Morgunblaðið - 28.01.2003, Side 7

Morgunblaðið - 28.01.2003, Side 7
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 7 Verð 2.990 kr. ensk-íslensk / íslensk-ensk Sjálfsagður hluti af ís lenskum hugbúnaði SKÓLAORÐABÓK TÖLVUORÐABÆKUR ENSK-ÍSLENSK / ÍSLENSK-ENSK DÖNSK-ÍSLENSK FRÖNSK-ÍSLENSK Ný og þróuð orðabók – Sérhönnuð fyrir námsfólk Flettu upp í öflugri ensk-íslenskri og íslensk-enskri orðabók Glósaðu Skoðaðu beygingar orða Æfðu óreglulegar enskar sagnir Leitaðu í leitarvélum, alfræðibókum og orðabókum á vefnum Hugbúnaður fyrir Windows stýrikerfi • • • • • • ÍSLENSK ORÐABÓK Fáanleg bæði fyrir PC og MAC Verð frá 5.980 kr. Verð 7.990 kr. w w w . e d d a . i s NÝ BREYTTIR jeppar eiga í minna mæli þátt í umferðarslysum en óbreyttir jeppar af sömu gerðum. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem ORION Ráðgjöf gerði á slysatíðni breyttra jeppa, en fyrirtækið fékk styrk frá Rannsóknarráði umferð- aröryggismála til rannsóknarinnar. Markmið verkefnisins er að kanna hvort munur sé á slysatíðni breyttra og óbreyttra jeppa, hvort munur sé á notkun jeppa í þessum tveimur hópum og hvort munur er á bakgrunni umráðamanna þessara bifreiða. Þá var einnig kannað hvort munur sé á tilhneigingu ökumanna breyttra og óbreyttra jeppa til áhættuhegðunar í umferðinni. Úrtak 3.385 óbreyttra og breyttra jeppa af þremur algengum gerðum (Toyota Land Cruiser, Nissan Patr- ol og Isuzu Trooper), sem nýskráðir voru á árunum 1991–2000, var feng- ið úr ökutækjaskrá. Þá voru fengn- ar upplýsingar um skráð slys og óhöpp sem bifreiðar í úrtakinu lentu í á sama árabili. Könnun var gerð meðal úrtaks um 1.400 umráða- manna breyttra og óbreyttra jeppa. Með henni fengust upplýsingar um áætlaða árlega akstursvegalengd jeppanna, notkunarmynstur þeirra og áhættutilhneigingu ökumanna. Í tilkynningu frá ORION Ráðgjöf segir, að helsta niðurstaðan sem fengist hafi í þessum áfanga sé sú að slysatíðni breyttra jeppa sé marktækt lægri en fyrir óbreytta jeppa af sömu gerðum en ekki hafi fundist marktækur munur á áætl- aðri árlegri akstursvegalengd milli hópanna. Breyttir jeppar voru 21% af úrtakinu en hlutfall þeirra í slys- um og óhöppum samkvæmt lög- regluskýrslum var 9%. Þetta jafn- gildi því að slysatíðni breyttra jeppa í úrtakinu sé 7% en slysatíðni óbreyttra jeppa er 19%. Slys með breyttum jeppum urðu innan þétt- býlis í 82% tilfella en 72% slysa með óbreyttum jeppum urðu innan þétt- býlis. Slysatíðni breyttra jeppa minni en óbreyttra LAUFEY Jóhannsdóttir, fram- kvæmdastjóri Plúsferða, gerir at- hugasemd við þau ummæli Andra Más Ingólfssonar, framkvæmda- stjóra Heimsferða, í blaðinu í gær, að fyrirtæki hans bjóði lægsta verð á ferðum til Alicante. Segir Laufey að verð Plúsferða sé 23.630 kr. fyrir manninn í ferð í apríl en 29.630 kr. fyrir fimm ferðir í maí til sept- ember. Í frétt um ferðir Heimsferða til Alicante kemur fram að flugmiðinn kosti 29.950. Boðinn sé afsláttur sé greitt með VR- eða Mastercard ávísunum. Laufey segir Plúsferðir bjóða lægra verð, þ.e. 23.630 og 29.630 fyrir alla, það séu ekki sér- kjör fyrir ákveðna hópa eða gegn ákveðnum afsláttarávísunum. Hún segir Plúsferðir hafa í fimm ár boð- ið sumarferðir til Alicante. Segir Plús- ferðir bjóða lægri fargjöld LÖGREGLAN í Kópavogi rann- sakar nú þjófnaði á varahlutum úr Toyota Corolla-bifreiðum, en nokkuð hefur borið á því undanfar- ið að gengið sé á bifreiðar af þess- ari tegund og hlutir rifnir af þeim. Á síðustu þremur vikum hefur m.a. verið stolið tveimur vélarhlíf- um, hliðarspeglum, rafmagnsrúðu- upphölurum og nú síðast um helgina var stolið stefnuljóskerum. Segir lögreglan að svo virðist sem einhver óprúttinn sé að verða sér úti um varahluti með þessum hætti. Þjófar leggjast á Toyota-bíla ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ GRÍÐARLEG hálka hefur verið í Strandasýslu síðustu daga og nokk- ur umferðaróhöpp orðið af þeim sökum. Á Hólmavík er varla stætt á götum að sögn lögreglu. Snemma í gærmorgun valt vöru- bíll Vegagerðarinnar sem var not- aður við að bera sand á veginn um Smáhamraháls. Mikil hálka var á veginum og rann bíllinn stjórnlaust þar til hann valt niður brattan veg- kant. Bíllinn fór eina veltu og skemmdist mikið. Ökumaður hans, karlmaður um þrítugt, kvartaði undan eymslum í höfði og hálsi og var hann fluttur á heilsugæslustöð- ina á Hólmavík. Þykir hann hafa sloppið vel frá óhappinu. Vegagerð- in fékk annan bíl til að sinna sand- burðinum. Seint á sunnudagskvöld valt bifreið út af við Borgarháls. Ökumaður og þrír farþegar sluppu ómeiddir. Sandburðar- bíllinn valt vegna hálku ♦ ♦ ♦ LÝSTAR kröfur í þrotabú fasteigna- sölunnar Holts, sem tekið var til gjaldþrotaskipta 31. október sl. í kjölfar tugmilljóna kr. fjársvika eig- anda hennar, eru alls rúmlega 114 milljónir króna. Þar af hefur 95 millj- ónum króna verið lýst sem almenn- um og eftirstæðum kröfum og 19 milljónum sem forgangskröfum. Af- staða skiptastjóra og kröfuhafa til krafnanna mun liggja fyrir eftir skiptafundi sem haldinn verður 11. febrúar. Þrotabú fasteigna- sölunnar Holts Almennar kröfur 114 milljónir kr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.