Morgunblaðið - 28.01.2003, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 28.01.2003, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Búmannskonur eða karlar óskast Okkur vantar reynsluríkt fólk til starfa á nýjum veitingastað í verslun Byko. Um er að ræða eld- hússvinnu með vöfflubakstri, lágmarkssmur- brauði í bland við salarvinnu og samskipti við viðskiptavini. Störfin krefjast snyrtimennsku, reykleysis og fallegrar framkomu. Æskilegur aldur umsækjanda er 30—50 ára. Unnið er á 6 tíma vöktum alla daga frá kl. 8.00— 14.oo og frá kl. 12.00—18.00, nema sunnudaga frá kl. 11.00. Áhugasamir hafi samband við Brynjar Ey- mundsson hjá Heitt og kalt á Grensásvegi 10, en umsóknareyðublöð liggja þar frammi. Síminn er 894 1057. R A Ð A U G L Ý S I N G A R ATVINNUHÚSNÆÐI Til leigu er eitt glæsilegasta og best staðsetta verslunar- húsnæðið í Skeifunni, 820 fm. Næg bílastæði. Áberandi staðsetning í glæsi- legu nýendurbættu húsi. Möguleiki á lager og skrifstofum í sama húsi. Upplýsingar í símum 588 2220 og 894 7997. FÉLAGSSTARF Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna í Reykjavík Félagsfundur Hvatar Hvöt heldur almennan félagsfund í kvöld, þriðjudaginn 28. janúar 2003 kl. 20.30, í Vahöll, Háaleitisbraut 1. Efni fundarins: Breytt kjördæmaskipan. Gestur fundarins: Dr. Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur. Allir velkomnir. Stjórnin. KENNSLA Módelteikning Vegna forfalla er laust pláss í módel- teikningu á fimmtudagskvöldum. Upplýsingar á skrifstofu skólans Fann- borg 6 eða í síma 564 1134 og 863 3934. TILKYNNINGAR Stykkishólmur Auglýsing um deiliskipulag Með vísan í 25. grein skipulags- og byggingar- laga nr. 73/1997 er auglýst eftir athugasemdum við deiliskipulagstillögu, Stykkishólmur mið- bær. Deiliskipulagið nær til reits sem afmarkast af Hafnargötu, Aðalgötu, Víkurgötu og Laufás- vegi, Borgarbraut, Þvervegi, Skólastíg. Tillagan felst í endurskipulagi miðbæjarins. Uppdráttur, ásamt greinargerð með frekari upplýsingum, liggur frammi í Ráðhúsinu í Stykkishólmi, Hafnargötu 3, frá og með 28. janúar nk. til 27. febrúar 2003. Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, er hér með gefinn kostur á að gera athuga- semdir við tillöguna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum er til 13. mars 2003. Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu vera skriflegar og berast í Ráðhúsið í Stykkishólmi, Hafnargötu 3. Hver sá, sem ekki gerir athugasemdir við tillög- una fyrir tilskilinn frest, telst samþykkur henni. Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Stykkishólmi. Auglýsing um breytingu á aðalskipulagi Stykkishólmsbæjar 2002—2022, vegna deiliskipulags miðbæjar Með vísan í 18. grein skipulags- og byggingar- laga nr. 73/1997 er auglýst eftir athugasemdum við breytingu á aðalskipulagi Stykkishólmsbæj- ar 2002—2022. Breytingin fellst í því að íbúðarsvæði við Aðal- götu verði stækkað til suðurs. Breytingartillagan verður til sýnis í Ráðhúsinu í Stykkishólmi, Hafnargötu 3, frá og með 28. janúar til 27. febrúar 2003. Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta, er hér með gefinn kostur á að gera athuga- semdir við tillöguna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum er til 13. mars 2003. Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu vera skriflegar og berast í Ráðhúsið í Stykkishólmi, Hafnargötu 3. Hver sá, sem ekki gerir athugasemdir við tillög- una fyrir tilskilinn frest, telst samþykkur henni. Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Stykkishólmi. TIL FASTEIGNAEIGENDA Fasteignamat ríkisins sendir um þessar mundir leiðrétta tilkynningu um nýtt fasteignamat og brunabótamat sem gildir frá og með 31. desember 2002. FASTEIGNAMAT skal endurspegla staðgreiðsluverð fasteignar miðað við verðlag fasteigna í nóvembermánuði 2002. Fasteignamat skiptist í húsmat og lóðarmat. Samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001 ákveður yfirfasteignamatsnefnd í nóvember- mánuði ár hvert framreikningsstuðla fyrir skráð matsverð fasteigna með hliðsjón af breytingu verðlags fasteigna við kaup og sölu frá nóvembermánuði fyrra árs. Skráðu matsverði fasteigna er síðan breytt í fasteignaskrá í samræmi við þá stuðla, sem og breytingu á byggingarkostnaði og afskriftir, sbr. reglugerð nr. 406/1978, og það verð talið fasteignamatsverð frá og með 31. desember til jafnlengdar næsta árs nema sérstakt endurmat komi til. Aðili, sem verulega hagsmuni getur átt í matsverði eignar og sættir sig ekki við skráð mat, getur krafist úrskurðar Fasteignamats ríkisins um matið. Frestur er til 1. apríl 2003 til að óska breytinga á fasteignamati frá 31. desember 2002. Krafa um það skal vera skrifleg og studd rökum og nauðsynlegum gögnum. Kæra má úrskurð Fasteignamats ríkisins til yfirfasteignamatsnefndar. BRUNABÓTAMAT er vátryggingarfjárhæð brunatryggingar og skal það taka til þeirra efnislegu verðmæta húseignar sem eyðilagst geta af eldi og miðast við byggingarkostnað að teknu tilliti til aldurs, slits, viðhalds og ástands eignar að öðru leyti. Brunabótamat breytist mánaðarlega í samræmi við breytingu á byggingarvísitölu. Einnig skal brunabótamati breytt árlega skv. þeim breytingum sem orðið hafa á byggingarkostnaði hinna ýmsu tegunda húseigna næstliðið ár að teknu tilliti til útreiknaðra eða áætlaðra afskrifta vegna sama tímabils, sbr. reglugerð um lögboðna brunatryggingu húseigna nr. 809/2000. Húseiganda er skylt að óska nýs brunabótamats á húseign ef ætla má að verðmæti eignarinnar hafi aukist vegna endurbyggingar eða endurbóta. Hafi athugasemd við endurmat fasteignamats eða brunabótamats 2001 verið gerð sem ekki er afgreidd hvílir það mat á eigninni sem gilti fyrir 15. september 2001 og athugasemdin lýtur að. Hafi áður borist tilkynning um fasteignamat og brunabótamat 31. desember 2002 kemur þessi tilkynning í stað hennar. Á heimasíðu Fasteignamats ríkisins www.fmr.is má fletta eftir heimilisfangi, fastanúmeri eða landnúmeri upp á fasteignamati og brunabótamati fasteigna. UPPBOÐ Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum mánudaginn 3. febrúar 2003 kl. 11.00: Hlíðarvegur 11, Hvolsvelli, þingl. eig. Hótel Hvolsvöllur ehf., gerðar- beiðendur Byggðastofnun og Landsbanki Íslands hf., útibú. Hlíðarvegur 5, Hvolsvelli, þingl. eig. Hótel Hvolsvöllur ehf., gerðar- beiðendur Byggðastofnun og Landsbanki Íslands hf., útibú. Hlíðarvegur 7, Hvolsvelli, þingl. eig. Hótel Hvolsvöllur ehf., gerðar- beiðendur Byggðastofnun, Íbúðalánasjóður og Landsbanki Íslands hf., útibú. Hlíðarvegur 9, Hvolsvelli, þingl. eig. Hótel Hvolsvöllur ehf., gerðar- beiðendur Byggðastofnun, Krappi ehf og Landsbanki Íslands hf., útibú. Sýslumaðurinn á Hvolsvelli, 27. janúar 2003.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.