Morgunblaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 17
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2002 17 Skákfélag Akureyrar verður með 15 mínútna mót í kvöld, fimmtudags- kvöldið 24. október og hefst það kl. 20. Mótið hafði verið auglýst á föstu- dagskvöld, en verður sem fyrr segir í kvöld. Í DAG Málstofa um nýtingu auðlinda verður haldin í stofu L203 á Sólborg, Háskólanum á Akureyri í dag, fimmtudaginn 24. október frá kl. 15 til 17. Nemendafélög auðlindadeild- ar og rekstrar- og viðskiptadeildar standa fyrir málstofunni ásamt Landsbanka Íslands. Erindi flytja Geir Oddsson auðlindafræðingur frá Landmati sem fjallar almennt um nýtingu auðlinda og Stefán Pét- ursson framkvæmdastjóri fjár- málasviðs hjá Landsvirkjun sem fjallar um stóriðju á Íslandi. UMFERÐARSLYS varð á Öxna- dalsheiði eftir hádegi í gær, er jeppi fór út af veginum í Giljareitum og valt 4–5 veltur. Tvennt var í bílnum og samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði Akureyrar slapp fólkið ótrúlega vel miðað við aðstæður en þó ekki alveg við meiðsli. Jeppinn er mjög illa farinn ef ekki ónýtur. Bílvelta á Öxnadalsheiði ÞORSTEINN Bachmann, leikhús- stjóri Leikfélags Akureyrar, hefur sent kvörtun til umboðsmanns Al- þingis, þar sem hann gerir athuga- semdir við málsmeðferð og niður- stöðu kærunefndar jafnréttismála í kærumáli Hrafnhildar Hafberg gegn Leikfélagi Akureyrar um meint brot á jafnréttislögum við ráðningu leikhússtjóra LA. Þorsteinn sagðist með kvörtuninni vilja koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Hann hefði ekki fengið að tjá sig um efni máls fyrir kærunefnd- inni en sjónarmið hans hefðu ekki verið komin fram áður en málið fór fyrir nefndina. Kærunefndin hefði leyft sér að leggja sjálfstætt mat á hvaða sjónarmið hafi vegið þyngst við veitingu starfsins og þá telur Þorsteinn að nefndin hafi brugðist rannsóknarskyldum sínum við að kanna feril sinn og Hrafnhildar. Þorsteinn var ráðinn leikhússtjóri í febrúar sl. en Hrafnhildur Hafberg, sem einnig var á meðal umsækjenda kærði ráðninguna til kærunefndar jafnréttismála. Að mati kærunefnd- ar braut LA jafnréttislög við ráðn- ingu leikhússtjóra. Leikhússtjóri LA kvartar til umboðs- manns Alþingis SÝNINGIN „Rembrandt og samtíð- armenn hans“ í Listasafninu á Ak- ureyri hefur slegið aðsóknarmet, en hátt í 10 þúsund manns hafa séð sýn- inguna. Það jafngildir því að um 70% bæjarbúa á Akureyri hafi heimsótt Listasafnið. Sýningargestir hafa þó komið frá öllum hornum landsins og ekki látið vegalengdir aftra sér í að njóta verkanna. Sýningunni lýkur nú um helgina og verður hún ekki sett upp annars staðar á landinu og þrátt fyrir ítrek- aðar óskir hefur ekki reynst unnt af framlengja henni. Þetta er í fyrsta sinn sem sýning frá gullöld hol- lenskrar myndlistar er sýnd á Ís- landi, en verkin koma frá lettneska heimslistasafninu í Riga. Þar eru málverk, ætingar og koparstungur, eða alls um 15 olíumálverk og 27 grafíkverk. Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12 til 17. Ókeypis verður á safnið næsta laugardag, 26. október, en þann daga býður sjón- varpsstöðin Aksjón gestum á sýn- inguna. Eins er ókeypis inn á safnið á fimmtudögum, en annars kostar 350 krónur inn fyrir aðra en börn og eldri borgara. Hátt í 10 þús- und sýning- argestir NÝJAR, SANNAR FRÉTTIR FRÁ B A L I Reykjavík, 23. október 2002 Ágætu farþegar til Bali. Ég hef reynt að fylgjast með ástandinu á BALI með upplýsingum beint frá fólki á staðn- um, enda ágætlega staðkunnugur eftir meira en tuttugu ára kynni af landi og þjóð, frem- ur en að láta stjórnast af æsingafréttum fjölmiðla, sem farið hafa offari og dregið upp einhliða svarta hlið mála gegn ferðamönnum og horft framhjá því sem máli skiptir, ró- semi, friði, jafnvægi og stjórn á því ástandi sem skapaðist við örlagaríkan ógnaratburð. Mér er það ánægjuefni að geta nú sent ykkur nýjustu upplýsingar beint frá landsstjóra BALI, þar sem hann lýsir yfir að almennt ástand sé með venjulegu móti. Ennfremur segir: „HIÐ BALINÍSKA ÞJÓÐFÉLAG HEFUR HALDIÐ YFIRVEGUN SINNI, RÓ OG FESTU EFTIR HINN HÖRMULEGA ATBURÐ OG SÝNIR ÁFRAM STILLINGU OG JÁKVÆÐNI Í STAÐ VONLEYSIS OG KVÍÐA EN FORÐAST AÐ LÁTA VIÐ- BURÐINN HAFA NEIKVÆÐ ÁHRIF Á LÍF SITT. STJÓRNVÖLD HAFA BRÝNT FYRIR LÖGREGLU OG ÖRYGGISVÖRÐUM AÐ EFLA VARNIR OG BEITA FAG- LEGUM AÐFERÐUM TIL AÐ TRYGGJA AÐ SLÍK HÖRMUNG HENDI ALDREI AFTUR UM ÓKOMNA TÍÐ. ÖLL ÞJÓNUSTA Á BALI ER MEÐ EÐLILEGUM HÆTTI EINS OG FYRR, OG BALI ÁFRAM EFTIRLÆTISÁFANGASTAÐUR FERÐAMANNA ALLS STAÐAR ÚR HEIMINUM.“ Við þetta má bæta, að í bréfi frá hótelstjórninni á NIKKO BALI RESORT í morgun er lýst öryggisráðstöfunum í grennd við hótelið. Gerð hefur verið öryggisgirðing kringum hótellóðina, og eru allir bílar sem koma að rannsakaðir. Forstjórar eru á vakt allan sól- arhringinn ásamt öryggisvörðum og lögreglu. Þetta ber ekki að túlka sem hættumerki, því engin hætta er á ferðum, en eftirlitsmenn eru á verði, án þess að vera áberandi eða trufla á nokkurn hátt ró og næði farþega í hinu fagra, friðsama umhverfi, EN EINUNG- IS GERT TIL AÐ AUKA ÖRYGGISTILFINNINGU GESTA. Til þess að tryggja enn betur vellíðan farþeganna, hefur NIKKO BALI nú boðist til að bjóða gestum okkar uppfærslu gistingar, þ.e. bestu herbergin, í álmunni sem snýr út að 7 sundlaugum og hinum yndisfögru görðum, sem kosta annars þriðjungi meira. Enginn hefur hér formlega afturkallað ferð sína til Bali, og gerir það vonandi ekki héð- an af, enda tel ég ferðina alveg í höfn og mun hún reynast betur en nokkurn hafði órað fyrir. Með þessum nýju fréttum hefur verðmæti hennar einnig aukist verulega. Með Heimsklúbbskveðju og bestu óskum. Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri HEIMSKLÚBBS INGÓLFS Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564, netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.