Morgunblaðið - 23.01.2003, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2003 27
KLUKKAN var 20 mínútur gengin í eitt þriðju-daginn 23. janúar árið 1973, þegar dóttir Est-erar Árnadóttur og Hilmars Jónassonar fráVestmannaeyjum leit dagsins ljós í Reykja-
vík. Gleðin yfir fæðingu dótturinnar hefur áreiðanlega
verið mikil, en hugur foreldranna var þó líka heima í
Eyjum. Þar hafði jörð klofnað um nóttina og bæjarbúar
flúið upp á land. Foreldrarnir ákváðu að minnast þessa
atburðar í nafngift litlu stúlkunnar. Eyjastúlkan litla,
sem í dag fagnar þrítugsafmælinu, var nefnd Jóhanna
Eldborg.
„Mamma var komin til Reykjavíkur nokkrum dögum
áður en ég fæddist,“ segir Jóhanna Eldborg. „Hún var
komin með hríðir um það leyti sem gosið hófst.“
Sex mánaða á þjóðhátíð
Hilmar gat ekki varið miklum tíma með konu og dótt-
ur eftir fæðinguna, því hann hélt til
Eyja til björgunarstarfa. „Pabbi var
vörubílstjóri á þessum árum og hann
fór strax að vinna. Húsið okkar,
Mjölnir, fór ekki undir hraun, en það
hvarf í ösku. Um leið og hætti að
gjósa notaði pabbi hverja frístund
sem gafst til að moka húsið upp. Á
meðan var mamma ein með mig í
Reykjavík. Við fluttum aftur út í Eyj-
ar í lok september, vorum hjá ætt-
ingjum í mánuð og gátum svo aftur
flutt í húsið okkar. Þar bjuggum við
næstu 14 árin. Þremur árum síðar,
1976, fæddist bróðir minn, Árni Ás-
mundur.“
Jóhanna Eldborg skrapp reyndar
út í Eyjar með mömmu sinni áður en
fjölskyldan flutti heim á ný. „Já,
mamma sagði mér að ég hefði farið á
fyrstu þjóðhátíðina mína þetta sum-
ar, 1973, hálfs árs gömul. Vest-
mannaeyingar voru harðákveðnir í að
sleppa ekki þjóðhátíð, þótt ekki væri
hægt að halda hana í Herjólfsdal.
Þess í stað var hún haldin á Breiða-
bakka, sem er skammt frá Stórhöfða.
Mér skilst að ótrúlega margir hafi
mætt, þótt aðstæður sex mánuðum eftir gos hafi ekki
verið með allra besta móti.“
Lítil lukka á Hagstofunni
Jóhanna mun vera eina konan hér á landi sem heitir
Eldborg, en hefur m.a. deilt því nafni með fjalli og skipi.
„Mamma og pabbi voru hörð á því að ég yrði að bera
nafn sem minnti á gosið, af því ég fæddist á þessum degi.
Þau veltu ýmsum möguleikum fyrir sér en voru hrifnust
af Eldborgu, sem þeim fannst fallegt nafn og það fellur
vel að íslenskri nafnahefð, eins og til dæmis Vilborg.“
Hjá Hagstofu Íslands ríkti ekki sama hrifning og
þurftu foreldrar hennar að standa í töluverðu stappi til
að fá nafnið viðurkennt. „Mér skilst að þar á bæ hafi
menn haft mestar áhyggjur af að ég myndi nota nafnið
sem ættarnafn. Það hefur aldrei komið til greina, ég hef
alltaf verið og verð Hilmarsdóttir.“
Í Eyjum kipptu skólafélagar og vinir Jóhönnu Eld-
borgar sér ekkert upp við nafnið, en þegar hún flutti upp
á land 14 ára gömul voru margir sem hváðu og héldu að
sér hefði misheyrst. „Stundum sleppti ég Eldborgar-
nafninu, til að losna við athyglina. Ég er hins vegar mjög
ánægð með nafnið mitt og núna nota ég það alltaf.“
Útihátíð kom til bjargar
Hún þurfti lengi vel að stafa nafnið fyrir fólk, en það
breyttist sumarið 2001. „Eftir Eldborgarhátíðina umtöl-
uðu um verslunarmannahelgina það ár voru allir með
Eldborgarnafnið á hreinu. Ég hef ekki þurft að stafa það
síðan.“
Jóhanna Eldborg Hilmarsdóttir býr núna í Hafn-
arfirði með eiginmanninum, Guðmundi Gunnarssyni, og
sonunum Viktori Erni 7 ára og Jökli Frey 1 árs. Eyja-
stúlku leið ekkert allt of vel þegar hún bjó í Breiðholti,
en núna sér hún til sjávar og hún segir að í götunni
hennar sé næstum þorpsstemning, þar sem allir þekkja
alla.
Veisluhöldum vegna þrítugsafmælisins verður líklega
slegið á frest fram að helgi, en í kvöld ætlar Eldborg að
horfa á sjónvarpsþátt um eldgosið í Eyjum.
Morgunblaðið/Þorkell
Jóhanna Eldborg Hilmarsdóttir: „Mamma og pabbi voru hörð á því að ég yrði að bera nafn sem minnti á gosið, af
því ég fæddist á þessum degi. Þau veltu ýmsum möguleikum fyrir sér en voru hrifnust af Eldborgu.“
Eldgosið
réði nafn-
giftinni
Á þjóðhátíðinni sem haldin var á Breiðabakka á Heimaey 1973. Móðirin,
Ester Árnadóttir, stendur við vagninn, afi og amma, Guðrún Magnúsdóttir
og Jónas Guðmundsson frá Grundarbrekku, sitja og t.h. er Jóhann Jónas-
son, föðurbróðir Jóhönnu Eldborgar.
rsv@mbl.is
Jóhanna Eldborg Hilmarsdóttir er þrítug í dag
Jóhanna Eldborg fór á fyrstu þjóðhátíð eftir gos, um
verslunarmannahelgina 1973, þá hálfs árs gömul.
Loka tækifærið!
Brandt-Blomberg
Seljum nokkra ofna, helluborð og viftur úr
sýningareldhúsi með verulegum afslætti.
Dæmi:
FAC 24 ofn
Verð áður 64.900
Verð nú 39.800
Athugið: Takmarkað magn.
ATVINNA mbl.is