Morgunblaðið - 28.01.2003, Page 36

Morgunblaðið - 28.01.2003, Page 36
MINNINGAR 36 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Það hefur mikla þýð- ingu fyrir flest okkar að eiga samstarf og sam- veru og deila geði með góðu fólki. Til þess finn- um við mismunandi far- vegi. Kór Akureyrar- kirkju er slíkur vett- vangur u.þ.b. 50 manna hóps – um lengri eða skemmri tíma. Björn Þór- leifsson kom í félagsskap okkar fyrir rúmum tíu árum. Kór 2 – sem söng í messum – þriðja eða fjórða hvern sunnudag – var messuhópur okkar Björns; „Sunnudag eftir sunnudag, sem jól og páska…“ – var stef í skemmtikvæði sem hann setti saman fyrir árshátíð. Við vorum „bassa-par“ í messu og sungum auk þess við margar jarðarfarir þessi ár. Sam- BJÖRN ÞÓRLEIFSSON ✝ Björn Þórleifs-son fæddist á Ísa- firði 2. desember 1947. Hann lést 17. janúar síðastliðinn og var útför hans gerð frá Akureyrar- kirkju 27. janúar. skiptin á stigapallinum – á kirkjuloftinu undir predikun í sunnudags- messu – eða í hinum „sí- vinsælu föstumessum“ á miðvikudagskvöldum – voru oft ótrúlega skemmtileg. Vísukorn- in, – limrurnar og lengri yrkingar í sálma og passíusálmastíl undir þekktu lagi skemmtu okkur og gerðu okkur kirkjuferðirnar – oftast miklu meira en þolan- legar. Stundum kvisað- ist jafnvel að prestunum þætti sem við skemmtum okkur held- ur of vel undir þeirra predikun – svo og að við mættum gjarna sækja okkur sakramentið undir þeirra handarjað- ar frekar en að súpa úr óvígðum bikar um leið og kórstjórinn hafði sleppt af okkur hendi. Sérstaklega er minnisstætt hversu oft Björn hvíslaði óvænt að manni vísu eða athugasemd sem tilheyrði augnablikinu. Ein föstumessa er verð upprifjunar af því að það sem þar bar við var býsna lýsandi fyrir samskipti okkar: Það var stórhríðarveður og kórinn hafði látið sig dreyma um messufall – en í kirkjuna drógust örfáar sálir á síðustu stundu. Ungi klerkurinn messaði fyrir þessa þrjá eða fjóra. Að fyrirmynd gamla prests- ins sagði sá ungi dæmisögur; og í þetta skipti um ungan mann sem rakst inn í verslun. Þar áttaði hann sig ekki á vöruvalinu og spurði því af- greiðslumanninn, hvað eiginlega feng- ist í þessari búð. Afgreiðslumaðurinn tjáði honum að það væri „… bókstaf- lega allt sem hugurinn girntist; – bara að nefna það, ungi maður.“ Þá segir klerkurinn í ræðu sinni: „… og hvað haldið þið að ungi maðurinn hafi þá sagt?“ – og hefur þögn til íhugunar. Þar sem ég sit á kórpöllunum uppi á loftinu er hvíslað að mér kunnuglegu stefi úr bíómynd Stuðmanna: „Þett’er langbesta sjoppan sem að ég hef kom- ið í – hún er æðis-lega góð …“ Við- bragð mitt var ósjálfrátt og hálfkæft sambland af hlátri og einhverju ennþá síður viðeigandi á þessum stað. Kon- urnar í kórnum sussuðu auðvitað á okkur – eins og svo oft – og eftir mess- una varð ég að biðja prest afsökunar á framkomu minni og gefa skýringar – sem mig minnir að hafi verið teknar al- veg fullgildar. Þannig þekkti ég Björn sem frá- bæran félaga og söngbróður, – öxl við öxl, – stundum í nánd við sorg ann- arra við jarðarför, – oftar í samfélagi góðra vina sem sungu lífinu sinn óð – algerlega óvitandi um þá alvöru sem vísast var á næsta leiti. Persónulega kynntist ég honum kannski aldrei verulega á fjöskyldu- plani. Samt sem áður fannst mér ég þekkja manninn býsna vel – og eft- irminnilega upprifjun höfum við Helga kona mín átt á næturlangri samsetu okkar með Birni í Vancouver – við hið Kyrrahaf. Litið til þeirra samræðna sem við áttum þá er okkur e.t.v. ljósari afstaða hans til þess skapadægurs sem okkur er öllum ætlað en fæstir fá að kjósa sér. Nú hefur Björn Þórleifsson lagt upp í sína síðustu fjallgöngu og mun ekki snúa aftur til búða eða til fundar við félagana. Ég mæli fyrir munn „bassavina hans“ sem kveðja hann í dag með söng eins og þeir best kunna – og í einlægri þökk fyrir góðan fé- lagsskap og sameiginlegar gleði- stundir. Félagsskapurinn hefur mik- ils misst en við munum örugglega rifja upp margar velheppnaðar skemmtanir á næstunni – þar sem samsetningur Björns og sjónarhorn vekur okkur hlátur – í bland við tárin. Við Helga sendum Júlíönu, Sigríði Ástu og Þórhildi innilegustu samúð- arkveðjur. Jafnframt vil ég sérstak- lega koma á framfæri kveðjum til Júl- íönu frá Sigrúnu Benediktsdóttur – hún finnur djúpt til með kennara sín- um sem hún hefur mikið traust á. Einnig vil ég fyrir hönd fjölskyldu minnar flytja þeim Þórleifi Stefáni og Héðni, – sem og Lárusi Arnóri – fjöl- skyldum þeirra og öllum ástvinum Björns innilegar samúðarkveðjur. Vertu einlæglega kvaddur, kæri söngfélagi. Benedikt Sigurðarson. Kveðja frá Félagi stjórnenda í öldrunarþjónustu Um langt árabil var Björn Þórleifs- son félagi okkar, þeirra sem eru í for- svari fyrir öldrunarþjónustu í land- inu. Hann var valinn þar til forystu og var formaður félagsins í nokkur ár. Björn vann félaginu vel og stýrði því af festu. En okkur er ekki síður minn- isstæður félaginn Björn, með sína yf- irveguðu skapgerð og þægilega um- gengnismáta. Ætíð var stutt í léttleikann. Félagar í FSÍÖ hittast ekki sjaldnar en tvisvar á ári og er þá fundað um ýmis mál. Þar naut félagið hollráða Björns og minnast verður þess, að hverri ráðstefnu fylgdi vísna- bálkur Björns um það helsta, sem fram fór hverju sinni. Þetta er okkur ógleymanlegt en þessa nutum við allt þar til Björn sneri til annarra starfa. Félag stjórnenda í öldrunarþjón- ustu þakkar að leiðarlokum Birni Þórleifssyni fyrir ötult og gefandi starf. Aðstandendum Björns eru sendar innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Björns. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi, INGÓLFUR ÓLAFSSON frá Patreksfirði, Álfaskeiði 102, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum við Hringbraut miðviku- daginn 22. janúar. Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 30. janúar kl. 15.00. Auður Marísdóttir, Ásdís Ingólfsdóttir, Auðunn Ingólfsson, Inga Þóra Böðvarsdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, MARÍU NJÁLSDÓTTUR, dvalarheimilinu Höfða á Akranesi. Guðný Þórðardóttir, Grétar Guðbergsson, Pétur Örn Jónsson, Sigrún Skarphéðinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför VILMUNDAR HAFSTEINS REIMARSSONAR, Hreggnasa, Bolungarvík. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks Sjúkrahúss Ísafjarðar. Sigfríður Hallgrímsdóttir, Reimar H. Vilmundarson, Guðrún H. Vilmundardóttir og aðrir aðstandendur. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur hlý- hug við andlát og útför elsku móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓSEFÍNU ÁGÚSTSDÓTTUR BLÖNDAL frá Seyðisfirði. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á B-gangi, dvarlarheimilinu Hlíð, Akureyri. Svala Halldórsdóttir, Ólavía D. Halldórsdóttir, Jón G. Gíslason, Lárus Halldórsson, Stella Hálfdánardóttir, Herbert Halldórsson, Guðmunda Þórðardóttir, Kristín Halldórsdóttir, Jóhannes Steingrímsson og ömmubörn. Alúðar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HÓLMFRÍÐAR HILDIMUNDARDÓTTUR, Dvalarheimilinu, Stykkishólmi. Guð blessi ykkur. Kristinn B. Gestsson, Ingveldur Sigurðardóttir, Ingibjörg Gestsdóttir, Gísli Birgir Jónsson, Þórhildur Halldórsdóttir, Jónas Gestsson, Elín S. Ólafsdóttir, Ólafía S. Gestsdóttir, Þórður Á. Þórðarson, Hulda Gestsdóttir, Brynja Gestsdóttir, Ævar Gestsson, Alma Diego, Júlíana K. Gestsdóttir, Hermann Bragason, Hrafnhildur Gestsdóttir og fjölskyldur. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, ÞÓREY EIRÍKSDÓTTIR, Ofanleiti 25, Reykjavík, verður jarðsungin frá Grensáskirkju miðviku- daginn 29. janúar kl. 13.30. Jón Fr. Jónsson, Anna Lind Jónsdóttir, Guðmundur Guðmundsson, Arnfríður Jónsdóttir, Soffía Rut Jónsdóttir, Agnar Jónsson og barnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, MAGNÚS KRISTJÁNSSON, Norðtungu, verður jarðsunginn frá Reykholtskirkju fimmtu- daginn 30. janúar kl. 14.00. Þorsteinn Magnússon, Magnús Magnússon, Björg Ólafsdóttir, Sigurlaug Magnúsdóttir, Skúli Hákonarson, Guðbjörg Magnúsdóttir, Davíð Magnússon, Margrét Guðjónsdóttir, Hrafnhildur Sveinsdóttir, Sigurður Magnússon, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi, langafi og bróðir, SKARPHÉÐINN GUÐMUNDSSON frá Siglufirði, Sóleyjarhlíð 1, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Seljakirkju fimmtu- daginnn 30. janúar kl. 13.30. Esther Anna Jóhannsdóttir, Ebba Skarphéðinsdóttir, Hjálmar Baldursson, Guðmundur Skarphéðinsson, Margrét Sigmannsdóttir, Guðný Skarphéðinsdóttir, Sigurður Einarsson, Jóhann Skarphéðinsson, Gunnar Rafn Skarphéðinsson, Bergþóra Jóhannsdóttir, Brynhildur Blomsterberg, Valur Blomsterberg, Ari Guðmundsson, Birgir Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur hlýhug og vináttu við andlát og útför GESTS ÞORGRÍMSSONAR myndhöggvara. Sigrún Guðjónsdóttir, Þorgrímur Gestsson, Ragnheiður Gestsdóttir, Guðjón Ingi Gestsson, Ingibjörg Þóra Gestsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.