Morgunblaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2002 13
HINN 10. júní síðastliðinn
varði Ólöf Garðarsdóttir sagn-
fræðingur doktorsritgerð sína við
háskólann í
Umeå í Svíþjóð.
Ritgerðin hefur
komið út á
prenti og nefnist
Saving the
Child. Regional,
cultural and
social aspects of
the infant
mortality decl-
ine in Iceland,
1770–1920. Bókina er hægt að fá
hjá Háskólaútgáfunni, hjá Sögu-
félagi í Fishersundi og í Bóksölu
stúdenta.
Undanfarinn áratug hefur Ólöf
sinnt rannsóknum í félagssögu og
liggja eftir hana allmargar grein-
ar á því sviði. Aðstæður barna og
unglinga hafa skipað mikilvægan
sess í rannsóknum hennar; var
doktorsverkefnið liður í norrænu
rannsóknarverkefni um þróun
ungbarna- og barnadauða á Norð-
urlöndum á tímabilinu 1750–1950.
Í ritgerðinni fjallar Ólöf um
þann mikilvæga árangur sem náð-
ist í baráttunni við mikinn ung-
barnadauða á Íslandi á síðari
hluta 19. aldar. Fyrir þann tíma
var ungbarnadauði á Íslandi með
því mesta sem gerðist í Evrópu og
um miðbik 19. aldar gátu aðeins
um tveir af hverjum þremur ný-
burum á Íslandi vænst þess að
lifa fyrsta afmælisdaginn sinn.
Eftir 1870 dró mjög ört úr ung-
barnadauða á Íslandi og fljótlega
eftir aldamótin 1900 var hann með
því allra minnsta sem gerðist í
heiminum.
Að baki mikils ungbarnadauða á
Íslandi liggja margþættar ástæð-
ur. Ekki fer þó að milli mála að
óvenju mikinn ungbarnadauða á
Íslandi má helst rekja til þess að
nýburar voru ýmist alls ekki lagð-
ir á brjóst eða hafðir á brjósti í
mjög skamman tíma. Á aðeins ör-
fáum stöðum var brjóstagjöf al-
menn og þar var ungbarnadauði
afar lítill á evrópskan mælikvarða.
Hér er einkum um að ræða Þing-
eyjarsýslur og Reykjavík. Ólöf
sýnir að á þessum stöðum voru
menntaðar ljósmæður fleiri en
annars staðar á landinu og marg-
ar þessara ljósmæðra höfðu
menntast í Danmörku þar sem
brjóstagjöf var mjög almenn.
Ólöf færir rök fyrir því að
auknar lífslíkur nýbura á Íslandi
megi að verulegu leyti þakka
fjölgun menntaðra ljósmæðra.
Ljósmæður sinntu sængurkonum í
um hálfan mánuð eftir fæðingu og
fræddu þær meðal annars um
brjóstagjöf. Einnig eru leiddar að
því líkur að aukinn áhugi á þjóð-
félagsmálefnum og bætt menntun
kvenna almennt eigi ríkan þátt í
því hve mjög dró úr ung-
barnadauða hér á síðari hluta 19.
aldar og í upphafi þeirrar 20. For-
eldrar Ólafar eru Garðar I. Jóns-
son og Guðrún Freysteinsdóttir.
Börn hennar eru Katla Ísaks-
dóttir og Guðrún H. Ísaksdóttir.
Doktor í
sagnfræði
Ólöf Garðarsdóttir
BJÖRGUNARSVEIT Slysavarna-
félagsins Landsbjargar í Rangár-
vallasýslu fann um þrjúleytið í fyrri-
nótt mælingarmanninn sem leit
hófst að á miðnætti. Maðurinn var
heill á húfi og var í bíl sínum á þeim
slóðum sem talið hafði verið að hann
hefði verið að vinna á. Ástæða þess
að hann skilaði sér ekki til byggða
var sú að bíll hans hafði bilað.
Því komst hann ekki til baka frá
vinnu sinni á Holtamannaafrétt eins
og til stóð. Maðurinn brást hins veg-
ar rétt við aðstæðum og beið við bíl
sinn eftir að aðstoð bærist, að sögn
Landsbjargar.
Leit að mæl-
ingamanni
RÍKISSAKSÓKNARI hefur ákveð-
ið að gefa ekki út ákæru á hendur
starfsmönnum nektarstaðarins Bóh-
em sem kærðir voru fyrir að reyna
að fá nokkrar starfsstúlkur staðarins
til að stunda vændi.
Að lokinni rannsókn var málið lát-
ið niður falla hjá ríkissaksóknara þar
sem ekki var talið líklegt að saksókn
myndi leiða til sakfellis.
Meint vændis-
mál fellt niður
♦ ♦ ♦
VERSLUNIN Krónan ætlar að
bjóða íbúum á Stokkseyri og Eyrar-
bakka ókeypis rútuferðir í verslunina
á Selfossi. Matvöruverslunum á
Stokkseyri og Eyrarbakka hefur ver-
ið lokað og eiga sumir í erfiðleikum
með að komast í verslun til að kaupa
til heimilisins. Ferðirnar verða einu
sinni í viku frá þessum stöðum.
Fyrsta ferðin verður 31. október.
Um verður að ræða tilraun, fyrst í
stað, til áramóta. Þessi ferð verður í
samvinnu við Hópferðabíla Guð-
mundar Tyrfingssonar hf og verður á
fimmtudögum. Farið verður frá fyrr-
verandi verslunum á báðum stöðum
frá Stokkseyri kl 10.40 og frá Eyr-
arbakka kl 10.50. Komið verður á Sel-
foss kl. 11 og farið af stað til baka kl
12.
„Það er von forsvarsmanna Krón-
unnar að fólk notfæri sér þessa þjón-
ustu, sérstaklega fólk sem ekki hefur
bíl til umráða og getur ekki farið hve-
nær sem er í verslun til matarinn-
kaupa,“ segir í fréttatilkynningu frá
versluninni Krónunni á Selfossi.
Frá og með sama tíma munu
starfsmenn Krónunnar á Selfossi
gera tilraun til áramóta með breyttan
afgreiðslutíma og verður opnað
klukkan 11:00 á morgnana.
Ókeypis rútuferðir
í búð á Selfossi
Þumalína
Allt fyrir mömmuna og barnið
Skólavörðustíg 41
Póstsendum, s. 551 2136
David P. Norton
Ráðstefna
Samhæft árangursmat
Ráðstefna Teymis 1. nóvember
– í samstarfi við Landsbankann
Dr. David P. Norton mun halda heilsdags ráðstefnu um Samhæft árangursmat á vegum Teymis.
Hann er höfundur aðferðafræðinnar á bak við Samhæft árangursmat, ásamt dr. Robert S. Kaplan.
Dr. Norton er virtur fræðimaður í sinni grein og einn eftirsóttasti ráðgjafi veraldar á sviði
fyrirtækjastjórnunar.
Samhæft árangursmat er aðferðafræði sem hefur þann tilgang að greina stefnu fyrirtækja og
stofnana niður í lykilþætti og mælanleg markmið. Í kjölfarið er viðeigandi hugbúnaður notaður til
að fylgjast nákvæmlega með því hvernig gengur að framfylgja stefnunni og ná yfirlýstum
markmiðum í rekstri. Vinsældir Samhæfðs árangursmats fara stöðugt vaxandi og hefur innleiðing
þess hafist hjá tæplega 50% af stærstu fyrirtækjum Norður-Ameríku og Evrópu.
Ráðstefnan ber yfirskriftina „Creating Breakthrough Performance in Strategy-Focused
Organizations“ og er henni skipt í fjóra hluta:
• The Strategy-Focused Organization
• Strategy Maps and Balanced Scorecards
• Building an Organization to Execute Strategy
• Implementing a Balanced Scorecard Program
Ráðstefnan verður haldin föstudaginn 1. nóvember næstkomandi í Eldborg, ráðstefnuhúsnæði
Orkuveitu Suðurnesja við Svartsengi. Teymi veitir allar nánari upplýsingar og skráning fer fram
í síma 550 2500, með tölvupósti á netfangið skraning@teymi.is eða á vef Teymis, teymi.is/norton.
Teymi // Borgartúni 30 // 105 Reykjavík // 550 2500 // www.teymi.is
Teymi hf. er umboðs- og þjónustuaðili Oracle Corporation á Íslandi. Meðal öflugustu
lausna Oracle er Oracle Balanced Scorecard, sem byggt er á Samhæfðu árangursmati
og er vottað af höfundum aðferðafræðinnar, þeim Kaplan og Norton.
A
B
X
/
S
ÍA
9
02
15
35
B
al
an
ce
d
S
co
re
ca
rd
með höfundi Samhæfðs árangursmats