Morgunblaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 1
249. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 24. OKTÓBER 2002
HÓPUR Tsjetsjena, líklega nokkrir
tugir manna og kvenna, réðst í gær-
kvöld inn í leikhús í Moskvu þar sem
hann tók alla leikhúsgesti, leikara og
starfsmenn í gíslingu, hugsanlega
um 700 manns. Hótuðu þeir að
sprengja húsið í loft upp ef rússnesk-
ar öryggissveitir reyndu að ráðast
inn eða ef ekki yrði orðið við þeirri
kröfu þeirra, að Rússar flyttu allan
sinn her frá Tsjetsjníu tafarlaust.
Hundruð rússneskra hermanna og
sérsveitarmanna umkringdu húsið
en höfðu ekki ráðist til inngöngu
þegar síðast fréttist.
Haft er eftir vitnum, að mennirnir
hafi komið að húsinu alvopnaðir í
nokkrum bílum, lokað öllum út-
gönguleiðum þess og ógnað síðan
fólkinu með skothríð. Breska útvarp-
ið BBC greindi frá því að ótiltekinn
fjöldi fólks hefði komist út úr húsinu
með því að stökkva út um glugga á
þriðju hæð. Skotið hefði verið að
fólki er það flúði út úr húsinu.
Í viðtölum Tsjetsjenanna við
fréttastofur sögðust þeir tilbúnir að
deyja fyrir málstaðinn og reiðubúnir
að sprengja upp húsið, Menningar-
höllina, sem er í suðausturhluta
Moskvuborgar, yrði ekki orðið við
kröfum þeirra. Sögðust þeir vera
undir forystu frænda tsjetsjneska
stríðsforingjans Arbi Barajevs, sem
féll í fyrra, og vera í „sjálfsmorðs-
sveit 29. deildar“. Í fyrstu var talið,
að Tsjetsjenarnir væru 20 talsins en
síðar voru þeir sagðir vera 40 til 50.
Leyfðu þeir allt að 150 manns að yf-
irgefa leikhúsið, börnum, útlending-
um og múslimum.
Gífurlegur viðbúnaður
Rússneskar sérsveitir, svokallað-
ar Alpha-sveitir, sérþjálfaðar í bar-
áttu við hryðjuverkamenn, girtu af
húsið og nágrenni þess og rússneska
öryggislögreglan og innanríkisráðu-
neytið gerðu virka áætlun, sem kall-
ast „Þrumuveður“ og kallar alla for-
ingja til deilda sinna.
Skothvellir heyrðust við bygg-
inguna seint í gærkvöldi og töldu
sjónarvottar að þeir hefðu ekki bor-
ist úr leikhúsinu.
Vladímír Pútín, forseti Rússlands,
fylgdist náið með framvindunni og
fréttir voru um, að tsjetsjneskur
þingmaður á rússneska þinginu hefði
farið inn í leikhúsið til viðræðna við
gíslatökumennina. Gíslar, sem leyft
var að hringja þaðan, vöruðu hins
vegar við því, að reynt yrði að ráðast
til inngöngu í leikhúsið.
ITAR-Tass-fréttastofan rúss-
neska sagði, að Tsjetsjenarnir hefðu
komið fyrir sprengjum í leikhúsinu
en sjónvarpsstöðin TV6 hafði eftir
gíslum, sem hringdu þaðan, að
Tsjetsjenarnir væru sjálfir með
sprengjurnar bundnar við sig. Þá
sagði útvarpsstöðin Echo í Moskvu,
að Tsjestsjenarnir hefðu hótað að
drepa 10 gísla fyrir hvern einn, sem
félli úr þeirra röðum.
Heimasíða tsjetsjneskra skæru-
liða staðfesti í gærkvöld, að gísla-
tökumennirnir væru tsjetsjneskir og
væri krafa þeirra sú, að Rússar
flyttu her sinn frá Tsjetsjníu.
Ekki var ljóst hve margt fólk var í
leikhúsinu og var fjöldinn talinn á
bilinu 500 til 1.000. Var verið að sýna
þar mjög vinsælan söngleik, Nord-
Ost, sem alltaf hefur verið sýndur
fyrir fullu húsi.
Tugir vopnaðra Tsjetsjena með yfirfullt leikhús í Moskvu á valdi sínu
Hóta að verða hundr-
uðum manna að bana
Krefjast þess, að
Rússar flytji her-
inn frá Tsjetsjníu
AP
Hundruð her- og lögreglumanna biðu fyrirskipana fyrir utan leikhúsið þar sem tsjetsjneskir skæruliðar halda
hundruðum manna í gíslingu. Hótuðu þeir að sprengja húsið upp ef reynt yrði að ráðast til inngöngu.
Moskvu. AP, AFP.
ICES, Alþjóðahafrannsóknaráðið,
hefur lagt til, að þorskveiði í Norð-
ursjó og Skagerrak verði hætt í því
skyni að bjarga stofninum. Eru vís-
indamenn á vegum Evrópusam-
bandsins samþykkir tillögunni og
líklegt, að hún verði höfð til hliðsjón-
ar við kvótaákvörðun fyrir næsta ár.
Í nýrri skýrslu ICES, sem verður
birt á morgun, er ekki aðeins lagt til,
að þorskveiðunum verði hætt, heldur
er einnig hvatt til mikils niðurskurð-
ar í öðrum veiðum þar sem þorskur
er aukaafli.
Talið er, að framkvæmdastjórn
ESB muni fallast á tillögurnar en
þær munu óhjákvæmilega hafa í för
með sér atvinnuleysi þúsunda
manna. Elliot Morley, sjávarútvegs-
ráðherra Bretlands, sagði í gær, að
ekki yrði lengur komist hjá sárs-
aukafullum aðgerðum en einn tals-
manna danskra sjómanna sagði, að
yrði farið eftir þessu, myndi það
valda hruni í dönskum sjávarútvegi.
Norðursjór
og Skagerrak
Þorskveiði
verði hætt
„HANN byrjaði hérna og nú er hann
kominn aftur,“ sagði Alfred Love,
íbúi Montgomery-sýslu í Maryland,
þegar hann frétti af því að leyni-
skyttan hefði framið 10. morðið, í
þetta sinn nálægt heimili hans. „Satt
að segja tel ég að hann búi hérna.“
Sálfræðihernaður raðmorðingjans
hefur hvergi borið jafnmikinn árang-
ur og í Montgomery-sýslu. Þar hóf-
ust morðin og hann hefur nú snúið
þangað aftur eftir að hafa herjað á
tvö ríki og bandarísku höfuðborgina.
„Allir eru reiðir“
Íbúar sýslunnar eru skapstyggir
af látlausum áhyggjum, orðnir
þreyttir á því að halda kyrru fyrir
innandyra, hafa fengið nóg af sírenu-
væli og drunum frá þyrlum frétta-
manna sem fylgjast með leitinni að
raðmorðingjanum. Ef til vill er það
verst að þeir telja nær allir að morð-
inginn búi á meðal þeirra.
„Öllum finnst þeir vera fastir í
gildru,“ sagði Mario Villalta, sextán
ára nemi sem komst ekki í skólann
vegna þess að lögreglan lokaði göt-
unum við heimili hans. „Við getum
ekki farið neitt og allir eru reiðir.
Kennararnir segja okkur að hafa
ekki áhyggjur vegna þess að morð-
inginn náist en við trúum því ekki.“
Morðingjanum hefur tekist að við-
halda mikilli skelfingu meðal fimm
milljóna íbúa Washington-borgar og
nágrennis í þrjár vikur. Lögreglan
hefur oft þurft að loka götum til að
leita að morðingjanum og hefur það
orðið til þess að fólk hefur ekki kom-
ist leiðar sinnar, jafnvel klukku-
stundum saman. Hefur þetta valdið
mörgum fyrirtækjum skaða.
„Þetta hefur valdið mér miklum
tekjumissi,“ sagði Ron Shipley, eig-
andi pípulagnafyrirtækis í Mary-
land, og benti á að bílferðir sem
tækju yfirleitt 45 mínútur tækju nú
að minnsta kosti þrjár klukkustund-
ir.
Ákveðið var að loka mörgum
einkaskólum eftir síðasta morðið
sem framið var á þriðjudag vegna
þess að margir nemendanna og
kennaranna mættu mörgum klukku-
stundum of seint eða komust ekki í
skólann sinn. Margir ríkisreknir
skólar voru nánast mannlausir.
Flestir skólanna voru opnaðir í
gær en börnum hefur verið bannað
að leika sér utandyra og öllum skóla-
ferðum hefur verið aflýst.
Reuters
Kona fylgir dóttur sinni í skóla í Montgomery-sýslu í Maryland en skammt
þar frá varð morðinginn strætisvagnsbílstjóra að bana í fyrradag.
Óttast að morðinginn
búi á meðal þeirra
Aspen Hill. Los Angeles Times.
Leyniskyttan/22
ER rúm vika er til þingkosninga í
Tyrklandi hefur ríkissaksóknari
landsins krafist þess, að framboð
flokks, sem spáð eru mestu fylgi,
hófsams, íslamsks flokks, verði lýst
ólöglegt þar sem leiðtogi hans hafi
ekki löglegt umboð til að gegna
flokksformennskunni.
Dómur í málinu mun að öllum lík-
indum ekki falla fyrir kosningarnar
3. nóvember næstkomandi. Að baki
kröfunni býr ótti margra við, að trú-
aðir múslimar nái auknum áhrifum í
stjórnmálalífi landsins. Formaður
flokksins, Recep Tayyip Erdogan,
fordæmdi hana í gær og sagði, að
ætlunin væri sú ein að veikja stöðu
flokksins á endasprettinum.
Vilja banna
stærsta
flokkinn
Ankara. AFP.
♦ ♦ ♦