- vinnu, sem snýr að mannerfðafræði. Við erum búin að búa til mjög mikið af niðurstöðum sem gagnast okkur við rannsóknir. Ekki bara rann- sóknir á sjúkdómum sem við höfum verið að vinna við hingað til, heldur líka sjúkdómum sem við komum til með að rannsaka í framtíðinni. Við erum því búin að safna mjög mikið í sarpinn. Í öðru lagi erum við búin að setja saman hugbúnað og vinnu- ferla, sem gera það að verkum að við getum unnið erfðafræðivinnuna mun hraðar og með miklu færra fólki en við gátum áður. Það að við verðum að gera þetta núna helgast af því að við búum í hörðum heimi, þar sem við verðum að hafa tekjur til þess að standa undir þeim rekstri sem við erum með. Þegar við vorum síðast að ráða fólk inn í fyrirtækið, þá var um- hverfið allt annað. Markaðirnir í þessum iðnaði voru miklu gjöfulli en þeir eru í dag. Þó svo að mönnum hafi verið tíðrætt á Íslandi um þá meðferð sem okkar fyrirtæki hefur fengið á markaði, þá vil ég benda á það, að þetta er ekkert einsdæmi sem gerst hefur með okkur, því það sama hefur gerst með allan þann iðnað sem við vinnum í. Nú síðast, bara fyrir tveimur dögum, þá var þýska hátæknimarkaðnum, Neue Markt, lokað eins og hann leggur sig, vegna þess að hann hafði tapað 96% af þeim verðmætum sem þar voru fyrir tveimur árum. Þannig að hvarvetna í heiminum er þetta um- hverfi mjög hart og við verðum eins og aðrir að reikna með því að það verði mjög erfitt að sækja þangað fé, til þess að standa undir rekstri. Reksturinn okkar verður að standa undir sér sjálfur. Með því að fækka innan fyrirtæk- isins, eins og við erum að gera núna, þá erum við að búa okkur undir það og lítum svo á, að það séu raunverulega framkvæmanlegar áætlanir sem við höfum gert, þann- ig að reksturinn á næsta ári verði að minnsta kosti í járnum, eða skili í besta falli einhverjum hagnaði. Þetta verðum við að gera, þetta er hið eina ábyrga sem við getum gert, til að sjá til þess að fyrirtækið verði hér um einhverja framtíð.“ Þú segir verðum að skila hagnaði. Þið hafið verið að reka ykkur með umtalsverðu tapi fram á þennan dag... „Þú segir að við höfum verið reknir með miklu tapi. Ef hér hefði verið um að ræða virkjun eða álver, hefðu menn sagt að um fjárfestingu væri að ræða og hér væri um stofn- kostnað að virkjuninni eða álverinu að ræða. Það sem hefur verið fjallað um í íslenskum fjölmiðlum, sem tap á rekstri Íslenskrar erfðagreiningar, hefur að mestu leyti verið fjárfest- ing við að byggja upp hugverk inn- an fyrirtækisins. Þessi verðmætu hugverk verða að vera til innan fyr- irtækisins, sem grundvöllur áfram- haldandi starfsemi og rannsókna okkar. Í mínum huga er þetta því ekki taprekstur, heldur fjárfesting við uppbyggingu.“ Gott og vel, en í bókhaldi heitir þetta nú samt sem áður tap og spurning mín er þessi: Þið hafið fjármagnað þennan taprekstur eða fjárfestingu við uppbyggingu fyr- irtækisins með sjóðum í eigu fyr- irtækisins. Eru sjóðir Íslenskrar erfðagreiningar að verða uppurnir? „Nei, við eigum vel yfir hundrað milljónir dollara í okkar sjóðum í dag. Það sem við erum að gera, er að myndast við að hafa stjórn á okkar framtíð, með því að skera niður og herða sultarólina núna, þegar aðstæður krefjast þess. Við erum að endurskipuleggja fyrirtæk- ið, þegar við getum gert það, án þess að ytri öfl þrýsti of mikið á okkur. Við erum að gera þetta á okkar hátt og á okkar forsendum á meðan við höfum styrk til þess. Þetta er gert á nákvæmlega réttum tíma og að nákvæmlega réttu marki. Ég held að okkar fyrirtæki sé betra og sterkara eftir en áður. Að því sögðu, þá er alveg hræðilegt að þurfa að fara í gegnum þetta. Þetta er mun erfiðara en mig hefði nokkurn tíma grunað, þótt ég hafi alltaf talið að það hlyti að vera mjög erfitt að þurfa að ráðast í svo rót- tækar aðgerðir sem þessar upp- sagnir eru. Það er afar hryggilegt að þurfa að sjá á bak öllu þessu vel- menntaða og hæfa unga fólki, sem þurfti að hverfa héðan í morgun og þarf nú að leita sér að vinnu annars staðar.“ Hefur ímynd fyrirtækisins ekki beðið hnekki við mestu fjöldaupp- sagnir sem nokkurn tíma hafa átt sér stað hér á landi? „Ekki veit ég hvort þessi stað- hæfing þín er rétt. Okkar hlutverk er ekki að vera í einhverju ímynd- arkapphlaupi. Vel má vera að mörg- um þyki þetta sárt, sem eðlilegt er. Þetta getur einnig haft áhrif á það hvernig einhver hópur manna lítur á okkur, en ef við hefðum ekki gert þetta, þá hefðum við verið að reka fyrirtækið á mjög óábyrgan hátt og mjög líklegt að það hefði ekki verið neina ímynd að verja að lokum, ef þetta hefði ekki verið gert. Það verður á stundum að gera fleira en gott þykir.“ Þið segið upp 200 manns í dag – hagræðið og stefnið að hagnaði þeg- ar á næsta ári. – Hversu miklum sparnaði mun þessi aðgerð skila fyrirtækinu á ársgrundvelli? „Ég get ekki gefið þér nákvæma tölu þar að lútandi, en í grófum dráttum reikna ég með að það sé í kringum 2,5 milljarðar króna sem fyrirtækið sparar á ársgrundvelli við þessar uppsagnir.“ Hversu margir Íslendingar eru í þessum 200 starfsmanna hópi? „Ég lít ekki á starfsmenn þessa fyrirtækis sem Íslendinga og út- lendinga. Þetta eru starfsmenn Ís- lenskrar erfðagreiningar.“ Samt sem áður, Kári, lesendur Morgunblaðsins hafa ugglaust mikinn áhuga á að vita hversu margir Íslendingar misstu vinnu sína hjá Íslenskri erfðagreiningu í morgun. „Á ég að segja þér nokkuð. Mitt hlutverk er ekki að þjóna lesendum Morgunblaðsins. Mitt hlutverk er að reka þetta fyrirtæki og ég lít á starfsmennina hér, sem einn sam- stæðan hóp manna.“ Þú neitar þá að svara þessari spurningu. „Algjörlega, gjörsamlega. Agnes, ég hef engan áhuga á að veita þér þessar upplýsingar. Ég brýt ekki starfsmenn fyrirtækisins niður í karla eða konur, Íslendinga eða út- lendinga, gamla eða unga. Hér er hópur manna að vinna að ákveðnu verkefni og mér ber skylda til þess að líta á þá sem einn hóp.“ Þið gerðuð þessum starfsmönn- um ykkar það kl. 10 í morgun að yf- irgefa vinnustaðinn þegar í stað. – Hvers vegna var þetta gert með þessum hætti? „Vegna þess að hagsmunaráð starfsmanna hafði beðið um að starfsmönnum yrði gert kleift að yf- irgefa vinnustaðinn þegar í stað. Við tókum ákvörðunina, en að beiðni hagsmunaráðsins. Ég ímynda mér að hugsunin að baki þessari ósk hagsmunaráðsins hafi verið sú, að reyna að hlífa fólki, bæði þeim sem sagt var upp og þeim sem starfa áfram hjá fyrir- tækinu, við þeim tilfinningalegu árekstrum sem upp gætu komið, við það að menn sem sagt hafði verið upp störfuðu áfram við hlið þeirra sem halda starfi sínu. Það væri sjálfsagt hægt að út- færa starfslok þeirra sem sagt var upp á ýmsa vegu. Ég hef enga sér- staka skoðun á því hvernig ætti að gera það. Þetta er sú leið sem var valin og ég sá enga ástæðu til þess að fetta fingur út í það.“ Hvaða menntun hafa þessir 200 starfsmenn sem sagt var upp í morgun? „Þetta er hópur af fólki með alls konar menntun. Þarna eru starfs- menn með læknismenntun og dokt- orsgráðu og þarna eru starfsmenn með aðrar háskólagráður og eins starfsmenn sem eru minna mennt- aðir. Það sem réð því hvernig þessi hópur var valinn voru ákvarðanir hópstjóra þeirra, sem voru að vinna hin ýmsu verkefni. Þar var lagt til grundvallar mat á þeirri þekkingu, getu og reynslu sem starfsmenn- irnir bjuggu yfir, auk þess sem starfsaldur hjá fyrirtækinu réð nokkru. Það þarf auðvitað ekki að leiða neinum getum að því, þegar verið er að segja upp svo stórum hópi starfsmanna, í fyrirtæki sem er þó ekki stærra en þetta, að þá er fullt af fólki sem er sagt upp, sem við hefðum viljað leggja mikið á okkur, til þess að geta haldið hér áfram. Það skiptir í raun og veru ekki svo miklu máli, þegar svona sársauka- full aðgerð er ákveðin, hvernig hún er framkvæmd. Þetta er alltaf sárs- aukafullt og það er engin aðferð rétt, þegar grípa þarf til svona úr- ræða. Þetta er í einu orði sagt vont.“ Þið gefið það út, að erfðafræði- rannsóknir ykkar og ýmsar þjón- usturannsóknir fyrir lyfjageirann skili ÍE umtalsverðum tekjum sem gert sé ráð fyrir að dugi til að ná jafnvægi í rekstri með um 450 starfsmenn í stað 650 áður. Hvaða starfsemi er verið að leggja af við uppsagnir þessara 200 starfs- manna? „Við erum enga starfsemi að leggja af – enga. Við erum engin verkefni að leggja af, eða hætta neinum rannsóknum. Við erum að breyta um vinnulag að töluverðu leyti og vinna á miklu sjálfvirkari hátt heldur en við gerðum. Við eig- um grunn sem við getum farið í aft- ur og aftur og ég stend á því fastar en fótunum, að afköst okkar í þessu smækkaða fyrirtæki koma ekki til með að minnka. Á síðustu sex árum höfum við verið að þenjast út, með ótrúlegum hraða. Ef við hefðum haldið þessum Kári Stefánsson segir að ÍE eigi yfir hundrað millj- ónir dollara í sjóðum Hryggileg en bráð- nauðsynleg aðgerð Íslensk erfðagreining sagði í gær upp 200 starfsmönnum, þannig að hér eftir verða þeir um 450 í stað 650. Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, dregur á engan hátt úr því hversu sársaukafull aðgerð þetta er. Hann segir Agnesi Bragadóttur frá ástæðum uppsagnanna, sem á ársgrundvelli munu líklega spara fyrirtækinu um 2,5 milljarða króna. Hann rekur einnig þýðingu þess samstarfs- samnings sem Íslensk erfðagreining gerði við bandaríska lyfjafyrirtækið Merck í gær. Morgunblaðið/Sverrir Kári Stefánsson. „Líður eins og refnum sem nagaði af sér fótlegginn, þegar hann festist í gildrunni.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.