Morgunblaðið - 28.01.2003, Page 12
LYFJAVERÐSNEFND hefur fylgt
þeirri vinnureglu um árabil þegar
hámarksverð lyfja í heildsölu og
smásölu er ákveðið að heimila allt að
15% hærra verð en nemur meðal-
verði lyfja í nágrannalöndunum.
Forsvarsmenn Landspítala – há-
skólasjúkrahúss hafa gagnrýnt
þessa reglu og bent á að erfitt sé að
finna haldbær rök fyrir því að lyf séu
15% dýrari hér en á öðrum Norð-
urlöndum. Nauðsynlegt sé að endur-
skoða þetta fyrirkomulag.
Að sögn Halldórs Árnasonar, for-
manns lyfjaverðsnefndar, var fyrir
allmörgum árum gerð samanburðar-
athugun á því hvað verðið þyrfti að
vera hærra hér á landi en í þessum
nágrannalöndum til að standa undir
ýmsum kostnaði s.s. vegna flutninga
til landsins o.fl. ,,Niðurstaða þessar-
ar athugunar var sú að þetta væri
um 15%. Síðan hún var gerð hefur
verið þegjandi samkomulag á milli
aðila um að þetta sé sú viðmiðun sem
megi nota og innflytjendur hafa ver-
ið sáttir við þessa viðmiðun,“ segir
Halldór.
Skoða þarf kostnað
sjúkrahúsa sérstaklega
Að sögn hans er hér aðallega um
að ræða flutningskostnað og kostnað
við merkingar umbúða og þýðingu
leiðbeininga yfir á íslensku, sem
skylt er skv. lögum. „Við þurfum að
þýða leiðbeiningar umfram það sem
aðrar þjóðir þurfa að gera og síðan
þarf að umpakka þessu öllu. Þetta er
heilmikill kostnaður,“ segir hann.
Aðspurður segir Halldór að vel
geti verið að endurskoða þurfi þessa
reglu gagnvart sjúkrahúsunum, en
hann kvaðst þó ekki hafa upplýsing-
ar um hvort sá kostnaður sem heild-
salinn ber vegna innflutnings
lyfjanna sé minni gagnvart sjúkra-
húsunum en gagnvart apótekum.
Formaður lyfjaverðsnefndar segir að umdeild 15% regla
við ákvörðun lyfjaverðs byggist á samanburðarathugun
Þegjandi samkomulag
um þessa viðmiðun
FRÉTTIR
12 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Ekki hefði verið víst hvort það
ætti að leggja hann niður, selja
hann, gefa hann eða gera hann að
háskóla.
Nú, þegar skólinn væri orðinn
háskóli, gætu nemendur útskrifast
TÆPLEGA 190 nemendur útskrif-
uðust á laugardag úr Tæknihá-
skóla Íslands. Þetta er í fyrsta
sinn sem skólinn útskrifar nem-
endur frá því honum var breytt í
háskóla sl. sumar.
Tómas Ingi Olrich mennta-
málaráðherra ávarpaði nemendur
við útskriftina og Sturla Böðvars-
son samgönguráðherra afhenti
námsstyrk, en Sturla stundaði á
sínum tíma nám við Tækniskól-
ann.
„Nú er langþráðu marki náð.
Þetta var feikilega skemmtilegur
dagur,“ sagði Stefanía Katrín
Karlsdóttir rektor. Hún sagði
jafnframt að skólinn hefði verið í
nokkurri biðstöðu undanfarin ár.
með BSc-gráðu eða diplómagráðu.
Að sögn Stefaníu bætir þetta veru-
lega stöðu þeirra nemenda sem
leita til útlanda í frekara nám.
„Nú horfum við fram á veginn
og viljum gera þetta að öflugum
háskóla atvinnulífsins,“ sagði Stef-
anía. Á Íslandi eru nú átta háskól-
ar sem telst frekar mikið miðað
við höfðatölu. „Við verðum að
vera dugleg að marka okkur sér-
stöðu. Við stöndum frammi fyrir
mikilli samkeppni og okkar sér-
staða er sú að við erum atvinnu-
lífstengd, með praktískar lausnir
og hagnýtar rannsóknir.“
Frosti fékk styrk
Frosti Gíslason, sem útskrifaðist
frá iðnvörumarkaðssviði með BSc-
gráðu, fékk styrk úr Námssjóði
sameinaðra verktaka. Styrkurinn
nýtist til frekara náms og fékk
Frosti hann fyrir afburðanáms-
árangur.
Útskrifaði
háskólanema
í fyrsta sinn
Frosti Gíslason tók við styrk til framhaldsnáms úr hendi Sturlu
Böðvarssonar sem er formaður Námssjóðs sameinaðra verktaka.
Morgunblaðið/Ómar
187 nemendur útskrifuðust sl. laugardag frá Tækniháskóla Íslands.
Fingrafar
og blóð-
dropi
fundust á
vettvangi
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær rúmlega tvítugan karl-
mann í 18 mánaða óskilorðsbundið
fangelsi fyrir átta innbrot, þar af tvö
í Háskóla Íslands en í þeim innbrot-
um stal hann varningi að verðmæti
um 2,5 milljónir króna.
Brotin framdi maðurinn á um
þriggja mánaða tímabili, frá síðari
hluta júní til september sl. Hann ját-
aði á sig helming innbrotanna en
neitaði öðrum. Dómarinn taldi frá-
sagnir hans hins vegar ótrúverðug-
ar. Sönnunargögnin gegn manninum
voru enda talsverð. Í húsi við Loga-
fold sem brotist var inn í fannst
fingrafar mannsins á gluggakarmi
og í Odda, húsi HÍ við Sæmundar-
götu, fannst blóðdropi á prentara og
var skorið úr því með DNA-rann-
sókn að þau væru úr manninum.
Með hluta af þessum innbrotum
rauf maðurinn skilorð eldri dóma.
Pétri Guðgeirssyni héraðsdómara
þótti því 18 mánaða refsing hæfileg.
Ekki kom til greina að skilorðsbinda
hana en frá dregst 86 daga gæslu-
varðahaldsvist.
Jón Höskuldsson hdl. var til varn-
ar og Dagmar Arnardóttir, fulltrúi
lögreglustjórans í Reykjavík, sótti
málið.
REGLUM um innflutning ferða-
manna á matvöru hefur ekki verið
breytt um langa hríð en í tengslum
við sjúkdóma sem komu upp í Evr-
ópu var ákveðið að skerpa eftirlitið
hér á landi.
Þetta segir Halldór Runólfsson,
yfirdýralæknir, en tekur fram að
embætti yfirdýralæknis hafi ekki
haft frumkvæði að því að ákveðið
var að taka að sekta ferðamenn fyr-
ir ólögmætan innflutning á kjöti og
ostum enda heyri ákvarðanir um
slíkt ekki undir embættið.
Eftirlitið skerpt vegna
gin- og klaufaveikinnar
„Reglurnar um innflutning á mat-
vælum eru hins vegar mjög gamlar
og einnig bannið við innflutningi á
hráum vörum,“ segir Halldór. „Þeg-
ar mest bar á gin- og klaufaveikinni
í Bretlandi árið 2001 töldum við
ástæðu til þess að skerpa línurnar
dálítið og það var gert í góðu sam-
starfi við tollgæsluna í Keflavík. Við
óskuðum eftir því að tollgæslan
myndi reyna að herða eftirlitið
nokkuð en reglunum var ekki breytt
vegna þess. Embættin auglýstu
einnig í sameiningu í dagblöðunum
þegar þetta var til þess að upplýsa
almenning um málið.“
Aðspurður segir Halldór að það
sé alls ekki svo, eins og sumir virð-
ast halda, að enginn raunverulegur
tilgangur sé með reglunum um inn-
flutning á hráum vörum. „Ég get
nefnt sem dæmi að nú eftir áramót-
in hefur Evrópusambandið sett
sams konar reglur og hér eru í gildi,
þ.e. að banna ferðamönnum frá svo-
kölluðum þriðju löndum að koma
með hrátt kjöt og hráa osta. Það má
því segja að sambandið sé að reyna
að koma sínum málum í sama far-
veg og við. Það útheimtir væntan-
lega gífurlegt eftirlit fyrir ESB að
fylgja þessu eftir og þeir hafa vita-
skuld ekki lagt út í slíkt að ástæðu-
lausu.
Þeir vita sem er að gin- og klaufa-
veikin kom til Bretlands með hráu
kjöti þannig að menn eru í þessu
efni að fást við raunverulega
hættu.“
Halldór tekur fram að þótt fólk
kunni að halda að það sé ef til vill
fjarrænn möguleiki að smit berist
með innflutningnum sé þó ævinlega
sú hætta fyrir hendi að matvara geti
með einhverjum hætti endað ofan í
dýrum. „Þetta er því ekki bara ein-
hver sérviska hjá okkur heldur er
það hið almenna vísindalega álit að
smit geti borist með þessum
vörum.“
Halldór segir það ekki aðalatriði í
þessu sambandi hvort líkurnar á
smiti séu frekar litlar, litlar eða
hverfandi litlar heldur hitt að hætt-
an sé til staðar.
Nýjar reglur um innflutning ferða-
manna á matvælum til landsins
Sektir ekki að
ósk yfirdýra-
læknis
NEFND, sem samgönguráðherra
skipaði til að fjalla um samgöngur
yfir Breiðafjörð, leggur til að hent-
ugra skip verðir fengið í stað
Breiðafjarðarferjunnar Baldurs. Er
lagt til að Vegagerðinni verði falið
að kanna strax grundvöll fyrir
mögulegri endurskoðun á núver-
andi samningi við Sæferðir hf. um
rekstur Baldurs, með það að mark-
miði að Sæferðir leggi til hentugra
skip og leigi Vegagerðinni.
Reynist þetta vera mögulegt er
lagt til að hafnar verði samninga-
viðræður við Sæferðir og látið
reyna á hvort viðunandi niðurstaða
náist með hliðsjón af kostnaði,
bættri þjónustu og að teknu tilliti til
líklegs söluverðmætis Baldurs.
Nefndin segir að ef ekki fáist við-
unandi niðurstaða fyrir ríkissjóð í
viðræðum við Sæferðir leggi hún til
að núverandi Baldur verði rekinn
áfram með svipuðum hætti og gert
er nú.
Bílferja áfram allt árið
Er það mat nefndarinnar að mið-
að við áætlanir í vegagerð sé óhjá-
kvæmilegt að reka bílferju árið um
kring yfir Breiðafjörð næstu 5 til 7
árin.
Nefndin telur að þegar rekstri
bílferju yfir Breiðafjörð allt árið
verður hætt verði áfram hægt að
reka ferju, jafnvel án rekstrar-
styrks, í 3–4 mánuði á ári sem þjóni
ferðamönnum á leið yfir fjörðinn
eða til og frá Flatey. Þegar heils-
ársvegur verði kominn við norðan-
verðan Breiðafjörð skyldi samt að
mati nefndarinnar huga að því að
halda áfram ferjuflutningum yfir
fjörðinn að sumarlagi með hags-
muni ferðaþjónustunnar að leiðar-
ljósi.
Loks leggur nefndin til, í ljósi
mikilvægis ferjunnar fyrir atvinnu-
líf og íbúa á sunnanverðum Vest-
fjörðum, að ferðum í vetraráætlun
Baldurs verði fjölgað frá og með 1.
febrúar nk. og inn í vetraráætlunina
bætist tvær aukaferðir á viku þang-
að til sumaráætlun taki gildi 1. júní.
Í sumar verði lagt mat á breytta
áætlun og teknar ákvarðanir um
framhaldið með hliðsjón af reynslu.
Til skoðunar að kaupa
nýtt skip í stað Baldurs
Nefnd á vegum samgönguráðherra vill fjölga ferðum
Breiðafjarðarferjunnar frá 1. febrúar
Braut rúðu
í skart-
gripabúð
LÖGREGLAN í Reykjavík
handtók karlmann í fyrrinótt
fyrir að brjóta rúðu í skart-
gripaverslun við Skólavörðu-
stíg. Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar sagðist maðurinn
hafa verið að leita sér að næt-
urstað og fékk hann einn slíkan
í fangageymslum lögreglu. Um
eignaspjöll er að ræða þar sem
engu var stolið úr versluninni.