Morgunblaðið - 23.01.2003, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 23.01.2003, Qupperneq 44
44 FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. AIKIDO er sjálfsvarnarlist sem þró- uð var á fyrri hluta 20. aldar í Japan. Aikido nýtur nokkurrar sérstöðu meðal sjálfsvarn- arlista vegna þess að ekki er um að ræða neinar árás- artækni heldur eingöngu varnar- tækni. Þetta þýð- ir m.a. að ekki er keppt í aikido, og á æfingum ríkir andi samvinnu en ekki samkeppni. Nafnið aikido er samsett úr þremur hlutum, ai sem er samhljómur, ki sem er lífsorkan og do sem er leiðin. Upphafsmaður aikido hét Morihei Ueshiba. Hann kynntist ungur bar- dagalistum og lagði stund á hefð- bundið jujutsu og kenjutsu. Fljótlega tók hann þó að fjarlægjast nokkuð hinar hefðbundu bardagalistir með eigin kenningasmíð. Hann beitti saman tækni og hugmyndafræði til að brjóta niður höft milli huga, sálar og líkama og árið 1922 hlaut þessi að- ferð nafnið aiki-bujutsu og seinna aiki-budo. Árið 1941 var aiki-budo sett undir Butokukai (ráðuneyti sem setti allar bardagalistir undir eina stjórn) og það var um það leyti sem nafnið breyttist í aikido. Eftir lok seinni heimsstyrjaldar- innar bannaði hersetulið Bandaríkj- anna allar sjálfsvarnar- og bardaga- íþróttir í Japan. Því banni var ekki aflétt fyrr en 1948. Morihei Ueshiba var alla tíð mjög opinn gagnvart út- lendingum og hafði mikinn áhuga á að breiða út aikido um heiminn og þrátt fyrir að í byrjun hafi öll kennsla farið fram í Japan kynntust einhverj- ir útlendingar íþróttinni þar. Í fram- haldi af því breiddist aikido út; til Frakklands og Bandaríkjanna og seinna Englands, Ítalíu, Brasilíu, Argentínu, Ástralíu og annarra Asíu- landa. Frá þessum löndum hefur aik- ido breiðst út til allra heimshorna og er nú hægt að finna það nær hvar sem er í heiminum. Um 1990 var fyrsti aikidoklúbbur- inn opnaður hérlendis. Kennarar höfðu meðal annars lagt stund á aik- ido í Noregi og Svíþjóð en annars staðar á Norðurlöndunum hafði íþróttin þá verið stunduð um langt skeið. Það var ekki létt verk að byrja að kenna íþrótt hér sem var allsendis óþekkt en félaginu óx þó fljótt fiskur um hrygg, þrátt fyrir að fyrstu árin hafi það verið á talsverðum hrakhól- um með húsnæði. Haustið 1999 fluttist yfirkennari klúbbsins af landi brott og í fram- haldi af því var leitað út fyrir land- steinana, alla leið til fyrrum Júgó- slavíu, en þar var maður með 20 ára reynslu í aikido að nafni Mitar Filip- ovic. Honum leist vel á að flytja alla leið hingað í kuldann og vosbúðina og kenna aikido. Mitar fluttist hingað í janúar 2002 og um mitt síðasta ár flutti Aikikai Reykjavík svo í framtíð- arhúsnæði að Faxafeni 8. Síðan klúbburinn var stofnaður hefur fjöldi erlendra kennara sótt hann heim, flestir frá Norðurlöndun- um en einnig frá Hollandi og Banda- ríkjunum. Vorið 2002 kom hingað í fyrsta sinn Japani að nafni Yasuo Kobayashi sem er meðal hæst gráðuðu manna í greininni en innan hans samtaka eru yfir 100 klúbbar í Japan. 24.–26. janúar Hiroaki Kobayashi er í dag upp- rennandi stjarna í aikidoheiminum. Hann er sonur Yasuo Kobayashi sem var nemandi Morihei frá 1954 til 1969. Hiroaki byrjaði að æfa aikido á unga aldri undir handleiðslu föður síns og hefur æft það alla tíð. Fljót- lega eftir háskólanám ákvað hann að helga sig útbreiðslu aikido og hefur síðan kennt hjá Aikido Kobayashi Dojo í Japan og einnig víða um heim, m.a. í Argentínu, Ungverjalandi, Finnlandi, og nú á næstunni hér á Ís- landi. Það er mikils virði fyrir íþróttafélag eins og Aikikai Reykja- vík að fá reglulega heimsóknir frá kennara eins og Hiroaki en hann er nú 6. dan í aikido. Helgina 24. til 26. janúar verður Hiroaki með námskeið hjá Aikikai Reykjavík, Faxafeni 8. Námskeiðið er ætlað félagsmönnum og þeim sem hafa einhverja reynslu af aikido. Öllum sem hafa áhuga á að kynnast aikido er velkomið að fylgj- ast með. Tenglar: http://here.is/aikido PÁLMI SÍMONARSON, formaður Aikikai Reykjavík. Aikido Frá Pálma Símonarsyni Pálmi Símonarson HALLÓ, ég heiti Laufey Sunna Guðlaugsdóttir og ég er nemandi í Höfðaskóla á Skagaströnd. Ég er bara 10 ára en veit samt heilmikið um stjórnmál. Það skiptir mig ekki máli að ég verði tekin alvarlega en það skiptir mig máli að ég hef komið skoðunum mínum á framfæri. Sko, fyrir stuttum tíma, þ.e.a.s áð- ur en Ingibjörg Sólrún ákvað að fara í framboð fyrir alþingiskosningarn- ar, fannst mér gaman að horfa á fréttirnar og lesa blöðin en nú snúast fjölmiðlar bara um þetta eina mál: Ingibjörgu Sólrúnu. Allt í lagi, ég ber fulla virðingu fyr- ir henni. Ingibjörg Sólrún ákvað að hætta sem borgarstjóri og verða forsætis- ráðherraefni Samfylkingarinnar; hvað með það? er ekki búið að fjalla nóg um það? Hugsið þið blaða- og fréttamenn einhvern tímann um hana sjálfa, Ingibjörgu? Hún er á forsíðum allra blaða á hverjum degi ég meina setjið ykkur í spor hennar, ef teknar væru saman allar fréttir um Ingibjörgu þá væri hægt að gera heimildarþátt sem væri í 5 klst. Ég hef nú ekki meira að segja en ég vona að einhverjir lesi þetta og séu mér sammála. LAUFEY SUNNA GUÐLAUGSDÓTTIR, Strandgötu 10, 545 Skagaströnd. Allt snýst um eitt mál Frá Laufeyju Sunnu Guðlaugsdóttur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.