Morgunblaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 23
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2002 23 ÞÝZKA tennisstjarnan Boris Becker viðurkenndi fyrir rétti í München í gær að hafa orðið á mistök en vísaði því á bug að hann hefði vísvitandi svikið undan skatti. Becker er ósvikin þjóðhetja í Þýzkalandi og æsifréttablöð lands- ins hafa fylgt lífi hans hvert fótmál frá því hann vann alþjóðlega Wimbledon-tennismótið í fyrsta sinn árið 1985, er hann var 17 ára að aldri. Að hann skyldi nú vera dreg- inn fyrir rétt fyrir meint skattsvik hans á árunum 1991–1993 vekur því gríðarmikla athygli, bæði í heima- landi hans sem og um víða veröld, enda ná vinsældir Beckers langt út fyrir landsteina Þýzkalands. Í vitnisburði sínum fyrir réttinum í gær sagðist hann hafa haft hugann við tennisleik og kvennafar á því tímabili sem hann er sakaður um að hafa dregið 1,7 milljónir evra undan skatti, sem honum hefði borið að greiða í Þýzkalandi. Viðurkenndi Becker að það hefðu verið mistök af sinni hálfu að halda íbúð sem hann átti í München á tíma- bilinu, er hann var skráður til lög- heimilis í skattaparadísinni Mónakó. Hann vísaði því þó á bug að hafa vís- vitandi farið á svig við lögin. „Ég gengst við ábyrgð minni á mistökum sem ég gerði fyrir tíu ár- um. Ég mun þurfa að gjalda þeirra,“ sagði Becker, sem var blindaður af orrahríð ljósmyndavélablossa er hann mætti, íklæddur gráum tízku- jakkafötum, í réttarsalinn í gær- morgun. Er þess vænzt að rétt- arhaldið standi í þrjá daga. Sak- sóknarar fara fram á að Becker verði dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi, en verjendur hans æskja skilorðsbundins dóms. „Það komst ekkert annað að hjá mér en tennis – og ein og ein stúlka af og til, líka,“ tjáði Becker réttinum í gær. Hann sagðist aðeins fáeinum sinnum hafa dvalið í „bráðabirgða- íbúð“ sinni í München og bar að hann hefði ekki gerzt sekur um að brjóta þýzk skattalög vísvitandi. Gaf hann upp hið íburðarmikla Palace- hótel í München sem heimili sitt um þessar mundir og að starf hans væri framkvæmdastjórn á sviði tenn- isíþróttarinnar. Huberta Knöringer, forseti dóms- ins í máli Beckers, vísaði á bug frétt- um sem birzt hefðu í fjölmiðlum þess efnis að stjarnan hefði gert sam- komulag við dómsyfirvöld um að hún gengist við vissum hluta skatt- svikasynda sinna og fengi fyrir vikið aðeins skilorðsbundinn dóm. Becker sagðist hafa reynt að ná sam- komulagi við yfirvöld en þau hefðu virt þá viðleitni hans að vettugi. Lýsti hann því yfir fyrir réttinum að hið flókna skattakerfi Þýzkalands væri enn þann dag í dag ráðgáta í hans augum. „Ég skil varla upp né niður í skattkerfinu, og ég vissi enn minna um það þá,“ sagði hann með bros á vör. Skattrannsóknayfirvöld í Þýzka- landi hafa verið á hælum Beckers undanfarin fimm ár, en pen- ingaverðlaunin ein sem hann vann sér inn á virkum tennisferli sínum voru í kringum 25 milljónir evra, andvirði um 2,2 milljarða króna. Eru þá ótaldar tekjur hans af aug- lýsingum og öðru sem frægð hans hefur fært honum. Á tímabilinu 1985–1993 var Becker óslitið á topp 10 listanum yfir sterkustu tenn- isleikara heims. Wimbledon- meistari varð hann þrisvar sinnum. Æsifréttablöðin hafa gert sér mikinn mat úr einkalífi hans; árið 2000 skildi hann við eiginkonu sína, Barböru Feltus, en þau eiga tvo syni, eftir að hafa viðurkennt að hafa barnað rússneska fyrirsætu inni í kústaskáp á veitingastað í London. Hann átti síðar í sambandi við þýzka poppsöngkonu, en hin ágenga fjöl- miðlaathygli átti sinn þátt í að ganga af því sambandi dauðu. Að vera svo mikið milli tannanna á fólki hefur þó sízt dregið úr vin- sældum Beckers meðal þýzks al- mennings. „Við ólumst upp með Boris. Við vorum stolt af honum þegar hann vann á Wimbledon 17 ára. Hann var litli bróðir okkar. Við fylgdumst með því þegar hann eign- aðist sinn fyrsta bíl, fyrstu jakkaföt- in og fyrstu ástina,“ skrifaði Bild Zeitung, sem gefið er út í stærsta upplagi þýzkra dagblaða. Þjóðhetja fyrir rétti Þýzka tennisstjarnan Boris Becker ákærð fyrir skattsvik München. AFP. Reuters Becker var umkringdur fréttaljósmyndurum er hann mætti í réttarsalinn í München í gær. ’ Það komst ekkertannað að hjá mér en tennis – og ein og ein stúlka af og til, líka. ‘ BANDARÍSKA dagblaðið The New York Times er orðið eini eigandi dagblaðsins International Herald Tribune, sem New York Times hefur rekið í samvinnu við The Washington Post í hartnær 40 ár. Var kaupverð 50% hlutar Washington Post innan við 75 milljónir dollara. Aðalritstjóri Herald Tribune, David Ignatius, sagði að Washington Post hefði sætt miklum þrýstingi að selja hlut sinn, og í frétt sem birtast mun í Herald Tribune í dag segir, að New York Times hafi hótað að grafa undan Herald Tribune ef New York Times fengi ekki full yfirráð yfir blaðinu. Fulltrúi útgáfufélags New York Times, Catherine Mathis, sagði að ekki stæði til að hætta útgáfu Herald Tribune og hefja í staðinn útgáfu á alþjóðaútgáfu af The New York Times. „Það verð- ur engin breyting á yfirstjórn og rekstri eða nafni International Herald Tribune,“ sagði Mathis við AFP. Erfiðleikar í rekstrinum New York Times og Wash- ington Post, tvö áhrifamestu dag- blöð Bandaríkjanna, hófu sam- starf um útgáfu Herald Tribune 1966, og 1991 keyptu þau út þriðja samstarfsaðilann, John Hay Whitney, og urðu þar með einu eigendur blaðsins. Auglýsingum í Herald Tribune hefur farið fækkandi undanfarið vegna samdráttar í efnahagskerfi heimsins. Ritstjórn blaðsins er staðsett í París, en í því birtast fréttir og greinar frá New York Times, Washington Post og fréttariturum þess sjálfs. Það er prentað á 22 stöðum í heiminum og selt í 180 löndum. Upplagið var í fyrra 264 þúsund eintök. New York Times hafði eftir ónafngreindum heimildarmanni að árlegt tap á rekstri Herald Tribune væri fimm milljónir doll- ara af um 100 milljóna veltu. Herald Tribune á í harðri sam- keppni á alþjóðamarkaði við Fin- ancial Times og Wall Street Journal. Undanfarið hálft annað ár hefur starfsfólki verið fækkað úr 390 í 335. Breytt eignarhald á Inter- national Herald Tribune París. AFP, AP. Hönnun ...fyrir flitt heimili! flar sem stíllinn byrjar! Sófabor› 66.800,- Bæjarlind 4 • 201 kópavogur • Sími 544-5464 Pú›ar 5.900,- POCO sófasett 3+2 Sérlega fallegt og vanda› fl‡skt sófasett. Húsgagnadagar! laugardag kl. 11-16 & sunnudag kl. 13-16 Bor›stofusett Max stóll 22.800,- Block bor› 140x140cm kr. 85.000,- Block skenkur 139.900,- Ver› a›eins kr.169.900,- BALTIC WOOD parket í miklu úrvali Verðdæmi: Eik Unique 14mm 3ja stafa Tilboð kr. 2.790,- m2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.