Morgunblaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BJÖRN Bjarnason, oddviti sjálf-
stæðismanna í borgarstjórn, undr-
ast fullyrðingu borgarlögmanns,
Hjörleifs Kvaran, um eigið fé Orku-
veitu Reykjavíkur, OR. Að sínu áliti
beri að nota tölu sem fram komi í
árshlutauppgjöri fyrirtækisins sjálfs
en „ekki hentugleikatölu við gerð
lögfræðilegs álits“, eins og hann
orðar það.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær liggja fyrir andstæð
álit lögmanna um skyldu stjórnar
OR til að bera ákvarðanir vegna
kaupa á ljósleiðarakerfi Línu.Nets
fyrir um 1,8 milljarða króna undir
eigendur fyrirtækisins. Bæði
Reykjavíkurborg og Garðabær hafa
látið gera lögfræðiálit um málið.
Borgarlögmaður telur að ekki hafi
verið þörf á fyrirfram samþykki.
Lögmaður Garðabæjar telur hins
vegar að skuldbindingar OR á árinu
hafi farið yfir 5% af eigin fé fyrir-
tækisins og því þurfi samþykki allra
eigenda. Hefur bæjarstjórn Garða-
bæjar óskað eftir að skuldbindingar
OR verði lagðar fyrir sig, lögum
samkvæmt.
Alvarlegar deilur
Björn Bjarnason segir að deilur
um stjórnarhætti í Orkuveitu
Reykjavíkur séu alvarlegar í ljósi
þess að fyrirtækið sé að stíga sín
fyrstu skref án þess að vera hefð-
bundið borgarfyrirtæki. Ábyrgð
stjórnar sé skýr og ótvíræð en
stjórnarmenn geti ekki axlað hana
nema þeir geti treyst upplýsingum
sem fyrir þá séu lagðar.
Hann segir borgarlögmann hafa
fullyrt að 1. janúar árið 2002 hafi eig-
ið fé OR verið 38.375 milljónir króna
og lagt þá tölu til grundvallar í minn-
isblaði til borgarstjóra um skuld-
bindingar og ábyrgð fyrirtækisins.
Björn segir að hinn 10. september sl.
hafi stjórnarmenn OR á hinn bóginn
ritað undir árshlutareikning fyrir-
tækisins þar sem fram komi að eigið
fé þess hafi verið 34.934 milljónir
króna í ársbyrjun 2002.
„Í þessu uppgjöri, sem er unnið af
Deloitte & Touche, sé ég ekki þessa
tölu borgarlögmanns þegar rætt er
um eigið fé fyrirtækisins,“ segir
Björn og bendir á að Reykjavíkur-
borg sé ábyrg fyrir 92,22% af skuld-
bindingum Orkuveitu Reykjavíkur.
Þær megi ekki fara yfir 5% af eigin
fé án heimildar borgaryfirvalda.
„Þess vegna skiptir miklu hvaða
tala um eigið fé er lögð til grundvall-
ar. Að mínu áliti er skýrt, að það er
talan í uppgjöri fyrirtækisins sjálfs
en ekki hentugleikatala við gerð lög-
fræðilegs álits til að komast hjá um-
ræðum um efnisatriði málsins í
borgarráði og borgarstjórn. Hvað
sem líður þekkingu borgarlögmanns
á lögum OR notar hann ekki rétta
tölu um eigið fé í minnisblaði sínu.
Töluna er að finna í staðfestum
reikningum fyrirtækisins,“ segir
Björn.
Hann segir að málinu sé alls ekki
lokið og brýnt að stjórn OR fjalli um
það. Fyrir liggi andstæð álit lög-
manna og stjórnarmenn þurfi að fá
upplýst, hvort þeim hafi verið kynnt
röng tala yfir eigið fé í uppgjörinu
sem staðfestu með undirskrift sinni í
september sl.
Björn minnir á að þetta sé ekki í
fyrsta sinn sem deilt er um tölur í
rekstri Orkuveitu Reykjavíkur. Hér
sé hins vegar um tölu úr endurskoð-
uðu árshlutauppgjöri að ræða og
hún eigi ekki að valda ágreiningi.
Nokkur umræða hafi farið fram
vegna kostnaðar við byggingu höf-
uðstöðva fyrirtækisins. Það liggi fyr-
ir skjalfest að kostnaður vegna
flutnings starfseminnar nemi rúm-
um 3 milljörðum króna. Öll kurl
vegna höfuðstöðvanna séu þó ekki
komin til grafar, þar sem stjórn, eig-
endur og viðskiptavinir fyrirtækis-
ins hafi ekki verið upplýstir um allan
kostnaðinn við höfuðstöðvarnar
nýju.
„Það verður að sjálfsögðu gengið
eftir þeim upplýsingum en fram-
kvæmdir við þessi miklu mannvirki
hafa tafist meðal annars vegna sí-
felldra breytinga á framkvæmda-
tíma,“ segir Björn.
Björn Bjarnason, oddviti D-listans, um eigið fé Orkuveitu Reykjavíkur
Undrast full-
yrðingu borg-
arlögmanns
ÞRÍR af fjórum sakborningum
í einu stærsta fíkniefnamáli
sem komið hefur upp hérlend-
is játa sök samkvæmt ákæru
ríkissaksóknara, en sá fjórði
neitar sök. Gæsluvarðhald
hans til 27. nóvember var
staðfest í Hæstarétti í gær.
Aðalmeðferð í málinu fór fram
í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær.
Sakborningarnir eru á aldr-
inum 26-47 ára og varðar sak-
arefnið smygl á 30 kg af hassi
frá Danmörku og lagði lög-
reglan hald á fíkniefnin hinn
12. mars sl. Tveir hinna
ákærðu eru sakaðir um að
hafa lagt á ráðin um innflutn-
inginn, annar um að hafa út-
vegað féð en hinn séð um að
kaupa það í Kaupmannahöfn.
Sá fyrrnefndi sagðist fyrir
dómi hafa tekið okurlán fyrir
hassinu og játar sakargiftir.
Sá sem ákærður er fyrir sjálf
kaupin á hassinu er elstur sak-
borninganna og hefur neitað
sök í málinu. Sá þriðji er sak-
aður um að hafa búið um efnið
til flutnings í Kaupmannahöfn
og fjórði maðurinn er ákærður
fyrir að leggja fram 1,5 millj-
ónir til kaupa á hassinu. Báðir
játa sök í málinu.
Þrír játa
aðild að
smygli á 30
kg af hassi
KARLMAÐUR meiddist illa á
mjöðm í hörðum árekstri
tveggja fólksbíla í Öxnadal á
fimmta tímanum í gær. Bílarnir
voru að mætast og varð árekst-
urinn þegar þeim var ekið inn í
snjókóf frá snjóruðningstæki,
skv. upplýsingum frá lögregl-
unni á Akureyri. Alls voru fimm
manns í bílunum tveimur.
Ökumaður annars bílsins
hlaut áverka á mjöðm og var
fluttur á slysadeild Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri. Bíl-
arnir lentu báðir utan vegar og
eru mikið skemmdir. Mikil
hálka var í Öxnadal í gær eins
og víðar á Norðurlandi og Aust-
urlandi.
Harður
árekstur í
mikilli hálku
HAGFISKUR ehf. hefur ásamt fleir-
um hafið sölu á lífrænt ræktuðu
lambakjöti í samstarfi við Kjöt-
framleiðendur hf. og sex sauð-
fjárbændur af Norður-, Austur- og
Suðurlandi. Alls munu um 700
skrokkar fara í þessa framleiðslu,
sem fram fer í sláturhúsinu á
Hvammstanga, en kjötið verður að-
allega selt hjá Hagfiski auk þess að
vera á boðstólum hjá Íslenskum
markaði í Leifsstöð og í verslunum
Lífsins lindar í Kringlunni og Heilsu-
horninu á Akureyri. Vörurnar hafa
fengið vottun frá Vottunarstofunni
Túni samkvæmt alþjóðlegum stöðl-
um.
Fyrirtækið Hagfiskur var stofnað
í byrjun ársins 1993 og hefur sér-
hæft sig í sölu á frystum sjávaraf-
urðum á innanlandsmarkaði. Við-
skiptavinirnir hafa verið um sex
þúsund heimili og mötuneyti um allt
land. Hagfiskur starfrækir verslun í
gegnum Netið og er með símasölu á
kvöldin þar sem hringt er út reglu-
lega í ákveðinn markhóp. Seldum
vörum er svo ekið heim að dyrum
daginn eftir, viðskiptavininum að
kostnaðarlausu, og sama fyr-
irkomulag verður viðhaft vegna líf-
rænt ræktaða lambakjötsins. Einnig
verður hægt að nálgast kjötið í höf-
uðstöðvum Hagfisks við Vagnhöfða í
Reykjavík.
„Héldum að hann væri
að fíflast í okkur“
Aðspurð hvernig lambakjötssalan
hefði komið til sagði Jóhanna Sigríð-
ur Halldórsdóttir hjá Hagfiski að
markaðsstjóri Kjötframleiðenda
hefði viðrað þessa hugmynd við þau
í upphafi en þau hefðu þá talið hann
vera að fíflast í þeim.
„Þegar hann hringdi aftur í okkur
varð ljóst að honum var fúlasta al-
vara. Eftir stutta umhugsun
ákváðum við bara að slá til,“ sagði
Jóhanna. Hún sagði söluna hafa haf-
ist á þriðjudagskvöld og farið mjög
vel af stað.
Seldur er einn kassi með frystu og
sérstaklega fituskornu kjöti af hálf-
um lambsskrokki. Kílóverðið er
1.196 krónur og meðalverð á hverj-
um kassa í kringum 6 þúsund krón-
ur, að sögn Jóhönnu. Í kassanum eru
læri, hryggur, hakk, steik af úrbein-
uðum framparti og sveskjufyllt kjöt-
rúlla, allt í lofttæmdum umbúðum og
lífrænt ræktað – sveskjurnar líka.
Lífrænt ræktað
lambakjöt selt á
Netinu og víðar
Morgunblaðið/Jim Smart
Ólöf Sveinsdóttir, bóndi í Árdal í Kelduhverfi, og Jóhanna Sigríður Hall-
dórsdóttir, starfsmaður Hagfisks, með sýnishorn af lambakjötinu.
ÚT er komin handbók fyrir
heilbrigðisstarfsfólk sem
fjallar um reykleysismeð-
ferð og tóbaksvarnir. Þetta
er fyrsta íslenska handbók-
in sem fjallar um þessi mál.
Hún er unnin með hliðsjón
af breskri handbók, „Clear-
ing the air“, frá Royal Coll-
ege of Nursing í Bretlandi
og staðfærð miðað við ís-
lenskar aðstæður.
Handbókin gefur greinar-
góðar leiðbeiningar fyrir
heilbrigðisstarfsfólk um
hvernig það getur aðstoðað
fólk við að hætta að reykja á
sem áhrifaríkastan hátt.
Megináherslan er á reyk-
leysismeðferð. Fjallað er
sérstaklega um reyklaust
tóbak í bókinni og jafnframt vísað í
frekari heimildir.
„Það er ekkert launungarmál að
tóbaksnotkun er alvarlegasta ógn
nútímans við heilbrigði fólks. Hún
hefur mikil áhrif á lífsgæði og lífs-
lengd einstaklinga. Mikilvæg for-
vörn sjúkdóma næst fram með því að
byrja aldrei að nota tóbak og styðja
þá til reykleysis sem þegar eru byrj-
aðir að reykja,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá útgefendum.
Handbók þessi er gefin út til
minningar um Ingileif Ólafsdóttur
hjúkrunarfræðing og fræðslufull-
trúa Krabbameinsfélagsins. Ingileif
vann ómetanlegt starf í þágu tóbaks-
varna á Íslandi og sýndi mikla þraut-
seigju við að brýna heilbrigðisstarfs-
menn og yfirvöld í glímunni við
tóbakið. Hún lést í ágúst 1999.
„Heilbrigðisstarfsfólk er í lykilað-
stöðu til að veita ráðgjöf til reykleys-
is. Það er gleðiefni að jafnvel ein-
staklingar sem eru mjög
háðir tóbaki geta hætt að
reykja ef hugur fylgir máli,
með aðstoð lyfja og stuðningi
fagfólks. Að hjálpa reykinga-
manni að hætta að reykja
gæti verið eitt mikilvægasta
framlag heilbrigðisþjónust-
unnar til að efla heilbrigði
einstaklingsins,“ segir í til-
kynningunni.
Útgefendur handbókar-
innar eru: Samtök hjúkrun-
arfræðinga og ljósmæðra
gegn tóbaki, Krabbameins-
félag Reykjavíkur, Hjarta-
vernd, fagdeild lungnahjúkr-
unarfræðinga, fagdeild
hjartahjúkrunarfræðinga og
fagdeild hjúkrunarfræðinga
á krabbameinssviði.
Styrktaraðilar: Landspítali – há-
skólasjúkrahús, Tóbaksvarnanefnd,
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytið, Rannsóknasjóður lungna-
lækningaskorar LSH, Félag ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga,
Loftfélagið, GlaxoSmithKline og
Thorarensen-Lyf.
Handbókina er hægt að nálgast
hjá Krabbameinsfélagi Reykjavíkur,
Skógarhlíð 8, Reykjavík. Einnig má
senda tölvupóst á alda@krabb.is.
Handbók um tóbaksvarnir gefin út
Ritstjóri handbókarinnar, Rósa Jónsdóttir hjúkr-
unarfræðingur, afhenti Jóni Kristjánssyni heilbrigð-
isráðherra fyrsta eintakið af Tæru lofti á ráðstefnu
um tóbaksvarnir í september sl.