Morgunblaðið - 28.01.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 26. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 mbl.is
Tár og
lófaklapp
Loftbrögð í
boltanum
Hvað er líkt með Kjalnesinga sögu
og enska boltanum? Íþróttir 44
Allsgáð og
klikkað
Hafliði Hallgrímsson og Stravinskíj
á Tíbrártónleikum Listir 24
Nói albínói fær góðar viðtökur og
verðlaun í Frakklandi Fólk 53
RAUNÁVÖXTUN Lífeyrissjóðs
verzlunarmanna var neikvæð um
2,7% á seinasta ári. Er þetta annað
árið í röð sem ávöxtun sjóðsins er
neikvæð en árið 2001 var neikvæð
raunávöxtun 0,7%. Ávöxtun sjóðsins
á árinu 2000 var einnig slök. Eignir
Lífeyrissjóðs verzlunarmanna juk-
ust um 4,5 milljarða á síðasta ári eða
um 5% og námu 102 milljörðum kr. í
árslok. Á árinu greiddu 41.243 sjóð-
félagar til sjóðsins.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna er
fyrsti lífeyrissjóðurinn sem skilar af-
komutölum fyrir síðasta ár. Flest
bendir til að afkoma sjóðanna hafi al-
mennt verið léleg á síðasta ári.
Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Líf-
eyrissjóðs verzlunarmanna, segir
þróunina á erlendum verðbréfa-
mörkuðum valda mestu um lélega af-
komu. Ávöxtun erlendrar hluta-
bréfaeignar sjóðsins í dollurum var
neikvæð um 19,9% á síðasta ári. Á
sama tíma lækkaði heimsvísitala
Morgan Stanley um 21,1% en hún er
helsti mælikvarði á breytingu hluta-
bréfaverðs í heiminum. Á árinu
styrktist íslenska krónan um 13,5%
gagnvart erlendum gjaldmiðlum.
„Innlendu hlutabréfin skiluðu
okkur vel,“ segir Þorgeir en raun-
ávöxtun innlendu hlutabréfaeignar
sjóðsins í fyrra var jákvæð um 17,7%
og nafnávöxtun var 20%. „Með sama
hætti voru skuldabréfin með trausta
raunávöxtun eða 5,9%.“
Að mati forsvarsmanna sjóðsins
mun hærra hlutfall hlutabréfa í verð-
bréfasafni sjóðsins til lengri tíma lit-
ið skila sjóðnum betri raunávöxtun
en ef eingöngu hefði verið fjárfest í
skuldabréfum. Meðalraunávöxtun
sjóðsins síðustu 5 árin sé til að
mynda 3,2%.
„Það er ljóst að við erum núna
hvað fimm ára meðaltalið varðar rétt
undir viðmiðunarmörkum trygg-
ingafræðinganna en við rekstur líf-
eyrissjóða þarf að horfa til mjög
langs tíma og við reiknuðum jafn-
framt meðalraunávöxtun síðustu tíu
ára, sem er 5,4%,“ segir Þorgeir.
Á von á hægum umskiptum
„Ég á bágt með að trúa því að er-
lendi markaðurinn þróist með jafn-
óhagstæðum hætti á næstunni og
hann hefur verið að gera síðustu þrjú
árin. Ég hef þá trú að það muni koma
hægur viðsnúningur þannig að þeg-
ar til lengri tíma er litið uppskeri
menn við þessar fjárfestingar er-
lendis,“ segir Þorgeir.
Erlendu bréfin lækka um 20%
Raunávöxtun Lífeyrissjóðs verzl-
unarmanna neikvæð um 2,7%
ESA stefn-
ir Íslandi
fyrir dóm
Segir EES ekki leyfa
misháa flugvallarskatta
EFTIRLITSSTOFNUN EFTA (ESA)
hefur stefnt íslenska ríkinu fyrir EFTA-
dómstólinn þar sem stofnunin telur að Ís-
land brjóti gegn reglum Evrópska efna-
hagssvæðisins með því að innheimta hærri
skatta af farþegum í millilandaflugi en í
innanlandsflugi.
Skattur sem lagður er á brottfararfar-
þega í millilandaflugi er 1.250 krónur en
165 krónur í innanlandsflugi samkvæmt
upplýsingum frá Flugmálastjórn.
Í samtali við Morgunblaðið sagðist
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra af-
ar ósáttur við þessa niðurstöðu ESA. Ís-
lensk stjórnvöld hafi ekki talið að misháir
skattar brjóti gegn samkeppnisstöðu og
enginn hafi kvartað undan þessu kerfi
nema embættismenn hjá ESA. Með þessu
gangi ESA jafnframt harðar fram gegn
Íslandi en ESB gagnvart aðildarríkjum
sínum.
Skattar sem innheimtir eru fyrir innan-
landsflug og flug til Grænlands og Fær-
eyja eru lægri en skattar af flugi milli Ís-
lands og annarra landa innan EES. Í
stefnunni heldur ESA því fram að í þessu
felist brot gegn 36. grein EES-samnings-
ins sem kveður á um að engin höft skuli
vera á frelsi til að keppa um þjónustu inn-
an EES. Stofnunin gerði fyrst formlega
athugasemd vegna málsins árið 1998.
Þetta er annað málið gegn Íslandi sem
ESA vísar til EFTA-dómstólsins. Fyrra
málið varðaði vörugjöld og leystist með
samkomulagi milli íslenskra stjórnvalda
og ESA áður en til þess kom að dómstóll-
inn tæki afstöðu til þess.
Morgunblaðið/Golli
Brottfararfarþegar í Leifsstöð.
Enginn kvartað/4
Reuters
MENN úr röðum bókstafstrúarmanna í Ísrael ganga
fram hjá kosningaspjöldum í Jerúsalem í gær. Kosið
verður nýtt þing í dag og ef marka má skoðana-
kannanir eru líkur á því að Likud-flokkur hægri-
mannsins Ariels Sharons forsætisráðherra fái flesta
þingmenn kjörna eða um 30 af alls 120.
Ísraelar ganga til kosninga
Breytist/28
FULLTRÚAR Bandaríkjastjórnar sögðu í gær
að áfangaskýrsla yfirmanns vopnaeftirlits-
nefndar Sameinuðu þjóðanna (UNMOVIC) um
vopnaeftirlit í Írak staðfesti að stjórnvöld í
Bagdad væru engan veginn á þeim buxunum að
hlíta ályktunum öryggisráðs SÞ um afvopnun.
„Spurningin er ekki hversu mikinn tíma til við-
bótar vopnaeftirlitsmenn þurfa til að athafna
sig í myrkrinu,“ sagði Colin Powell, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna. „Málið snýst um
hversu mikinn tíma Írakar eigi að fá til að
kveikja á ljósinu og gera hreint fyrir sínum dyr-
um. Svarið er: Ekki mikið meiri tíma.“
John Negroponte, sendiherra Bandaríkjanna
hjá SÞ, sagði um skýrslu Hans Blix, yfirmanns
UNMOVIC, að þar væri ekkert að finna sem
benti til að Írak myndi afvopnast að eigin frum-
kvæði. Embættismenn í Washington lögðu þó
áherslu á að George W. Bush Bandaríkjaforseti
myndi ekki beita hervaldi gegn Írak nema allir
aðrir kostir hefðu verið útilokaðir.
Þurfa „nokkra mánuði“ enn
Blix og Mohamed ElBaradei, yfirmaður Al-
þjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, sögðu á
fundi með öryggisráðinu að vopnaeftirlitsmenn
þyrftu „nokkra mánuði“ enn til að ljúka starfi
sínu. Studdu mörg ríki, þ. á m. Rússland, Kína,
Þýskaland og Frakkland, þær óskir.
Ari Fleischer, talsmaður Hvíta hússins, sagði
hins vegar að þótt vopnaeftirlitsmenn SÞ ynnu
verk sitt eftir bestu getu væri það svo að „því
meiri tíma sem þeir fá, þeim mun fleiri tækifæri
hefur [Saddam] til að hafa þá að fíflum“.
Bush flytur í kvöld stefnuræðu sína fyrir árið
2003 og er þar gert ráð fyrir að hann færi enn
rök fyrir því hvers vegna afvopna verði Íraka
með góðu eða illu. Þá var haft eftir bandarískum
embættismanni að Colin Powell myndi eftir
fund Bush og Tonys Blairs, forsætisráðherra
Bretlands, nk. föstudag leggja fram nýjar sann-
anir um gereyðingarvopnabúr Íraka og tengsl
þeirra við al-Qaeda-hryðjuverkasamtökin.
Washington, New York. AFP.
Segir Írak/16
Powell segir Íraks-
stjórn að falla á tíma
VERULEG lækkun varð á gengi
hlutabréfa á fjármálamörkuðum í
gær og er óttanum við hernaðar-
átök í Írak kennt um. Á Wall Street
lækkaði Dow Jones-vísitalan um
1,8% og endaði í 7.989,56 punktum
og Nasdaq lækkaði um 1,29% og
endaði í 1.325,28 punktum.
Lækkunin varð enn meiri á evr-
ópskum mörkuðum. M.a. lækkaði
FTSE-vísitalan breska um 3,4% og
hefur ekki verið lægri síðan í októ-
ber 1995. Hefur það nú gerst í
fyrsta skipti í átján ára sögu vísitöl-
unnar að lækkun hefur orðið ellefu
daga í röð. Þá lækkaði gengi
Bandaríkjadollars gagnvart evr-
unni og hefur ekki verið lægra í
þrjú ár. Var gengi evrunnar tæp-
lega 1,09 dalir við lokun í gær.
Veruleg
lækkun á
mörkuðum
New York, London. AFP.
SVEITARSTJÓRNIN í Skån-
land í Troms í Norður-Noregi
íhugar að bjóða ungu fólki jafn-
virði 114.000 íslenzkra króna
fyrir að flytja burt úr sveitarfé-
laginu – að vísu bara tímabund-
ið. Í Skånland búa 3.049 manns,
en lækki íbúatalan niður fyrir
3.000 á þessu ári fær sveitarfé-
lagið um 120 milljónir íslenzkra
króna aukalega í styrk frá
norska ríkinu næstu fimm árin,
jafnvel þótt fólkið flytji til baka
fljótlega eftir áramótin.
Svein Berg, oddviti í Skån-
land, segir í viðtali við Harstad
Tidende, að auðvitað vilji hann
helzt fjölga íbúum í sveitarfé-
laginu. „En þegar kerfið er eins
og það er freistar það okkar að
reyna að sjá til þess að við verð-
um ekki fleiri en 3.000,“ segir
hann.
Fá borgað
fyrir að
flytja burt