Morgunblaðið - 28.01.2003, Blaðsíða 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 13
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Sérflug Heimsferða - vikuferð
Síðustu sætin
Karíbahafið
16.-23. febrúar
frá kr. 54.950
Mundu Mastercard-ávísunina
Verð kr. 54.950
M.v. hjón með barn, 3 í herbergi.
Flug, gisting, skattar.
M.v. Mastercard eða VR-ávísun
að verðmæti kr. 5.000 á mann.
Verð kr. 64.950
M.v. 2 í herbergi. Flug, gisting,
skattar. M.v. Mastercard eða VR-
ávísun að verðmæti kr. 5.000 á mann.
Hotel
Barceló Colonia
****
Falleg 4 stjörnu hótel
við ströndina með
frábærum aðbúnaði.
Njóttu lífsins í Karíbahafinu við ótrúlegar aðstæður í febrúar
á þessari fögru paradísareyju, Dóminíska lýðveldinu. Önnur
stærsta eyja Karíbahafsins býður stórkostlegar aðstæður fyrir
ferðamanninn, fagrar strendur, einstaka tónlistarmenningu
og glæsileg hótel, þar sem þú getur valið um hvaða
afþreyingu, íþróttir eða skemmtun sem hægt er að hugsa sér.
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tilboð á glæsilegu 4 stjörnu
hóteli, Barceló Colonia, við ströndina í Juan Dolio, einum
vinsælasta áfangastaðnum, sem er 35 kílómetra frá
höfuðborginni Santo Domingo, sem er ein fegursta borg
Karíbahafsins og hér er einstakt tækifæri til að upplifa
stórkostlegar strendur og mannlífið í höfuðborginni. Og að
sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða
allan tímann.
Aðeins 10 herbergi í boði.
REKSTUR norska fiskeldisfyrir-
tækisins Fjord Seafood, sem Sam-
herji hefur keypt um 2,6% hlut í, hef-
ur gengið erfiðlega á síðustu
misserum, en með hækkandi verði á
laxi er gert ráð fyrir að fyrirtækið
skili hagnaði á þessu ári. Fyrirtækið
sérhæfir sig í laxeldi og er þriðja
stærsta laxeldisfyrirtæki í heimi en
fyrirtækið er með 10% markaðs-
hlutdeild á framleiddum laxi.
Fjord Seafood var stofnað ár-
ið 1996 og var skráð á hlutabréfa-
markað árið 2000, þá á genginu 46.
Gengið í síðustu viðskiptum með fé-
lagið voru rúmlega 2 en Samherji
keypti hlutinn á genginu 2,5.
Þetta kom fram í Morgunpunkt-
um Kaupþings, en þar var meðal
annars fjallað um Fjord Seafood og
kaup Samherja í því. Þar segir meðal
annars:
„Fjord Seafood hefur átt í nokkr-
um erfiðleikum síðustu misseri en
lækkandi verð á laxi hefur haft þar
mest áhrif en einnig má segja að of-
fjárfesting hafi verið félaginu þung-
ur baggi. Mikil samþjöppun hefur
orðið í greininni, en mikil ásókn
var eftir leyfum til laxeldis fyrir
nokkrum árum og var það ástæða
mikillar fjárfestingar eins og hjá
Fjord Seafood. Félagið hefur hins
vegar nú umsjón með öllu fram-
leiðsluferlinu, allt frá hráefnisöflun
til sölu, sem er talið afar mikilvægt
upp á rekjanleika.“
Lágt verð á laxinum
Erfiðleikarnir stafa fyrst og
fremst af lágu verði á laxi: „Laxverð
var til að mynda um NOK 38 á kíló
árið 2000 en fór lægst í janúar 2002
er það var NOK 16 á kg. Félagið
gekk vel á árinu 2000, EBITDA
framlegð var um 12,2% en hæst fór
hún árið 1999 er hún var 24,4%. Það
fór svo að halla undan fæti árið 2001
með lækkandi verði og var framlegð-
in neikvæð um 12,5% á því ári og
nam tap félagsins um NOK
860 milljónum það árið. Í dag
er markaðsverð á laxi rúm-
lega 20 NOK.
Rétta úr kútnum
Í spám greiningaraðila er gert ráð
fyrir að rekstur félagsins fari að
rétta úr kútnum í ár og er gert ráð
fyrir að félagið skili hagnaði á yfir-
standandi ári og EBTIDA framlegð
er á áætluð tæp 10%. Það er ljóst að
Fjord Seafood hefur gengið í gegn-
um mikla erfiðleika í rekstri undan-
farið en þó virðist vera ljós í myrkr-
inu. Verð á laxi hefur hækkað
síðastliðna mánuði. Birgðastaðan
hefur ekki minnkað sé horft til ár-
anna 2000 og 2001 en hins vegar er
hún enn hærri nú en í lok árs 1999.“
Batnandi afkoma fram-
undan hjá Fjord Seafood
Lágt verð á laxi
undanfarin miss-
eri leiddi til nokk-
urs taprekstrar
Sjávarútvegsráðuneytið hefur að
tillögu Hafrannsóknastofnunar
aukið heildarkvóta í loðnu á yfir-
standandi vertíð úr 690.000 tonn-
um í 910.000 tonn, eða um 220.000
tonn. Kemur þessi aukning öll í
hlut íslenzku loðnuskipanna auk
þess sem 30.000 tonn bætast við
hlut þeirra vegna fiskveiðisamn-
inga við Evrópusambandið.
Stærð stofnsins vanmetin
Áður hafði íslenzkum loðnu-
skipum verið úthlutað um 410.000
tonnum af loðnu og verður hlutur
þeirra eftir aukninguna því um
660.000 tonn. Í skýrslu Hafrann-
sóknastofnunar um nýlokinn
mælingarleiðangur segir, að lík-
legt sé að stærð veiðistofnsins sé
vanmetin og því er gert ráð fyrir
að loðnustofninn verði mældur á
ný í febrúarmánuði næstkomandi.
170.000 tonn frá áramótum
Loðnuafli frá áramótum er nú
orðinn tæplega 170.000 tonn og er
það mun meira en á sama tíma í
fyrra. Afli á sumar- og haustvertíð
var 180.000 tonn og heildarafli á
vertíðunum tveimur því orðinn
langleiðina í 350.000 tonn. Eftir
standa því nú um 310.000 tonn
óveidd miðað við viðbótina.
Loðnukvótinn aukinn