Morgunblaðið - 28.01.2003, Side 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
14 ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
EINN AF sjóðum Kaupthing
Bank í Danmörku, sem fjárfestir í
íslenskum ríkisskuldabréfum, bar
hæstu ávöxtun skuldabréfasjóða í
Danmörku árið 2002, eða 18,3%.
Peter Fritz Nielsen sjóðsstjóri
segir að um tvo þriðju hluta ávöxt-
unarinnar megi rekja til gengis-
hækkunar skuldabréfanna; afgang-
inn til gengishækkunar íslensku
krónunnar, en í byrjun árs fengu
Danir um 9,05 danskar krónur fyr-
ir hverjar 100 íslenskar, samanbor-
ið við 8,30 í byrjun árs 2002.
Sjóður Kaupþings varð annar í
röðinni ef allir verðbréfasjóðir
Danmerkur eru taldir með. Alls
nema eignir sjóðsins um 1,5 millj-
örðum íslenskra króna, í íslenskum
ríkisskuldabréfum og húsbréfum.
Aðspurður segist Peter Fritz ekki
búast við að áhugi á íslenskum
skuldabréfum verði almennur á
næstunni, en fagfjárfestar séu þó
ætíð á höttunum eftir góðum fjár-
festingarkostum.
„Við notum auðvitað hvert tæki-
færi til að benda viðskiptavinum á
fjárfestingartækifæri á Íslandi, en
það er ljóst að vaxtastig á Íslandi
er nú orðið litlu hærra en í Noregi.
Þegar vextir á Íslandi voru 9%
voru fjárfestingar þar mjög aðlað-
andi, en núna er vaxtastigið á svip-
uðum nótum og hjá Norðmönnum,
þótt raunstýrivextir séu heldur
hærri á Íslandi,“ segir hann.
Áhyggjur af krónunni
Peter segir þó að stórir fjár-
festar óttist smæð íslenska mark-
aðarins. „Þeir hafa áhyggjur af
seljanleika skuldabréfanna, þrátt
fyrir að hann hafi stór batnað. Þá
benda þeir á að íslenska krónan sé
brothætt og gengi hennar hafi
sveiflast mikið í gegnum tíðina,“
segir hann.
Íslensk skuldabréf gefa
góða ávöxtun í Danmörku
Somerfield
kemur á
óvart
GENGI hlutabréfa í bresku
stórmarkaðakeðjunni Somer-
field hefur hækkað um fimmt-
ung síðustu viku, í kjölfar til-
kynningar fyrirtækisins um að
sala á fyrri helmingi reiknings-
ársins hefði verið framar von-
um. Baugur keypti sem kunn-
ugt er 2,95% hlut í fyrirtækinu
rétt fyrir jól. Þá var markaðs-
virði hlutarins um 1,5 milljarð-
ar króna, en gera má ráð fyrir
að það hafi ekki hækkað jafn-
mikið í íslenskum krónum og
ætla skyldi miðað við gengis-
þróun bréfa fyrirtækisins,
vegna hækkunar á gengi krón-
unnar.
Um leið og fréttir bárust af
batnandi afkomu Somerfield
byrjuðu hlutabréfasérfræðing-
ar í London að orða fyrirtækið
við mögulegan samruna á smá-
sölumarkaði. Nú stendur yfir
barátta um yfirráð yfir Safe-
way og talið er að smærri mat-
vörukeðjur á borð við Somer-
field geti hagnast á breytingum
í greininni.
Afkomuviðvörun
í október
Æðsti yfirmaður Somerfield,
Alan Smith, hætti hjá fyrirtæk-
inu fyrir þremur mánuðum og
um leið var gefin út afkomuvið-
vörun. Stjórnarformaður fyrir-
tækisins, John von Spreckel-
sen, tók við daglegri stjórn þess
og lofaði að gera sitt til að bæta
reksturinn. Hagnaður fyrri
hluta reikningsársins, sem end-
aði 9. nóvember, nam 7,9 millj-
ónum punda, samanborið við 6
milljóna punda spá sérfræð-
inga.
HAGNAÐUR Sparisjóðs Kópavogs
á árinu 2002 nam 27 milljónum
króna, samanborið við 91 milljónar
króna tap á árinu 2001. Vaxtatekjur
drógust nokkuð saman, úr rúmum
1.300 milljónum í rúmlega 960 millj-
ónir, en vaxtagjöld lækkuðu á móti,
um 260 m.kr. Hreinar vaxtatekjur
námu 353 milljónum, en voru 440
m.kr. 2001.
Aðrar rekstrartekjur jukust um
tæpar 50 milljónir króna, en önnur
rekstrargjöld minnkuðu um 158
milljónir króna. Hagnaður fyrir
skatta nam 32 milljónum króna, en
að frádregnum 5 milljóna króna
tekjuskatti var hann sem fyrr segir
27 milljónir króna. Árið áður var tap
fyrir skatta 164 milljónir króna og 91
milljón að meðtöldum tekjuskatti.
Kröfur á lánastofnanir fjórfölduð-
ust milli ára og numu 1,1 milljarði ár-
ið 2002, samanborið við 245 milljónir
árið 2001. Skuldir við lánastofnanir
minnkuðu um 68%, niður í 430 m.kr.
Framlag í afskriftarreikning útlána
var 85 milljónir króna, eða 66%
minna en í fyrra. Eigið fé sparisjóðs-
ins nam 687 milljónum króna í lok
ársins og CAD-hlutfall var 12%.
Víðtækar ráðstafanir í rekstri
Í tilkynningu frá sparisjóðnum
segir að afkoma SPK á árinu hafi að
mestu leyti verið í samræmi við
væntingar. „Sparisjóðurinn hefur
verið að vinna sig út úr erfiðleikum
sem meðal annars mátti sjá í rekstr-
arreikningi hans fyrir árið 2001. Á
árinu 2002 hefur verið unnið að víð-
tækum ráðstöfunum til að bæta af-
komuna á næstu árum,“ segir í til-
kynningunni.
SPK með 27 millj-
ónir í hagnað
!
"#$
% &
%&
'(
(
)
(
'(
(*
""
&
$
#
$
"
!&#
$"
"
#"
#! KAUP umfram sölu á erlendum
verðbréfum námu 25,5 milljörðum
króna í fyrra. Þetta er mun hærri
upphæð en árið áður, þegar nettó-
kaup erlendra verðbréfa námu 3,7
milljörðum króna, en lægri upphæð
en árið 2000, þegar kaupin námu 40,5
milljörðum króna.
Í samantekt tölfræðisviðs Seðla-
bankans um erlend verðbréfakaup
segir að athygli veki að um 74% af
nettókaupum ársins 2002 hafi fallið
til á seinni helmingi ársins. Fram
kemur að svo virðist sem innlendir
fjárfestar hafi verið þeirrar skoðun-
ar um mitt árið að skammt væri í það
að botninum væri náð á erlendum
hlutabréfamörkuðum. Stofnanafjár-
festar, sem hafi haldið aftur af er-
lendum fjárfestingum árið 2001,
meðal annars vegna veikrar krónu,
virðist hafa sett meiri kraft í kaupin
eftir mitt ár.
Mest keypt af
hlutdeildarskírteinum
Megnið af erlendu verðbréfakaup-
unum í fyrra var í hlutdeildarskír-
teinum í erlendum verðbréfasjóðum,
en nettókaup í þeim námu 21,7 millj-
arði króna í fyrra. Árið á undan voru
þau neikvæð um 1,9 milljarða króna
en jákvæð um 35,2 milljarða króna
árið 2000. Nettókaup í hlutabréfum
voru jákvæð öll þessi ár, um 2,1 millj-
arð króna í fyrra, 5,7 milljarða króna
árið 2001 og um 9,9 milljarða króna
árið 2000.
Nettókaup erlendra skuldabréfa
námu 1,7 milljörðum króna í fyrra,
en sala umfram kaup nam 60 millj-
ónum króna árið áður og 3,4 millj-
örðum króna árið 2000.
Mikil aukn-
ing erlendra
verðbréfa-
kaupa
HAGNAÐUR Nýherja hf. á síðasta
ári nam 107 milljónum króna, en árið
áður var félagið rekið með 55 millj-
óna króna tapi. Batinn milli ára er
því 162 milljónir króna. Fyrir skatta
er batinn meiri, 264 milljónir króna,
en í fyrra var tekjuskattur jákvæður
í rekstrarreikningi félagsins.
Batinn skýrist að verulegu leyti af
aukinni sölu á vörum og þjónustu og
bættu hlutfalli vörunotkunar og
kostnaði við selda þjónustu á móti
tekjum af seldum vörum og þjón-
ustu. Sala á vörum og þjónustu jókst
um 11% á milli ára og vöru- og þjón-
ustunotkunarhlutfall lækkaði úr
63,6% í 62,5%. Hlutfall hagnaðar fyr-
ir afskriftir, af veltu, hækkaði úr
2,3% í 5,2% milli ára.
Önnur skýring batans er að fjár-
magnsgjöld lækka um tæpar eitt
hundrað milljónir króna á milli ára,
aðallega vegna þess að gengistap
snerist yfir í gengishagnað og að
vaxtakostnaður lækkaði.
Hagnaður síðasta fjórðungs
minnkar milli ára
Ef aðeins er litið á síðasta fjórð-
ung ársins dróst hagnaður saman
milli ára, fór úr 30 milljónum króna á
síðasta ársfjórðungi 2001 í 24 millj-
ónir króna í fyrra. Hagnaður fyrir af-
skriftir var 51 milljón króna í fyrra,
sem er 13 milljónum króna lægri
upphæð en á sama tímabili árið 2001.
Í tilkynningu frá Nýherja segir að
félagið og dótturfélög þess hafi á síð-
asta ári hafið útflutning á vöru og
þjónustu til viðskiptavina í Bretlandi
og á Norðurlöndum. Tekjur hafi ein-
ungis numið 60 milljónum króna, en
afkoman hafi verið viðunandi. Þá
hafi starfsemi dótturfélaganna
Klaks og SimDex eflst og afkoma
þeirra hafi verið jákvæð.
Heildareignir drógust lítillega
saman og voru tæpir 2,5 milljarðar
króna um áramótin. Veltufjárhlutfall
stóð nánast í stað milli ára, fór úr
1,48 í 1,47. Eiginfjárhlutfall hækkaði
úr 49% í 53% milli ára.
Ekki gert ráð fyrir batnandi
markaðsaðstæðum
Þrír hluthafar eiga yfir 10% hlut í
Nýherja; Sjóðir í vörslu BÍ með
20,1% hlut, Vogun með 16,5% og
Sjóvá-Almennar með 10,4%.
Í tilkynningunni segir að markað-
ur fyrir vöru og þjónustu upplýs-
ingatæknifyrirtækja hafi verið erfið-
ari á árinu 2002 en árin þar á undan.
Ekki sé gert ráð fyrir að markaður-
inn verði betri á þessu ári, en Ný-
herji geri ráð fyrir að halda stöðu
sinni á markaðnum.
Ársuppgjör Nýherja hf. 2002
107 milljóna
króna hagnaður
!!"#
+ +
,
((
, ((
)
'(
(*
)
(
$%&
$'(
* , '(
( , -
((
( ,
)
(
(, .
"""!
"!
#
%#&
#
$&
&!/ 0
/ 0
!"!
#&
#!
!#
!
!!
!$$
"
"/0
%/0
!!!
#! TAP Íslenska hugbúnaðarsjóðsins
nam 363 milljónum króna á síðasta
ári, en árið áður var tapið 1.589 millj-
ónir króna. Inni í þessum tölum er
óinnleyst tap af verðbréfaeign. Það
nam í fyrra 85 milljónum króna, en
1.464 milljónum króna árið 2001.
Verðbréfaeign skiptist í skráð hluta-
bréf og óskráð hlutabréf og skulda-
bréf. Í fyrra var 307 milljóna króna
óinnleystur gengishagnaður af
skráðu hlutabréfunum en 392 millj-
óna króna óinnleyst gengistap af
óskráðu verðbréfunum.
Í fyrra var fyrsta heila starfsár Ís-
lenska hugbúnaðarsjóðsins eftir að
hann hóf sjálfstæðan rekstur í apríl
2001. Stækkun félagsins árin 2001 og
2002 nam 1,5 milljörðum króna
vegna yfirtöku eignasafna. Eigna-
söfnin koma frá Nýsköpunarsjóði at-
vinnulífsins, Landsbankanum Fjár-
festingu, Talentu Hátækni, Talentu
Interneti og Landssíma Íslands.
Í framhaldi af þessu hefur eig-
endasamsetning Íslenska hugbúnað-
arsjóðsins breyst og nú er Landssími
Íslands stærsti hluthafinn með rúm-
lega 15% hlut. Næstur er ÍSB eign-
arhaldsfélag, líka með rúmlega 15%
hlut, Nýsköpunarsjóður atvinnulífs-
ins á tæplega 15% hlut, Landsbanki
Íslands 13%, en aðrir hluthafar eiga
innan við 10%.
Ellefu kjarnafélög
Ellefu félög sem Íslenski hugbún-
aðarsjóðurinn á hlut í eru skilgreind
sem kjarnafélög sjóðsins. Þetta eru
CCP, Dimon Software, GoPro Land-
steinar Group, Landmat Inter-
national, Maskina, Menn og mýs,
Smart VR, Stefja, Taugagreining,
Tölvumyndir og Veðvörur.
Í fréttatilkynningu frá Íslenska
hugbúnaðarsjóðnum kemur fram að
afkoma félaga í eignasafninu batni
og fjárþörf þeirra á þessu ári sé
óveruleg, aðeins talin í tugum millj-
óna. Áhersla hafi verið lögð á bættan
rekstur, sem hafi skilað sér í veru-
legum umsnúningi í rekstri og nemi
hann að líkindum um tveimur millj-
örðum króna fyrir kjarnafélögin ell-
efu og hærri upphæð ef litið sé til
allra félaganna í eignasafninu.
Í tilkynningunni segir einnig að
forráðamenn félagsins telji að staða
kjarnafyrirækja sjóðsins sé tiltölu-
lega góð þrátt fyrir erfiðar aðstæður
í fyrra. Þá kemur fram að með
stækkun sjóðsins hafi hann styrkst
og sé vel búinn undir að takast á við
verkefni þessa árs. Fjárhagsstaðan
hafi breyst mikið, um síðustu áramót
hafi félagið átt 450 milljónir króna í
handbæru fé, en á sama tíma ári áð-
ur hafi skuldir numið röskum 300
milljónum króna.
Ársuppgjör
Íslenska hugbúnaðarsjóðsins
363 milljóna
króna tap
)(#!
*+ 1 , +
) 2 -
, (
3( .
"
# $
'(
(
'(
(*
)
(
$#
$'(
1
4* , '(
( , -
% $
!
%!$$
% &
!
!#
!
%$
/&0
%$!
$
!
$
%!&
%""
! %
!
#!
% "
$ /$0
#! Hunter
hættir við
tilboð í
House of
Fraser
SKOSKI athafnamaðurinn
Tom Hunter hefur fallið frá því
að leggja fram formlegt yfir-
tökutilboð í bresku verslunar-
keðjuna House of Fraser
(HoF).
Hunter hefur verið á höttun-
um eftir HoF í sex vikur. Fyrir
um tveimur vikum samþykktu
stjórnendur HoF svo að senda
fulltrúa sinn á fund með fjár-
málaráðgjafa Hunters.
FT hefur eftir Hunter að
stjórnendur HoF hafi ekki ver-
ið til viðræðu um tilboð hans
um 85 pens á hlut í HoF, eða
um 197 milljónir sterlings-
punda. Því hafi hann ákveðið að
hætta við að leggja fram form-
legt tilboð.
Nefnd sem hefur með yfir-
tökur á verðbréfamarkaði í
Bretlandi að gera hafði gefið
Hunter frest til hádegis á föstu-
dag, annað hvort að leggja fram
formlegt tilboð í HoF eða hætta
við ella.
Samkvæmt lögum um yfir-
tökur í Bretlandi hefur Hunter
ekki heimild til að leggja aftur
fram yfirtökutilboð í HoF fyrr
en í fyrsta lagi eftir sex mánuði.
Hunter á 7% hlut í HoF en
Baugur-ID, sem á 8%, hafði
lýst yfir stuðningi við yfirtöku
Hunters á félaginu.
Haft er eftir talsmanni
Baugs á AFX-fréttastofunni að
ákvörðun Hunters valdi von-
brigðum og að svo virðist sem
stjórnendur HoF séu ekki að
vinna með hagsmuni hluthafa
félagsins í huga.