Morgunblaðið - 28.01.2003, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 9
VERKEFNISSTJÓRNUN skiptir stöðugt meira
máli á heilbrigðisstofnunum, hjá fyrirtækjum á
sviði heilbrigðistækni, lífvísinda og líftækni og
innan rannsóknageirans.
Þetta kom fram á námstefnu Verkefnastjórn-
unarfélags Íslands (VSF) um verkefnastjórnun í
heilbrigðis- og lífvísindum, sem fór fram fyrir
helgi.
Hildur Hrólfsdóttir, formaður VSF, segir að
markmiðið með ráðstefnunni hafi meðal annars
verið að opna umræðuna um með hvaða hætti að-
ferðir verkefnastjórnunar gætu gert þjónustuna
og starfið skilvirkara og betra. Hvar hentugast
væri að beita þessari aðferð, hvar hún væri notuð
og hvað mætti af henni læra. „Námstefnan heppn-
aðist mjög vel og við fengum góð viðbrögð,“ segir
hún, en Delta hf. og Rannís voru styrktaraðilar
námstefnunnar.
Verkefnastjórnun er m.a. notuð við undirbúning
verkefna, áætlanagerð, hópstjórnun, eftirlit fram-
kvæmda og árangursmat. Frummælendur lýstu
stöðu verkefnastjórnunar á sínu starfssviði og
kynntar voru sívaxandi kröfur ýmissa fjármögn-
unaraðila eins og Rannís til faglegrar verkefna-
stjórnunar auk þess sem greint var frá dæmum
um árangursríka notkun verkefnastjórnunar.
Þórunn Rafnar, forstöðumaður krabbameins-
rannsókna hjá Urði, Verðandi, Skuld og hjá fag-
ráði Rannís, benti á hvað þessi vinnubrögð væru
mikilvægur hluti af kröfum fjármögnunaraðila og
þau gerðu gjarnan útslagið hverjir fengju styrki
og hverjir ekki. „Evrópubandalagið leggur til
dæmis æ meiri áherslu á þennan þátt í sambandi
við styrkveitingar,“ segir Hildur. „Það er ekki nóg
að vera með góðar hugmyndir eða vera góður vís-
indamaður heldur skiptir stjórnunin miklu máli.“
Hilmar Janusson, þróunarstjóri Össurar hf.,
gerði grein fyrir hvernig verkefnastjórnun væri
markvisst beitt hjá fyrirtækinu, hverjir kæmu að
málum og hverjir væru ábyrgir. „Þetta var mjög
áhugavert og lærdómsríkt,“ segir Hildur.
Auk þess fluttu erindi Guðrún Högnadóttir,
ráðgjafi hjá IMG Deloitte, Þórólfur Guðnason,
yfirlæknir sóttvarna hjá Landlæknisembættinu,
Lilja Þorsteinsdóttir frá þróunarskrifstofu hjúkr-
unarforstjóra og hugbúnaðardeild LSH og Guðjón
Birgisson, skurðlæknir á LSH, en Thomas Möller,
aðstoðarforstjóri Lífs hf., var fundarstjóri.
Námstefna um verkefnastjórnun í heilbrigðis- og lífvísindum
Bættur árangur með mark-
vissari verkefnastjórnun
VINNUEFTIRLIT ríkisins hefur
sent Búnaðarbanka Íslands bréf
með fyrirmælum um að vinnutími
vaktmanna verði skipulagður á þann
hátt að þeir njóti lágmarkshvíldar og
fái þá frídaga sem kveðið er á um í
vinnuverndarlögum. Vinnueftirlitið
fór yfir vinnutíma vaktmanna bank-
ans á þriggja mánaða tímabili og
reyndust tveir þeirra ekki hafa feng-
ið lögskilinn hvíldartíma og lág-
marksfrídaga. Beiðni um að farið
yrði yfir vinnutíma vaktmanna bank-
ans barst Vinnueftirlitinu frá einum
vaktmannanna.
Bankinn tekur tillit til
athugasemdanna
„Búnaðarbankinn tók vel við öll-
um þessum ábendingum og ég er
sannfærður um að bankinn gætir
þess í framtíðinni að farið verði að
öllum þessum reglum. Við höfum
rætt við stjórnendur bankans og full-
trúa starfsmannafélagsins og erum
þess fullvissir að vel verði að þessu
staðið í framtíðinni,“ segir Steinar
Harðarson, umdæmisstjóri hjá
Vinnueftirliti ríkisins.
Aðspurður segir Steinar að ekki
verði gripið til frekari aðgerða. Þetta
sé í fyrsta sinn sem Vinnueftirlitið
fari fram á það við bankann að hann
breyti vinnufyrirkomulagi. Aðeins sé
gripið til frekari aðgerða þegar lög-
brotin varði líf og heilsu manna.
Búnaðarbankinn braut
vinnuverndarlög
BJÖRGVIN Mýrdal
matreiðslumeistari
keppir í dag í keppn-
inni Bocus d’or sem
er heimsmeist-
arakeppni mat-
reiðslumeistara sem
fram fer í Lyon í
Frakklandi. Björgvin
matreiðir þar fransk-
ar nautalundir og
norska sjóbleikju.
Björgvin hefur fimm
klukkustundir til að
laga mat fyrir 12
manns. Hann þarf svo
að halda matnum
heitum meðan mynda-
taka fer fram og þar
til skammtað er af
silfurfötum fyrir
framan dómarana.
Klúbbur mat-
reiðslumeistara
stendur fyrir því að
senda Björgvin á mót-
ið ásamt styrktarað-
ilum. Gissur Há-
konarson, formaður
klúbbsins, vonast til
að Björgvin verði
meðal 10 efstu
manna. „Hann er
mjög fær. Hann er búinn að æfa sig
mikið. Allar æfingar hafa heppnast
gífurlega vel. Miðað við það sem ég
hef smakkað hjá honum er ég með
mjög góðar væntingar.“ Björgvin
hefur alfarið einbeitt sér að æfing-
um síðastliðna sex mánuði enda
styrktur af Klúbbi matreiðslu-
meistara.
Alls keppa 24 þjóðir á mótinu,
helmingur í dag og helmingur á
morgun. Um 40 þjóðir sóttu um
þátttöku á mótinu en aðeins 24
fengu inngöngu. Ísland tók fyrst
þátt í keppninni árið 1999 og hafn-
aði þá í 5. sæti. Ísland náði svo 3.
sæti 2001 en góður árangur und-
anfarinna ára veldur því að Ísland
fær þátttökurétt í ár.
Mikil sýning er í kringum keppn-
ina og verður Ísland meðal annars
með kynningarbás fyrir íslenskan
fisk. Um 700 fjölmiðlamenn ásamt
þúsundum annarra fylgjast með
keppninni frá öllum heimshornum.
Frá Íslandi eru um 30 manns í
Lyon og þar á meðal er Árni
Mathiesen sjávarútvegsráðherra.
Heimsmeistarakeppni
matreiðslumeistara
Sex mánuði að und-
irbúa keppnina
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Björgvin Mýrdal er hér við æfingar fyrir heims-
meistarakeppni matreiðslumeistara.
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
Stórútsala
20% aukaafsláttur
Matseðill
www.graennkostur.is
21/01-27/01 frá GRÆNUM KOSTI, Skólavörðustíg 8.
Opið mánudaga-laugardaga kl. 11.30-21.00,
sunnudaga kl. 13.00-21.00. Pantanir í síma
552 2028, skrifstofa 552 2607, fax 552 2607.
Þri 28/1: Suðurindverskur pottréttur &
nanbrauð m/fersku salti,
hrísgrjónum & meðlæti.
Mið 29/1: Marokkóskar kræsingar
m/fersku salti, hrísgrjónum
& meðlæti.
Fim 30/1: Mexíkóskur pottur &
pönnukökur m/fersku salti,
hrísgrjónum & meðlæti.
Fös 31/1: Fylltar papríkur & meðlæti í stíl
m/fersku salti, hrísgrjónum &
meðlæti.
Helgin 1/2 og 2/2: Indverskar kræsingar.
Mán 3/2: Asískur matseðill nýtt
& spennandi.
Bankastræti 14, sími 552 1555
Ný sending af gallabuxum frá
Ný peysusending frá SkovhuusÚ
T
S
A
L
A
15%
aukaafsláttur
af öllum
útsöluvörum
Stærðir 36–54 (S-3XL)
Opið virka daga frá kl. 10-18,
og laugardaga kl. 10-14
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230
Opið mán.-fös. kl. 10-18.
Laugardag 10-14
Ný sending
Allur fatnaður þessa viku ÷50%
Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, s. 553 2347
sérverslun. Sérhönnun st. 42-56
Fataprýði
Útsölulok
undirfataverslun
Síðumúla 3-5, s. 553 7355
Opið virka daga kl. 11-18 • laugardag kl. 11-15
Útsala
Verðsprengja
Aðeins 5 verð á útsölunni
Kr. 990, 1490, 1990, 2490 og 2990
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—15