Morgunblaðið - 28.01.2003, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 28.01.2003, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 27 KVENNALISTAKONUR höfðu gjarnan það stef í sínum baráttu- söngvum sem er yfirskrift þessarar greinar. Þær sungu „ég þori, get og vil“. Kvennalistinn var grasrótarsam- tök sem spruttu upp af þeirri þörf að konur mynduðu samtök til að breyta hinu rótgróna karlasamfélagi, þar sem völd og áhrif voru langt utan seil- ingar flestra kvenna. Kvennalista- konur fóru í borgarstjórn, í sveitar- stjórnir og inn á Alþingi. Konur voru ekki lengur hinn hljóði hópur sem vann að félagsmálum, menntamálum, líknarmálum og öðrum mjúkum mál- um í kyrrþey. Kvennalistinn skilaði þannig sínu til þess að koma konum til áhrifa. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er ein þeirra kvenna sem vakti mikla athygli fyrir störf sín innan Kvennalistans. Þegar undirbúningur að stofnun Reykjavíkurlistans í upphafi ársins 1994 fór fram kom nafn hennar fljót- lega upp á borðið. Allir landsmenn vita að ekki er líklegt að Reykjavík- urlistinn hefði orðið til nema vegna þess að Ingibjörg Sólrún fékkst til að afsala sér þingmennsku og taka þar við forystuhlutverki. Við þekkjum síðan öll sigurgöngu Reykjavíkurlist- ans. Loks tókst að breyta valdahlut- föllum í borginni, og gífurlegar breyt- ingar hafa orðið í stjórnkerfi borgar- innar í lýðræðisátt með tilkomu Reykjavíkurlistans. Nú er vegið að Ingibjörgu Sólrúnu fyrir að taka 5. sæti á lista Samfylk- ingar í Reykjavík-norður og hún ásökuð um að hafa svikið kjósendur, og hún sé ekki lengur trúverðugur stjórnmálamaður. En hvers vegna tók hún þeirri áskorun að taka þetta sæti? Voru það ekki kjósendur sem óskuðu eftir því í ótal skoðanakönn- unum? Hún hefur engan svikið, þvert á móti taldi hún sig, með þessari ákvörðun, hafa tækifæri til að vinna borginni enn meira gagn en áður. Hún gat tekið þátt í starfi þingflokks- ins, komist inn á þing sem varamaður og talað fyrir málum borgarinnar. Samstarfsmenn hennar úr öðrum flokkum hefðu átt að fagna þessari ákvörðun hennar, í stað þess að krefj- ast afsagnar hennar úr starfi borg- arstjóra og veikja með því Reykjavík- urlistann. En það er búið og gert og Ingibjörg Sólrún getur borið höfuðið hátt. Hún hefur alltaf staðið við orð sín og gerir það einnig nú. Hún tekur það 5. sæti sem hún lofaði, jafnvel þó það kosti hana borgarstjórastarfið. Nú koma jafnvel fyrrum kvenna- listakonur og ásaka Ingibjörgu Sól- rúnu um svik við baráttumál Kvenna- listans, sem hafnaði foringjadýrkun, þar skiptu málefnin höfuðmáli. Það er vissulega rétt, en það skiptir ekki síð- ur sköpum, hver talar fyrir þeim mál- efnum. Þegar slík kona sem Ingibjörg Sólrún talar fyrir málum, þá er eftir því tekið, hver afstaða hennar er og hún hefur áhrif. Var það ekki það sem við vildum? Og var ekki ætlunin með starfi Kvennalistans að styðja hver aðra til þess að konur kæmust til áhrifa? Í því hitamáli sem nú er í um- ræðunni, Kárahnjúkavirkjunin, og af- stöðu Ingibjargar Sólrúnar til ábyrgðar borgarinnar fyrir lánum Landsvirkjunar, er ákvörðun hennar einnig tekin að vel athuguðu máli. Eigendur Landsvirkjunar hafa gert með sér samkomulag um að arðsem- iskrafa til framkvæmda á vegum Landsvirkjunar væri 5–7%. Þegar flestar skýrslur sýna arðsemi 10– 12%, hvaða rök eru fyrir því að vera á móti? Það var ekki verið að greiða at- kvæði um stefnu í umhverfismálum. Það var verið að greiða atkvæði út frá arðsemiskröfu eigenda Landsvirkj- unar. Hitt er svo allt annað mál hvort það er framtíðin að virkja til að fram- leiða ál. Ég er sannfærð um að Ingi- björg Sólrún hefur tekið afstöðu út frá heildarhagsmunum og að vel yfir- veguðu máli. Hún hefur alltaf tekið sínar ákvarðanir þannig. Það gerði hún líka í EES-málinu á sínum tíma þó að við værum ekki sammála um þá afgreiðslu, þingkonur Kvennalistans. Við töldum fullveldisafsalið svo mikið að það réttlætti ekki slíkan viðskipta- samning, og greiddum atkvæði á móti. Hún var okkur sammála um fullveldisafsalið, en taldi það ekki nægileg rök fyrir því að vera á móti og sat hjá við atkvæðagreiðsluna, með góðum rökstuðningi. Sá rök- stuðningur var vel unninn og mjög sannfærandi. Hún lætur ekki áróður í sterkum tilfinningamálum ráða sinni afstöðu. Með því að hafa nú fengið Ingi- björgu Sólrúnu í landsmálin, skapast tækifæri til þess að breyta stjórnar- munstrinu á Íslandi í kosningum í vor. Með málflutningi sínum mun hún og aðrir frambjóðendur Samfylking- arinnar skerpa á þeim málum sem Samfylkingin stendur fyrir. Þar hefur verið unnið vel að málefnavinnu og í Samfylkingunni er enginn einn al- valdur, fólk skiptir með sér verkum og nýtir það besta hjá hverjum og ein- um. Ég fagna því að hafa fengið til liðs við okkur jafn sterkan talsmann sem Ingibjörg Sólrún er. Þar fer kona sem talar samkvæmt sannfæringu sinni og almenningur veit að óhætt er að treysta til ákvarðanatöku. Að þora – geta – og vilja Eftir Jónu Valgerði Kristjánsdóttur „Í Samfylk- ingunni er enginn einn alvaldur!“ Höfundur er fv. þingkona Kvennalistans. LEIKUR 3 3 Taktu þátt í leiknum Dregið verður úr réttum svörum á morgun. Vinningshafinn fær flugmiða að eigin vali til einhvers af áfangastöðum Icelandair í Evrópu. Ein spurning daglega frá 26. janúar til 2. febrúar. Vinningur fyrir hverja spurningu: Einn flugmiði að eigin vali vinningshafa til einhvers af áfangastöðum Icelandair í Evrópu. Icelandair og Morgunblaðsins spurning: Hvað heitir þessi leikmaður? Farðu á íþróttavef mbl.is og svaraðu spurningu dagsins fyrir miðnætti í kvöld. www.icelandair.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 20 04 4 0 1/ 20 03
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.