Morgunblaðið - 23.01.2003, Blaðsíða 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2003 17
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
BYLTING Á FASTEIGNAMARKAÐI
Minni kostnaður - Meiri þjónusta – Ein skráning – Margfaldur árangur
Fasteignasölurnar Ásbyrgi, Bifröst, Fasteignamarkaðurinn og Fasteignamiðlun
hafa tekið í notkun miðlægan eignagrunn fasteigna.
Ef eignin er skráð í einkasölu hjá einni af þessum fasteignasölum,
þá er hún um leið boðin til sölu hjá þeim öllum af fjölda sölumanna.
Kaupendur geta skráð sig á óskalista okkar og við látum þá vita, þegar rétta eignin er komin á skrá.
Hvergi meira úrval eigna.
EINI MIÐLÆGI FASTEIGNABANKI Á ÍSLANDI - SKRÁÐU EIGNINA ÞÍNA OG ÞÚ HEFUR FORSKOT
Vegmúla 2 - Sími 533 3344
Pálmi B. Almarsson, lögg. fastsali
bifrost@fasteignasala.is
www.fasteignasala.is
Óðinsgötu 4 - Sími 570 4500
Jón Guðmundsson, lögg. fast.- og skipasali
fastmark@fastmark.is
www.fastmark.is
Síðumúla 11 - Sími 575 8500
Sverrir Kristjánsson, lögg. fastsali
brynjar@fasteignamiðlun.is
www.fasteignamidlun.is
Suðurlandsbraut 54 - Sími 568 2444
Ingileifur Einarsson, lögg. fastsali
asbyrgi@asbyrgi.is
www.asbyrgi.is
FULLTRÚAR á þýska þinginu og
æðstu ráðamenn héldu í gær til Par-
ísar til að taka þar þátt í hátíðarhöld-
um í tilefni af 40 ára afmæli sam-
starfssáttmála þjóðanna tveggja,
svonefnds Elysee-sáttmála. Skýrt
var í gær frá ýmsum aðgerðum í sam-
starfinu sem ætlað er að dýpka það
enn frekar. Um 900 kjörnir fulltrúar
frá löndunum snæddu saman mið-
degisverð í speglasal Versalahallar í
gær.
Þeir Gerhard Schröder Þýska-
landskanslari og Jacques Chirac
Frakklandsforseti héldu ásamt ráð-
herrum sínum sameiginlegan fund í
forsetabústað Frakka, Elysee-höll í
París. Þar undirrituðu þáverandi
leiðtogar Frakklands og Vestur-
Þýskalands, Konrad Adenauer
kanslari og Charles de Gaulle forseti,
sáttmálann á sínum tíma. Með hon-
um voru lagðar til hliðar deilur og
átök sem staðið höfðu með hléum í
nær hundrað ár; blóðugust urðu
átökin í heimsstyrjöldunum tveimur
á 20. öldinni.
Chirac og Schröder hétu í sameig-
inlegri yfirlýsingu að vera gott for-
dæmi þeim sem vildu aukinn sam-
runa í Evrópusambandinu. Samráð
milli ríkjanna tveggja yrði aukið,
gerðar yrðu lagabreytingar til að ýta
undir ferðalög og flutninga borgar-
anna milli landanna tveggja og stefnt
yrði að því að Frakkar og Þjóðverjar
yrðu ein þjóð.
„Frakkar og Þjóðverjar eru tengd-
ir sameiginlegum örlögum. Sameig-
inleg framtíð okkar verður ekki skilin
frá framtíð Evrópusambands sem
verður æ stærra og einkennist af enn
nánara samstarfi. Þess vegna viljum
við bjóða félögum okkar að deila með
okkur sameiginlegri framtíðarsýn
fyrir Evrópu,“ sagði í yfirlýsingunni.
Leiðtogarnir skipust á gjöfum.
Chirac gaf Schröder koníaksflösku
frá árinu 1900 og glasasett; þýski
kanslarinn gaf gestgjafa sínum bók
sem Friðrik mikli Prússakonungur
ritaði árið 1741 um bók Macchiavell-
is, Furstann.
Fagna 40 ára sam-
starfi í stað átaka
Morgunblaðið/Sverrir
Sendiherrar Frakklands og Þýskalands, Louis Bardollet (t.v.) og Hendrik
Dane, efndu til sameiginlegrar móttöku í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær í til-
efni 40 ára afmælis Elysee-sáttmálans.
París. AFP.
FÓLK sem á uppruna sinn í löndum
Rómönsku Ameríku, þ.e. sunnan
Bandaríkjanna, skipar nú fjölmenn-
asta minnihlutahóp Bandaríkjanna.
Blökkumenn hafa fram að þessu ver-
ið stærsti minnihlutahópur Banda-
ríkjanna. Nú eru 37 milljónir Banda-
ríkjamanna af suður-amerískum
uppruna en 36 milljónir af afrískum
uppruna, samkvæmt upplýsingum
bandarískra yfirvalda.
Nær 13% íbúa Bandaríkjanna eru
því af rómönsk-amerískum uppruna
en íbúar Bandaríkjanna eru nú alls
284,4 milljónir. Þá segja fulltrúar
manntalsskrifstofu bandarískra yfir-
valda allt benda til þess að hlutfall
fólks frá Rómönsku Ameríku eigi
eftir að aukast á næstu árum og ára-
tugum þar sem fæðingartíðni meðal
þess sé hærri en hjá öðrum þjóð-
félagshópum. Tveir þriðju hlutar
þessa hóps eiga ættir að rekja til
Mexíkó. Þess ber að geta að frétta-
vefur BBC segir að blökkumenn frá
Rómönsku Ameríku séu ekki taldir
með minnihlutahóp svartra heldur
með fólki frá Rómönsku Ameríku.
Fólk af asískum uppruna er þriðji
stærsti minnihlutahópur Bandaríkj-
anna, um 12,1 milljón eða 4% íbúa
Bandaríkjanna. Fjórði stærsti
minnihlutahópurinn, indíánar, eru
4,3 milljónir.
Flestir Bandaríkjamenn eru hins
vegar af evrópsku bergi brotnir en
þeir eru um 199,3 milljónir eða tæp-
lega 70% af öllum íbúum Bandaríkj-
anna.
Stærsti minnihlutahópurinn
13% Bandaríkja-
manna af s-amer-
ískum uppruna
Washington. AP.
ÍSRAELSKI herinn jafnaði
við jörðu með jarðýtum í
gær þrjú íbúðarhús Palest-
ínumanna sem stóðu nærri
landnemabyggð gyðinga
sunnarlega á Vesturbakkan-
um, að því er vitni greindu
frá.
Að sögn Talia Somech,
talsmanns ísraelskra yfir-
valda á Vesturbakkanum,
voru húsin rifin vegna þess
að þau voru byggð í heimild-
arleysi. Að sögn palest-
ínskra vitna má vera að í
húsunum hafi tveir herskáir
Palestínumenn dvalið, sem
gerðu árás á gyðingabyggð-
ina Otniel í síðasta mánuði.
Árásarmennirnir drápu
fjóra Ísraela áður en þeir voru
skotnir til bana.
Ísraelsher hefur að undanförnu
gengið skipulega fram í að jafna við
jörðu íbúðarhús meintra öfgamanna
í röðum Palestínumanna, í því skyni
að fæla þá frá því að gera árásir á ísr-
aelska borgara. Talsmenn Palestínu-
manna eru mjög ósáttir við þessa að-
ferð og segja Ísraela með henni vera
að refsa öllum fyrir brot fárra.
Ísraelar eyðilögðu á þriðjudag 62
verzlanir í palestínska þorpinu Nazl-
at Issa, og voru það umfangsmestu
niðurrifsaðgerðir á Vesturbakkan-
um í mörg ár. Ísraelar segja verzl-
anirnar hafa verið reistar ólöglega.
Bæjarstjórinn Ziad Salem sakaði
Ísraela um að heyja stríð gegn efna-
hagslífi Palestínumanna.
Mikið niðurrif á
Vesturbakkanum
Jerúsalem, Kaíró. AP, AFP.
Starfsmaður ísraelskra stjórnvalda rýfur
straumleiðslu að húsi Palestínumanna sem
síðan var rifið í grennd við Hebron í gær.