Morgunblaðið - 28.01.2003, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.01.2003, Blaðsíða 26
Í MOSFELLSBÆ er þverpólitísk samstaða meðal bæjarfulltrúa úr öll- um flokkum um mikilvægi þess að hjúkrunarheimili verði byggt sem fyrst svo hægt verði veita eldri borg- urum bæjarfélagsins þá þjónustu sem þeir eiga rétt á. Bæjarstjórn Mos- fellsbæjar hefur sótt fimm sinnum um styrk til Framkvæmdasjóðs aldr- aðra til byggingar hjúkrunarheimilis og er það eitt fárra sveitarfélaga á landinu sem ekki hefur tryggan að- gang að hjúkrunarrýmum fyrir aldr- aða íbúa sína og er sú staða algjörlega óviðunandi. Í Mosfellsbæ eru hvorki hjúkrun- arrými né sólarhringshjúkrun. Aftur á móti sýna útreikningar heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins að ætluð þörf fyrir hjúkrunarrými í Mosfellsbæ séu 16 rúm árið 2000 og 33 rúm árið 2010. Heimaþjónustan aukin Ein mikilvægasta skylda sam- félagsins er að tryggja okkar nánustu öryggi á efri árum. Markmið laga um málefni aldraðra frá 1999 er ætlað að tryggja það með því að auka ábyrgð sveitarfélaga í rekstri og þjónustu gagnvart eldri borgurum. Ríkisvald- inu er skv. lögunum ætlað að sjá til þess að aldraðir eigi völ á þeirri heil- brigðis- og félagsþjónustu sem þeir þurfa á að halda miðað við þörf og ástand hins aldraða. Hins vegar hefur þáttur sveitarfélaga verið aukinn í lögunum frá því sem áður var. Sveit- arfélögum er ætlað að veita öfluga heimaþjónustu svo að aldraðir geti búið eins lengi og unnt er við eðlilegt heimilislíf. Þar sem ekkert hjúkrunarrými er í Mosfellsbæ, hefur félagsleg heima- þjónusta verið aukin til að takast á við þann vanda sem myndast hefur í bæj- arfélaginu. Um 90% þeirra sem njóta félagslegrar heimaþjónustu í Mos- fellsbæ eru aldraðir. Frá 1998 til árs- loka 2001 jukust útgjöld sveitarfé- lagsins til þessa málaflokks um 100%. Þessi aukning segir okkur að Mos- fellsbær sé að gera sitt til að tryggja öldruðum þá þjónustu sem þeir eiga rétt á, meðan ríkisvaldið hefur ekki komið til móts við aldraða Mosfell- inga. Vandi sem þarf að leysa Í áætlun um uppbyggingu öldrun- arþjónustu 2002–2007 kemur fram að verulega skortir á uppbyggingu stofnanaþjónustu fyrir aldraða hér á landi. ,,Vandinn er hins vegar gífur- legur á höfuðborgarsvæðinu (Reykja- vík, Seltjarnarnes, Garðabær, Hafn- arfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær) en það vantar 281 hjúkrunarrými til að mæta þörfum aldraðra sem nú eru metnir í mjög brýnni þörf fyrir vistun á stofnun.“ Í Mosfellsbæ hafa eldri borgarar þurft að leita út fyrir sinn heimabæ til að fá þá þjónustu sem þeir þurfa vegna skorts á henni heima fyrir. Það er ljóst að skortur á hjúkrunarrýmum fyrir aldraða í Mosfellsbæ hefur þær afleiðingar að sjúkir aldraðir Mosfell- ingar taka upp pláss á deildum sjúkrahúsa sem eru ekki til þess gerðar að þjóna þeim hópi s.s. deildir hátæknisjúkrahúsanna í Reykjavík. Uppbygging hefjist 2003 Í þessu máli sem og öðrum virðist sem Mosfellsbær sitji á hakanum þegar ríkisvaldið er annars vegar. Aftur á móti er metnaður meðal bæj- aryfirvalda um að keyra þetta mál í höfn sem fyrst. Á bæjarstjórnarfundi 27. nóvember sl. var einróma sam- þykkt tillaga félagsmálanefndar um að veita 10 milljónir til hönnunar hjúkrunarheimilis á árinu 2003. Áætl- aður heildarkostnaður við byggingu hjúkrunarheimilis sem tengist núver- andi íbúðum og þjónustuhúsnæði við Hlaðhamra er um 173 milljónir fyrir 20 rýma deild. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar bíður nú eftir því að stjórnvöld gefi út skrif- lega yfirlýsingu svo að framkvæmdir geti hafist og þær áætlanir sem settar hafa verið geti staðist. Við viljum skora á ríkisvaldið að taka ákvörðun hið fyrsta í þessu mikilvæga hags- munamáli Mosfellinga. Áskorun úr Mosfellsbæ Eftir Pétur Berg Matth- íasson, Jónas Sigurðs- son og Þröst Karlsson Pétur er varabæjarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, Jónas er bæjar- fulltrúi Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og Þröstur er bæj- arfulltrúi Framsóknarflokksins „Skortur á hjúkrunar- rýmum fyrir aldraða í Mosfellsbæ hefur þær af- leiðingar að sjúkir aldr- aðir Mosfellingar taka upp pláss á deildum sjúkrahúsa.“ Pétur Berg Matthíasson Jónas Sigurðsson Þröstur Karlsson UMRÆÐAN 26 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ HVAÐ fyndist mönnum um það, að einhver áhugamaður um íslenska tón- list tæki upp á því að safna saman allri útgefinni tónlist á Íslandi, gamalli og nýrri, á einn „súperdisk“ sem lands- menn hefðu síðan aðgang að á Netinu án endurgjalds? Heldur þú, lesandi góður, að það heyrðist ekki hljóð úr horni frá tónlistarmönnum og útgef- endum? Heldur þú að það yrði mikill og góður grundvöllur fyrir útgáfu- starfsemi ef slíkt hátterni fengi að viðgangast? Þessi lýsing hér á undan er alveg hliðstæð við hina nýju „Íslendinga- bók“ sem sett hefur verið á Netið af Friðriki Skúlasyni og Kára Stefáns- syni í nafni Íslenskrar erfðagreining- ar. Eflaust finnst flestum þessi nýi vefur stórsniðugur á sama hátt og flestum ungmennum finnst það stór- sniðugt að geta sótt nýútgefna tónlist á Netið eða fjölfaldað efni frá vinum sínum í tölvunni heima. Það sem fólk þarf hins vegar að átta sig á er að með „Íslendingabók“ er hætta á að ættfræðingar eða ætt- greinar og útgefendur ættfræðirita hætti starfsemi sinni, þar sem ekki er lengur neinn fjárhagslegur grund- völlur fyrir útgáfu ættfræðirita og vegna þess að það er leiðinlegt að vinna að skráningu og rannsóknum á ættum og ættartengslum og sögu þjóðarinnar, ef óprúttnir aðilar stela vinnunni manns til að gefa hana al- menningi á Netinu. Samkvæmt höfundalögum er rann- sóknarfyrirtækjum eins og Íslenskri erfðagreiningu heimilt að nota upp- lýsingar úr öllum útgefnum ættfræði- ritum til rannsókna sinna. Það er á sama hátt ljóst að fyrirtækinu er ekki heimilt að selja eða gefa þessar upp- lýsingar. Þeir kumpánar Kári og Friðrik segjast hafa unnið allar þess- ar upplýsingar sjálfir. Það er hins vegar rangt, því Friðrik Skúlason upplýsti þjóðina um það í útvarpi fyrir nokkrum árum, að hann væri að slá inn í gagnagrunn sinn öll útgefin ætt- fræðirit á Íslandi, þótt hann vilji ekki kannast við það núna. Það stóð til að sækja mál á hendur Kára Stefánssyni og Friðriki Skúlasyni fyrir stuld á upplýsingum úr útgefnum ættfræði- ritum eftir að þeir upplýstu að þeir ætluðu að gefa þjóðinni þessar upp- lýsingar á Netinu. Dómarar höfðu samþykkt að málið yrði tekið fyrir enda var búið að sýna fram á að þeir hefðu tekið upplýsingar ófrjálsri hendi. Var bent á villur í ættfræðirit- um sem greinilega höfðu verið slegn- ar inn í ættfræðigrunn þeirra félaga. Það mál datt hins vegar upp fyrir vegna fjárskorts. Ljóst er að almenn- ingur mun ekki geta sótt á Netið allar þær upplýsingar sem Kári Stefáns- son hefði viljað hafa þar – ber hann við að Persónuvernd hafi bannað það. Það er mjög óljóst hvaða tilgangi það þjónar hjá Kára Stefánssyni að hafa þessar upplýsingar á Netinu. Hann segir í viðtali við Morgunblaðið: „Nú erum við að gefa fólki aðgang að þessu þannig að það á að geta skemmt sér við að setja saman sína fjölskyldu langt aftur í tímann.“ Það er eins og það hafi farið framhjá Kára, að fólk hefur hingað til geta skemmt sér við að skoða ættartengsl sín í vönduðum ættfræðiritum. Kári talar um það í Morgunblaðsgreininni að hann og Friðrik Skúlason hafi „raun- verulega breytt þessu yfir í tiltölulega spennandi grein sem hefur gjör- breytta nálgun sem við og aðrir hafa í rannsóknum, það er á erfðafræði al- gengra sjúkdóma“. Það er alveg með ólíkindum að hér tali forstjóri rann- sóknarfyrirtækis sem kennir sig við erfðagreiningu. Skráning og rann- sóknir áhugafólks um ættfræði byggjast ekki eingöngu á að búa til nafnalista með fæðingar- og dánar- dögum, heldur er skyggnst í söguna. Þar má lesa hvernig lífi fólk lifði, hvernig fólk fluttist til á milli land- svæða, hvernig lífsmáti fólks var á hverju landshorni, hvernig heilu ætt- leggirnir komust vel af, á meðan aðrir ættleggir voru undirlagðir fátækt, eins og um smitsjúkdóm væri að ræða, og síðast ekki síst hafa ætt- fræðirannsóknir þessa áhugafólks leitt ýmislegt í ljós um ættgenga sjúk- dóma. T.d. var það þetta fólk sem benti á hvernig karlmenn í ákveðnum ættum létust allir með sama hætti og á svipuðu aldursári. Þessi ábending varð til þess að efla og flýta rannsókn- um á ættgengu kólesteróli í blóði. Ís- lendingabók þeirra félaga Friðriks og Kára fjallar ekkert um þessa hluti. Því miður talar Kári Stefánsson niður til þess fólks sem stundar ætt- fræðirannsóknir þar sem hann segir í Morgunblaðsgreininni: „Maður hefur á tilfinningunni að þetta sé aðallega stundað af gömlum mönnum sem hafa orðið út undan í samfélaginu og gera lítið annað en að rækta fóta- sveppi og kíkja á hver er skyldur öðr- um“. Þannig er virðingin hjá Kára fyrir fólkinu sem gaf honum hug- myndina um að hægt væri að reka fyrirtæki á sviði erfðarannsókna á Ís- landi, vegna þess hve áhugi á ætt- fræði væri hér mikill og hversu upp- lýsingar um skyldleika manna væru aðgengilegar. Til upplýsingar fyrir þá sem ekki þekkja til vinnu þessa fólks sem lengstum hefur verið kallað nafninu ættfræðingar, þá er afrakstur vinnu þeirra svokölluð niðjatöl, áatöl, ábú- endatöl, stéttatöl, sögubækur og end- urútgáfa á manntölum. Í staðinn fyrir að vinna með þessu fólki og nýta hina gríðarlegu þekk- ingu sem fólk hefur aflað sér með mikilli vinnu – þrátt fyrir lítinn af- rakstur í peningum talið – þá vegur Kári Stefánsson að heiðri þess með því að tala niður til þess og vill virða að vettugi rétt þess til að fá viður- kennda þá rannsóknarvinnu sem það hefur fært þjóðinni. Það er einmitt á þennan hátt sem menn kasta verð- mætum á glæ. Kári Stefánsson vegur að heiðri ættfræðinga Eftir Kjartan Eggertsson Höfundur er skólastjóri Tónskóla Hörpunnar. „Ljóst er að almenningur mun ekki geta sótt á Netið allar þær upplýsingar sem Kári Stefánsson hefði viljað hafa þar.“ AÐ undanförnu hefur sést í fjöl- miðlum umfjöllun um „gervihjóna- band“ eða „dvalarleyfisgiftingu“. Þetta eru ekki formleg orðasambönd en eiga við hér að erlent fólk gifti sig íslenskum ríkisborgarum til þess að fá dvalarleyfi á Íslandi. Í umfjöllun leit út eins og fólk af as- ískum uppruna endurtæki giftingu og skilnað, svo að það gæti kallað lands- menn sína hingað til Íslands löglega, og lögreglan rannsakaði málið. Það voru önnur dæmi tekin til að segja að útlendingar frá svokölluðum „þriðja- heimi“ giftu sig íslenskum ríkisborg- urum aðeins til þess að komast til Ís- lands og leita að betri lífskjörum hér. Mig langar til að benda á þrjú atriði sem ég tel mikilvæg í sambandi við þetta fréttaefni. Hleypidómar og fjölmiðlar Mér fannst vera yfirleitt mikið af hleypidómum gagnvart útlendingum frá „þriðjaheiminum“ í umfjöllunum. Að mínu mati vantaði þar sönnun í málinu, aðeins var stuðst við ágiskun málsflytjanda. En það sem verra er, fordómar gætu skapast á ný eins og t.d. að fólk frá Asíulöndum gifti sig einungis til að flytjast til Íslands. Varðandi konur frá Asíulöndum hefur sést nóg af fordómum hingað til eins og að þær væru „keyptar“ eða „pant- aðar á neti“ og ég vil krefjast þess af fjölmiðlum að þeir gæti sín betur í umfjöllun um slík mál. Hvernig liður asísku fólki og einnig Íslendingum sem eiga asíska maka ef þau verða álitin vera í „gervihjónaböndum“ í þjóðfélaginu? Þetta er alls ekki gam- anmál. Hvernig skal dæma? Í umfjöllunum þótti „gervihjóna- band“ slæmt og var dæmt næstum glæpsamlegt. Getum við slegið því svo auðveldlega fram? Fyrst og fremst er hjúskapur ekki aðeins eins konar siðvenja manna eða hefð, heldur líka lögfræðilegt hugtak hér á Íslandi. Hjúskapur stofnast samkvæmt ákveðnum lögum. Hann getur verið ógildur ef t.d. svik á hjú- skaparskilyrðum koma í ljós síðar. En ógilding er líka framkvæmd sam- kvæmt lögum. Ef við hugsum um réttindi að lögum eða í samfélags- kerfi, sjáum við einnig form eins og skráða sambúð og samvistir samkyn- hneigðra. Þær eru líkar hjónabandi en samt ekki alveg sama og hjóna- band. Annaðhvort er fólk í hjónabandi eða utan hjónabands, og hjónaband er hjónaband. Það er aðeins ein „teg- und“ hjúskapar í lögunum. Hvað hugsum við þá þegar við segj- um „gervihjónaband“? Það er um til- gang þess að maður eða kona ganga í hjónaband. Auðvitað höldum við að maður eigi að giftast af því að hann elski einhvern og langi að stofna fjöl- skyldu. Ef einhver er að gifta sig af öðrum ástæðum en ást, eins og af fjárhagslegum ávinningi eða vegna félagslegra réttinda, munu flest okk- ar gagnrýna slíka hugmynd eða hegð- un. Þetta er mál sem varðar skynsemi okkar eða jafnvel siðferði manna. Ég er opinber vígslumaður sjálfur, svo ekki ætla ég að játa hjúskap sem byggist á einhverju öðru en ástarsam- bandi. Engu að síður verðum við að við- urkenna skýrt, að þessi gagnrýni á hjúskap sem byggist ekki á því að ást viðkomandi manna sé til staðar, bygg- ist aðeins á óhlutbundinni hugmynd okkar. Í raun getum við ekki sagt hverjir eigi sanna ást og hverjir ekki. Auk þess er ástæða manns til þess að ganga í hjonaband oftast flóknari en bara ástarkennd. Ástæðan innifelur í sér líka væntingu til betri framtiðar, fjárhagslega áætlun eða öryggis- kennd í samfélagslífi. Mér finnst það alveg skiljanlegt og eðlilegt. Ásetn- ingur okkar er alltaf blöndun ýmissa hugmynda og þess vegna er það afar erfitt að draga línu milli virðuleika og virðingarskorts varðandi hjónaband. Þetta getur verið kynferðisfordóma- fullt dæmi, en hvað segjum við um stelpu í sérhverri álfasögu sem bíður eftir riddara á hvítum hesti? Er ást hennar sönn eða notar hún bara tæki- færið til betra lífs? Málið er ekki eins einfalt og við hugsum yfirborðslega. Opinbert vald og friðhelgi einstaklings Síðast en ekki síst, og það sem er alvarlegast, ég hef áhyggjur af þeirri hugmynd sem sést á bak við umfjöll- un um málefnið, að lögreglan eða ein- hvert stjórnvald eigi að kanna málið og dæma „gervihjónaband“. Hver getur dæmt hina innri hugmynd manns? Kannski getur stjórnvaldið sett lög og reglur eins og núna, sem kveða á um að nýkominn innflytjandi sem á íslenskan maka öðlist rétt til að sækja um ríkisborgararétt eftir að hjónabandið stenst í þrjú ár. En það er takmörkun háð hve mikið stjórn- valdið getur hamið einkamál hvers einstaklings. Ef opinber stofnun byrj- ar að dæma hvert hjónaband innflytj- enda mun það verða alvarlegt brot á friðhelgi einstaklings. Jafnframt ef stofnun gefur öðruvísi umfjöllun eins og t.d. um veitingu dvalarleyfis til hjóna sem hún telur ábótavant, mun það verða brot á lögunum, þar sem lögin kveða ekki á um slík mál. Að lokum langar mig til að sýna skýrt fram á skoðun mína einu sinni enn. 1. Fjölmiðlar þurfa að forðast að halda á lofti hleypidómum í máls- umfjöllun. 2. Við getum ekki dæmt hjónabönd annarra, hvort þau séu sönn eða ekki, svo auðveldlega. 3. Við verðum að vera vakandi svo að opinbert vald megi ekki gleyma virðingu á friðhelgi hvers einstak- lings. „Gervihjóna- band“ og innflytjendur Eftir Toshiki Toma „Ef opinber stofnun byrj- ar að dæma hvert hjóna- band inn- flytjenda mun það verða alvarlegt brot á friðhelgi einstaklings.“ Höfundur er prestur innflytjenda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.