Morgunblaðið - 23.01.2003, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 23.01.2003, Blaðsíða 21
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2003 21 AKUREYRI HÁÞRÝSTI ÞVOTTATÆKI Verð frá kr. 8.900,- Hönnun/Björn Ólafs Í hverfinu verður m.a. smábátahöfn en áformað er að árlega frá árinu 2004 verði lóðir fyrir um 100 íbúðir tilbúnar til framkvæmda. Hönnun/Björn Ólafs Vinnu við deiliskipulag svæðisins er ekki lokið en hugmyndir eru um að í hverfinu búi 1.200–1.500 íbúar. HAFNARFJARÐARBÆR hefur hafnað ósk fimm félagsráðgjafa sem starfa hjá bænum um að leysa þá undan kjarasamningi Starfsmanna- félags Hafnarfjarðar (STH) í tengslum við úrsögn þeirra úr félag- inu. Kjarasamningurinn rennur út í lok mars árið 2005. Í bréfum sínum til bæjarráðs greina félagsráðgjafarnir frá því að þeir hafi sagt sig úr STH og sótt um inngöngu í Stéttarfélag íslenskra fé- lagsráðgjafa. Óska þeir eftir að bær- inn leysi þá undan kjarasamningi STH. Benda félagsráðgjafarnir á að for- dæmi séu fyrir því að starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar hafi sagt sig úr STH á miðju samningstímabili auk þess sem einn starfandi félagsráð- gjafi hjá bænum taki laun sam- kvæmt Stéttarfélagi íslenskra fé- lagsráðgjafa. Á fundi sínum í síðustu viku hafn- aði bæjarráð beiðnum félagsráðgjaf- anna. Segir í greinargerð starfs- mannastjóra að bæjarráð geti leyst félagsráðgjafana undan umræddum kjarasamningi enda geti starfsmenn valið í hvaða stéttarfélagi þeir vilja vera í þeim tilfellum sem atvinnurek- andi hefur samið við fleiri en eitt stéttarfélag um sömu störfin. Verða að geta treyst samningum Hins vegar sé meginreglan sú að starfsmaður geti ekki á gildistíma samnings sem hann á aðild að skipt um stéttarfélag og kjarasamning. Þá segir í bréfi starfsmannastjór- ans: „Báðir aðilar verða að geta treyst því að þegar samið er um kaup og kjör tiltekinna starfsmanna við stéttarfélag þá standi sá gjörningur til loka umsamins tíma. Það að starfsmenn geti „flakkað“ á milli kjarasamninga/stéttarfélaga á samningstíma er hvorki ásættanlegt fyrir starfsmenn, félög þeirra eða vinnuveitendur.“ Ósk um lausn frá kjarasamningi hafnað Hafnarfjörður ARNÓR Sveinsson háseti á Harð- bak EA, ísfisktogara Útgerðar- félags Akureyringa, varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að fótbrotna um borð í skipi sínu á miðunum úti fyrir Norðausturlandi sl. föstudags- kvöld. Arnór sagði í samtali við Morgunblaðið að ekki hefði legið al- veg ljóst fyrir í upphafi að um bein- brot væri að ræða en fljótlega var haft samband við lækni, sem vildi fá hann strax í land. Hins vegar hefði læknirinn jafnframt talið það mögu- legt að ljúka veiðiferðinni ef hann væri ekki mjög kvalinn og varð það niðurstaðan. Arnór var því fótbrot- inn um borð í tæpa þrjá sólarhringa en Harðbakur kom til Akureyrar um miðjan dag á mánudag. Sjúkraflutningamenn Slökkviliðs Akureyrar sóttu Arnór þá um borð og var hann fluttur á FSA. Þar kom í ljós að vinstri leggurinn var í sund- ur og öklinn mjög marinn. Arnór sagðist ekki hafa farið fram á að fara strax í land og að þetta hefði verið ákvörðun yfirmanna um borð, eftir að hafa ræðfært sig við lækni. „Ég hef kannski ekki vælt nógu mikið.“ Arnór sagðist hafa orðið var við töluverða umræðu í bænum vegna þessa atviks en hann sagði það sína skoðun að í tilviki sem þessu ætti sjúklingurinn að njóta vafans. „Ég vona að þessi umræðu verði til þess að ef eitthvað slíkt kemur fyrir aft- ur, sem ég vona að verði ekki, þá verði siglt með viðkomandi strax í land. Ég hafði mestar áhyggjur af því að brotið færi á gróa saman úti á sjó og að það yrði svo að brjóta það upp aftur þegar á spítalann væri komið en til þess kom ekki.“ Arnór var að vinna á dekkinu og fékk bobbingalengjuna á sig í velt- ingi og klemmdist í skutrennunni með fyrrgreindum afleiðingum. „Ökklinn bólgnaði strax upp og við einblíndum strax á hann en svo fór ég að bólgna upp undir hné. Ég gat í hvorugan fótinn stigið strax á eftir en varð þó fljótlega var við að hægri fóturinn hafði sloppið þokkalega.“ Arnór hefur verið til sjós til fjölda ára, bæði á síðutogurum og skuttog- urum og aldrei lent í óhappi fyrr. Hann slapp við aðgerð en reiknar með að vera í gifsi næstu fimm vik- urnar og gangi allt samkvæmt áætl- un fær hann göngugifs í framhald- inu. Það er því ljóst að hann fer ekki á sjóinn næstu mánuðina. Hann vildi koma á framfæri sérstöku þakklæti til þeirra sjúkraflutninga- manna sem sóttu hann um borð. Þeir hefðu staðið sig hreint frábær- lega. Skipverji á Harðbak EA slasaðist á miðunum Fótbrotinn um borð í tæpa þrjá sólarhringa Morgunblaðið/Kristján Arnór Sveinsson í gifsi upp fyrir hné heima í stofu á Akureyri, eftir að hann slasaðist um borð í Harðbak EA, ísfisktogara ÚA. Michael T. Corgan, stjórnmála- fræðingur fjallar um stöðuna í málefnum Íraks og yfirvofandi árás á landið á almennum opnum fundi í Háskólanum á Akureyri í dag, fimmtudaginn 23. janúar. Fyrirlestur Corgans verður á Sól- borg, stofu 201 og hefst kl. 15.15. Corgan er aðstoðarprófessor í al- þjóðastjórnmálum við Boston Uni- versity og hefur sérhæft sig í al- þjóðlegum öryggismálum, íslenskum stjórn- og varnarmálum og bandarísku stjórnkerfi. Kynning verður á útgáfu ferða- áætlunar Ferðafélags Akureyrar í kvöld, fimmtudagskvöldið 23. janúar. Hún hefst kl. 20 og verður í kjallaranum á Bjargi. Útivistarvörur verða til sýnis og eftir kaffihlé verður myndasýning frá Vestfjörðum. Í DAG Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri heldur opinn fund um efnahags- og atvinnumál annað kvöld, fimmtu- dagskvöldið 23. janúar, kl. 20. Fram- sögu hafa Geir H. Haarde fjár- málaráðherra, Arnbjörg Sveins- dóttir alþingismaður og Halldór Blöndal, forseti Alþingis. Á MORGUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.