Morgunblaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 46
DAGBÓK 46 FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Bjarni Sæmundsson kemur í dag. Arnarfell og Goðafoss fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Goðafoss fer frá Straumsvík í dag. Marschenland kemur í dag. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9–12 op- in handavinnustofa, kl. 9–12.30 bókband og öskjugerð, kl. 9.45–10 helgistund, kl. 10.15 leik- fimi, kl. 11 boccia, kl. 13 opin smíða og handa- vinnustofa, kl. 10 pútt. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9– 9.45 leikfimi, kl. 9–12 myndlist, kl. 9–16 handavinna, kl. 13 bók- band, kl. 14–15 dans. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið opið mánu- og fimmtudaga. Mánud: Kl. 16 leikfimi. Fimmtud: kl. 13 tré- skurður, kl. 14 bókasafn- ið, kl. 15–16 bókaspjall, kl. 17–19 æfing kórs eldri borgara í Damos. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 opin handa- vinnustofan, kl. 9–12 íkonagerð, kl. 10–13, verslunin opin, kl. 13–16 spilað. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Kl. 9–14 aðstoð við böðun, kl. 9–16.45 hárgreiðslu- og handa- vinnustofur opnar, kl. 10.30 dans, kl. 14–15 söngstund. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 glerskurður, kl. 10 leik- fimi, kl. 15.15 samkvæm- isdansar, kl. 15.15 dans- kennsla. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 10.30 guðþjón- usta sr. Kristín Páls- dóttir, kl. 13 föndur og handavinna. Bingó kl. 15. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Vetrarfagn- aðurinn verður í Tónlist- arskólanum í Garðabæ í kvöld kl. 20. Fimmtud.: kl. 10.30 boccia, kl. 13 leikfimi karla, málun og bútasaumur. Föstud: kl. 11 námskeið í skyndi- hjálp, kl. 14.15 spænska. Félag eldri borgara Kópavogi. Bingó í Gull- smára 25. okt. kl 14. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Púttað í Hraunseli kl.10, bingó kl. 13.30, glerskurður kl 13. Á morgun tréút- skurður kl 13, brids kl 13.30, púttað á Hrafn- istuvelli kl. 14–16. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Félagið hefur opnað heimasíðu www.feb.is. Kaffistofan er lokuð vegna breyt- inga í Glæsibæ. Fimmtud: Brids kl. 13, framsögn kl. 16.15, söng- félag FEB kóræfing kl. 17, bridsnámskeið kl. 19.30. Föstud.: Félagsvist kl. 13.30. Heilsa og ham- ingja Ásgarði Glæsibæ laugardaginn 26. októ- ber kl. 13. Erindi flytja: Tómas Helgason skýrir frá rannsókn sinni um samband heilsu og lífs- gæða á efri árum og Júl- íus Björnsson sálfræð- ingur um svefnþörf og svefntruflanir aldraðs fólks. Allir velkomnir. Félagsstarfið er áfram í Ásgarði Glæsibæ. Upp- lýsingar á skrifstofu FEB s. 588 2111. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 10.30 helgistund, um- sjón Lilja G. Hallgríms- dóttir djákni Fella- og Hólakirkju. Frá hádegi spilasalur og vinnustofur opin, veitingar í kaffi Berg, Fimmtud. 31. okt. „Kynslóðir saman í Breiðholti“ félagsvist í samstarfi við Seljaskóla. Föstud. 1. nóv. dans- leikur, frá 20–23.30, hús- ið opnað kl. 19.30, hljóm- sveit Hjördísar Geirs skemmtir. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.05 og kl. 9.55 leik- fimi, handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum kl. 9.30–15, kl. 9.30 keramik og leir- mótun, kl. 13 ramma- vefnaður, gler og postu- línsmálun, kl. 15 enska, kl. 17 myndlist, kl. 17.15 kínversk leikfimi, kl. 20 gömlu dansarnir, kl. 21 línudans. Í tilefni al- þjóðaviku í Kópavogi verður fjölþjóðlegur dansdagur í Gjábakka, frá kl. 14. Sýndir verða ýmsir dansar. Erindi um dansinn í tím- ans rás flytur Ingibjörg Björnsdóttir, Dagskráin er án endurgjalds, allir velkomnir, Íslenskt kaffihlaðborð. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9.15 postulíns- málun, kl. 10 ganga, kl. 13 brids, kl. 13–16 handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum. Fjölskyldudagur í Gull- smára laugard. 26. okt kl. 14, leikherbergi fyrir yngstu börnin, til afnota verða litir, pappír og leir. Unglingakór Digra- neskirkju syngur undir stjórn Heiðrúnar Há- konardóttur. Brúðuleik- hús fyrir fólk á öllum aldri. Leikritið Loð- inbarði í umsjá Hall- veigar Thorlacíus. Ragn- ar Bjarnason rifjar upp gamlar perlur. Vöfflu- kaffi. Allir velkomnir. Takið börn og barna- börn með. Vesturgata 7. Kl. 9.15– 15.30 handavinna, kl. 10– 11 boccia, kl.13–16 kór- æfing og mósaík. Þriðjud. 29. okt. kl.13.30 verður félagsráðgjafi með fræðslufund. Nýtt heimili – húsnæði fyrir eldri borgara. Fyr- irspurnum svarað. Dag- skráin kynnt kl.14.30, m.a. sýnd brot úr döns- um, og unnið að hand- verki. Frá kl. 13 verður handverkssala. Mynd- listarsýning Sigrúnar Huldar Hrafnsdóttur er opin virka daga á af- greiðslutíma þjónustu- miðstöðvarinnar og stendur til 8. nóv. Bankaþjónusta föstud. 1. nóv. kl. 13.30–14. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna og keramik, kl. 10 boccia, kl. 11 leik- fimi, kl. 14 félagsvist. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 bútasaumur, kl. 10 boccia, kl.13 handavinna, 13.30 félagsvist. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi. Fimmtud.: Kl. 10, aðra hverja viku púttað á Korpúlfsstöðum, hina vikuna keila í Keilu í Mjódd. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa og tréskurður, kl. 13–16.45 leir, kl. 10–11 ganga, kl. 14–15 jóga. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9.30 glerskurður, körfugerð og morg- unstund, kl. 10 boccia, kl. 13 handmennt og spilað. Þorrasel dagdeild, Þorragötu 3. Laug- ardaginn 26.10. verður opið hús og basar frá kl.13–17. Úrval muna til sölu, kaffisala á staðn- um. Allir velkomnir. ÍAK, Íþróttafélag aldr- aðra í Kópavogi. Leik- fimi kl. 11.15 í Digra- neskirkju. Félag áhugamanna um íþróttir aldraðra. Leik- fimi í Bláa salnum kl. 11. Háteigskirkja eldri borgarar. Kl. 14 í Setr- inu, samverustund „vinafundur“ fólk hjálp- ast að við að vekja upp gamlar og góðar minn- ingar, sr. Tómas og Þór- dís þjónustufulltrúi sjá um stundina. Sjálfsbjörg félag fatl- aðra, Hátúni 12, kl. 19.30 tafl. Kristniboðsfélag kvenna, Háaleitisbraut 58–60. Fundur kl. 17 í umsjá Valdísar Magn- úsdóttur. Allar konur velkomnar. Gullsmárabrids. Eldri borgarar spila brids í Gullsmára 13 mánu- og fimmtudaga. Skráning kl. 12.45, spil hefst kl. 13. Kvenfélag Kópavogs. Fundur fimmtud. 24 okt. Venjuleg fundarstörf. Upplestur og bingó. Eskfirðingar og Reyð- firðingar. Vetrarkaffi fyrir eldra fólk frá Eski- firði og Reyðarfirði á höfuðborgarsvæðinu verður sunnud. 17 okt. kl. 15 í Félagsheimili eldri borgara í Gull- smára 9, Kópavogi. Ath. nýr staður. Tómstundastarf eldri borgara í Reykjanesbæ. Spænskunámskeið verð- ur á þriðjud. kl. 20–21.30 í fjögur skipti í Selinu, Vallarbraut 4, Kennari Guðbjörg Sigríður Hauksdóttir. Skráning í s. 861 2085. Í dag er fimmtudagur 24. október, 297. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Og sólin rennur upp, og sólin geng- ur undir og hraðar sér til samastað- ar síns, þar sem hún rennur upp. (Préd. 1, 5.) K r o s s g á t a 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Víkverji skrifar... FLUGLEIÐIR tilkynntu í liðinniviku um lækkun á ódýrustu fargjöldunum til Evrópu og Banda- ríkjanna. Nú er hægt að komast til Kaupmannahafnar fyrir tæplega 20.000 kr. og til annarra áfanga- staða í Evrópu fyrir um 25.000. Ódýrasta fargjaldið til Bandaríkj- anna kostar tæplega 48.000 kr. Ekki er annað hægt en að fagna þessum lækkunum þótt Víkverja hafi reynd- ar fundist að fargjöldin hafi verið heldur dýr til að byrja með. Sá böggull fylgir skammrifi að panta verður með þriggja vikna fyrirvara og er einungis hægt að bóka á Net- inu. Þetta ætti nú ekki að vefjast fyrir mörgum og er Víkverji viss um að lækkun fargjaldanna muni verða til þess að farþegum Flugleiða fjölgi. Sama dag og frétt um lækkun á fargjöldum Flugleiða birtist í Morgunblaðinu var frétt á baksíð- unni um að Ryanair væri að kanna möguleika á Íslandsflugi og stutt er síðan fregnir bárust af því að nýtt flugfélag í eigu íslenskra athafna- manna ætli að bjóða upp á ódýr far- gjöld milli Evrópu og Bandaríkj- anna, að sjálfsögðu með viðkomu á Íslandi. Það er því batnandi tíð með blóm í haga fyrir ferðaglaða frón- búa. x x x Í HAUST endurnýjaði Víkverjikynni sín af Kaupmannahöfn og varð ekki fyrir vonbrigðum. Alltaf finnst honum jafngaman að koma í Tívólí og Danir eru sem fyrr vin- gjarnlegri og glaðlegri en flestar aðrar þjóðir sem Víkverji hefur komist í kynni við. Hvað veldur því að Danir virðast svo glaðsinna er ekki gott að segja. Þeir teljast þó líklega eiga Evrópumet í að „hygge sig“ sem er athöfn sem Víkverji get- ur ekki fundið íslenskt nafn fyrir. Kannski er ein ástæðan fyrir þessu áhyggjulausa yfirbragði Dananna að tungumálið er eitthvað svo kæru- leysislegt. Þeir virðast hafa litlar áhyggjur af kórréttum framburði og víla ekki fyrir sér að taka orð að láni úr öðrum tungumálum, aðallega úr ensku. Þetta léttir e.t.v. á þeim í daglegu amstri en Víkverji vill þó ekki fyrir nokkra muni að Íslend- ingar fari að dæmi sinna dönsku frænda. Framburður Dana er kapít- uli út af fyrir sig og allt öðrusvísi en danski framburðurinn sem Víkverji lærði í skóla. Íslendingar sem Vík- verji ræddi við í Kaupmannahöfn voru honum algjörlega sammála. Einn þeirra flutti til Kaupmanna- hafnar síðla sumars og féll kylliflat- ur fyrir dönsku pylsunum. Sérstak- lega þykir honum svonefndar Frankfurter pylsur gómsætar og telur að hann hafi keypt og borðað vel á annað hundrað slíkar pylsur á þeim rúmlega tveimur mánuðum sem hann hefur búið í borginni. Ekkert smáræði það! Þrátt fyrir mikla æfingu í að biðja pylsusalana um Frankfurter bregst það varla að þeir svara með hinu aldanska: „Hva!“ og skilja ekkert hvað hann á við. Enda samskiptin iðulega með því að Íslendingurinn þarf að benda á mynd af pylsunni. Víkverji ræddi þessi mál við vinnufélaga sinn sem hafði skýringu á reiðum höndum. „Það vantar stuðið í framburðinn,“ sagði hann. Ekki dugi að bera dönskuna fram eins og hún er skrif- uð líkt og Íslendingar gera gjarnan heldur verður að bæta inn tilþrifa- miklum áherslum á réttum stöðum. Það sé t.d. alls ekki það sama að panta „en Tuborg“ og að panta „eeen TúBBOOrgggh“. Stjórnmálafræðingur á villigötum SUNNUDAGINN 13. októ- ber var viðtal við Svan Kristjánsson, prófessor í stjórnmálafræði, í sjón- varpsþættinum Silfri Egils. Rætt var við hann um próf- kjör og einnig hvernig kjós- andi getur breytt röð fram- bjóðenda á þeim lista, sem hann kýs í alþingiskosning- um. Í máli hans var fólgið, að frambjóðandi í tilteknu sæti hljóti óskerta tvo þriðju hluta þeirra atkvæða, sem sætinu hlotnast, án nokkurs tillits til breytinga eða út- strikana. Hér skýtur heldur betur skökku við. Reglan, sem Svanur lýsti, var afnumin árið 1984, og á lýsing hans alls ekki lengur við. Málflutningur hans, þar sem hann lagði út af þessu, var því úr lausu lofti gripinn. Mig furðar að prófessor í stjórnmálafræði, sem fylgist ekki betur með en raun ber vitni, skuli tjá sig opinber- lega um þetta mál. Baldur Símonarson. Bróður leitað FRANK W. Stissi hafði samband við Velvakanda og bað um aðstoð við að finna bróður sinn, Anthony Stissi, sem er fæddur í Bandaríkj- unum. Anthony fór mjög ungur, fyrir næstum 30 ár- um, til Íslands með móður sinni. Biður hann þá sem geta aðstoðað hann og gefið honum upplýsingar að hafa samband á netfangið: im- cookoobird@aol.co. Vinar leitað COLIN Maxwell hafði sam- band við Velvakanda og er hann að leita að vini sínum, Jóni Óskari Fredrikssyni. Þeir sem geta gefið upplýs- ingar vinsamlega hafið sam- band við Colin á netfanginu: cam22+@pitt.edu. Kárahnjúkavirkjun Í MORGUNBLAÐINU 16. október sl. er grein um Kárahnjúkavirkjun eftir Ástu Arnardóttur. Mig langar til þess að hvetja alla Íslendinga til þess að lesa þessa grein og mynda sér skoðun um málið áður en illa fer. Þórunn Sif. Lokuð klassísk stöð NÚ er búið að loka einu klassísku útvarpsstöðinni, FM100,7 sem rekin var af Norðurljósum. Eini auglýs- andinn á þeirri stöð var Gámaþjónustan og hefur það líklega ekki verið nóg til að halda henni opinni. Ég vil hér kasta fram þeirri hug- mynd að Ríkisútvarpið sendi út klassíska tónlist á sérrás. Þeir hljóta að eiga mjög mikið af klassískri tón- list sem auðvelt væri að senda út, jafnvel ókynnta af böndum ef þarf. Það er nú svo að líklega er ekki auð- velt að reka slíka stöð með auglýsingatekjum en marg- ir efalaust sammála um að það væri nauðsynlegur menningarauki að hafa a.m.k. eina sígilda útvarps- rás. Í von um að útvarps- stjóri reyni að koma til móts við okkur unnendur klass- ískrar tónlistar. Sigríður Einarsdóttir. Tapað/fundið Reiðhjólahjálmur í óskilum REIÐHJÓLAHJÁLMUR fannst í Öskuhlíðinni sl. laugardag. Upplýsingar í síma 552-5319. Ljósbrúnt seðlaveski SÁ SEM fann ljósbrúnt sðelaveski fyrir viku og reyndi að skila því vinsam- legast hafðu aftur samband í síma 867 5494. Guðmundur. Gullhálsmen týndist GULLHÁLSMEN með stöfunum HS týndist líklega í Kringlunni eða Smáranum. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 553 6351 eða 581 4898. Reiðhjól í óskilum 26" kvenreiðhjól í Glæsibæ í Árbæjarhverfi í óskilum. Upplýsingar í síma 587 1468. Dýrahald Sólon er týndur SÓLON, sem er svartur með lítinn hvítan blett á kviði, týndist frá Haðarstíg í síðustu viku. Hann er ólar- laus en eyrnamerktur. Hann er líklega týndur á svæði 101. Þeir sem geta gefið upplýsingar vinsam- lega hafið samband í síma 891 9991, 820 2100 eða 551 3252. Hvolpur óskast ÓSKA eftir hvolpi gefins af chihuahua-kyni, má vera blendingur. Upplýsingar í síma 867-0797 eftir kl. 13. Páfagaukur týndist Dísarpáfagaukur, lítill ungi grábrúnn á lit, týndist frá Gullengi í Grafarvogi sl. þriðjudag. Hann er með lít- inn járnhring á vinstra fæti. Þeir sem hafa orðið hans varir hafi samband í síma 586 2151 og 899 8212. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT: 1 flækingur, 8 ekils, 9 blása, 10 reið, 11 flýtinn, 13 peningar, 15 hafa eft- ir, 18 ægisnálin, 21 mis- kunn, 22 spilið, 23 fiskar, 24 vantar vatn. LÓÐRÉTT: 2 ást, 3 óþétt, 4 óþokka, 5 fiskar, 6 ósvikinn, 7 nagli, 12 læri, 14 ótta, 15 ósoð- inn, 16 léleg skepna, 17 hinn, 18 stétt, 19 sveru, 20 skass. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 jökul, 4 snökt, 7 skóli, 8 lokki, 9 tól, 11 feit, 13 þrái, 14 ámæli, 15 óþol, 17 ljót, 20 ótt, 22 ískur, 23 ræður, 24 tinna, 25 syrpa. Lóðrétt: 1 Jósef, 2 krógi, 3 leit, 4 soll, 5 öskur, 6 teiti, 10 ófært, 12 tál, 13 þil, 15 óvíst, 16 orkan, 18 jaðar, 19 terta, 20 óróa, 21 tros.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.