Morgunblaðið - 28.01.2003, Page 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2003 15
VERÐ á matvælum myndi lækka
mikið í Noregi gerðust landsmenn
aðilar að Evrópusambandinu (ESB).
Sérfræðingar telja sumir hverjir að
verð á matvælum yrði svipað og í
Svíþjóð, að því er segir í norska dag-
blaðinu Aftenposten í gær.
Þessir útreikningar eru byggðir á
könnun sem Evrópusambandið lét
gera á matvælaverði í Evrópu árið
2001. Samkvæmt henni var mat-
vælaverðið í Noregi 35% hærra en í
Svíþjóð. Fjögurra manna fjölskylda í
Noregi eyðir nú 6.000 krónum í mat
á mánuði hverjum að meðaltali en
það svarar til 68.000 íslenskra króna.
Norskir sérfræðingar telja að
matvælaverðið myndi lækka um
30% í Noregi gengju Norðmenn í
Evrópusambandið. Sparnaðurinn
fyrir hverja fjögurra manna fjöl-
skyldu yrði því 22.000 norskar krón-
ur eða rúmar 250.000 íslenskar á ári.
Normann Aanesland, sem starfar
við Norska landbúnaðarháskólann,
er einn þeirra norsku sérfræðinga
sem telja að algjör umskipti á sviði
matvælaverðs myndu fylgja aðild að
Evrópusambandinu. Hann kveðst
sannfærður um að verðið yrði svipað
í Noregi og í Svíþjóð, sem á aðild að
ESB. Innflutningur myndi aukast
og hann yrði ódýrari auk þess sem
ESB-aðild myndi stuðla að skilvirk-
ari framleiðslu á landbúnaðarvörum
í Noregi.
Hagfræðiprófessorinn Rolf Jens
Brunstad er þessu sammála en hann
starfar við Norska verslunarháskól-
ann. Bendir hann m.a. á að aukin
samkeppni á sviði matvöruverslunar
myndi fylgja ESB-aðild Noregs.
Samkeppni á því sviði sé mun meiri í
ríkjum ESB en í Noregi.
Nils-Kristian Nersten, markaðs-
stjóri rannsóknastofnunar norska
landbúnaðarins, kveðst ekki jafn
öruggur um að norskir neytendur
gætu leyft sér að vonast eftir sam-
bærilegu verðlagi og í Svíþjóð. Hann
segist hins vegar viss um að mat-
vöruverð myndi lækka verulega
bættust Norðmenn í hóp ESB-
þjóða.
Sigbjörn Gjelsvik, leiðtogi sam-
taka andstæðinga Evrópusam-
bandsaðildar, segist einnig þeirrar
hyggju að matvælaverð myndi
lækka í Noregi við ESB-aðild. Hins
vegar sé það ekki nauðsynlega svo
að slíkt sé æskilegt. Með ESB-aðild
myndu Norðmenn þurfa að taka upp
aðra landbúnaðarstefnu. Sú land-
búnaðarstefna sem nú sé fylgt sé
niðurstaða sem njóti víðtæks póli-
tísks stuðnings.
Matvælaverð gæti
lækkað um þriðjung
Norskir sérfræðingar sammála um að verð á matvöru
myndi lækka verulega við inngöngu í Evrópusambandið
BREZKI sagnfræðingurinn Hugh
Trevor-Roper, sérfræðingur í sögu
Þriðja ríkisins sem átti þátt í að færa
sönnur á að Adolf Hitler hefði stytt
sér aldur en varð síðar fyrir orðstírs-
missi fyrir að leggja nafn sitt við fals-
aðar dagbækur „Foringjans“, lézt á
sjúkrahúsi í Oxford á sunnudag, 89
ára að aldri.
Trevor-Roper komst í heimsfrétt-
irnar í apríl 1983, er hann vottaði op-
inberlega að meintar dagbækur
Hitlers væru ekta. Hann hafði aðeins
fengið að líta á „dagbækurnar“ í
bankahólfi í Sviss og hafði víst vissar
efasemdir um að þær væru ófalsað-
ar, en lýsti þeim of seint – fréttin um
að hann hefði vottað að þær væru
ekta var komin í fjölmiðla um víða
veröld.
Trevor-Roper vann fyrir brezku
leyniþjónustuna í síðari heimsstyrj-
öld og varð sérfræðingur í njósna-
neti Þjóðverja. Hann rannsakaði síð-
ar hvarf Hitlers og sýndi fram á að
hann hefði svipt sig lífi í apríl 1945.
Hann gerði bók úr skýrslu sinni,
„Síðustu dagar Hitlers“, sem varð
metsölubók og þýdd á mörg tungu-
mál.
Hugh Trev-
or-Roper
látinn
Lundúnum. AFP.
EIN kona lést og sex slösuðust er
öflugur jarðskjálfti varð í Pulumur
í héraðinu Tunceli í Austur-Tyrk-
landi í gær. Átti hann upptök sín á
þessum slóðum og var styrkleiki
hans 6,5 á Richter. Hér er kennari
að skoða skemmdir á skóla en tvö
börn slösuðust nokkuð er þau
stukku út úr honum ofsahrædd.
Þannig var það líka með aðra, sem
slösuðust, að þeir meiddust er þeir
forðuðu sér út úr húsi. Konan sem
lést varð undir húsinu er það
hrundi.
AP
Harður skjálfti í Tyrklandi
RÍKISSTJÓRNIR Evrópusam-
bandslandanna fimmtán hafa sam-
þykkt tillögur um lækkun tolla á
landbúnaðarvörur um 36%, sem lið í
tilboði ESB fyrir nýja lotu viðræðna
um frjálsari alþjóðaviðskipti.
Utanríkisráðherrar aðildarríkj-
anna ákváðu þetta á fundi sínum í
Brussel í gær, eftir að fulltrúar
Frakklands og Írlands féllu frá þeim
fyrirvörum sem þeir höfðu lýst gegn
tillögunum.
Fulltrúar ESB munu nú leggja til-
boðið fyrir Heimsviðskiptastofn-
unina, WTO, í sambandi við þá lotu
viðræðna um aukið frelsi í alþjóða-
viðskiptum sem hleypt var af stokk-
unum í Doha í Katar í fyrra.
Tilboð ESB fylgir í kjölfar harðrar
gagnrýni af hálfu útflytjenda í þró-
unarlöndum á niðurgreiðslu- og
styrkjakerfi landbúnaðarins í ESB,
sem þeir telja skaða mjög sína hags-
muni. ESB bindur þó tilboð sitt við
að stjórnvöld í Bandaríkjunum, Kan-
ada og Ástralíu fallist á hliðstæðar
aðgerðir af sinni hálfu.
Samkvæmt ESB-tillögunum ættu
þessar ríku þjóðir sem framleiða
mikið af landbúnaðarafurðum að
leggjast á sveif með ESB-löndunum
um að skera niður útflutningsbætur
um 45% og innlenda framleiðslu-
styrki, sem eru álitnir skekkja sann-
gjarna samkeppni í viðskiptum með
landbúnaðarvörur, um 55%.
ESB undirbýr viðskiptaviðræður
Tilboð um mikla
lækkun tolla
Brussel. AP.