Morgunblaðið - 28.01.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.01.2003, Blaðsíða 2
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra greindi frá því á Alþingi í gær að hann myndi í vikunni senda for- ystumönnum stjórnmálaflokkanna hugmyndir, sem hann hefði látið vinna, að hugsanlegum starfsgrund- velli þverpólitískrar nefndar um Evrópumál. Næðist sæmileg sátt um þær hugmyndir væri í fram- haldinu hægt að leita eftir tilnefn- ingum í nefndina. Kom þetta fram í svari ráðherra við fyrirspurn Stein- gríms J. Sigfússonar, formanns Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Eins og kunnugt er vakti Davíð Oddsson máls á þeirri hugmynd að setja á fót þverpólitíska nefnd um Evrópumál í áramótagrein sinni í Morgunblaðinu í lok desember sl. „Frá því ég varpaði þessari hug- mynd fram,“ sagði ráðherra, „og þar sem hún fékk [...] allgóðar und- irtektir hef ég látið vinna gögn sem gætu sýnt starfsgrundvöll slíkrar nefndar. Ég hafði hugsað mér núna í þessari viku að senda forystu- mönnum flokkanna þær hugmyndir. Ég tel eðlilegt að gera það fyrst til að fá viðhorf manna við þeim hug- myndum áður en ég leita eftir til- nefningum í nefndina.“ Þannig væru menn, sagði ráðherra, nokk- urn veginn sammála um það á hvaða grundvelli nefndin ætti að starfa áður en skipað væri í hana. Í máli ráðherra kom einnig fram að hann teldi að slík nefnd ætti að skapa vettvang þar sem menn gætu náð saman um ákveðin meginatriði í Evrópuumræðunni. Steingrímur lýsti yfir ánægju sinni með svör ráðherra og sagði mikilvægt að undirbúningur að stofnun nefndarinnar væri kominn í fullan gang. „Ég tel út af fyrir sig þennan framgangsmáta eðlilegan og skynsamlegan, þ.e. að það verði fyrst leitað eftir samstöðu um starfsgrundvöll eða erindisbréf slíks starfshóps eða nefndar. Náist um það samstaða ætti mönnum ekki að vera neitt að vanbúnaði að skipa sjálfa nefndina.“ Tillaga forsætisráðherra um þverpólitíska Evrópunefnd Hugmyndir sendar for- ystumönnum flokkanna Morgunblaðið/Golli Davíð Oddsson forsætisráðherra ætlar síðar í vikunni að kynna hugmyndir um störf nefndar um Evrópumál sem hann hefur lagt til að verði stofnuð. FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ TÍMINN AÐ RENNA ÚT Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að Írak- ar fengju ekki öllu meiri tíma til að hlíta kröfum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um afvopnun. Fyrr um daginn flutti Hans Blix, yfirmaður vopnaeftirlitsnefndar SÞ, örygg- isráðinu áfangaskýrslu um starf vopnaeftirlitsins í Írak. Blix sagði að svo virtist sem Írakar hefðu ekki í reynd sætt sig við að þeir þyrftu að afvopnast. Hann fór fram á meiri tíma til vopnaleitarinnar. Birgðir af kjöti aukast Sala á kjöti jókst á Íslandi í fyrra um 4,8%. Framleiðsla jókst hins vegar á sama tíma um 8,1% og því er ljóst að birgðir af kjöti aukast í land- inu. ESA stefnir íslenska ríkinu Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hef- ur stefnt íslenska ríkinu fyrir EFTA-dómstólinn en stofnunin tel- ur að íslenska ríkið brjóti gegn reglum Evrópska efnahagssvæð- isins með því að innheimta hærri skatta af farþegum í millilandaflugi en í innanlandsflugi. Segist saklaus Milan Milutinovic, fyrrverandi forseti Serbíu, kom fyrir stríðs- glæpadómstól Sameinuðu þjóðanna í Hollandi í gær og lýsti sig saklausan af ákærum um glæpi gegn mannkyni og önnur ódæði í tengslum við að- gerðir serbneskra öryggissveita í Kosovo 1999. Kosið í Ísrael Ísraelar ganga að kjörborðinu í dag en þá fara fram þingkosningar í landinu. Líklegt þykir að Likud- flokkur Ariels Sharons forsætisráð- herra vinni sigur og fái um fjórðung af 120 þingsætum. Verkamanna- flokkurinn geldur hins vegar afhroð, skv. könnunum, en hann fær líklega ekki nema um 20 þingmenn kjörna. Neikvæð ávöxtun Raunávöxtun Lífeyrissjóðs versl- unarmanna var neikvæð um 2,7% á síðasta ári. Þróunin á erlendum verðbréfamörkuðum veldur mestu um lélega afkomu. Þriðjudagur 28. janúar 2003 Prentsmiðja Morgunblaðsins blað B Lykillinn að sparnaði, öryggi og þægindum Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu Áfram- haldandi fólksflutningar 13 Sameiginlegar framkvæmdir Hvað erbezt? Ákvarðana- taka í húsfélög- um 26 Deilt um ofnloka 43 Byggðaþróun síðustuára                                                                 !"!#$! % " #$     &'( )*+ &'(  ) *+       !  "#$ %&$ %''& -%.$/#$ %"/++% 01%23+ 456#0!+ (1+1/7+ !+ 8+ 23+ '%" 9+ "  :$+; % ":$+; $!+%.+  :$+; % ":$+;       (     (%<) "%"+$ +$ 1+=""+)>>>1+     ?" /@+AB * * * * ! !", !" ! # $     )*    +% /@AB    #' ' - "' - & ' "'" "$.#. "./0 0 #./. "%/0  %2B  1 !  2   ! $ %'$ %0$ %''& 8%"+#$! &" %""+ % %" %%  "                          $  $  „ÞAÐ er meiri bjartsýni nú hjá mönnum í atvinnurekstri og um leið meiri eftirspurn eftir atvinnuhús- næði. Það mátti greina breytingu strax í fyrrahaust, en eftirspurnin hefur farið vaxandi síðan,“ segir Magnús Gunnarsson hjá fasteigna- sölunni Valhöll. „Ég hef alltaf fundið fyrir þörf- inni, en það var eins og margir þyrðu ekki að stíga skrefið til fulls fram eftir ári í fyrra en séu reiðu- búnir til þess nú. Þess verður líka að gæta, að atvinnuhúsamarkaður- inn er miklu hægari í allri fram- kvæmd en kaup og sala á íbúðar- húsnæði. Öll viðskipti taka lengri tíma og það fer meiri tími í und- irbúning.“ Magnús Gunnarsson er nú með til leigu stórt húsnæði við Höfða- bakka 9, þar sem höfuðstöðvar Marels voru áður. „Það hefur verið mikil eftirspurn eftir húsnæði í þessari byggingu og talsverður hluti þess hefur þegar verið leigður út,“ segir Magnús. „Aðaleinkenni þessa húsnæðis eru góð lofthæð, mjög góð staðsetning, góð aðkoma og næg bílastæði.“ Byggingin er tvær hæðir. Þegar er búið að leigja út af neðri hæðinni um 1.700 ferm. „Þar er um að ræða eitt fyrirtæki í framleiðslu á búnaði fyrir fiskiðnaðinn, annað er heild- sala og þriðja fyrirtækið starfar við auglýsingaþjónustu,“ segir Magnús. „Á efri hæð er þegar komin sjúkra- þjálfarastofa í rúmlega 1.000 ferm. húsnæði.“ Á fyrstu hæð á eftir að leigja út- húsnæði, sem skiptist í þrjá sali með innkeyrsludyrum. Einn er 624 ferm. með 3,7 m lofthæð, annar er 266 ferm. með 3,7 m lofthæð og sá þriðji er 780 ferm. og með 7,6 m lofthæð. Á annarri hæð er óleigt skrif- stofuhúsnæði, sem skiptist í tvennt, annars vegar í 1.040 ferm. og hins vegar í 266 ferm. Mögulegt er að skipta framangreindum einingum í smærri einingar. „Þetta húsnæði hentar vel fyrir ýmiss konar starfsemi svo sem iðn- að, heildsölu, skrifstofustarfsemi o.fl.,“ segir Magnús. Endurbætt húsnæði „Eignin er í eigu Landsafls, sem er öflugt, sérhæft fasteignafélag,“ sagði Magnús ennfremur. „Það er boðið upp á hagstæða leigu miðað við sambærilegt húsnæði en húsið er í góðu ástandi og ætlunin að bæta það enn. Á þeirri hlið, sem snýr að Vest- urlandsveginum er búið að skipta um alla glugga og komnir áltré- gluggar í stað þeirra gömlu. Áform- að er að skipta á sama hátt um alla aðra glugga í húsinu og eins er í bí- gerð að að klæða húsið með áli. Í framtíðinni verður þarna því glæsi- legt og nútímalegt hús, sem stendur á mjög góðum stað á Höfðanum.“ „Það er mikið um fyrirspurnir um þetta húsnæði og ég geri ráð fyrir að unnt verði að fá leigutaka í það allt á næstu mánuðum,“ sagði Magnús Gunnarsson að lokum. Vaxandi eftirspurn eftir atvinnu- húsnæði einkennir markaðinn Höfðabakki 9. „Þegar er búið að leigja út drjúgan hluta af húsinu, en eftir er að leigja út tæplega 3.000 ferm.,“ segir Magnús Gunnarsson hjá Valhöll, sem sér um að koma húsinu í leigu. Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 32 Viðskipti 13/14 Minningar 32/36 Erlent 15/17 Hestar 37 Höfuðborgin 18 Bréf 40 Akureyri 19 Dagbók 40/41 Suðurnes 20 Þjónustan 41 Landið 21 Íþróttir 44/47 Neytendur 22 Bíó 50/53 Listir 23/24 Fólk 48/53 Umræðan 25/27 Ljósvakar 54 Forystugrein 28 Veður 55 * * * Þrjú kíló af hassi inn- anklæða TOLLGÆSLAN á Keflavíkurflugvelli handtók á sunnudagskvöld 36 ára gamlan Íslending sem var með þrjú kíló af hassi fal- in innanklæða. Þetta er fyrsta stóra send- ingin sem er stöðvuð á Keflavíkurflugvelli á þessu ári. Að sögn Kára Gunnlaugssonar, yfirdeild- arstjóra tollgæslunnar, kom maðurinn með áætlunarflugvél frá Kaupmannahöfn. Eng- in fíkniefni fundust í farangri mannsins en við leit á honum kom í ljós að hann hafði límt þrjú kíló af hassi á líkama sinn. Mað- urinn hefur ekki áður komið við sögu lög- reglu. Fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík tók við rannsókn málsins. Mann- inum var sleppt í gær eftir yfirheyrslur. Samkvæmt verðkönnun SÁÁ nemur götuverðmæti fíkniefnana um 6–7 milljón- um króna. Óbreytt líðan eftir bílslys ELDRI karlmaður sem slasaðist alvarlega í árekstri tveggja bifreiða á Vesturlandsvegi norðan gatnamóta Úlfarsfellsvegar síðast- liðið fimmtudagskvöld liggur enn meðvit- undarlaus á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Hann gekkst undir langa aðgerð við komu á spítala og hefur verið tengdur við öndunarvél frá innlögn. Líðan hans er eftir atvikum að sögn læknis á vakt. HÆGT er að neita útlendingi um endurnýjun á dvalarleyfi á Íslandi hafi hann þegið framfærslu frá sveitarfélagi árið sem leyfið hans nær til. Samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðu- neytinu fá erlendir ríkisborgarar útgefið dvalar- leyfi vegna atvinnuþátttöku í eitt ár fyrst þegar þeir koma til landsins. Þegar endurnýja á þetta leyfi er sótt um dvalarleyfi sem er grundvöllur bú- setuleyfis og veitir töluverð réttindi hér á landi. Umsækjandi fær ekki slíkt dvalarleyfi hafi hann þegið framfærslu frá sveitarfélagi fyrsta árið. Stefán Eiríksson, skrifstofustjóri í dómsmála- ráðuneytinu, segir þó hægt að veita viðkomandi tímabundið dvalarleyfi aftur í eitt ár sem þó er ekki grundvöllur fyrir búsetuleyfi. Bregða megi frá þeirri framkvæmd ef ríkar sanngirnisástæður mæli með því. Samkvæmt lögum um útlendinga þarf sá sem sækir um dvalarleyfi að geta sýnt fram á trygga framfærslu. Stefán segir stjórnvöld líta til fram- tíðar í þeim efnum, þ.e. hvernig viðkomandi ætlar að framfleyta sér á gildistíma þess leyfis sem hann sækir um. Trygg framfærsla getur ráðist af launa- tekjum eða greiðslum fyrir sjálfstæða starfsemi en einnig af lífeyrisgreiðslum, fjármagnstekjum, námslánum og rannsókna- eða námsstyrks- greiðslum. Greiðslur úr félagslega kerfinu mynda því ekki rétt til dvalarleyfis samkvæmt skilningi laganna. Stefán segir þessa framkvæmd í samræmi við lög um útlendinga sem tóku gildi um síðustu ára- mót. Einnig sé verið að færa viðmið dvalarleyfis meira til samræmis við lög um íslenskan ríkisborg- ararétt, sem góð reynsla sé komin á. Þá þurfi um- sækjandi að sýna fram á að hann geti framfleytt sér hérlendis og hafi ekki þegið framfærslustyrk frá sveitarfélagi tvö ár á undan. Stefán segir að jafnvel þeir, sem ekki þurfi vegabréfsáritun við inngöngu í landið, eigi að sýna fram á trygga framfærslu ef eft- ir því sé gengið. Opin heimild Bjarney Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri Al- þjóðahússins, segir að umsækjendur um tímabund- ið dvalarleyfi hafi þurft að sýna fram á trygga fram- færslu. Nýmæli sé að í reglugerð sé kveðið skýrar á um að viðkomandi megi ekki hafa þegið fjárhags- aðstoð sveitarfélags við framfærslu. Það sé þó í samræmi við lög um íslenskan ríkisborgararétt. Bjarney segist ekki geta spáð því hvernig fram- kvæmd laganna verði. Heimildin sé opin og hægt að vísa fólki úr landi eftir að tímabundið dvalarleyfi renni út hafi viðkomandi þegið fjárhagsaðstoð á því tímabili. Fjárhagsaðstoð torveldar endurnýjun dvalarleyfis DRENGJUNUM í Korpuskóla fannst viðeigandi að stoppa aðeins og gægjast út um gluggann meðan á frímínútum stóð. Foreldrar í Staðahverfi, sem senda börnin sín í Korpuskóla, stóðu fyrir borgara- fundi í gærkvöldi til að ræða uppbyggingu skóla- húsnæðis í hverfinu. Þeir segja skólann á Korpúlfs- stöðum ekki fullnægja lágmarkskröfum. Finnst þeim að nýjar áætlanir um uppbyggingu skóla í hverfinu beri ekki með sér að stjórnvöldum í Reykjavík sé alvara að bæta ástandið á næstu árum. Morgunblaðið/Sverrir Á útkikki í frímínútum ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.