Morgunblaðið - 28.01.2003, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.01.2003, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ FJALLGÖNGUR í Afríku eru að verða mjög vinsælar hjá Íslend- ingum en a.m.k. fleiri tugir manna ætla að reyna að komast á tind Kilimanjaro, hæsta fjalls Afríku, á næstu vikum og mánuðum. Kilim- anjaro í Tansaníu er einn hátind- anna sjö og rís í 5.895 m hæð yfir sjávarmáli. Agnar Kofoed-Hansen komst fyrstur Íslendinga á topp fjallsins 18. nóvember 1966 en það var fyrst klifið árið 1889. Hægt er að velja um nokkrar miserfiðar leiðir á fjallið en þar getur orðið 25 stiga frost og æði- hvasst auk þess sem hætta er á fjallaveiki vegna loftþynningar. Einn þeirra sem æfa af kappi fyrir fjallgönguna er Tómas Óskar Guðjónsson líffræðingur sem held- ur utan 25. febrúar og stefnir á að standa á tindinum í byrjun mars. Fjallgangan tekur um 5 daga og Tómas leynir ekki spenningnum vegna ferðarinnar. „Ég hef ekki hlakkað jafnmikið til nokkurs hlut- ar í mörg ár,“ segir hann. „Það hefur verið fiðringur í mér í tvo mánuði og ágerist með hverjum degi.“ Tómas gengur reglulega á Esj- una í æfingaskyni, en Esjan er að verða einn helsti samkomustaður íslenskra Kilimanjaro-fara og sjaldgæft að þar sé ekki einhver að æfa sig fyrir stóra túrinn. Tómas segist ekki mikill fjallagarpur þótt hann hafi gengið á nokkur fjöll en hann er samt í ágætri þjálfun, spil- ar fótbolta og hjólar reglulega. Tildrögin að ferðinni voru þau að vinur hans fékk Kilimanjaro- ferð í fertugsafmælisgjöf frá fjöl- skyldu sinni en vantaði hins vegar ferðafélaga og þar kom Tómas inn í málið. Þeir fara því tveir saman í 13 manna hópi á vegum Úrvals- Útsýnar og íslensku ferðaskrifstof- unnar Rovers Expedition sem sér um skipulagningu í Afríku. Að ýmsu er að hyggja fyrir leið- angurinn, kaupa þarf bólusetn- ingar og malaríulyf og hafa góðan fjallagalla og vera búinn undir dá- gott puð í þunna loftinu. „Loft- þynningin er aðalóvissuþátturinn í þessu og ég hef ekki hugmynd um hvernig maður bregst við henni. Mér skilst að gamalmenni eigi ekki minni möguleika á fjallinu en þeir ungu og spræku.“ Tómas segir dýralífið við rætur fjallsins hafa mest aðdráttarafl fyrir sig en síðan kemur fjall- gangan sem einskonar sæluauki og aðalspennuhlutinn í ferðinni. „Þarna eru margir af bestu þjóð- görðum Afríku og það er gengið um ótrúlegt landsvæði, úr brak- andi hita regnskóganna upp í hörkufrost á fjallinu. Búnaðurinn þarf því að vera ansi fjölbreyttur.“ Borgar Þorsteinsson eigandi Rover Expedition í Kenýa segir allt að 25 Íslendinga vera á leiðinni á fjallið á næstu vikum og mán- uðum og eru þeir þá ótaldir sem kaupa sér ferð með öðrum. Hann byrjaði að selja ferðir á fjallið árið 1997 en fáir létu sjá sig fyrstu ár- in. Smátt og smátt fór fólk að taka við sér og nú er fjallganga á Kilim- anjaro orðin vinsælasta ferðin hjá Borgari. Kilimanjaro, hæsta fjall Afríku, dregur að sér íslenska fjallgöngumenn Mesta tilhlökkunarefni í áraraðir Morgunblaðið/Golli Mánuður í brottför til Kilimanjaro: Tómas Óskar Guðjónsson líffræðingur. FYLGI Framsóknarflokks, Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs og Frjálslynda flokksins hefur auk- ist nokkuð samkvæmt könnun sem Fréttablaðið birti í gær ef miðað er við könnun blaðsins fyrir viku en fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðis- flokks minnkar frá seinustu könnun. Samfylkingin mælist með 36,6% fylgi samkvæmt könnuninni en hafði 39,3% í síðustu könnun, Sjálfstæð- isflokkurinn mælist með 36% en hafði 38,2%, Framsóknarflokkur fær 13,7% en hafði 12%, VG fær 9,5% en hafði 7,5% og Frjálslyndir fá 4,2%, höfðu 2,2%. Úrtakið í könnuninni var 600 manns, skipt jafnt milli kynja og kjördæma. Alls sögðust 40% vera óákveðin, neituðu að svara eða ætl- uðu ekki að kjósa. Samfylkingin stærst í könnun Talnakönnunar Samfylkingin fær mest fylgi eða 39,7%, í könnun sem Talnakönnun hefur gert fyrir vefsvæðið Heim.is. Í síðustu könnun Talnakönnunar sem gerð var í lok nóvember sl. fékk flokkurinn 25,1%. Sjálfstæðisflokkur mælist með 36,4% fylgi samanborið við 44,5% í nóvember, Framsóknar- flokkurinn fær 13,3% en fékk 14,6% í nóvember, Vinstrihreyfingin – grænt framboð, 8,8%, fékk 12,9% í síðustu könnun og Frjálslyndi flokk- urinn 2,5% en fékk 2,9% í nóvember. Alls voru 670 spurðir og sögðust 21% óviss og 17% vildu ekki svara. Um 2% ætluðu ekki að kjósa eða skila auðu. Vikmörk eru allvíð eða +/-4,8% miðað við 95% vissu. Samfylk- ing með mest fylgi GUÐRÚN Björg Svanbjörnsdóttir, sem lýst hafði verið eftir frá 29. des- ember, er komin í leitirnar. Hún hafði samband við foreldra sína á sunnudagskvöld en hún var þá stödd í Malmö í Svíþjóð. Jónas Hallsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn í Reykjavík, segir að í kjölfarið hafi verið haft samband við lögreglu í Malmö sem kom Guðrúnu undir læknishendur og væri hún nú á sjúkrahúsi í borginni. Komin á sjúkra- hús í Malmö TUTTUGU og tvær íbúðir eru nú í byggingu á Austur-Héraði en alls hef- ur verið úthlutað lóðum fyrir 59 íbúðir í sveitarfélaginu. Þá liggja átta um- sóknir frammi fyrir íbúðarhúsnæði og þrjár fyrir atvinnuhúsnæði. Í Fjarða- byggð er hafin bygging á einbýlishúsi í Neskaupstað og þremur íbúðum á Reyðarfirði. Gerir skipulagsfulltrúi Fjarðabyggðar, Óttar Guðmundsson, ráð fyrir því að um 30 íbúðir verði byggðar á árinu. Hann segir áhuga verktaka á svæðinu hafa vaxið mikið að undanförnu. „Við eigum von á að allt fari á fullt í vor þegar snjóa leysir. Menn bíða bara í startholunum,“ seg- ir Óttar. Talsverður fjöldi lóðaumsókna liggur fyrir, en hann segir að fram- kvæmdir muni ekki hefjast fyrr en snjóa leysi. „Það er ómögulegt að segja hversu mörg hús verði byggð á árinu, en eins og þetta lítur út í dag gæti maður reiknað með um 30 hús- um kannski,“ segir Óttar. Meðal þess sem nú er í skoðun er að byggja fjöl- býlishús á Reyðarfirði, en einnig segir Óttar að verktakar muni í sumar byggja sýningarhús sem þeir muni nota til að sýna væntanlegum kaup- endum. „Þetta er algjör breyting frá því sem áður var. Það hefur verið ákveðin stöðnun og hefur hreinlega vantað íbúðir. Menn hafa ekki þorað að fara af stað fyrr, þó svo að það hafi verið fólksfækkun hefur íbúðarhús- næði ekki verið byggt það lengi að það var orðin talsverð eftirspurn um- fram framboð,“ segir Óttar. Þórhallur Pálsson, forstöðumaður umhverfissviðs Austur-Héraðs, segir sömuleiðis að framkvæmdir í sveitar- félaginu séu að aukast. „Við verðum vör hér við vaxandi fyrirspurnir, bæði frá verktakafyrirtækjum sem hafa kynnt sér aðstæður, og einnig frá ein- staklingum sem langar að prófa að búa hérna,“ segir Þórhallur. Hann segir að þó sé þetta engin stökkbreyting frá því sem verið hefur því síðustu ár hafi byggingarstarf- semi verið viðvarandi á svæðinu. Að meðaltali hafi verið úthlutað lóð fyrir eina íbúð á mánuði síðustu ár. Sum- arið 2001 hafi nýtt hverfi verið gert íbúðahæft, þar hafi verið gert ráð fyr- ir allt að 56 íbúðum, í dag hafi öllum lóðunum verið ráðstafað, að undan- skildum lóðum fyrir fjórar íbúðir. Nokkrir séu fluttir í hverfið, sem er austan svokallaðra Þverkletta, en aðrir séu að byrja að byggja, grafa eða teikna. Þórhallur segist sjá fyrir sér að framkvæmdum gæti fjölgað mjög snögglega á Austurlandi í kjöl- far fyrirhugaðra stóriðjufram- kvæmda. Hann segir það ekki mjög heppilegt fyrir fjárhag sveitarfé- lagsins að framkvæmdirnar dembist allar yfir á sama tíma, betra væri ef þær dreifðust yfir lengri tíma. Óttar tekur í sama streng segist eiga von á því að mesta uppbyggingin verði um leið og lokahnykkurinn á byggingu ál- versins eigi sér stað. Þegar það fari að líða að því að framleiðsla hefjist í ál- verinu komi fólk sem ætli að setjast að til frambúðar. Tugir húsa í byggingu í ár Veruleg uppbygging á Austurlandi ÞAÐ HEFUR viðrað einkar vel til útiframkvæmda í vetur og ekki hafa þeir Ólafur Þórarinsson og Sigurður Vésteinsson þurft að sópa snjó að morgni þessa dags. Hér eru þeir að slá saman stokka við nýju heilsu- miðstöðina við sundlaugarnar í Laugadal, en það er Ís- tak sem sér um að reisa hana fyrir félagið Laugahús sem er í eigu Nýsis og Björns Leifssonar í World Class. Reykjavíkurborg mun þó standa straum af byggingu 50 metra innilaugar í heilsumiðstöðinni. Gert er ráð fyrir að kostnaður við miðstöðina verði 1,3–1,4 milljarðar króna og stefnt er að opnun í blá- byrjun árs 2004. Morgunblaðið/Árni Sæberg Naglar í heilsumiðstöð Á FUNDI mannanafnanefndar á fimmtudag voru fimm eiginnöfn tekin til greina og skulu þau færð í mannanafnaskrá. Karl- mannsnöfnin voru Fengur, Kilj- an og Sophus. Kvenmannsnöfnin voru Melinda og Sigurlinn. Á síðasta fundi sínum fyrir áramót féllst mannanafnanefnd á eftirfarandi eiginnöfn kvenna: Abela, Donna, Fídes, Karína, Sæsól og Þórsteina. Og á eitt karlmannsnafn: Hrafnbergur. Fallist var á millinafnið Hrafnan og Ósland en beiðni um milli- nafnið Abel var hafnað þar sem það er þegar á skrá sem eigin- nafn karla. Beiðnum um eiginnöfnin Car- olina og Baltazar var hafnað þar sem nöfnin töldust ekki rituð í samræmi við ritreglur íslensks máls og ekki væri hefð fyrir þessum rithætti. Kiljan og Sophus samþykktir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.