Morgunblaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 50
RON Jer-emy ereinn af
fáum nafntog-
uðum „leik-
urum“ sinnar
tegundar og
kannski ekki nema von
ef litið er til þess að á
ferli sem spannar þrjá
áratugi telja myndir
hans, þ.e. þessar
djörfu, um fjögur þús-
und. Jeremy raðar þó
ekki öllum eggjunum í
sömu körfuna, þó
vissulega séu þau flest
í þeirri bláu, og starfar
hann sem allra handa
skemmtikraftur til hlið-
ar við meginstarfann.
Þessi búlduleiti vinnu-
þjarkur kemur til
Íslands í fyrsta
skipti í dag og
sló blaðamað-
ur á þráðinn
til hans, þar
sem hann
svaraði svefn-
drukkinn í íbúð sinni í Los
Angeles.
Menntaður kennari
„Er það rétt að jarðhiti sé not-
aður á Íslandi?“ er það fyrsta sem
Jeremy segir og blaðamaður jánk-
ar um hæl. – „Það er tilkomumik-
ið.“
– Ertu ánægður með heimild-
armyndina?
„Já, mjög svo. Ég hefði reyndar
viljað sjá meira um móður mína og
meira um þessar almennu myndir
og myndbönd sem ég hef leikið í.
Það var aðeins of mikið af klámi.“
– Ég bjóst reyndar við einhverju
mjög svo hneykslandi en raunin er
ekki sú. Myndin gefur góða innsýn í
manninn sjálfan sem um ræðir.
„Ég er enginn dópisti eða
drykkjumaður og á frekar óflekk-
aða fortíð að baki. Ég er t.a.m.
menntaður kennari. Mér finnst
myndin athyglisverð þar sem klám-
ið er ekki endilega í forgrunni.“
– Var erfitt að gera þessa mynd?
„Þetta gekk vel en ég var búinn
að ýta þessu á undan mér í ár.
Þetta eru mjög viðkunnanlegir
gaurar sem gera myndina.“
– Í myndinni kemur fram að þér
virðist mikið í mun að hasla þér
völl í almennum myndum.
„Já, það hefur alltaf verið
draumurinn.“
– En sérðu þá eftir því að hafa
farið út í klámbransann umdeilda?
„Nei, alls ekki. Ég er mjög sátt-
ur. Ég get ekki kvartað þar sem ég
hef lifað mjög skemmtilegu lífi.“
– Þannig að þú hefur enn gaman
af þeirri vinnu?
„Já. Ég man samt enn hvað ég
var hræddur í upphafi ferilsins. En
það bráði af mér með tímanum.“
– Ein af einskærri forvitni. Hvað
tekur langan tíma að gera eins og
eitt stykki djarfa mynd?
„Frá degi upp í viku. Einn dag
ef það er ódýr mynd en sjö
daga ef það er eitthvað lagt í
hana. Það fer eftir því hversu
mikil áhersla er lögð á
söguþráð, leikmuni
o.s.frv.“
– Hefur siðferð-
iskenndin ein-
hvern tíma nagað
þig hvað ferilinn
varðar?
„Nei. Strákar
eru aldir upp til að
vera frekir, en
stelpum er haldið
meira til baka. Því
virðist sem siðferð-
iskenndin sé minni hjá
karlmönnum hvað þetta
allt saman varðar enda
eru klámmynda-
leikkonur á mun hærri
launum en karlar. Þegar
ég labba út á
götu t.d.
koma um
100 strák-
ar að mér
og spyrja
mig
hvernig
þeir geti
komist inn í
þennan bransa.“
– Áttu eftir að
fara í fleiri svona kynn-
ingarferðir?
„Ég veit ekki hversu marg-
ar þær verða, vonandi ekki of
margar. Mér fannst þetta
kjörið tækifæri til að heim-
sækja landið en ég hef aldrei
komið áður. En ég veit til þess að
strákarnir ætla að kynna myndina
vel, t.a.m. í Evrópu.“
Á ferð og flugi
Jeremy verður á ferð og flugi
meðan hann er staddur hér. Heim-
ildarmyndin verður sýnd í kvöld og
á morgun í Háskólabíói og tekur
Jeremy við spurningum úr sal í lok
myndar. Þá verður hann með mið-
næturuppistand á föstudagskvöld-
inu ásamt Jóni Gnarr og Pétri
„Ding Dong“ Sigfússyni. Á laug-
ardagskvöldið verða svo tónleikar
með XXX Rottweiler þar sem Je-
remy kemur einnig fram.
„Er það rétt að jarðhiti
sé notaður á Íslandi?“
Í kvöld verður heimildarmyndin
Pornstar: The Legend of Ron
Jeremy frumsýnd og fjallar
hún um nefndan mann, sem
ku vera frægasti klám-
myndaleikari samtímans.
Arnar Eggert
Thoroddsen ræddi
við kappann.
arnart@mbl.is
Goðsögnin Ron Jeremy
Ron Jeremy
nýtur lífsins.
50 FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
5.30 , 8 og 10.30.
Einn
óvæntasti
spennutryllir
ársins!
1/2Kvikmyndir.is
Það
verður
skorað
af krafti.
Besta breska
gamanmyndin síðan
„Bridget Jones’s
Diary.“ Gamanmynd
sem sólar þig upp úr
skónum. Sat tvær
vikur í fyrsta sæti í
Bretlandi.
Sýnd kl. 8 og 10.50. B.i. 16.
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
1/2Kvikmyndir.is
Kl. 4. m. ísl. tali. Kl. 4 og 6. m. ísl. tali
HL Mbl
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
„DREPFYNDIN“
ÞÞ. FBL
Sannsöguleg stórmynd um mögnuð stríðsátök. Missið
ekki af þessari! Nicholas Cage hefur aldrei verið betri!
Sýnd kl. 5.30 og 10.30. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16. . Forsýnd kl. 8
SK RadíóX
Frá leikstjóra American Beauty. Eitt mesta
meistaraverk sem þú munt nokkurn tíman sjá.
Gott popp styrkir
gott málefni
Sýnd kl. 5.50 og 8. Bi. 16.
Sýnd kl. 10.10. B.i. 16.
Síðustu sýningar
Maðurinn sem getur ekki
lifað án hennar leyfir henni
ekki að lifa án hans.
Hvernig flýrðu þann sem
þekkir þig best? Magnaður
spennutryllir í anda Sleeping
With the Enemy.
Einn
óvæntasti
spennutryllir
ársins!
1/2Kvikmyndir.is
FYRSTI OG SKELFILEGASTI KAFLINN
Í SÖGU HANNIBAL LECTER
anthony
HOPKINS
edward
NORTON
ralph
FIENNES
harvey
KEITEL
emily
WATSON
mary-louise
PARKER
philip seymour
HOFFMAN
2
VIKUR
Á TOP
PNUM
Í USA
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30. B. i. 16.
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
SV Mbl
HK DV
SK RadíóX
HLJÓMSVEITIN Búdrýgindi kom sá og sigraði í
Músíktilraunum Tónabæjar í vetur; aldrei áður hefur
hljómsveit skipuð svo ungum tónlistarmönnum sigrað
í tilraununum. Meðal sigurlauna voru hljóðverstímar
og útgáfusamningur við Eddu útgáfu og miðlun sem
skilaði breiðskífunni Kúbakólu sem kom út fyrir
stuttu.
Með allt á hreinu
Búdrýgindi skipa þeir Alex Haraldsson, Benedikt
Smári Skúlason, Magnús Ágústsson og Viktor Orri
Árnason. Þeir segja að upptökur á skífunni hafi
gengið hratt og vel fyrir sig, þeir voru í hálfa þriðju
viku að taka lögin upp og svo fóru fjórir dagar í
hljóðblöndun. Þeir segjast hafa getað unnið skífuna
svo hratt þar sem þeir voru búnir að vinna mikið í
lögunum og spila þau mikið á tónleikum. „Þetta er
meira og minna eins og við höfum verið að spila lög-
in, við vorum með á hreinu hvað við vildum gera,“
segja þeir og bæta við að þeir hafi úr nógu að velja,
þeir eigi til talsvert meira af lögum en fóru á diskinn
auk þess sem þeir tóku upp þrjú lög til viðbótar sem
ekki komust inn þegar raðað var á Kúbakólu.
Alex semur öll lögin á plötunni og flesta texta, en
þeir segja að sem stendur séu aðrir liðsmenn að
koma meira og meira inn í lagasmíðarnar, lagasmíð-
ar séu orðnar að samvinnuverkefni og allir eru þeir
sammála um að það sé til bóta, lögin verði sterkari
og þannig séu nýju lögin best. Ekki eru þó miklar
lagasmíðar í gangi sem stendur því þeir félagar eru
á hrakhólum með æfingarhúsnæði og á meðan svo er
verður lítið samið.
Byrjunin á sögu Búdrýginda
Þeir félagar hafa verið duglegir við að spila und-
anfarið, hafa troðið upp í skólum og félagsmið-
stöðvum og stefna á enn meiri spilamennsku til að
kynna plötuna. Þeir segja að platan sé bara byrjunin
á sögu Búdrýginda, þeir séu rétt að byrja. Ekki
treysta þeir sér þó til að spá í hvernig sveitin eigi
eftir að þróast á næstu misserum, en þó að þeir vilji
halda áfram á sömu rokklínu. „Við spáum svosem
ekkert í það hvernig við viljum verða, það er best að
láta þetta bara þróast.“
Morgunblaðið/Sverrir
Þótt kornungir séu að árum hafa drengirnir í Búdrýg-
indum þegar gefið út sína fyrstu plötu.
B
ú
dr
ýg
in
di
o
g
K
ú
ba
kó
la