Morgunblaðið - 28.01.2003, Side 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 11
ALÞJÓÐLEGIR vindar í viðskiptum með
landbúnaðarafurðir blása nú allir í eina átt og
kannski kröftugar en menn bjuggust við:
draga verður úr tollahindrunum og stuðningi
við landbúnað og leyfa markaðslögmálunum
að ráða meira ferðinni. Ríki sem eiga aðild að
Heimsviðskiptastofnuninni (WTO), þar með
taldir Íslendingar, eiga að leggja fram samn-
ingstillögur sínar í síðasta lagi 31. mars næst-
komandi. Evrópusambandið er reiðubúið að
liðka fyrir viðskiptum með landbúnaðarafurð-
ir þótt þar vilji menn alls ekki ganga eins
langt og t.d. Bandaríkjamenn. Forystumenn
norskra bænda telja að með tillögum Evrópu-
sambandsins sé gefið allt of mikið eftir; verði
tillögurnar að veruleika muni það bjóða heim
miklum erfiðleikum fyrir norskan landbúnað.
Spurður um þetta atriði segir Sigurgeir
Þorgeirsson, framkvæmdastjóri Bændasam-
takanna: „Það segir sig sjálft að það verður
þá heldur ekki auðvelt fyrir íslenska bændur.
Það er svipuð staða hér og í Noregi að því er
varðar styrkjahlutfall, tollvernd o.s.frv.“
Þau ríki sem flytja mest út af landbún-
aðarvörum hafa þegar mótað tillögur sínar
sem þykja róttækar svo ekki sé meira sagt.
Bandaríkjamenn hafa til að mynda lagt fram
tillgögur sem munu fela í sér allt að 90%
minnkun á markaðstruflandi stuðningi. Evr-
ópusambandið vill ganga mun skemur en hef-
ur þó lýst sig reiðubúið til þess að skera
markaðstruflandi stuðning niður um 55% sem
fæli m.a. í sér 45% lækkun á útflutnings-
bótum, 35% meðaltalslækkun tolla og ekki
minni en 15% lækkun á einstaka vöruflokka.
Í sem grófustu dráttum má segja að vænt-
anlega verði tekist á um þetta í næstu samn-
ingalotu WTO; það fæli þá óhjákvæmlega í
sér að ekki yrði gengið skemur en gert er ráð
fyrir í tillögum ESB. Þess ber þó að geta að
Frakkar munu hafa ekki lagt blessun sína yf-
ir þessar tillögur og því er ekki um fullmót-
aðar tillögur af hálfu ESB að ræða.
Fastlega má búast við að tollar á landbún-
aðarfurðir lækki og eins bendir allt til þess að
niðurstaða nýrrar samningalotu um viðskipti
með landbúnaðarafurðir á vegum Heimsvið-
skiptastofnunarinnar takmarki möguleika ís-
lenskra stjórnvalda til þess að styrkja bænd-
ur með beingreiðslum eins og nú er.
Möguleikar á formbreytingu
stuðnings við landbúnaðinn
Pólitískur vilji mun hins vegar væntanlega
ráða því hvort stjórnvöld hér á landi muni
reyna að halda uppi óbreyttum stuðningi við
landbúnaðinn og þá væntanlega í öðru formi
eða nota tækifærið til þess að draga verulega
úr honum.
Þannig má nefna að Evrópusambandið
hyggst draga úr útflutningsstyrkjum og taka
í ríkara mæli upp tekju- og þróunarstyrki við
landbúnaðarsvæði.
Eins og gefur að skilja vega sjónarmið Ís-
lendinga ekki þungt í samningum sem þess-
um. Það liggur hins vegar fyrir að Evrópu-
sambandið er reiðubúið að draga úr og
umbreyta stuðningi við landbúnað. Það mun
síðan aftur hafa bein áhrif á stuðning við ís-
lenskan landbúnað. Í Noregi eru menn sem
fyrr segir þegar farnir að velta fyrir sér
áhrifum samninganna á norskan landbúnað
þótt þær breytingar komi væntanlega ekki til
framkvæmda fyrr en árið 2006 og næstu
fimm til sjö árin þar á eftir.
Einna einfaldasta form
stuðnings á Íslandi
Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdastjóri
Bændasamtakanna, segir að menn hafi reynt
að fylgjast grannt með þróun þessara mála.
Aðspurður hvort Íslendingar verði ekki
einfaldlega að láta það yfir sig ganga sem
stærri ríkjaheildirnar ákveði segir Sigurgeir
það nokkuð ljóst. „Ég skal ekki fullyrða um
það þegar kemur að frágangi samninga hvort
einstök ríki kunni að geta náð fram ein-
hverjum sérákvæðum á afmörkuðum sviðum.
En í öllum meginatriðum reikna ég með að
það sem blokkirnar ákveða verði yfir alla að
ganga.“
Spurður um möguleika Íslendinga að
styðja við landbúnað með öðrum hætti en nú
er gert segir Sigurgeir að það sé ljóst að
menn muni velta fyrir sér að breyta formi
styrkja ef svo fari að framleiðslutengdi stuðn-
ingurinn gangi ekki upp og þrýstingur verði á
slíkt. Evrópusambandið hafi í ríkum mæli
verið að gera það og hafi sett stefnuna á að
koma öllum greiðslum í einhvern slíkan bún-
ing. „Við erum hins vegar með einna einfald-
asta fyrirkomulag á stuðningi við landbún-
aðinn sem þekkist hér í nágrenni okkar.“
Bandaríkin og ESB ræða um tillögur sem gera ráð fyrir verulegri minnkun á stuðningi við landbúnað
Hefur mikil
áhrif á land-
búnað á Íslandi
Gert er ráð fyrir að á vettvangi
Heimsviðskiptastofnunarinnar
(WTO) verði samið um að
draga mjög úr stuðningi við
landbúnað. Arnór Gísli
Ólafsson segir áhrifin hér
á landi geta orðið mikil.
TÆPLEGA 95 milljarðar króna
voru innheimtir í staðgreiðsluskatt
fyrstu ellefu mánuði síðasta árs, sem
er um 6,5 milljörðum krónum meira
en fyrstu ellefu mánuði ársins 2001.
Þetta kemur fram á vef ríkisskatt-
stjóra. Tölur um innheimta stað-
greiðslu í desember sl. liggja enn
ekki fyrir, en í desember árið 2001
nam staðgreiðsla skatta rúmum 11
milljörðum króna. Staðgreiðsla
skatta á árinu 2001 nam samtals
rúmum 99 milljörðum króna og mið-
að við sambærileg staðgreiðsluskil í
desember síðastliðnum má gera ráð
fyrir að innheimtur skattur í stað-
greiðslu í fyrra geti numið um 106
milljörðum króna samtals.
Greitt af 413 milljörðum
Bæði er um að ræða tekjuskatt
sem rennur í ríkissjóð og útsvar sem
rennur til sveitarfélaganna. Fram
kemur að staðgreiðsluskyld upphæð
sem greitt er af nam tæpum 413
milljörðum króna fyrstu ellefu mán-
uði liðins árs, en sambærileg upp-
hæð fyrstu ellefu mánuði ársins 2001
nam 386 milljörðum króna. Hækk-
unin er tæpir 27 milljarðar króna,
sem er nær 7% hækkun milli ára.
Að hluta til má rekja skýringuna á
þessari hækkun til samningsbund-
innar launahækkunar í upphafi liðins
árs, en að einhverju leyti er einnig
um auknar skatttekjur vegna launa-
skriðs að ræða. Fleira skiptir einnig
máli svo sem breytingar á fjölda
framteljenda, atvinnuþátttaka og
fleira. Hærra staðgreiðsluhlutfalli er
ekki til að dreifa þar sem það var
lægra á síðasta ári en árið á undan.
Staðgreiðsluskattur fyrstu ellefu mánuði ársins 2002
6,5 milljörðum meira
en árið á undan
TVÖ biðskýli við Réttarholtsskóla
voru stórskemmd um helgina og er
annað skýlið gjörónýtt. Að sögn
lögreglu, sem fékk tilkynningu um
skemmdirnar á laugardag, er talið
að heimatilbúin rörasprengja hafi
valdið óskundanum. Var krafturinn
í sprengjunni það mikill að íbúðir í
nærliggjandi húsum nötruðu. Gler
voru brotin í öðru skýlinu en skýlið
handan götunnar fékk verri útreið
og flettist þakið af því við spreng-
inguna auk þess sem allar rúður
brotnuðu. Þeyttust glerbrotin yfir
stórt svæði. Tjónið nemur rúmlega
milljón króna.
Starfsmenn fyrirtækisins AFA
JCDecaux á Íslandi, sem á skýlin,
unnu við það í gær að fjarlægja
skýlin. Hans Kaalund, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, segir
að skýlin verði tekin niður og önnur
muni ekki koma í þeirra stað, í það
minnsta ekki á næstunni, þar sem
skemmdir á þeim eru endurtekið
unnar. Hann segir að góð reynsla sé
af því hjá fyrirtækinu að taka skýli
niður tímabundið og koma þeim svo
fyrir aftur. „Þetta er auðvitað óvið-
unandi þar sem tjónið er mjög mik-
ið,“ sagði Hans við Morgunblaðið í
gær. „Hvert skýli kostar um eina
milljón króna.“
Morgunblaðið/Golli
Rúmlega milljón króna tjón á biðskýlum
MIKIÐ og gott orð fer nú
af Íslandi í hinu alþjóð-
lega klifursamfélagi og
sækjast erlendir ísklifr-
arar eftir því að koma
hingað til lands og reyna
sig í ísleiðum sem eru á
heimsmælikvarða. Um-
hleypingasöm veðrátta
hérlendis er talin eiga
sinn þátt í að skapa góðar
ísklifurleiðir og hafa er-
lend fagtímarit séð
ástæðu til að fjalla um ís-
klifur á hérlendis á síðum
sínum. Hefur umfjöllunin
skilað sér í tíðari fyrir-
spurnum frá erlendum
klifrurum. Að sögn Helga Borg Jó-
hannssonar, ritstjóra isalp.is, heima-
síðu Íslenska alpaklúbbsins, er nauð-
synlegt að fylgja eftir því orðspori
sem fer nú af landinu og laða fjalla-
garpana til landsins á veturna. „Al-
gengasta spurningin frá erlendum
klifrurum er hvort til sé leiðarvísir á
ensku yfir ísklifurleiðir á landinu,“
segir hann.
Augljósir hagsmunir fyrir
ferðaþjónustuna
„Því miður er enginn slíkur leið-
arvísir til og það held ég að sé veiga-
mesta atriðið sem stendur í veginum
fyrir uppbyggingu á ferðaþjónustu í
fjallamennsku hérlendis. Tímabilið
sem hér um ræðir, janúar–apríl, er
dauður tími í ferðamennsku og það
væri rakið að nýta hann betur, gefa
út leiðarvísi og fá fjallamennina til að
koma hingað, enda eru hagsmunirnir
fyrir ferðaþjónustuna augljósir. Við
höfum reynt að koma þessari hug-
mynd á framfæri við ferðamálayfir-
völd við fremur dræmar undirtektir
en það er enginn opinber aðili sem
getur styrkt útgáfu á klifurleiðarvísi
fyrir útlendinga.“
Meðal þeirra klifrara sem klifrað
hafa hérlendis á undanförnum árum
eru Jeff Lowe, Will Gadd og Guy
Lacelle, allt heimsþekktir klifrarar.
Nú í febrúar er von á einum fremsta
ísklifrara heims, Robert Jasper frá
Þýskalandi. Hann er atvinnuklifrari
og fjallaleiðsögumaður sem þekktur
er fyrir að klifra erfiðustu ísklifur-
leiðir heims. Hefur hann þekkst boð
ÍSALP um að koma á árlega ísklif-
urhátíð klúbbsins 21. til 23. febrúar.
Ísklifurhátíðin verður haldin í
Köldukinn í S-Þingeyjarsýslu með
Haukadal í Dalasýslu til vara ef veð-
ur spillist fyrir norðan. Á báðum
stöðum eru kjöraðstæður til klifurs.
Ritstjóri isalp.is segir nauðsynlegt að fylgja
eftir orðspori Íslands sem paradís ísklifrara
Þörf á útgáfu
leiðarvísis fyrir
erlenda klifrara
Aðstæður til ísklifurs hérlendis þykja með því
besta sem þekkist í heiminum. Myndin var tek-
in í Íslandsheimsókn klifurtímaritsins Rock and
Ice fyrir nokkrum árum.
FRAMLEIÐSLA á sushi er
hafin að nýju í verksmiðjunni
Sindrabergi á Ísafirði eftir
tæplega tveggja mánaða hlé.
Um 20 manns vinna hjá fyrir-
tækinu sem framleiðir um 30
tegundir af sushi fyrir verslanir
og veitingahús, aðallega í
Þýskalandi og Bretlandi. „Við
tókum okkur langt jólafrí,“ seg-
ir Elías Jónatansson fram-
kvæmdastjóri, „en Þýskalands-
markaðurinn hefur verið
erfiður síðasta árið, en horfun-
ar eru miklu bjartari núna eftir
áramótin.“
Sushi aftur
framleitt
á Ísafirði