Morgunblaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 25
MENNTUN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2002 25 SKÓLAHALD á Eyrarbakka og Stokkseyri á 150 ára afmæli 25. október næstkomandi, en þann dag 1852 hófst skólahald í Stokkseyr- arhreppi hinum forna. Þegar skól- inn var stofnsettur fór kennsla í honum fram bæði á Eyrarbakka og Stokkseyri. Kennt var fjóra daga á Eyrarbakka og tvo á Stokkseyri. Byggt var yfir kennsluna á Eyr- arbakka en skólahaldið á Stokkseyri var í heimahúsi til að byrja með. Skólinn var fyrst um sinn að mestu rekinn á skólagjöldum og gjafafé. Þó var ætlast til að sveitarsjóður greiddi fyrir þá sem voru efnalitlir og skólagjöldin voru há, um það bil einn ríkisdalur á mánuði fyrir barn- ið, en þá var verð á loðinni og lembdri á 5 ríkisdalir. Það voru framsýnir menn í hreppnum sem stóðu að skólahaldinu og lögðu því lið. Á þessum fyrstu árum var skól- anum gefin jörðin Efrivallahjáleiga og á skólinn hana enn þann dag í dag. Í tilefni af afmælinu verður saga skólans gefin út og það er Árni Daníel Júlíusson sem annast hefur ritunina. Sagnastefna og sýning Núna í október stóð Mjólk- urskákmótið yfir á Selfossi, eða af- mælismót Barnaskólans á Eyr- arbakka og Stokkseyri, en það erviðamesta skákmótið á landinu sl. 11 ár. Skáklist hefur alltaf verið í hávegum höfð í skólanum. Sagnastefna með fyrirlestraröð undir heitinu Skóli, byggð og menn- ing verður í Húsinu á Eyrarbakka, gamlar skólamyndir verða til sýnis í Óðinshúsi á Eyrarbakka 24. okt – 3. nóv. Þemavika verður í skólanum sem starfsfólk og nemendur taka þátt í. Síðan munu barnakórar skólans syngja í Eyrarbakkakirkju í tilefni Kirkjuþings, þar munu biskup Ís- lands og menntamálaráðherra flytja ávörp. Föstudaginn 25. október nær hátíðardagskráin hámarki með dag- skrá á Eyrarbakka og Stokkseyri þar sem forseti Íslands og mennta- málaráðherra verða viðstaddir. Fyrsti kvenkyns skólastjórinn Skólahaldið hefur að vonum breyst í áranna rás en er eins að því leyti að það fer fram bæði á Eyr- arbakka og Stokkseyri og hefur svo verið síðan 1997. Skólastjórinn, Arn- dís Harpa Einarsdóttir réðst að hin- um sameinaða skóla og stýrir hon- um, en hún hafði áður verið skólastjóri skólans á Eyrarbakka um eins árs skeið, og er fyrsta kon- an í starfi skólastjóra barnaskólans í 150 ár. „Í skólanum eru 160 börn og við erum með 1. – 5. bekk á Stokkseyri og 6. – 10. bekk á Eyrarbakka. Við sameiningu skólanna var haft að leiðarljósi að auðveldara yrði að uppfylla lög um grunnskóla og menn sáu sér hag í því að samnýta húsnæði og mannauð skólanna. Þessi breyting leiddi til þess að hag- kvæmar bekkjastærðir fengust, um 15 börn að meðaltali í bekk,“ sagði Arndís Harpa, en skrifstofa skóla- stjóra er á Stokkseyri og aðstoð- arskólastjórinn er með skrifstofu sína á Eyrarbakka. „Við erum með rútu í ferðum á milli staðanna og tvö tímabelti í gangi, byrjum skólastarfið klukkan 8 á Stokkseyri og 8.15 á Eyr- arbakka. Við kennum síðan flestar sérgreinar nema íþróttir hérna og þess vegna er rútan stöðugt í förum á milli staða en fjarlægðin er ekki mikil, aðeins 5 kílómetrar,“ segir hún. Nokkur húsnæðisekla er hjá skól- anum en horft er fram til úrbóta í húsnæðismálum. „Það sem við telj- um mikils virði er að vinna upp skólamenningu í kringum þennan sameinaða skóla okkar,“ segir Arn- dís og að sem leið í því efni hafi verið unniðað þróunarverkefnum, eins ogmeð skólasamningum og í upplýs- ingatækni sem miðar að því að nýta tæknina í skólastarfinu. Nemendasamningarnir styðja svo við nemendur sem einstaklinga í leik og starfi og styrkja samstarf við þá og fjölskyldur þeirra. Upplýs- ingatækni er nú viðhöfð í flestum námsgreinum sem kenndar eru í skólanum, auk þess sem kennarar og nemendur skólans eiga öflug samskipti við umheiminn með þess- ari samskiptatækni. „Ég tel að þetta starf og fleira, auðvitað, hafi hjálpað okkur að búa til eina stofnun úr gömlu skólunum tveimur. Ég held að fólk í báðum þorpunum líti á skólann sem sinn skóla og vilji veg hans sem mestan og sjá hann eflast,“ segir hún. Enn í fararbroddi Það er nú svo að allt skólastarf þarf tíma til að sanna sig, eflast og festa rætur. Sjálf segist Arndís vera mjög bjartsýn og hafa trú á að skól- inn muni halda áfram að eflast og dafna. „Við erum núna með rétt- indafólk í öllum kennarastöðum og vinnum markvisst að því að styrkja hina ýmsu þætti skólastarfsins. Markmiðið er að allir, nemendur og foreldrar, séu stoltir af skólanum og glaðir yfir því starfi sem þar er unn- ið. Við vorum í fararbroddi fyrir 150 árum og teljum okkur vera það enn þann dag í dag og erum hvergi bangin,“ segir Arndís Harpa. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Nemendur á Eyrarbakka munu taka þátt í hát́íðarhöldunum sem hefjast á morgun, 25. október . Sagnasýning um skólastarfið Nemendur 3. bekkjar á Stokkseyri kunna einnig leikreglurnar. Arndís Harpa skólastjóri með nokkrum nemendum á Stokkseyri. 1850 Undirbúningsfundur á Stokkseyri. 1851 Fjölmennur framhaldsfundur. 1952 Skólahús reist á Eyrarbakka; timburhús með íbúð fyrir kennara á lofti. Hús fyrir skólahald leigt á Stokkseyri. 1852 Hinn 25. október er skólinn settur í fyrsta sinn. 1868 Kennsla felld niður vegna ör- birgðar fólks. 1874 Makaskipti á húsum. Skólinn fer í svonefnt Kræsishús til 1880. 1875 Skólinn fær 200 kr. styrk úr landsjóði. 1878 Sjálfstæður skóli settur á Stokkseyri. 1880 Stærra skólahús reist á grunni Kræsishúss á Eyrarbakka. 1885 Skólahús byggt á Stokkseyri; „Götuskóli“. 1887 Sveitarstjórn tekur að sér um- ráð yfir fjármálum skólans. 1907 Fræðslulög sett; skólaskylda frá 10 ára aldri. 1909 Skólaskyldan á E. og S. leiðir af sér fjölgun nemenda. 1909: Skólahús byggt í túni Eystri- Móhúsa á Stokkseyri. 1913 Byggt skólahús á Eyrarbakka sem stendur enn. 1926 Handavinna verður fastur lið- ur í kennslu. Áður höfðu konur kennt hana kauplaust. 1936 Ný fræðslulög; skólaskylda frá 7 ára aldri. 1943 Unglingaskóli Stokkseyrar starfar til 1949. Hann er einkaskóli. Starfaði einnig 1933–1935. 1950 Kennsla hafin í nýju skólahúsi á Stokkseyri. Er enn í notkun. 1951 Skólarnir eignast kvikmynda- vélar á árinu 1951 til 1960. 1965 Skólinn á Stokkseyri eignast nýja Husqvarna-saumavél og átta notaða hefilbekki. Síðar voru gefnar fleiri vélar af Kvenfélagi og For- eldrafélagi, sem stofnað var 1975. 1973 Vestmannaeyingar flytja á svæðið vegna gossins í Heimaey. Nemendum fjölgar. 1973 Byrjað að kenna 6 ára börnum og leyfi fengið fyrir kennslu 9. bekkjar. 1980 Skólarnir eignast ljósrita, og fljótlega myndvarpa. 1982 Byggt við skólahúsið á Eyr- arbakka. 1989 Tvær tölvur keyptar til skól- ans á Stokkeyri. 1990 Skólaskylda 6 ára barna. Skólaskyldan verður 10 ár. 1993 Einsetning skóla á Stokkseyri. 1994 Tölvuútskrift einkunna. 1994 Íþróttahús Stokkseyrar og Eyrarbakka vígt. 1996 Skólarnir sameinaðir undir nafninu Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri. 1998 Sameining sveitarfélaga í Ár- borg. 1999 Skólinn verður þróunarskóli í upplýsingatækni. 2000 Skólastjórinn, Arndís Harpa Einarsdóttir, hefur aðstöðu á Stokkseyri, en aðstoðarskólastjór- inn, Birgir Edwalds, á Eyrarbakka. Heimild: Theodór Guðjónsson, skólastjóri á Stokkseyri 1971–1997. Saga skólanna býlisstaða landsins, séu þeir taldir saman, svip- aðir að stærð og Hafnarfjörður, Ísafjörður og Akureyri. Aðeins Reykjavík var stærri. Hefði vöxtur Eyrarbakka og Stokkseyri orðið svip- aður og t.d. Hafnarfjarðar og Akureyrar hefðu þorpin tvö í Flóanum væntanlega fljótlega vax- ið saman og orðið að einum bæ. Áhrifamiklir kennarar  Um 1920 urðu miklar breytingar á skóla- málum á Eyrarbakka, en þá voru þangað ráðn- ir þrír nýir kennarar, og var einn þeirra hinn Ungbarnadauði  Almenn lífskjör voru afar bágborin á okk- ar mælikvarða allt fram undir lok 19. aldar. Ungbarnadauði var ótrúlega mikill, allt að 40% barna á fyrsta ári lést, og virðist hann hafa ver- ið afar hár á Stokkseyri og Eyrarbakka, jafn- vel hærri en víðast annars staðar allt fram und- ir 1900, en þá gerðu stjórnvöld átök sem á skömmum tíma leiddu til byltingar á þessu sviði. Ungbarnadauði minnkaði hratt og varð fljótlega með því minnsta sem þekkist. Batn- andi húsnæði átti þátt í þessu. Áhrif á fræðslulögin  Barnaskólinn á Eyrarbakka var einn af þeim skólum sem Guðmundur Finnbogason landsbókavörður heimsótti þegar hann var að undirbúa lög um skólaskyldu, en þau voru sett árið 1907. Þá voru öll börn á aldrinum 10–14 ára gerð skólaskyld, um allt land. Þorpin í Flóanum. . .  Eyrarbakki og Stokkseyri voru á tíma- bilinu 1880–1920 meðal fimm stærstu þétt- ungi og hæfileikaríki skólastjóri Aðalsteinn Sigmundsson, þá 22 ára. Hinir kennararnir voru þau Ingimar Jónsson og Jakobína Jak- obsdóttir úr Mývatnssveit, dóttir Jakobs Hálf- dánarsonar kaupfélagstjóra Kaupfélags Þing- eyinga. Bæði Aðalsteinn og Ingimar urðu síðar hátt settir í menntakerfinu, en öll sögðu þau upp starfi 1929 og var þá kennurum fækkað á ný niður í tvo á Eyrarbakka. Lýsandi viti í umræðunni  “…sú stofnun, sem…hefur orðið eins og lýsandi viti í hversdagsdumbungi síðustu hundrað ára er Barnaskóli Eyrarbakka. Hann hefur ekki látið mikið yfir sér, en þrautseigja og stefnufesta þeirra, sem þar hafa ráðið og starfað, ásamt óbilandi trú þeirra á hlutverk þekkingar og vísinda hefur sigrað alla örðug- leika,“ skrifaði Árelíus Níelsson í tilefni af 100 ára afmæli skólans árið 1952. Ekkert var til sparað til að gera afmælishátíðina sem glæsi- legasta. Haldin var afmælishátíð með ræðu- höldum og veislu og mættu til hennar ýmis stórmenni, t.d. Ásgeir Ásgeirsson forseti, sem áður hafði meðal annars gegnt störfum fræðslustjóra landsins. Óskar og Theodór  Síðustu þrír áratugir 20. aldar, allt fram að 1997, í sögu skólanna á Eyrarbakka og Stokkseyri einkenndust m.a. af því að allan þennan tíma sátu sömu menn við stjórnvölinn. Það voru þeir Óskar Magnússon og Theodór Guðjónsson. Tímabilið undir stjórn þeirra ein- kenndist af vexti og breytingum. Miklar breyt- ingar urðu á tækjabúnaði, ljósritunarvélar komu til sögunnar, sprittfjölritarar, og loks upp úr 1985 hófst tölvubyltingin. Nemendur í rútu  Á afmælisárinu 2002 eru um 20 kennarar starfandi við skólann í 16 og hálfri stöðu. Nem- endur eru um 160, og stundar 1.–5. bekkur nám í skólahúsinu á Stokkseyri og 6.–10. bekk- ur í skólahúsinu á Eyrarbakka. Nemendur eru keyrðir á milli, eldri nemendur frá Stokkseyri til Eyrarbakka og yngri nemendur frá Eyr- arbakka til Stokkseyrar. Heimildir: Árni Daníel Júlíusson. Merkir viðburðir úr sögu skólanna á Eyrarbakka og Stokkseyri; börn, kennarar og annað fólk Jakobína Jakobsdóttir kennari og nemendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.