Morgunblaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2002 47
DAGBÓK
ÞESSA dagana nýtur
lesandinn þeirra forrétt-
inda að sjá allar hendur.
En vandi fylgir vegsemd
hverri – þrautirnar eru
enginn barnaleikur:
Norður
♠ 832
♥ Á1064
♦ KD
♣ÁKG3
Vestur Austur
♠ 975 ♠ KG64
♥ 832 ♥ DG9
♦ 654 ♦ ÁG1032
♣D865 ♣4
Suður
♠ ÁD10
♥ K75
♦ 987
♣10972
Suður spilar fimm lauf
og fær út tígul. Austur
tekur með ás og spilar
aftur tígli.
Hvernig á sagnhafi að
taka 11 slagi?
Greining: Spaðinn ligg-
ur vel og hjartað 3-3. En
fjórlitur vesturs í trompi
er til vandræða, því ef tíg-
ull er stunginn í borði
virðist vestur hljóta að fá
slag á tromp. Austur fær
alltaf slag á hjarta, svo
það verður einhvern veg-
inn að komast hjá því að
gefa líka á laufdrottningu.
Ekki gengur að dúkka
hjarta í þeim tilgangi að
losna við tígul niður í
fjórða hjartað, því austur
svarar með tígulgosa og
neyðir sagnhafa til að
trompa í borði. Hvað er
þá til ráða?
Lausn: Sagnhafi tekur
trompásinn, svínar spaða-
tíu, spilar trompi á gos-
ann og svínar spaða-
drottningu. Trompar
tígul, tekur spaðaásinn og
spilar hjarta þrisvar:
Norður
♠ --
♥ 10
♦ --
♣K
Vestur Austur
♠ -- ♠ K
♥ -- ♥ --
♦ -- ♦ G
♣D8 ♣--
Suður
♠ --
♥ --
♦ --
♣109
Austur er inni í þessari
stöðu og kæfir trompslag
félaga síns, hvort sem
hann spilar spaða eða
tígli.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Árnað heilla
40 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 24.
október, er fertug Dagmar
Jensdóttir grunnskóla-
kennari, Hvannarima 26.
Hún nýtur afmælisdagsins
með ættingjum og vinum.
80 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 24.
október, er áttræður Hann-
es Ingibergsson, íþrótta-
kennari og ökukennari, Lá-
landi 2, Reykjavík. Hann
verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
90 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 24.
október, er níræð Þóra G.
Þorsteinsdóttir, Lokastíg
18, Reykjavík. Í tilefni af-
mælisins tekur Þóra, ásamt
eiginmanni sínum, Gunnari
Rósmundssyni, og fjöl-
skyldu, á móti vinum og ætt-
ingjum laugardaginn 26.
október kl. 15 í Safnaðarsal
Fríkirkjunnar, Laufásvegi
13, Reykjavík.
Þessar duglegu stúlkur héldu hlutaveltu og söfnuðu 3.185
kr. til styrktar ABC-hjálparstarfi. Þeir heita María Jóna,
Berglind og Vaka.
LJÓÐABROT
DETTIFOSS
Syng, Dettifoss. Syng hátt mót himins sól.
Skín, hátign ljóss, á skuggans veldisstól.
Og kný minn huga, gnýr, til ljóða, er lifa,
um leik þess mesta krafts, er fold vor ól.
Lát snerta andann djúpt þinn mikla mátt,
sem megnar klettinn hels af ró að bifa.
Ég veit, ég finn við óms þíns undraslátt
má efla mannleg hjörtu. Slá þú hátt,
fosshjarta. Styrk minn hug og hönd að skrifa.
Hér finnst, hér skilst, hve Íslands auðn er stór.
Hver ómur brims, er rís þess fljótasjór!
Þig, konung vorra stoltu, sterku fossa,
ég stilla heyri forsöng í þeim kór.
Öll gljúfrahofin hljóma af gulli snauð
um héruð landsins undir sólarblossa
og færa hæðum hærri, dýrri auð
og hreinni fórn en nokkur mannshönd bauð,
er byggði turna og reisti kirkjukrossa.
- - -
Einar Benediktsson
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3
d5 4. cxd5 Rxd5 5. e4 Rxc3
6. bxc3 Bg7 7. Bc4 c5 8.
Re2 Rc6 9. Be3 O-O 10.
O-O Bg4 11. f3 Ra5 12.
Bxf7+ Hxf7 13. fxg4
Hxf1+ 14. Kxf1 cxd4 15.
cxd4 e5 16. Kg1
Db6 17. Hb1 De6
18. dxe5 Bxe5
19. Hb5 b6 20.
Hd5 Rc4 21. Bh6
Rd6 22. Rd4 Df6
23. Rf3 Rf7
Staðan kom
upp í áskorenda-
flokki Mjólkur-
skákmótsins sem
lauk fyrir
skömmu á Hótel
Selfossi. Páll
Agnar Þórarins-
son (2260) hafði
hvítt og tókst að
stöðva sigurgöngu Flóvins
Þórs Næs (2280) með
snyrtilegri fléttu. 24.
Hxe5! Hc8 24... Rxe5 25.
Dd5+ og hvítur vinnur.
25. Bg5 Rxg5 26. Hxg5
Df4 27. Db3+ Kg7 28. Hd5
Dxg4 29. Db2+ Kg8 30. e5
De4 31. Hd1 Hc2 32.
Db3+ Kg7 33. He1 Dc6
34. e6 Hc3 35. Db2 og
svartur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbörn dagsins:
Afmælisbarn dagsins er
sniðugt, snöggt að átta sig
og fyrir tilbreytingarfullt
og ögrandi líf. Það á
auðvelt með að aðlagast
aðstæðum hverju sinni.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Gættu þín á þeirri tilhneig-
ingu að vilja breyta hátterni
annarra, því þótt þér gangi
gott eitt til mætir það litlum
skilningi þeirra sem fyrir
verða.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú færð frábærar hugmynd-
ir um hvernig breyta má
vinnustaðnum til hins betra
án þess að kosta þurfi
nokkru til.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Hið dulræna, leikir og
myndþrautir eiga hug þinn í
dag. Því er nú kjörið að
horfa á lögreglumynd eða
byrja lestur nýrrar glæpa-
sögu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ákjósanlegur dagur til að
takast á við vandamál
heimafyrir tengd pípulögn-
um og sorpgeymslu. Láttu
til skarar skríða svo vandinn
verði úr sögunni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Löngun til að siða börn sæk-
ir sterkt á þig. Þá er gott að
hafa speki Goethe í huga:
„Betrun gerir gagn, hvatn-
ing bætir enn meira.“
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Nýjar tekju- eða sparnaðar-
leiðir skjóta upp kolli í dag.
Skoðaðu þær vel áður en þú
gerir einhverjar ráðstafanir.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Einhver sjálfsbætingarár-
átta er þér ofarlega í huga í
dag. Og það er um að gera
að láta verða af því.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þér reynist auðvelt að
greina kjarnann frá hisminu
í dag, notaðu því tækifærið
til að kafa í málin til að hafa
sem mest út úr því.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ráðagóður áhrifamaður
verður á vegi þínum í dag og
góð ráð hans geta gagnast
þér. Alla vega er óþarfi að
finna hjólið aftur upp.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Hlustaðu á tillögur yfir-
manns um hvernig þú getur
tekið þig á og bætt starfs-
aðferðir þínar. Hikaðu ekki
við að leggja líka til mál-
anna.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Löngun til að fræðast meira
um alheiminn jafnt sem nán-
asta umhverfi sækir á þig í
dag. Annað er hvort það
valdi hugarfarsbreytingu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú færð ný tækifæri til að
leysa vandamál varðandi
skuldir og skatta. Treystu
dómgreind þinni og óttastu
ekki að grípa þau.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Hlutavelta
Hveragerði - S. 483-4700 - Booking@HotelOrk.is
Kaffibrúsakarlarnir
á Hótel Örk föstudagskvöldin
15 og 22 nóvember 2002
Gisting eina nótt þriggja rétta kvöldverður,skemmtun, dansleikur og
morgunverður. 8.900.kr.-
Þriggja rétta veislukvöldverður, skemmtun og dansleikur 5,500.kr.-
Skemmtun og dansleikur 2,500.kr.-
xo
d
u
s.
is
Pantið tímanlega
Laugavegi 54, sími 552 5201
20%
afsláttur
af öllum peysum
Grófar - fínar -
síðar - stuttar
Ótrúlegt úrval
Peysudagar í FLASH
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
flísar
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík
Hárlos
það er óþarfi
Þumalína, Skólavörðustíg 41