Morgunblaðið - 28.01.2003, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.01.2003, Blaðsíða 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 18 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Ert þú atvinnulaus? Upplagt að fara inn á fyrirtæki.is Þarft þú að kaupa þér atvinnu? Vilt þú verða sjálfstæðu án þess að eiga það á hættu að fá uppsagnarbréf fyrirvaralaust og eiga sjálfur það sem eftir verður? Þarft þú að selja? Skráðu fyrirtækið hjá okkur, það kostar þig ekkert en það gæti selst. Hafðu samband. Allar upplýsingar í fullum trúnaði. Þannig vinnum við. Erum með úrval fyrirtækja á skrá hjá okkur á hverjum tíma. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. Einar Örn Reynisson, lögg. fasteignasali. ÁKVEÐIÐ hefur verið að koma upp torgi í hjarta Árbæjarhverfis og er gert ráð fyrri að fyrstu framkvæmd- ir við það geti hafist á sumri kom- anda. Íbúar hverfisins verða fengnir til að taka þátt í skipulagsvinnu vegna torgsins. Árbæjartorg, eins og torgið hefur verið nefnt, verður staðsett á svæð- inu milli Árbæjarkirkju, félagsmið- stöðvarinnar Ársels og Árbæjar- skóla. Samkvæmt upplýsingum frá Degi B. Eggertssyni, borgarfulltrúa og formanni Hverfisráðs Árbæjar, er hugmyndin að þaðan verði greið götutengsl við félagssvæði Fylkis og Elliðaárdal í suðurátt og einn meg- inþjónustukjarna hverfisins í norður þar sem meðal annars er að finna pósthús og heilsugæslu Árbæjar. Vinna við skipulag torgsins mun fara fram á yfirstandandi vormisseri og verða íbúar hverfisins og aðrir hagsmunaaðilar fengnir til að koma með hugmyndir um mótun og út- færslu svæðisins. Er gert ráð fyrir að kallað verði á næstunni til fundar með íbúum í Árbæ til að ýta vinnunni úr vör. Um að ræða eitt fyrsta svæð- ið í borginni sem skipulagt yrði á þennan hátt með þátttöku íbúa, skv. upplýsingum Dags. Hann bendir á að samkvæmt fjár- hagsáætlun Reykjavíkurborgar sé gert ráð fyrir að hægt verði að ljúka framkvæmdum við alla þrjá skóla hverfisins ásamt lóðum þeirra á þessu ári. Vonir standi til að hægt verði að nýta hluta fjármagns til frá- gangs á lóð Árbæjarskóla til að hefja framkvæmdir við fyrsta áfanga torgsins í sumar.            !  " #$ % &  .$#7!+ &' (   )  ) *+  + ) *+ , *   ) *+           Nýtt torg í hjarta hverfisins Árbær FÉLAG áhugafólks um hagkvæmar byggingarleiðir í Bessastaðahreppi, Byggingaþróunarfélag Bessastaða- hrepps, var stofnað í gærkvöld á fundi sem haldinn var í hátíðarsal íþrótta- hússins þar. Markmið félagsins er að veita ungu fólki og brottfluttum sveit- ungum tækifæri til að koma sér upp húsnæði innan hreppsins. Að sögn Úlfars Ármannssonar, sem átti sæti í undirbúningsnefnd fyrir stofnun félagsins, er hugmyndin að finna leiðir til hagkvæmra bygg- inga innan sveitarfélagsins. „Á Álfta- nesi er heilmikið af ungu fólki sem vill búa þar áfram og við erum í raun að reyna að skapa möguleika og aðstoða þetta unga fólk til að gera þetta. Sömuleiðis erum við að hugsa til aðila, sem eru fluttir úr hreppnum en vilja koma aftur, og til eldra fólks sem vill minnka við sig.“ Úlfar segir möguleika fyrir ungt fólk til að koma undir sig fótunum á Álftanesi hafa verið af skornum skammti. „Það er mikið um sérbýli á Nesinu og reyndar hafa nokkrar blokkir verið byggðar. Hins vegar þarf meira af fjölbýlishúsum með tveggja og þriggja herbergja íbúðum til að gefa ungu kynslóðinni sem er að alast hér upp betri möguleika á að eignast íbúð og koma sér af stað.“ Ekki kaupleiguíbúðir Hann segir hugmyndina vera þá að nýja félagið verði í formi einhvers konar byggingasamvinnufélags sem stofnað yrði um hverja byggingu fyrir sig. „Þá geta félagsmenn sem ein heild fengið hagkvæmari tilboð í lóðir og ýmsa verkþætti í stað þess að byggingin fari í gegn um sjálfstæðan byggingaverktaka sem skili þessu til- búnu.“ Þá gætu fleiri einstaklingar tekið sig saman um að bjóða í heilu fjölbýlishúsin sem byggingaverktak- ar sæju um að byggja og þannig fá lækkun á verði byggingarinnar í stað- inn. Aðspurður segir Úlfar félagið ekki hafa áhuga á að fá fleiri kaupleigu- íbúðir í hreppinn. „Það er engin eignamyndun í því,“ segir hann. „Það er heldur ekki reiknað með því að fé- lagið sem slíkt verði verktaki eða eignaraðili að þessu heldur verði það einfaldlega leiðbeinandi.“ Félag stofnað um hag- kvæmar byggingarleiðir Bessastaðahreppur HAFNARFJARÐARBÆR hefur sagt upp öllum konum sem starfað hafa á gæsluvöllum bæjarins frá og með 1. maí næstkomandi. Ekki er búið að ákveða hvort og þá með hvaða fyrirkomulagi gæsluvellir bæjarins verða reknir eftir það. Alls eru fimm starfsmenn við vellina og eru fjórir þeirra í 81% stöðum en einn í 50% stöðu. Að sögn Hildar Sigurbjörns- dóttur, daggæslufulltrúa í Hafnar- firði, eru nú tveir gæsluvellir starf- ræktir á vegum bæjarins, annar við Grænukinn en hinn í Háholti. „Völl- urinn á Háholti var opnaður í fyrra en svo kom nýr meirihluti og þá var kannski farið að skoða þetta öðru vísi,“ segir hún og bætir við að þeg- ar mest var hafi vellirnir hins vegar verið sjö. „Börnunum hefur því miður alltaf fækkað meir og meir á gæsluvöllunum eftir því sem þau hafa komist á leikskóla,“ segir Hild- ur og telur lélega nýtingu vallanna líklegustu ástæðuna til að nú sé hugað að lokun þeirra. „Á Akureyri hefur þeim alveg verið lokað og í Garðabæ er þeim lokað á veturna en einn er opinn á sumrin. Þróunin hefur einfaldlega verið þessi eftir því sem leikskólaplássum hefur fjölgað. Þá er eins og þetta hafi lagst smám saman af.“ Rekstur vallanna hefur hingað til verið á höndum Félagsþjónustunn- ar í Hafnarfirði og hefur daggæslu- fulltrúi haft eftirlit með þeim. Hild- ur segir ekki ljóst hvað verður um vellina eftir 1. maí. „Mér skilst að bæjaryfirvöld ætli að prófa eitthvert annað fyrir- komulag á rekstrinum í sumar. Það er þó ekki búið að taka ákvörðun um það hvernig þeir verða reknir en það færist alla vega úr okkar höndum 1. maí.“ Hildur bendir á að í fyrra hafi einn gæsluvöllur verið rekinn af Æskulýðsráði bæjarins þar sem fimm ára börnum var boðið að koma hálfan mánuð í senn. Þannig hafi verið um eins konar nám- skeiðshald að ræða. Morgunblaðið/Kristinn Þeir Haraldur og Benedikt kunnu vel að meta snjóinn í síðustu viku og bjuggu til stóran snjókarl en þeir sækja gæsluvöllinn á Háholti. Þótt hann hafi verið opnaður í fyrra er nú óvíst um framtíðarrekstur hans. Gæsluvallarkonum sagt upp Hafnarfjörður Óvíst með rekstur vallanna í sumar SIGURÐUR Sigurðarson, hesta- maður úr hestaíþróttafélaginu Herði, var kjörinn íþróttamaður Mosfellsbæjar 2002. Kjörinu var lýst á íþróttahátíð sem haldin var í íþróttahúsinu að Varmá á laugardag en þá voru nýir áhorfendabekkir í húsinu einnig vígðir. Þetta er í 11. sinni sem útnefning á íþróttamanni Mosfellsbæjar fer fram. Segir í fréttatilkynningu að á liðnu ári hafi Sigurður náð einhverj- um sínum besta árangri frá upphafi keppnisferils síns. Meðal annars hafi hann unnið til tveggja Íslandsmeist- aratitla á árinu og orðið stigahæsti knapi Íslandsmótsins í meistara- flokki. „Á árinu vann hann samtals 31 gullverðlaun í íþróttagrein sinni ásamt öðrum verðlaunum. Sigurður vann það afrek á árinu að vera með hæstu einkunn í gæðingaskeiði á árinu í B flokki með 9,29 stig.“ Í öðru sæti kjörsins var Magnús Lárusson, golfmaður úr golfklúbbn- um Kili, og í þriðja sæti var Sigurjón Jóhannsson, badmintonmaður úr Aftureldingu. Einnig var veitt við- urkenning fyrir frábær störf að skátamálum en hana hlaut Ævar Að- alsteinsson úr skátafélaginu Mos- verjum. Sigurður íþróttamaður ársins Nýir áhorfenda- bekkir vígðir Mosfellsbær Sigurjón Jóhannsson, badmintonmaður úr Aftureldingu, Sigurður Sigurð- arson, íþróttamaður ársins í Mosfellsbæ, og Lárus Halldórsson, faðir Magnúsar Lárussonar úr golfklúbbnum Kili, hampa verðlaunagripum. HÓPUR 14 ára nemenda í Garða- skóla í Garðabæ tekur þátt í for- varnanámskeiði sem er hluti af rann- sóknarverkefninu Hugur og heilsa og hefst á næstu vikum. Markmiðið er að finna árangursríka aðferð til að koma í veg fyrir þunglyndi síðar á lífsleiðinni. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Garðabæjar. Könnun var lögð fyrir nemendur 9. bekkja í Garðaskóla síðastliðið haust þar sem reynt var að meta hvaða nemendur gætu haft gagn af að sækja forvarnanámskeiðið. „Í framhaldi af því var hópi nemenda boðin þátttaka í námskeiðinu,“ segir í fréttinni. „Vonast er til að nám- skeiðið geri unglingana hæfari til að takast á við vandamál daglegs lífs og gagnist þeim almennt í lífinu. Hóp- urinn mun hittast 15 sinnum á 12 vikum undir leiðsögn Brynjólfs G. Brynjólfssonar, sálfræðings á Skóla- skrifstofu Garðabæjar. Brynjólfur segir að námskeiðið geti gagnast nemendum sem sýna einhver ein- kenni depurðar eða leiða og mark- miðið sé að þeir standi sterkari á eft- ir.“ Námskeiðið er skipulagt með for- varnir að leiðarljósi og sjónum beint að viðbrögðum ungmenna við þeim vandamálum sem þau kljást við í daglegu lífi. Talið er að um helmingur ung- menna sem sýna mörg einkenni þunglyndis á aldrinum 14–15 ára finni fyrir alvarlegu þunglyndi fyrir tvítugt. Rannsóknin beinist að því að meta árangur námskeiðsins þegar til lengri tíma er litið, segir í fréttinni á heimasíðu Garðabæjar. Forvarnanámskeið fyrir 14 ára unglinga Garðabær
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.