Morgunblaðið - 23.01.2003, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 23.01.2003, Blaðsíða 40
MINNINGAR 40 FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Nú þegar hátíð ljóss- ins er liðin og allt er að komast í sitt daglega horf þá barst mér sú sorglega frétt að Erna hefði yfirgefið þetta jarðlíf. Mér finnst svo sannarlega sjónar- sviptir að henni. Það var fyrir u.þ.b. 50 árum, en þá bjuggum við báðar í vesturbæ Reykjavíkur, að ég veitti henni at- hygli, annaðhvort á förnum vegi eða í verslunum hverfisins, en heimili okkar voru á svipuðum slóðum. Svo var það eitt sinn að móðir hennar, Svava, bauð tengdafjöl- skyldu minni til kaffidrykkju á heim- ili sínu að Suðurgötu í Hafnarfirði og fylgdi ég hópnum. Ástæða þess var að Theodór, móðurbróðir mannsins míns, var mikill vinur þessa góða fólks og það sýndi áhuga á að hafa samband við ættingja Theodórs, sem hafði verið blindur einstæðingur í mörg ár. Eftir að fjölskyldur okkar Ernu fluttust í Garðahreppinn, en svo hét Garðabær þá, tókust náin kynni og var samgangur töluverður. Við tók- um upp á því að ganga í kvenfélagið í hreppnum og störfuðum mikið. Þess má geta að Erna var formaður þess um tíma. Þá fórum við saman á fund Sjálfstæðisfélags Garðahrepps og gengum í það. Það var nóg að gera hjá okkur. Erna var hamingjusöm í sínu hjónabandi, enda var Sigurður, eig- inmaður hennar, henni góður og vildi hag hennar og barna þeirra sem bestan. Heimili þeirra var fagurt, enda hjónin laghent og smekkmann- eskjur. Það var einnig heimili þeirra við Fannafold sem þau reistu með eigin höndum. Blessuð sé minning Sigurðar, en hann lést fyrir nokkrum árum. Þar kom að Erna seldi í Fannafold og keypti góða íbúð í Hafnarfirði ekki fjarri æskuheimil- inu. Börnin hennar eiga nú um sárt að binda og sendi ég þeim mínar bestu samúðarkveðjur. Megi Guðs almáttugs blessun ERNA GEIRLAUG ÁRNADÓTTIR MATHIESEN ✝ Erna GeirlaugÁrnadóttir Mathiesen fæddist á Austurgötu 29 í Hafnarfirði 12. apríl 1928. Hún lést á kvennadeild Land- spítalans við Hring- braut 12. janúar síð- astliðinn og var útför hennar gerð frá Hafnarfjarðarkirkju 21. janúar. fylgja Ernu Matt í nýj- um heimkynnum. Þar munu eiginmaður, for- eldrar, sem og áður farnir, taka vel á móti henni. Í Guðs friði. Guðfinna Snæbjörnsdóttir. Um jól og áramót leitar hugurinn inn á við. Við hugsum til ást- vina sem eru farnir eða eru sjúkir. Gleði jólanna er jafnframt blandin söknuði. Við rifjum upp liðnar stundir, er þeir voru enn þátttakendur í hátíðarhöld- unum með okkur. Nú um hátíðarnar leitaði hugur minn oft til Ernu, móð- ur Valgerðar æskuvinkonu minnar, sem lá á sjúkrahúsi. Erna lést að morgni 12. janúar. Erna Mathiesen og maður hennar Sigurður Hjálmtýsson og börnin þeirra hafa verið samferðarmenn mínir í lífinu í rúm fjörtíu ár. Frá æsku bundumst við Vala dóttir þeirra vináttuböndum sem urðu að órjúfanlegum þætti í lífsgöngu minni. Alla tíð síðan hef ég notið vin- áttu fjölskyldu hennar. Ég á í hug- skoti mínu óteljandi myndir af sam- verustundunum. Þessar myndir eru mér dýrmætur sjóður sem ég geymi með sjálfri mér. Fyrir allt þetta ber að þakka nú er ég kveð og minnist Ernu. Hún var kletturinn sem Sigurður maður hennar gat reitt sig á. Hann með draumana og framsýnina, hún jarð- bundnari og fastari fyrir. Hún var dul um sinn innri mann, var hrein- skiptin og heiðarleg og bar sterkt svipmót ættar sinnar bæði í útliti og fasi. Börnum sínum var hún góð móðir og ömmubörnunum örlát og mild. Sigurður lést fyrir átta árum og var það fjölskyldunni mikil sorg og Ernu mikill missir. Hún saknaði hans alla tíð. Saman höfðu þau byggt upp húsið sitt í Grafarvoginum með yndislegum garði þar sem garð- yrkjuhæfileikar Ernu nutu sín til fulls. Þar ætluðu þau að njóta ævi- kvöldsins saman. Hún tókst á við breytinguna í lífi sínu og flutti til Hafnarfjarðar í návist við börn, tengdabörn og barnabörn er þar búa. Að leiðarlokum þakka ég Ernu vinsemd og vináttu við mig alla tíð. Elsku Vala mín, Árni, Hjálmtýr, Hrafnhildur og fjölskyldur og aðrir aðstandendur. Við Sigtryggur send- um ykkur öllum innilegar samúðar- kveðjur. Svo er því farið: Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Pétursson.) Guð blessi minningu Ernu Mathiesen. Guðlaug Konráðsdóttir. Eftir erfið veikindi hefur Erna Geirlaug hvatt þetta jarðlíf. Dauðs- fall góðvina verður jafnan til þess að minningar frá löngu liðnum tíma koma fram í hugann. Svo varð um mig nú. Því er mér bæði ljúft og skylt að minnast hennar með nokkrum þakkar- og kveðjuorðum, þar sem hef ekki aðstöðu til að vera viðstadd- ur útför hennar. Margar gleði- og ánægjustundir átti ég með henni og bræðrum henn- ar Matthíasi og Einari, er ég dvaldi á heimili foreldra þeirra, þeirra Svövu og Árna Mathiesen, skólaárin mín í Hafnarfirði. Heimili þeirra var ein- stakt reglu- og myndarheimili. Það var lærdómsríkur tími fyrir mig að eiga samleið með þeim systkinum á unglingsárum þeirra. Svo náin og einlæg vinátta varð á millli okkar allra, líkt og um systkin væri að ræða. Eftir að Erna lauk námi frá Kvennaskólanum í Reykjavík, var hún við nám við skóla í London en eftir það vann hún við verslun Ein- ars Þorgilssonar í Hafnarfirði, en sú verslun bar nafn afa hennar. Síðar vann hún um tíma í viðskiptaráðu- neytinu, áður en hún stofnaði heim- ili. Í desember 1949 gekk Erna að eiga Sigurð Hjálmtýsson bifreiða- stjóra. Ég var alloft gestur á heimili þeirra og fannst mér það bera svip- mót af æskuheimili Ernu með reglu- semi og snyrtimennsku. Á heimilinu ríkti gestrisni og gleði, en Sigurður var glaðsinna maður og átti auðvelt með að halda uppi léttum samræðum við gesti sína. Enn nánari urðu kynnin við þau Ernu og Sigurð eftir að eldri sonur þeirra, Árni Matthías, gerðist vinnu- maður hjá okkur í Stóra-Ási, en það var hann samfleytt í níu sumur. Þann tíma voru þau hjón og fjöl- skylda þeirra öll tíðir gestir hjá okk- ur. Það eru margar og eftirminnileg- ar stundir frá þessum tíma, þar sem slegið var á létta strengi og gert að gamni sínu. Síðan liðu árin og þó samfundirnir yrðu stopulir var alltaf jafn ánægjulegt að hitta þau hjón á ný og rifja upp löngu liðna tíð. Eftir því sem árin líða fækkar samferðafólkinu. Að leiðarlokum er Ernu þökkuð samfylgdin með bæn um að almættið verndi og blessi hana á þeirri leið sem okkur öllum er búin. Magnús Kolbeinsson. Kveðja frá Kvenfélagi Garðabæjar Þriðjudaginn 21. janúar verður kvödd hinstu kveðju Erna Árnadótt- ir Mathiesen, félagskona í Kven- félagi Garðabæjar. Erna gekk í Kvenfélag Garða- bæjar árið 1966 og lét strax til sín taka. Það er hverju félagi mikils virði að eiga virka og dugmikla félaga og þar lagði Erna sitt svo sannarlega af mörkum. Eiginmaður hennar Sig- urður Hjálmtýsson var einnig mjög liðtækur þegar á þurfti að halda við ýmislegt í þágu félagsins. Erna var virkur félagi og gegndi ýmsum trún- aðarstörfum fyrir félagið. Hún var kosin í aðalstjórn árið 1969 og var gjaldkeri frá 1969–1975. Þá tók hún við starfi formanns og gegndi því frá 1975–1979. Einnig var hún rekstrar- stjóri Garðaholts, samkomuhúss Garðabæjar sömu ár og hún var for- maður félagsins. Fyrir öll störf hennar í þágu fé- lagsins viljum við þakka. Börnum hennar og afkomendum vottum við samúð okkar. Blessuð sé minning Ernu Árna- dóttur Mathiesen. Okkar hjartkæri bróðir og fósturfaðir, BJARNI MARINÓ STEFÁNSSON, Lindargötu 63, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstu- daginn 24. janúar kl. 10.30. Kjartan Stefánsson, Axelína Stefánsdóttir, Vilborg Björgvinsdóttir, Jóhannes Sigurðsson, Birgir Björgvinsson, Edda Svavarsdóttir, Björk Björgvinsdóttir, Jón Arnar Barðdal, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEINDÓR GUÐMUNDSSON frá Hvammi í Lóni, verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju föstu- daginn 24. janúar kl. 13.30. Jarðsett verður í Stafafellskirkjugarði að athöfn lokinni. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknarfélög. Steinunn Margrét Sigurðardóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn. Okkar ástkæra, GUÐMUNDA ÁSGEIRSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Stokkseyrarkirkju laugar- daginn 25. janúar kl. 14.00. Systkinabörn og aðrir aðstandendur. Maðurinn minn, VALDIMAR ÞÓRARINSSON, Húsatúni, Haukadal, Dýrafirði, sem lést þriðjudaginn 14. janúar, verður jarð- sunginn frá Þingeyrarkirkju laugardaginn 25. janúar kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Styrktar- og minningarsjóð dvalarheimilisins Tjarnar, Þingeyri. Fyrir hönd aðstandenda, Unnur Hjörleifsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, SIGURÐUR JÓN KRISTMUNDSSON, Karlsbraut 2, Dalvík, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánu- daginn 20. janúar. Útförin fer fram frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 25. janúar kl. 13.30. Birna Sveinbjörnsdóttir, Sigurlína Sigurðardóttir, Vigdís Sigurðardóttir, Anton Harðarson, Sigurður Sigurðsson, Sigríður Jóhannsdóttir, Kristmundur Sigurðsson, Árný Hólm Stefánsdóttir, Sylvía Sigurðardóttir, Sindri S. Stefánsson, barnabörn og systkini hins látna. Bróðir okkar og mágur, ÓSKAR ANDRÉSSON frá Saurum, Borgarbraut 70, Borgarnesi, lést á heimili sínu mánudaginn 20. janúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Hulda Brynjúlfsdóttir, Unnur Andrésdóttir, Jóhann Sigurðsson, Árni Guðmundsson, Þorsteinn A. Andrésson, Friðbjörg Óskarsdóttir, Guðbjörg S. Andrésdóttir, Jón H. Einarsson, Ragnhildur Andrésdóttir, Ölver Benjamínsson, Bragi Andrésson, María Nielsen. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, ÁGÚST SVERRISSON, Melhaga 17, Reykjavík, lést á heimili sínu sunnudaginn 19. janúar. Hulda H. Waage, Lára Kr. Ágústsdóttir, Sigurður A. Vilhjálmsson, Olga Ágústsdóttir, Daníel R. Ingólfsson og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.