Morgunblaðið - 24.10.2002, Síða 14

Morgunblaðið - 24.10.2002, Síða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ örugg stýring viðskiptakrafna FJÖLMENNI var á fundi í Rima- skóla á þriðjudag þar sem ný til- laga að deiliskipulagi Landssíma- reitsins svokallaða var kynnt. Tillagan felur meðal annars í sér að ekki er lengur gert ráð fyrir þremur íbúðarturnum á norðan- verðum reitnum heldur verði þar lágreistari fjölbýlishús. Þetta er í þriðja sinn sem tillaga að deili- skipulagi reitsins er kynnt íbúum á slíkum fundi. Fyrstu tillögurnar voru kynntar íbúum í október í fyrra en vegna mikillar andstöðu við þær voru þær endurskoðaðar. Nýjar tillögur voru svo auglýstar og kynntar á fundi í apríl síðastliðnum en hlutu sömuleiðis lítinn hljómgrunn meðal íbúanna. Meðal annars var hæð bygginga gagnrýnd, þéttleiki byggðarinnar og aðkoma umferðar að hverfinu. Var þá ákveðið að stofna samráðshóp sem í áttu sæti fulltrúar frá Skipulags- og bygg- ingasviði Reykjavíkur og umferð- ardeildar Umhverfis- og tækni- sviðs auk fulltrúa íbúa í Rimahverfi og verktaka. Möguleiki á hjúkrunarheimili Að sögn Helgu Bragadóttur, skipulagsfulltrúa í Reykjavík, ger- ir tillagan nú ráð fyrir mun lægri byggð á norðanverðu svæðinu en áður. Í stað þriggja turna, sem voru sjö, níu og ellefu hæðir og tveggja íbúðalengja sé komin skeifulaga bygging sem er fjórar til sex hæðir. Að auki eru fimm stök fjölbýlishús sem eru fimm og sex hæðir. „Áfram er gert ráð fyrir þjónustumiðstöð og síðan getur ein af þessum blokkum, sem er með um 30 íbúðir, líka verið hjúkrunar- heimili,“ segir Helga. Samtals gerir þetta um 190 íbúð- ir sem eru hugsaðar fyrir eldri borgara auk hússins sem gæti orð- ið hjúkrunarheimili. „Þarna er einnig gert ráð fyrir bílageymslu neðanjarðar fyrir um það bil helm- ing bílanna. Þessar byggingar eru lægri en áður, falla betur að því byggðarmynstri sem þarna er fyrir og varpa ekki jafnmiklum skugga á næstu lóðir.“ Alls er gert ráð fyrir 310 íbúðum á svæðinu öllu, sem er það sama og í auglýstri tillögu, og er fyrirkomu- lag einbýlishúsa- og raðhúsa- byggðar svipað og áður. Þó hefur raðhúsum verið fækkað lítillega. Tvenn gatnamót í stað hringtorgs Helga segir aðkomu umferðar að hverfinu einnig hafa verið breytt og í stað hringtorgs sem áður átti að vera inni á svæðinu eru komin tvenn svokölluð T-gatnamót. „Að- koman inn á fjölbýlishúsasvæðið verður þá strax til austurs og síðan verður hefðbundin tenging án hringtorgsins niður í hverfið,“ seg- ir hún en bendir á að eftir sem áð- ur verði ekið um hringtorg inn á skipulagsreitinn sjálfan frá Borga- vegi. Hvað varðar græn svæði segir Helga að búið sé að stækka leik- svæði á austanverðu svæðinu. „Þær kröfur sem við gerum til grænna svæða eru uppfylltar í þessari nýju tillögu en að auki bendum við á önnur svæði í ná- grenninu eins og svæðið við Gylfa- flöt þar sem er mögulegt að koma fyrir sparkvöllum. Þá eru önnur hefðbundin leiksvæði í Rimahverf- inu og á nærliggjandi svæðum auk stórrar og góðrar skólalóðar.“ Fyrirkomulag skólamála verður með sama hætti og áður var ráð- gert en áformað er að byggja nýj- an skóla fyrir 7–9 ára gömul börn og í tengslum við hann yrði rekinn leikskóli. „Það var forsenda fyrir því að fjölga íbúum á þessu svæði. Rimahverfi er tiltölulega stórt hverfi með um 3.500 íbúum þannig að Rimaskóli er einn stærsti skóli borgarinnar. Með því að gera þetta með þessum hætti er hægt að skipta þessu svolítið upp.“ Á ekki von á fleiri kynningarfundum Helga segir að í framhaldi af fundinum í gær verði unnin fund- argerð þar sem ritaðar verða niður þær athugasemdir sem fram komu á fundinum. „Síðan verður þessi tillaga kynnt í skipulags- og bygg- inganefnd og eins verður unnin samantekt um þær athugasemdir sem bárust við auglýsingunni á sínum tíma en við lögðum áherslu á að vinna að bættri tillögu í sam- ráðshópnum áður en það væri gert. Svo er stefnan að kynna þetta í hverfisráði Grafarvogs,“ segir Helga. Aðspurð segir hún ekki ljóst hvort ný tillaga verði auglýst og segist ekki eiga von á að fleiri slík- ir stórir kynningarfundir verði haldnir með íbúum vegna málsins. Þriðja tillagan að skipulagi Landssímareitsins kynnt á fundi í Rimaskóla Morgunblaðið/Árni Sæberg Íbúar gátu meðal annars virt fyrir sér líkan af tillögunni á fundinum í gær. Hér er horft í norðaustur yfir deiliskipulagsreitinn en hönnun hans var í höndum Zeppelin arkitekta. Byggðin á norðanverðum reitnum (efst á teikningunni) er orðin talsvert lágreistari en áður. Ekki lengur gert ráð fyrir þremur turnum Grafarvogur KRAKKARNIR á leikskólanum Hlíð í Mosfellsbæ verða ekki í vandræðum hér eftir að flagga þegar tilefni eru til því síðastliðinn föstudag gaf einn helsti velunnari barnanna leikskólanum þeirra fánastöng. Þessi velgjörðamaður er þekktur meðal krakkanna sem Carlo en eiginlega er fullt nafn hans Karl M. Jensson þótt það beri sjaldan á góma. Sú athygli sem þessi gjöf hefur vakið vekur undrun Carlos enda hafði hann eiginlega hugsað sér að láta fara lítið fyrir henni. „Ég ætl- aði bara að laumast yfir að leik- skólanum og setja þar niður flagg- stöng og svo yrði það búið!“ segir hann steinhissa á upphringingunni frá Morgunblaðinu. Hann fellst þó á að eiga stutt spjall við blaða- mann. Hefur séð bæinn byggjast upp Carlo er heimilismaður á Dval- arheimili aldraðra að Hlaðhömrum sem er rétt við leikskólann og í ljós kemur að hann gaf stöngina sama dag og hann átti 84 ára afmæli. Hann segir það þó hafa verið til- viljun að svoleiðis stóð á. „Ég hafði lengi hugsað mér að leikskólinn skyldi fá fánastöng vegna þess að það er komið nýtt barnaheimili hér við hliðina sem er með flaggstöng,“ segir hann. „Mér finnst að jafnt eigi yfir alla að ganga.“ Aðspurður segist hann hitta krílin á leikskól- anum alltaf af og til. „Flest þeirra vita hver ég er en það er líklega út af nafninu,“ segir hann hógvær. Árið 1948 fluttist Carlo frá Dan- mörku til Íslands og hefur búið í Mosfellsbæ alla tíð síðan. „Ég hef séð bæinn byggjast upp, fyrst voru hérna eitt og eitt býli en nú er þetta orðin heilmikil byggð.“ Hann segir því öruggt að hjarta sitt slái svolítið með bæjarfélaginu. „Finnst að jafnt eigi yfir alla að ganga“ Mosfellsbær Gaf nágrönnunum á leikskólanum Hlíð fánastöng á afmælinu sínu Morgunblaðið/Sverrir Ragnheiður Ríkarðsdóttir bæjarstjóri var meðal þeirra sem voru við- staddir þegar Carlo afhenti leikskólanum fánastöngina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.