Morgunblaðið - 28.01.2003, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 28.01.2003, Blaðsíða 45
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 45 ÍSLAND mætir Ungverjalandi á Laugardalsvell- inum í fyrsta leik sínum í undanriðli Evrópumóts kvennalandsliða í knattspyrnu þann 14. júní í sumar. Íslenska liðið leikur fimm leiki af átta á þessu ári, tvo á heimavelli en þrjá á útivöllum. Þann 9. ágúst verður leikið við Rússa ytra og 8. september spilar íslenska liðið í Frakklandi. Síð- an taka við tveir leikir gegn Pólverjum, á Laugar- dalsvellinum 13. september og í Pólland 27. sept- ember. Þrír síðustu leikirnir fara fram á árinu 2004 en það eru útileikur gegn Ungverjalandi og loks heimaleikirnir við Frakka og Rússa. Fyrsti leikur ársins verður vináttulandsleikur gegn heimsmeisturum Bandaríkjanna í Charles- ton þann 16. febrúar þannig að kvennalandsliðið leikur að minnsta kosti sex leiki á þessu ári. Byrjað gegn Ungverjum í LaugardalÞAÐ stefnir í Íslendingaslag á Britannia- leikvanginum í Stoke 15. eða 16. febrúar. Stoke City dróst gegn Chelsea í 16 liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu í gær og það eru því líkur á að fjórir Íslendingar taki þátt í leikn- um. Brynjar Björn Gunnarsson, Bjarni Guð- jónsson og Pétur Marteinsson með Stoke og Eið- ur Smári Guðjohnsen í fremstu víglínu hjá Chelsea. Mikil ánægja ríkir í herbúðum Stoke með væntanlega heimsókn Chelsea og reiknað er með að uppselt verði á leikinn en völlurinn rúmar 28 þúsund manns. John Rudge, yfirmaður knattspyrnumála hjá Stoke, sagði í gær að þetta hefði einmitt verið draumur allra hjá félaginu, Chelsea væri eitt af stóru liðunum sem gaman væri að fá í heimsókn. „Við sáum styrk Chelsea gegn Shrewsbury um helgina, liðið afgreiddi þann leik á mjög fag- mannlegan hátt. Þetta verður mikið próf fyrir okkar lið en við fáum mikinn stuðning áhorfenda og í bikarnum getur allt gerst,“ sagði Rudge. Tvö efstu lið úrvalsdeildarinnar, Manchester United og Arsenal, drógust saman og fer við- ureign þeirra fram á Old Trafford. Heiðar Helguson og félagar í Watford þurfa að sækja heim úrvalsdeildarlið, Blackburn eða Sunderland. Liðin sem mætast í 16 liða úrslitunum eru sem hér segir: Manchester United – Arsenal Southampton eða Millwall – Norwich Cr. Palace eða Liverpool – Gillingham eða Leeds Wolves – Rochdale Fulham – Burnley Stoke City – Chelsea Blackburn eða Sunderland – Watford Sheffield United – Walsall Íslendingaslagur á Britannia-leikvangi í Stoke Morgunblaðið/Brynjar Gauti Brynjar Björn Gunnarsson mætir Eiði Smára Guð- johnsen.  DAGNÝ Linda Kristjánsdóttir skíðakona er komin til Megeve í Frakklandi þar sem hún keppir á Evrópubikarmótum í bruni og risa- svigi í vikunni. Ekkert varð af keppni hjá henni í Abetone á Ítalíu í síðustu viku en þar var mótum sem hún átti að taka þátt í aflýst vegna skemmdarverka á skíðamannvirkj- unum. Útlitið í Frakklandi er reynd- ar ekki gott vegna snjókomu en fyrsta mótið er fyrirhugað í dag.  BJÖRN Margeirsson úr Breiða- bliki hljóp 800 m á 1.54,74 mínútum á frjálsíþróttamóti innanhúss í Malmö á sunnudag. Hann hafnaði í fjórða sæti í hlaupinu. Tími Björns er jafn- framt annar besti tími Íslendings í 800 m hlaupi innandyra.  ÁTTA sundmenn fra KR tóku þátt í Lyngby Open sundmótinu um helgina í Danmörku. Keppt var í 50 metra laug og var fjöldi keppenda í hverri grein á bilinu 40–70. Meðal helstu úrslita voru að Eva Hannes- dóttir varð í öðru sæti í 50 m skrið- sundi og þriðja sæti í 100 metra skriðsundi. Eva varð einnig í 3. sæti í 50 og 100 metra flugsundi og 200 metra fjórsundi.  BERGUR Þorsteinsson náði öðru sæti í 100 og 200 metra baksundi og þriðja sæti í 50 m baksundi. Gunnar Örn Ólafsson varð í 4. sæti í 100 metra baksundi. Kristján Jóhannes- son varð í 5. sæti í 50 og 100 metra bringusundi. Einar Örn Hannesson náði 5. sæti í 50 m skriðsundi og 6. sæti í 50 og 100 m bringusundi.  KÍNA sigraði bandarísku heims- meistarana, 2:0, á alþjóðlegu móti kvennalandsliða í knattspyrnu í Shanghai á sunnudag. Fan Yungjie og Sun Wen skoruðu mörkin.  HERMANN Maier frá Austurríki sigraði í gær í risasvigi í heimsbik- arnum í alpagreinum sem fram fór í Kitzbühel í heimalandi hans. Þetta er 42. sigur Maiers í heimsbikarnum en hinsvegar sá fyrsti frá því hann slasaðist alvarlega í mótorhjólaslysi fyrir hálfu öðru ári og var rétt búinn að missa annan fótinn.  MAIER hóf keppni á ný fyrir að- eins tveimur vikum og komst mun fyrr á toppinn á ný en nokkurn óraði fyrir. „Þetta er einn minn besti sigur og jafnast á við Ólympíugull og heimsmeistaratitil. Mér datt aldrei í hug að ég næði sigri svona fljótt eftir að ég byrjaði á ný,“ sagði Maier, sem grét í fyrsta skipti eftir sigur.  ARNAR Steinn Einarsson skoraði mark Víkings gegn Fylki í Reykja- víkurmótinu í knattspyrnu í fyrra- kvöld, ekki Ragnar Hauksson eins og sagt var í blaðinu í gær.  HAUKAR gerðu sér lítið fyrir og sigruðu „stóra bróður“ í hafnfirsku knattspyrnunni, FH, 2:0, í æfingaleik í Fífunni á sunnudag. Goran Lukic og Sævar Eyjólfsson gerðu mörkin. FÓLK Englendingurinn til að stýra liði til sigurs í úrvalsdeildinni? Fáir myndu gráta það. Það er svo merkilegt að einungis þrír knattspyrnustjórar hafa hamp- að meistaratitlinum frá því úrvals- deildin var sett á laggirnar 1992, Frakkinn Wenger, tvisvar, Skotinn Ferguson sjö sinnum og landi hans, Kenny Dalglish, sem leiddi Black- burn Rovers alla leið 1995. Newcastle er hvergi gengið úr skaftinu í toppbaráttunni. Sveitin virkar samt ekki jafn þrútin af þreki og kostum og tvær þær fyrrnefndu. Það verður því við ramman reip að draga. Vörnin er heldur ekki nógu traustvekjandi. Jonathan Woodgate stykki þar fullskapaður inn. En framtíðin er Newcastle United. Svo mikið er víst. Meðalaldur leikmanna er ekki hár og með tófusprengi eins og Kieron Dyer, Laurent Robert og Craig Bellamy innanborðs er skemmtigildið líka hátt. Svo er það auðvitað Alan Shearer. Sir Alan, liggur manni við að segja. Rosaleg- ur kappi. Heimavöllurinn þungvægur Á leið sinni að meistaratitlinum í fyrra átti Arsenal lygilegu gengi að fagna á útivelli, tapaði ekki leik. Þetta ætlar aftur á móti að verða ár heimavallarins. Arsenal, United og Newcastle hafa öll unnið ellefu heimaleiki og aðeins tapað einum. Tvö fyrrnefndu liðin hafa gert eitt jafntefli að auki. Newcastle ekkert. Arsenal er með fimm sigra að heim- an, United þrjá og Newcastle aðeins tvo. Svo skemmtilega vill til að Newcastle á eftir að fá bæði Arsenal og United í heimsókn á St. James’ Park. United á eftir að fara á Highbury líka, auk þess að þurfa að mæta sterkum heimaliðum eins og South- ampton, Aston Villa, Tottenham og Everton. Arsenal á heldur ekki létt verk fyrir höndum á ferðum sínum, Liv- erpool, Blackburn, Aston Villa og Middlesbrough – sem er eina tap- lausa lið deildarinnar á heimavelli – svo dæmi séu tekin. Þessi þrjú lið verða að teljast lík- leg til að tryggja sér sæti í Meist- aradeild Evrópu að ári. Þá er eitt sæti laust. Baráttan um það mun væntanlega standa milli Chelsea og Liverpool, þótt Everton, Southamp- ton og Tottenham Hotspur komi einnig til greina. Landgengnir hvalir Chelsea var lengi með í toppbar- áttunni en eftir þrjú töp í síðustu fjórum leikjum virðist ballið búið. Chelsea hefur góðu liði á að skipa. En kannski má yfirfæra lýsinguna á útherjanum Jesper Grönkjær á liðið í heild. Ægilegir burðir, kraftur og hraði. Svo kemur sendingin – upp í stúku. Hér er ekki verið að gera lít- ið úr Chelsea-liðinu sem var líklega sterkari aðilinn bæði gegn Arsenal og United nú á nýárinu – en tapaði samt. Það er einmitt vandamálið. Kannski trúa menn því ekki á Brúnni að þeir geti orðið meistarar? Kannski vantar hefðina? Hver veit? Tímabilið sem gaf fögur fyrirheit hefur snúist upp í martröð hjá Liv- erpool. Undanfarin ár hefur liðið mjakast upp um eitt sæti og þar sem það hafnaði í öðru sæti á liðnum vetri sáu menn meistarabikarinn blasa við. Hann kom síðast á Anfield 1990. Allt gekk þetta líka eins og í sögu til að byrja með, eftir tólf leiki var liðið með fjögurra stiga forystu í efsta sæti. Þá fór allt í vaskinn. Í ell- efu næstu leikjum vannst ekki svo mikið sem einn sigur sem er versti árangur liðsins í heilan mannsaldur. Leikmenn minntu á landgengna hvali. Þrifust ekki. Liverpool komst aftur á sigur- braut í Southampton en það er ein- faldlega of seint í rassinn gripið. Menn eru þó farnir að gæla við aðra bikarþrennu. Að ýmsu er því að keppa. En hvað er að á Anfield? Skýr- ingin blasir við, er ekki svo? Liðið er einfaldlega ekki nógu gott. Ekkert lið hefur líklega úr fleiri mönnum að moða, vandamálið er bara að margir þeirra eru engir gæðingar. Sumir raunar óttalegar truntur. Vörnin er frábær sem fyrr. Þar stendur Rauði herinn Arsenal, Man- chester United og Newcastle klár- lega framar. Fram á við er aftur á móti færra um fína drætti. Steven Gerrard og Michael Owen eru auð- vitað afburðamenn en þegar þeim þverr kraftur, eins og á löngum köflum í vetur, er sóknarleikur Liv- erpool í molum. Dietmar Hamann er auðvitað kjölfesta en Liverpool vantar fleiri skapandi menn til að létta undir með Owen og Gerrard. El Hadji Diouf hefur ekki fundið taktinn, þó eitthvað sé Eyjólfur að hressast, og Bruno Cheyrou er eng- in lausn til frambúðar. Danny Murphy og Milan Baros eru drjúgir en staðreyndin er sú að Liverpool þarf alla vega tvo skapandi leik- menn í hæsta gæðaflokki til viðbót- ar – jafnvel þó skipta þurfi út fimm eða sex Cheyrou-um í staðinn. Skellur í tönnum Alltaf koma lið á óvart í úrvals- deildinni. Að þessu sinni hefur það komið í hlut Everton og Southamp- ton. Þar munar mest um kænsku knattspyrnustjóranna, David Moy- es og Gordon Strachan. Tveggja Skota. Eins og það sé tilviljun. Hvorugur hefur úr fé að spila – að minnsta kosti ekki í þeim skilningi sem stóru félögin leggja í hugtakið – en með bragðvísi og baráttu hefur þeim tekist að stefna mönnum sín- um í hæstu hæðir. Maður hefur á tilfinningunni að leikmenn hrein- lega þori ekki að leika illa, svo Strachan eða Moyes sjái til. Fyrr kyngja þeir tönnum. Þessir menn eru draumur hins óbreytta sparkanda – meðalmanns- ins sem dreymir um að svamla í sömu tjörn og Henry, Beckham og Owen, án þess að vera færður á kaf. Ekki svo að skilja að menn eins og Antti Niemi, Fabrice Fernandes, James Beattie og Thomas Gravesen rísi ekki upp úr meðalmennskunni, að ekki sé talað um Wayne Rooney. Hafa menn séð aðrar eins hreyf- ingar hjá unglingi? Spyrjið Glenn Roeder og Jean Tigana En hvað myndi refur eins og Moyes til dæmis gera fyrir West Ham eða Fulham? Þar sem getustig manna virkar talsvert hærra en hjá Everton. Hvað eru þessi lið að gera í botnbaráttunni? Spyrjið Glenn Roeder og Jean Tigana. Öðru máli gegnir um West Bromwich Albion. Þar á bæ eru menn upp til hópa ekki í úrvalsdeildarklassa. Þeim er því vorkunn. Glenn Hoddle er einnig dæmi um slyngan þjálfara. Hægt og bítandi er hann að snúa gæfunni Tottenham Hotspur í vil. Loksins, myndu sumir segja. Það verk er þó enn á við- kvæmu stigi. Loftbrögð bíða þar betri tíma. Reuters Það liggur vel á liðsmönnum Manchester United þessa dagana enda gengur þeim allt í haginn. Wes Brown, Roy Keane og Ryan Giggs fagna hér Diego Forlan eftir sigurmarkið gegn Chelsea. orri@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.